Alþýðublaðið - 24.12.1954, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 24.12.1954, Qupperneq 6
Rannsóknarstöð fyrir norðurljós á hæsta tindi Esju Frósögn og fýsing „vísmdamannsins" og rithöfundarins Sophus Trom- holts í „Breve fra Ultima Thule" + • i i i f OKTÓBERMÁNUÐI áriS 1883 kom hingáð til lands Norð • maður að nafni Sophus Tromholt. Erindi hans hingað var að rannsaka norðurljósin. Arið áður hafði hann dvalið meðal Lappa í sama tilgangi, og nú vildi hann rannsaka hvemig hin dularfullu norðurljós höguðu sér á íslandi. Tromholt dvaldi hér fram á næsta sumar, en um veturinn gerði hann margvíslegar athuganir, hafði og ýms tæki með sér til mæl- inga á styrkleika ljósanna. Aðalframkvæmd hans hér var að setja upp nokkurskonar athuganastöð á hæsta hnúki Esju og fór hann þangað með staura, einangrara og allskonar þræði til að leiða ljósmagnið niður til annarra tækja, sem komið var fyrir við rætur fjallsins. — Tromholt skrifaði ferðabréf til danskra blaða og lýsti dvöl sinni hér, ferðalög- um og athugunum. Síðar gaf hann þessi bréf eða blaðagreinar út í bók, sem hann nefndi „Breve fra Ultima Thule“ og kom hún út í Randers í Danmörku árið 1885. Þama kennir margra grasa um ísland og íslenzka lifnaðarhætti. í bréfi, sem er dagsett 17. marz 1884 lýsir Sophus Tromholt leiðangri sínum og félaga sirrna upp á Esju. Er þessi frásögn allskemmtileg á köflum. — Tromholt mun hafa skilið allan útbúnað sinn eftih á fjallinu, en alkunnir ferðagarpar og Esjusérfræðingar kann- ast ekki við að hafa séð merki eftir nein mánnvirki á fjallinu. — Lausleg þýðing á bréfi Tromholts fer hér á eftir: „EFTIR að ég kom. til Reykja-J víkur varð mér það ljóst, að fjallið Esja, sem er í tveggja mílna fjarlægð frá bænum í norð-austurátt mundi vera til- valið til þessara rannsókna. Það er hátt, það er mjög bratt, gengur svo að segja í sjó fram og er nálægt Reykjavík. Ég þóttist því sjá, að það var heppilegra til rannsóknanna en nokkur önnur hæð í ná- grenninu. Meðan ég dvaldi í Kaupmannahöfn fekk ég þær upplýsingar að jarðvegurinn væri mjög erfiður, grjótið ill- vinnandi og því ekki mögu- leiki á því að setja niður símastaura nema með mikilli fyrirhöfn, en vitanlega þurfti ég að leiða strauminn í straumvél frá rannsóknar- stöðinni niður fjallið. Ég hafði því tekið með mér þrjú þúsund feta langan vír, sem var einangraður með gúmi og striga. Ég þurfti því ekki að hafa neina staura, heldur gat ég einfaldlega lagt þráðinn á jörðina. En þar sem nú Esja er yfir tvö þúsund og fimm hundruð feta há, var aug- ljóst, að vírinn mundi ekki duga alfa leið niður að rótum fjallsins, og pantaði ég því strax og ég kom til landsins þrjú þúsund feta langan vír til viðbótar með tilheyrandi einangrurum. Ég gerði nefni- lega ráð fyrir að hægt yrði að setja niður staura í neðstu brekkunni við fjallsrætumar. En nú varð ég að bíða með að setja niður rannsóknar- stöðina þangað til næsta póst- skip kæmi. I nóvemberlok kom svo allt það sem ég hafði pantað. Og beið ég nú eftir góðu veðri til þess að setja stöðina upp á efsta tindi Esju. En allir þeír, sem hafa lesið fyrri bréf mín — og raunar allir, sem ein- hverjar fréttir hafa haft héð- an af íslandi, vita hvemig veðrið hefur verið. Það hefur því verið allsendis útilokað að hefja þessar framkvæmd- ir. Nokkrum sinnum hafði ég ákveðið að hefjast handa, en allt af brást veðrið og gerði allar athaínir óhugsandi, enda yrði það ekki héiglum hent að komast upp á fjallið með allt okkar hafurtask. Við viss- um fyrirfram að við mundum lenda í miklum erfiðleikum. Og þannig liðu mánuðirnir hver af öSrum, desember, janúar og nærri allur