Alþýðublaðið - 24.12.1954, Síða 4
Kafli úr
yefrarleikir í Reykjavík um
endurminningum Árna Thorsteinssonar tónskalds
r JÓLAHALDIÐ á heimilun-
um var fábrey-ttara og íburð-
arminna í ungdæmi mínu -en
nú tíSkast. Þó held ég að
engu minna hafi verið hlakk-
að til jólanna í þá daga. Þau
voru eins og björt sólskins-
stund í löngu vetrarmyrkr-
inu; tendruðu birtu og yl,
bæði í híbýlunum og hugum
fólksins.
A bernskuárunum þekkti
ég að vísu lítið til jólahalds-
ins annars staðar en á heim-
ili foreldra minna og nánustu
kunningja. Undirbúningur
jólanna var með líkum hætti
og tíðkazt hefur á öllum tím-
um. Kvenfólkið stóð í bakstri
og matargerð — bakaðar voru
smjördeigstertur með sveskj-
um og þeyttum rjóma ofan á;
kleinur, jólakökur og sitthvað
fleira. Þá heyrðu og hrein-
gerningar til jólaúndirbún-
ingnum, því að allt þurfti að
fága og prýða áður en hátíð-y
in gekk í garð. En loks kom
að því að fólkið tók sér hvíid
og lagði frá sér vinnuna —-
rokkarnir voru þagnaðir og
tóvinnan lögð á hilluna í
bili.
Og svo kom aðfangadagui’-
inn.
Heima ríkti sú siðvenja, að
stundvíslega klukkan fjögur
var setzt til borðs og snæddur
hátíðaréttur. Var þá á borð-
um ýmislegt góðmeti, aðal-
rétturinn var steiktar rjúpur,
en á undan var borðaður
hnausþykkur grjónagrautur
með rúsínum. Síðan þykir
mér slíkur grautur mesta
lostæti, og minnir hann mig
alltaf á jólin heima.
Máltíðin stóð ekki yfir
nema um klukkustund, enda
fór þá að heyrast ómur Dóm-
kirkjuklukknanna, sem
hringdu til aftansöngs. For-
eldrar mínir fóru alltaf í
kirkju þetta kvöld, og feng-
um við krakkarnir að fylgj-
ast með eftir að við stálpuð-
umst. Flestir húsráðendur í
bænum fóru til kirkjunnar á
aðfangadagskvöldið og annað
fullorðið fólk, sem komið gat
því við. Var kirkjan því alltaf
troðfull út úr dyrum og
þrengslin og loftleysið svo
mikið, að oft kom fyrir, að
fólk væri borið út í yfirliði.
’Þegar mannfjöldinn var kom-
inn í kirkjuna varð andrúms-
loftið brátt mettað megnri og
súrri fúkkalykt, og stoðaði
ékkert þótt opnaðir væri
hlerarnir í kirkjuloftinu. Á
þessari hátíð fór fólkið í sín
þeztu sjaldhafnarföt, en hjá
sumum höfðu þau kannski
legið geymd niðri á kistu-
botni eða í rökum geynrslum
frá síðustu jólum og fúkkað
þar og jafnvel myglað. Má
því geta nærri, hvernig and-
rúmsloftið hefur orðið.
Og ekki voru þrengslin
minni við kirkjubrúðkaupin,
en þá var algengt að hjóna-
vígslur færu fram í kirkjunni.
Var þá oft þröng mikil við
kirkjudyrnar, og færri kom-
ust inn en vildu. Varð
kirkjuvörðurinn tíðum að
bægja fólkinu frá með harðri
hendi, en umsjónarmaður
kirkjunnar var þá Sigurður
gamli Jór.sson fangavörður,
og gekk hann með korða eða
' staí í hendi við slík ta>kifæri;
gaf snöggar og ákveðnar fyr-
irskipanir og otaði stafnum
framundan sér.
Einn var sá siður við guðs-
þjónustuna á aðfangadags-
kvöld, sem mjög' jók helgi
hennar og áhrif, en hann var
sá, að einhver af beztu söng-
mönnum bæjarins var feng-
inn til þess að tóna sérstakan
helgisiðasöng (ritual) framan
við grátur altarisins, og hélzt
þessi siður að minnsta kosti í
tíð Hallgríms Sveinssonar
meðan hann var dómkirkju-
prestur, en hvort svo varð
einnig eftir að hann varð
biskup, man ég ekki g'lögg'-
lega. Oftast féll það í hlut
Steingríms Johnsens, móður-
bróður míns, að tóna þetta
hátíðaritual við jólaguðsþjón-
ustuna, en hann var afburða
söngmaður og var meðal ann-
ars söngkennari við Lærða
skólann.
