Alþýðublaðið - 24.12.1954, Side 11

Alþýðublaðið - 24.12.1954, Side 11
Mangano i hLutverki (Jnmi. í heimsóknartíma á sjúkra- húsinu kom líknarsystir til Önnu og tilkynnti henni, að systir hennar væri komin að heimsækja hana. Anna fór niður og sá þar systur sína í fylgd með ungum manni. „Þetta er Georg“, mælti systirin, og um leið og hún snéri sér að manninum, bætti hún við: „Og þetta er sem- sagt systir mín, hún Anna, finnst þér hún ekki sæt? — Ég skal segja þér, Anna, að hann langaði svo mikið til að sjá þig. Finnst þér hann ekki aðlaðandi maður, Anna?“ „Jú — sannarlega", svaraði Anna. „Hvenær ætlið þið' að gifta ykkur?“ „A morgun!“ anzaði sýst'ir- in. Og unnusti hennar bætti við: „Við viljum endilega hafa ýður með í veízlunni — og þó ékki væri nema í kirkj- unni“. ,,Ég þakka fy rir, en ég get ekki farið“, svaraði Anna blíðlega. „Hún er hrædd við að fara frá þessum stað“, mælti systir Önnu. „Hrædd! Við hvað? Eg er hér til að vernda hana, ef með þarf“. Síðan snéri liann sér beint að Önnu: „Langar yður aldrei til að sjá heiminn fyrir utan? Að sjá fólk?“ spurði hann. „Hér er nóg fólk — og hér er minn heimur. Eg er ham- ingjusöm hér“. Þegar hjónaefnin voru far- ín, kom líknarsystir til Önnu og bao hana um að koma inn á skrifstofu klausturstýrunn- ar. Klausturstýran var um sex- tugt, virðiileg, róleg, skiln- ingsrík, og hafði til fulls snú- ið baki við heiminum fyrir löngu. Anna gekk inn i skrif- stofu hennar og nam staðar fyrir’ framan hana. Klaustur- stýran leit upp frá blaða- bunka og mælti: „Þér voruð að fara fram á að fá að tala við mig. Hyers óskið þér?“ Anna var þögul andartaks- stund og hikaði, en svaraði síð'an einarðlega: ,,Ég þarfnast hjálpar yðar. Ég hefi beðið yður áður, og bið yður enn: Lofið mér að sverja eiðinn“. Klausturstýran leit alvöru- augum á Önnu um leið og hún svaraði: „Leyfið mér að segja yður í einlægni: Þér hafið ekki þroska til þess ennþá. Þér hafið áreiðanlega ekki hugs- að málið nógu vandlega enn- þá“._ „Ég veit, að þér efizt um köllun mína“, mælti Anna róleg. „Jó“, svaraði klausturstýr- an. „Gerðir yðar eru of bundnar því jarðneska. Skyndilegar ákvarðanir yðar og skortur á yfirvegun hafa oft valdið mér áhyggjum. Þér ei’uð of háðar breyzkum til— finningum yðar — ennþá“. Lotnu höfði gekk Anna út úr skrifstofu klausturstýr- unnar. Um kvöldið kom fjöldi særðra manna á sjúkrahúsið, og Anna varð að aðstoða við móttöku þeirra. Þar á meðal Var einn sérstaklega illa leik- inn. Hann var meðvitundar- laus, og svitinn bogaoi af hin- um í striðum straumum. íiann leit út fyrir að vera um þrítugt — svipurinn karl- mannlegur og einarður. Hár hans var klístrað við ennið. Læknir gékk að honum og leit á hann. „Alvarlcgt taugaáfall. Við verðum að gera skurðaðgerð. Hafið allt tilbúið!“ Þessi ákveðna skipun kom. Önnu til að hætta við það sem hún hafði tærið að gera. Hún gekk að börum manns- ins og horfði á sveitt og fölt andlit hans. Skyndilega stirðnaði hún upp og þrýsti höndum að brjósti sér. „Andrea". Varla máttl heyra, er hún hvíslaði nafn hans. Hún snéri sér að lækninum, sem hafði gefið fyrirskipun.- ina um aðgerð. „Er 'þetta alvarlegt?“ spurði hún svo lágt, að varla heyrðist. „Já. Ég er hræddur um, að ekki sé mikið hægt að gera fyrir hann“. Anna færði lækninum annarshugar, það sem hann bað um, og í hreyf- ingum hennar var eitthvaðý sem kom lækninum til að- stara á hana. „Líður yður eitthvað illa? Mér sýnist þér vera aðfram komnar af þreytu. Farið held- ur upp og hvílið yður“. Læknirinn brosti vingjarn- lega. „Leyfið mér heldur að að- stoða yður“, svaraði Anna. „Hvar er prófessorinn?“ „Ég hef hringt — en hann er í leikhúsinu", svaraði læknirinn. „Og ætlið þér að fram- kvæma aðgerðina?“ „Vitanlega — hver annar?“ Anna tók á rás út úr skurð- arstofunni og niður á stæoi sjúkrabifreiðanna. Nokkr- um sekúndum síðar var hún á leið til leikhússins. Prófessor Ferri sat ásamt fjölskyldu í stúku sinni, þeg- ar honum var tilkynnt um komu systur Önnu. Með fá- um orðum sagði hún honum, hvert erindi hennar væri —- að mjög veikur maður hefði. verið fluttur í sjúkrahúsið. Þau fylgdust að í sjúkrabií> reiðinni, og á leiðinni spurði prófessorinn: „Er þetta nokkur, sem þér þekkið?