febrú- ar. Ég varð æ vonminni, því að aðalatriðið fyrir mig var að koma upp rannsóknar- tækjunum í skammdeginu svo að ég gæti rannsakað á þann hátt, að saumaður var dúkur utan um tvö kefli eða stenvur. Var lengd stanganna höfð í brjósthæð, svo að vel mætti sjá yfir seglið, sem strengt var á milli þeirra, en sjálft seglið var tæplega faðmsbreidd. Hélt maður svo seglinu fyrir framan sig, þannig að haldið var um kefl- in, en seglið þanið út og vind- urinn látinn blása í það. Komst maður þá tíðum á geysiskrið undan vindinum, en svo reyndi á „siglingar“- kunnáttuna, þegar beita þurfti upp í vindinn og „krusa“ móti storminum í bakaleiðinni. Þá varð maður að kunna að haga seglum eftir vindi, eins og sjómenn- imir. Þegar stormurinn var það sterkur, að siglingin yrði of æðisgengin eða hröð, voru seglin rifuð — það er að segja: undið var þá upp á keflin, svo að seglin tæku ekki eins mikið í sig. 6 norðurljósin, sem allra bezt. Hins vegar hafði ég og feng- ið dýrkeypta reynslu af at- hugunum mínnum þennan vetur. Ég hafði notað hverja stund þegar norðurljósin voru á himni að athuga þau sem bezt og ég hafði komizt á þá skoðun, að straumtækið, jafn vel í mikilli hæð, mundi að eins færa mér neikvæðan árangur. Mér var það ljóst, að jafn vel þó að Island liggi nær aðalsvæði norðurljós- anna en Finnland, þar sem Lemström gerði sínar tilraun- ir, þá virtist kraftur þeirra og ákafi meiri í Norður-Finn- landi en á Islandi, hvernig svo sem á því gæti staðið. Þá má benda á það, að leiðangur Svía til Norðurheímskautsins árið 1868, skýrði frá því að háir hnúkar og fjöll virtust umvafðir birtu eða logum, en það fyrirbrigði er allsendis óþekkt hér á Islandi. Lem- ström varð og var við þetta í Norður-Finnlandi. Þá skal ég ennfremur geta þess, að nokkrum dögum eftir að ég kom hingað til Reykjavíkur, Á skólaárum mínum í Kaupmannahöfn hafði ég ekki jafngóða aðstöðu til skautaferða og heima. Þó var það einu sinni um jólaleytið, að ég komst á skauta í Óðins- véum á Fjóni, en þar dvaldist ég þrenn jól í skólaleyfinu hjá Ólafi Johnsen sem þar var kennari við latínuskóla, en hann var móðurbróðir minn. Þá var þar danskt setu- lið í borginni, 7000—8000 manns, og var Hannes John- sen, sonur Ólafs, liðsforingi í herdeild sinni. Þetta herlið veitti vatni á stórt engi við borgina, og var það umgirt fögru skógarrjóðri á allar hliðar. Kom þarna hið bezta skautasvell, þegar frysti, og var það eingöngu ætlað her- mönnunum. Hins vegar naut ég þá frændseminnar við Hannes Johnsen og fékk að- gang að svellinu, þegar ég vildi. Hljómsveit úr herdeild- inni lék þama fjörug og dill- fór ég með straumtæki, sem á voru 200 prjónar og setti það upp á þakið á ferhyrnd- um steinturni, sem er kallað- ur „Skólavarðan“, en hann stendur einn sér og einangr- aður á hæð rétt fyrir utan bæinn. Þessi tilraun bar ekki neinn árangur. Ég gat ekki séð að neinn straumur mynd- aðist milli prjónanna og flat- arins, og heldur ekki gat ég séð nein ljósfyrirbrigði á prjónunum. Þetta allt varð til þess, að ég komst á þá skoðun, að jafn vel þó að mér tækist að setja upp stöðina á hæsta tind fjallsins Esju, þá myndi mér ekki takast að búa til norðurljós eins og Lemström talar um. En svo rann upp 22. febrú- ar. Veðrið var dásamlega gott, himinninn heiður og tær og hlýtt í veðri. Ég fór því að hugsa mér til hreyfings, því að ekki vildi ég hætta alveg við fyrirtækið, og eftir að góða veðrið hafði staðið í nokkra daga var ákveðið að fara í leiðangurinn fyrir há- andi lög, og jók það ekki lítið á ánægjuna að geta þeystst um svellið eftir tónunum, — en aldrei fyrr hafði ég stigið á skauta með