Tíminn - 10.10.1964, Síða 8
Ilftlilllffi
;
: : '
form. á síðasta aðalf.
tTmTnN, laugardaginn 10. otoóber 19é4 —
1 V"T ' 1 ÆSKUIS JNAF i ' ffilillllif; j ÆSKUNNAR j
OTGEFANDI: samband ungra framsoknarmann a Ritstjóri- Elias Snæland Jónsson.
Þróttmikið starf FUF í Reykjavík
Aðalfundnr Félags ungra Framsóknarmanna I Reykjavík var hald-
fnn að Tjamangötu 26 s.l. miðvikudag. Steingrímur Hermannsson, sem
verið hefur formaður félagsins undanfarin tvö ár, lét nú af því starfi,
en í hans stað var Tómas Karlsson kjörinn formaður.
Steingrfmur setti fundinn, og
tilnefndi sem fundarstjóra Má Pét-
ursson og fundarritara Baldur
Óskarsson. Þessu næst var gengið
til dagskrár, og fara hér á eftir
helztu atriðin úr skýrslu for-
manns.
Fráfarandi formaður félagsins,
Steingrfcnur Hermannsson, gerði
grein fyrir starfsemi Félags ungra
Framsóknarmanna í Reyk-javik á
síðastliðnu starfsári.
Stjóm sú, sem kosin var á síð-
asta aðalfundi skipti þannig með
sér verkum:
Steingrímur Hermannsson,
formaður
Ragnar Gunnarsson,
Varaformaður
Theódór A. Jónsson,
ritari
Sigjþór Jóhannsson,
gjaldkeri
Kári Jónasson,
fjármálaritari
Ingibjörg Jóhannsdóttir,
spjaldskrárritari
og meðstjómendur þau
Hjördís Einarsdóttir
Bjami Bender
Halldóra Sveinbjörnsdóttir
Már Pétursson
10. ÞINGIÐ VILL:
Að ráðstefna
verði haldin
um stjórnar-
skrá íslands
og um skipulag og
starfshætti sRmvinnu-
félaganna
EFTIRFARANDI tillaga var
samþykkt á 10. þingi SUF,
sem haldið var á Blönduósl í
siðasta mánuði:
„10. þing SUF beinir þeirrl
áskorun til sambandsstiórn-
ar, að hún beiti sér fyrir því
að haldin verði ráðstefna
Framsóknarmanna um endur-
skoðun stjórnarskrárinnar. —
Leggur þingið áherzlu á, að
Framsóknarflokkurinn hafi
forgöngu í þessu máli og að
á ráðstefnunni verðl kjörin
nefnd tll að undirbúa tillögur
um breytingar á stjórnarskrá
lýðveldisins".
Einnig samþykkti 10. þing-
ið, að fela sambandsstjórn
að efna til ráðstefnu um
skipulag og starfshættt sam.
vinnufélaganna.
, Formaður skýrði frá því, að
i bridgeklúbbur félagsins hefði
: starfað með miklum blóma á síð-
astliðnum vetri. Almennir félags-
fundir voru 5, og. voru umræðu-
efnin þar: Húsnæðismálin, endur.
reisn efnahagskerfisins, jafnvægi
í byggð landsins, vinnuhagræðing
og endurskipulagning kennslukerf-
isins. Voru fundir þessir allir vel
heppnaðir. f apríl var haldin mjög
góð ráðstefna um þjóðarbúskap-
inn, skipulegan hagvöxt og upp-
byggingu atvhmuveganna.
Tvær kvöldskemmtanir voru
haldnar í súlnasal Hótel Sögu og
voru þær mjög fjölsóttar og kom-
ust færri að en vildu.
i i u uuum unui i vi i y rv | ci vii\,
í lok júnímánaðar efndi félagið
til Kaupmannahafnarferðar. Þátt-
takendur urðu 102 og mun það
vera fjölmennasta hópferð til út-
landa, sem héðan hefur verið far-
in. Heppnaðist ferð þessi mjög vel
og taldi formaður, að hún hafi
verið félaginu mjög til sóma.
Formaður ræddi ítarlega um
unglingaklúbb F.U.F., sem komið
var á fót á starfsárinu í þeim til-
gangi að veita unglingum á aldr-
inum 14—18 ára aðstöðu til heil-
jbrigðra skemmtana og kynninga.
Starfsemi þessi gekk mjög vei
framan af, og sátu á annað hundr-
að unglinga starfsemi klúbbsins,
en þrátt fyrir að þess væri vand-
lega gætt að tengja klúbbinn ekki
stjórnmálastarfinu, hófu stjórn-
málaandstæðingar, og þá sérstak-
lega Morgunblaðið, upp skipulagða
herferð gegn þessari heilbrígðu
félagsstarfsemi unglinganna með
TÓMAS KARLSSON
STEINGRÍMUR HERMANNSSON
HERMANN JÓNASSON
þeim afleiðingum, að starfsemin
lagðist smám saman niður. Taldi
formaður sjálfsagt að endurvekja
klúbbinn á einhvern hátt.
Formaður ræddi síðan um
þátttöku félagsins í auglýsinga-
blaði, happdrætti og sérstaklega í
félagsheimili því, sem Framsókn-
arfélögin í Reykjavík hafa nú
keypt.
Að lokum ræddi formaður í
nokkrum almenum orðum um hið
ágæta samstarf við fráfarandi
stjórn félagsins. sem hann kvað
hafa einkennzt af félagslegum
þroska, þar sem markmiðið og
meginmálefnin hefðu ávallt verið
látin ráða fremur en skiptar skoð-
anir um smáatriði. Þakkaði hann
ágætt samstarf og óskaði nýrri
stjórn heilla í starfi
Sigþór Jóhannsson gjaldkeri,
flutti þessu næst skýrslu sína, og
bar hún með sér að fjárhagur fé-
lagsins stendur traustum fótum.
Að loknum skýrslum formanns og
gjaldkera, var gengið til stjórnar-
kjörs, og eiga þessir sæti í stjórn
félagsins fyrir næsta starfsár:
Tómas Karlsson formaður, og
meðstjórnendur: Sigþór Jóhanns-
son, Bjarni Bender, Baldur Ósk-
arsson, Halldóra Sveinbjörnsdótt-
ir, Daníel Halldórsson, Már Pét-
ursson, Margrét Jónsdóttir, Þórir
Gunnarsson og Erlingur Bertels-
son. Stjómin mun síðan skipta
:með sér verkum á fyrsta stjórnar
fundinum. f varastjórn eiga sæti
þeii Dagur Þorleifsson, Haukur
Framhald á bls. 13.
Fyrsfi fundur nýkjörinnar SUF-sfjðrnar
MYNDIN hér að ofan var tekin á fyrsta stjórnarfundi hinnar nýkjörnu stjórnar
Sambands ungra Framsóknarmanna og á hennj eru í fremri röS frá vinstri: Theo-
dór A. Jónsson, Ingi B. Ársælsson fjármálaritari, Elías Snæland Jónsson ritari, Örlygur Hálfdánarson formaSur, Jón A. Ólafsson varaformaSur,
Jón Arnþórsson gjaldkeri og Tómas Karlsson vararitari. í efri röð frá vinstri: Björn Teitsson, Gunnar GuSmundsson, Jónas Jónsson, Eyjólfur
Eysteinsson spjaldskrárritari og erindreki SUF, Haildór Hjartarson og Bjarni Bender.