Þegar fólkið kom heim frá
. aftansöngnum var setzt að
kaffidrykkju og þótti okkur
krökkunum fullorðna fólkið
sýna óþarflega mikið seinlæti,
er það sat í makræði yfir
kaffibollunum. Tíminn frá
því farið var í kirkjuna og
þar 'til kaffidrykkjunni var
lokið, fannst okkur ákaflega
lengi að líða. Við höfðum
nefniíega nasaþef af því, að
inni í vestursíofri biði skreytt
jólatré, og ekki var ósenni-
. legt að kringum það væri rað-
að ýmsum fallegum gullum
og öðrum gjöfum. En stofan
var harðlæst allan aðfanga-
daginn, og fengum við ekki
að koma inn í þennan helgi-
dóm fyrr en um kvöldið.
Stundum var þó reynt að
kíkja gegnum skráargatið, og
fórum við nokkuð nærri um
það, hvað inni fyrir var. Það
hafði heldur ekki farið fram
hjá okkur, að gamla jólatréð
var horfið af háaloftinu, og
fyrir nokkrum dögum hafði
einhver verið að laumast með
lyng um húsið.
Grenitré fluttust ekki al-
mennt inn fyrr en löngu síð-
ar, og var jólatréð okkar
hennatilbúið eins og algengt
var á þessum árum. Var það
búið til úr langri stöng eða
spíru, sem í voru felldir
nokkrir pinnar, er kertm
voru látin standa á. Síðan var
það málað grænt og loks
skreytt með. lyngi um hver
jól. Eftir jólin var það svo lát-
ið upp á háaloít, og þar lá
það svipt, öllu skrauti til
næstu jóla.
Mildl vár sú hrifning, þeg-
ar sú stund rann upp, að
vesturstoían var opnuð. Þar
stóð þá jólatré á miðju gólfi
með tendruðum Ijósum, en
við fótstall þess lágu jólapakk-
ainir. Var nú byrjað að ganga
í kringum tréð og syngja jóla-
sálma áður en pakkarnir voru
opnaðir. Varð manni oft litið
til þeirra á meðan á sálma-
söngnum stóð, og hætt er við
að hugurinn hafi verið
bundnari þeim en sjálfum
jólasálmunum.
A aðfangadagskvöld voru
jafnan tveir gestir á heimili
foreldra minna, sem tóku þátt
í jólahaldinu með fjölskyld-
unni. Það voru þeir Sigurður
fræðari, sem kallaður var, en
hann var kennari á Seltjarn-
arnesi, og Steingrímur skáld
Thorsteinsson, föðurbróðir
*■—■—»—
■—*-+
'ARNI THORSTEINS-
SON tónskáld verður
hálfníræður næsta
haust. — Ingólfur
Kristjánsson, rithöf-
undur, vinnur nú að
því að skrifa endur-
minningar tónskáldsins
og munu þær koma út
á afmælisdegi þess.
Árni er enn daglega
meðal okkar á götum
bæjarins, léttur á fæti,
brosleitur, hár og
grannur og virðist ekki
kenna sér neins meins.
Fyrir nokkru var tón-
skáldið gestur Þjóð-
kórsins í útvarpssal.
Þar ræddi Páll Isólfs-
son við það —• og var
auðheyrt, að skáldið
ræður yfir lífsgleði og gáska, ekki síður en óður. Getur maður
og gert sér von um að endurminningarnar verði hinar
skemmti legustu. Þeir Ingólfur og Arni hafa góðfúslega leyft
Alþýðublaðinu að.birta í jólablaði sínu einn kafla endur-
minninganna: um jólahald og leiki í bernsku Arna, um 1830.
Árni Thorsteinsson.
stað styrjöld, ef svo bar und-
ir, en hernaðarfræðina sótti
maður í stóra myndabók, sem
til var heima frá stríðinu
1864 milli Dana og Þjóðverja.
Ymsar fleiri jólagjafir feng-
um við frá Steingrími, sem
okkur þótti veigur í, enda
voru þetta aoallega hlutir,
sem ekki sáust í verzlunum
hér.
Það var fastur liður í jóla-
haldinu heima, ao spilað væri
á 'spil, og stóð spilamennskan
oft fram á nætur. Var venju-
lega spilað „Háif-tólfj1 og
„Púkk“. Þegar sezt var að
spilunum fengu þeir eldri sér
toddýglas og kveiktu sér í
vindli, en okkur krökkunum
var gefið límonaði og annað
góðgæti.
Um jólin voru gagnkvæm-
ar heimsóknir milli frænd-
fólks cg vina, og voru jólaboð
tíðkuð þá engu síður en nú,
enda voru þau helztu jóla-
skemmtanirnar.