hljóðfæraundir- leik. Eftir heimkomuna frá Dan- mörku fór ég stöku sinnum á skauta á Tjörninni, en eftir að ég fluttist úr miðbænum fækkaði þeim ferðum. Lengi fram eftir árum greip mig þó löngun til þess að fara með skauta og skautasegl niður á Tjöm. — Og enn þann dag í dag hef ég gaman af að horfa á unga fólkið renna sér á Tjörninni. — Það er ekki fjarri því að mér finnist ég yngjast; þá sé ég fyrir mér æskuna og alla gömlu kunn- ingjana, sem í blóma lífsins brunuðu á skautum á Tjörn- inni — þessum almennings leikvelli gömlu Reykjavíkur. degi, mánudaginn 25. febrú- ar. Gestgjafinn í hótel Alex- andra fekk skipun um að búa út matkörfurnar, og um leið sendi ég þeim boð um að nú væri ákveðið að fara, sem höfðu mælst til þess við mig að fá að fara með. Ég hlakkaði til fararinnar með ferðafélögunum, en þeir voru fjórir, sem höfðu ákveðið að ganga með mér á Esju. Fyrst og fremst var það lyfsalinn, sá ágætismaður. [Lyfsali var þá hér Niels Schmidt Kriig- er.] Hann hafði aldrei geng- partinn fyrir ferðinni, jafn vel þó að hann talaði borgin- mannlega. Eitt sinn ræddi hann við mig um það, hvort maður fengi ekki svima í svo mikilli hæð og hætta væri á að maður hrapaði niður hengiflugin og slasaðist hroðalega. Fólk, sem fékk að vita að lyfsalinn ætlaði með í glæfraförina, hristi höfuð sín og sagði: „Það verður aldrei neitt úr því. Hann kemst ekki einu sinni hálfa leið“. Þá var það sjálfur gest- giafinn í Hotel Alexandra. Hann bjó yfir samskonar reynslu í fjallferðum og lyf- salinn, og fólk sagði einníg um hann, að hann kæmist ekki fremur upp á Esju en til tunglsins. Hann var líka mjög feitur og þjáðist að auki af astmá. En hann langaði til þess, að sýna þessum vantrú- uðu íslendingum með allar sínar hrakspár, að sterkur vilji gat bæði sigrast á ístru og astma. Þriðji í röðinni, já, við skulum bara kalla hann Mister Roastbeef, fulltrúi hinnar konunglegu hátignar Elísabetar drottningar, hann var Skoti, ákaflega hjálpfús maður og alúðlegur, hann var og verkstjóri eða eitthvað þess hattar við brennisteins- nám í nágrenninu (Krj’su- vík). Og númer fjögur var annar brennisteinsmaður og Skoti — og við skulum bara kalla hann Mister Plumbudd- ing. Samkvæmt frásögnum hans, en það eru til menn sem halda því ákveðið fram, að skáldgyðjan og hugmynda- flugið séu foreldrar þeirra, hefur hann farið um allan heim. Hann hefur komið á hæsta tind Mount Everest, niður í botn á dýpstu kola- námu heimsins. Hann hefur étið bráðlifandi rostunga hjá Eskimóum og drukkið dús við mannætur Suðurhafs- eyjanna. Hann talar kín- versku betur en nokkur Kín- verji, og vinnur nú að kennslubók í málfræði yfir það tungumál sem talað er á Suðurpólnum. Hann er frændi landsstjórans á Nýja- Sjálandi, og ég held eitthvað í ætt við Japanskeisara. Til ferðarinnar á hæsta tind Esju, er hann klæddur til höf- uðsins eins og Skoti heima hjá sér, til fótanna eins og íslenzkur bóndi, en að öðru leyti hlýtur hann að hafa sótt föt sín inn á draumalandið. Já, þetta voru hinir tví- fættu ferðafélagar mínir, En svo hafði ég einnig með tvo ferfætlinga: Comes, íslenzk- an trjónunef, sem Mister Plumbudding átti, Og svo Hrólf, stóra St. Bernhards hundinn minn, sem hefur fylgt mér dyggilega á slark- ferðum mínum í Lapplandi. En ‘hér í Reykjavík hefur hann gerst einvaldsherra og harðstjóri yfir öllum kyn- bræðrum sínum. Klukkan 10 á mánudags- morguninn vorum við albún- ir til fararinnar. Við lögðum þá af stað úr fjörunni á róðr- arbát, sem fimm menn reru og þegar ég leit yfir hlaðinn ALÞÝÐUBLAÐIÐ Mógilsá. ið á fjöll og kveið því hálf-

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.