Mér eru alítaf minnisstæð
jóiaboðin heima hjá Hilmari
Réykjavtk mn 1880.
minn. Steingrímur var þá
kennari við Lærða skólann,
en kona hans dvaldist lengst
af í Danmörku og fluttist ekki
hingað fyrr en síðar. Var
Steingrímur því í fæði hjá
foréldrum mínum, en bjó
annars hjá afa og ömmu,
Bjarna amtmanni Torsteins-
son og Þórunni Hannesdótt-
ur, sem áttu hús við Austur-
völl, þar sem Landssímahús-
ið er nú.
Steingrímur fær'ði okkur
krökkunum alltaf skemmíi-
legar jólagjafir, og hlökkuð-
um við til að taka upp pakk-
ana frá honum. Venjulega
voru þetta ýmisskonar leik-
föng er hann hafði fengið
beijit frá Danmörku, og var
sumt af þessu mjög sjaldséðir
gripir hér.
Mér verour alltaf minnis-
stæ'tt, þegar Steingrímur kom
heim á aðfangadaginn. Þá
bar hann venjulega pakka og'
pinkla undir báðum höndum
og var jafnvel' með vasa sína
úttroona líka. Lagði hann
pakkana frá sér út í horn
frammi í forstoíu, og' þar lágu
þeir þar til búið var að
drekka kaffið eftir kvöld-
sönginn í kirkjunni, og' var
auðvitað harðbannað að
hnýsast í þá. Eiiki gátum við
þó setið á okkur að krunka
kringum pakkana og geta
okkur þess til, hvað í þeim
myndi vera. Nokkru 'áður en
kveikt var á jólatrénu hvarf
Steingrímur fram í fordyrið,
tók pakkana úr horninu,
gekk með þá gegnum skrif-
stofur föður míns inn í vest-
urstófu og lét þá við jóla-
tréð. Þegar inn kom rétti
hann hverjum sinn pakka, en
ekki var hann margorður um
leið og hann afhenti gjafirn-
ar; sagði aðeins: „Hnú, þetta
átt þú! — Og hnú, þetta átt
þú“, — og þannig' áfram. þar
til hann var búinn að afhenda
alla pakkana.
Mér er sérst.aklega minnis-
stæð ein gjöf frá Steingrími,
sem mikla aðdáun vakti
meðal jafnaldra minna og
vina, en það var lítil failbyssa
á fallbyssuvagni. Var hún
fagurbiá með all'a vega litum
línum, en hlaupið var loga-
gyllt. Fylgdu þessu „vopni“
einhvers kcnar oblátur, sem
settar voru í byssuna, og kom
þá hár hvellur og dálítill
reykur, þegar hleypt var af.
Eftir aö ég fekk þennan kjör-
grip var oft gestkvæmt
heima, því að strákar á reki
við mig voru sólgnir í að fá
að knalla úr byssunni. Við
Hannes bróðir minn áttum
líka mikið safn tindáta, m. a.
Indíánahermenn, svo að ekki
var lengi verið að koma af
Finsen landshöfðingja, en
þangað var okkur alltaf boö-
ið á jólunum meðan hann var
hér landshöfðingi. Þar sá ég
í fyi-sta sinn grenijólatré, og
var það svo stórt, að það náði
næstum til lofts í stofunni.
Frú Olufa Finsen, kona lands-
höfðingjans, var mjög músi-
kölsk, og var jafnan mikið
sungið á heimili þeii-ra hjóna.
Þá var og farið í ýmsa jóla-
leiki.
Opinberar skemmtanir
voru litlar sem engar um
jólaleytið, nema hvað skóla-
piltar Lærða skólans efndu
til leiksýningar í skólanum,
og buðu þeir til sýningarinn-
ar ýmsu bæjarfóiki.-
Það var ekki fyrr en löngu
síðar er Reykjavíkurklúbb-
urinn kom til sögunnar, að
farið var að halda jóla-
skemmtanir fyrir almenning,
en þessi klúbbur, sem eink-
um var skipaður embættis-
mönnum og verzlunarmönn-
um, efndi m. a. til jólatrés-
skemmtana fyrir börn, og
voru þær fyrst baldnar í
Klúbbhúsinu. sem svo var
nefnt, en þao var gamia
spítalahúsið við Kirkjustræti,
þar sem nú er hús Hjálpræð-
ishersins. Síðar hélt klúbbur-
inn skemmtanir sínar á Hótel
Alexandra, sem stóð við
Haínarstræti, en veit.inga-
4
ALÞYÐUBLAÐIÐ