“ Anna hikaði en svaraði loks lágt: „Já“. Læknirinn á skurðarstoi- unni sá sér t'il undrunar, h\rar Anna kom með prófessorinn. „Hvers vegna komið þér — hafið þér verið sóttir?“ spurði hann prófessorinn. „Sóttur? Nei, nei. Ég hugs- aði mér aðeins að líta á sjúkl- ingana. Er nokkur sérstak- lega veikur?“ „Já — það er nýkominn. mjög illa útleikinn maður. Bílslys. Það er verið að búa hann undir uppskurð. Þér viljið kannske líta á hann?“ Þegar prófessorinn hafði athugað manninn, snéri hanri sér að unga lækninum og mælti: „Þegar ég hafði næt- urvakti í fyrsta skipti, var komið til mín með svipaðan sjúkling. Ég var yngri en þer eruð — en ég hafði samt ekk-i þá dirfsku til að bera að ætla mér það að fremja aðgerð upp á eigin spýtur. Skurðlækning' var í þá daga virt sem einstöfc list. — Ég fæ ekki betur séð en þér séuð þreyttir og ættuð að láta mig sjálfan um þessa aðgerð“. —s Anna sendi pró- fessornum þakklætis-augna- ráð um leið og hún gekk inn í hliðarherbergi til að fara i vinnuslopp. Eftir að prófess- orinn hafði einnig farið í hvít- an slopp og þvegið henduir sínrr, var allt til reiðu. Ur ldefanum þar sern svefngasgjöfinrii var stjórnað gat Anna fylgzt með hverjri smáatriði aðgerðarinnar. „Andrea“, hvfslaði hún og þrýsti höndunum að brjósti sér, en augu hennar flutu í tárum. Hún hneig saman á stólkolli og varð hugsað nokkra mánuði aftur í tím- ann. í huga sér sá Anna alit: það, sem gerzt hafði í lífi SÍRENU-VÆL sjúkrabifreið- arinnar smaug gegnum þok- una. Það var snemma morg- uns, og bærinn ekki vaknað- ur; aðeins örfáar árrisular hi’æður horfðu á eftir bíln- um sem ók allt hvað af tók til sjúkrahússins. Lítill drengur 5—6 ára, með leikfang í hendi sér, fylgdist tárvotum augum með aðförum burðarmann- anna, sem tóku við sjúkrabör- unum. Hann stóð kyrr við sjúkrahússhliðin og kallaði óaflátanlega: „Mamma — hvar er hún mamma mín?“ Ung líknarsystir vísaði burð- armönnunum leiðina, en snéri sér síðan að litla drengnum, lagði handlegginn um háls honum og sagði blíðlega: „Þú skalt fá að fara til hennar mömrnu þinnar — en nú skaltu fyrst fara með syst- ur Virginíu. Bíddu svo róleg- ur, og mamma þín kemur von bráðar“. Stofugangur var hafinn, og pi’ófessor Ferri gekk frá einu rúminu til annars í fylgd með tveim aðstoðarlæknum og systir Önnu — kornungri stúlku, sem bar slíkan kven- legan yndisþokka, auk and- Iitsfríðleiks, að jafnvel nunnubúningnum tókst ekki að leyna honum. Úr augum hennar lýsti samúð og vin- gjarnleiki til sérhvers sjúkl- ings, og á sjúklingunum mátti sjá, að þeim þótti vænt um hana. I einu rúminu lá ungur maður, veðurbitinn, auðsjá- anlega vanur íþróttum og útiveru. Hann hafði viðamikl- ar umbúðir um annan fótinn. Eftirvæntingin leyndi sér ekki í augum hans, er hann spurði: „Get ég nokkurntíma tekið þátt í knattspyrnu framar, herra prófessor?" En varla hafði prófessorn- um gefizt tóm til að svara, er hann var kallaður niður á skurðstofuna, þangað sem hinn nýkomni sjúklingur hafði verið fluttur. Konan lá á skurðarborð- inu. Læknir og hjúkrunar- kona voru að undirbúa svæf- ingu. „Hvað verður um litla drenginn minn?“'stundi kon- an í örvæntingu. „Hvað á ég að gera? G, mér líður svo illa! Drengurinn minn —■ drengurinn —“. Prófessorinn hófst handa án þess að hafa augun af því, sem hann gerði, er hann skip- aði aðstoðarfólkinu að rétta sér tengur, nálar eða skæri. En andardráttur konunnar varð æ veikari, eftir því sem á aðgerðina leið, unz hann hætti algjörlega. Þá lagði prófessorinn tækin frá sér, gekk út að glugganum og kveikti sér í sígarettu. En þegar Anna gekk út úr skurðstofunni, beið litli drengurinn þar fyrir framan, og faðir hans var einnig kom- inn. Hann var ofur venjuleg- ur verkamaður, nema hvað hann var augsýnilega undir áhrifum áfengis. „Ég pípi á prófessorinn — ég er þó maðurinn hennar — hver hefur gefið leyfi til að láta skera lconuna mína?“ Hann æstist æ meir, og snéri sér loks að syni sínum: „Veiztu hvað þeir hafa gert við hana mömniu þína? Tekið hana frá mér og myrt hana — það hafa þeir gert“. Systir Anna lagði höndina blíðlega á öxl mannsins um leið og hún mælti: „Þér megið ekki hafa svona hátt. Þá neyðumst við til að segja yður að fara. Annars ættuð þér að blygðast yðar. Hvar voruð þér, þegar konan yðar var sótt? — Einhvers- staðar úti — að drekka. Og nú eruð þér ölvaðir og ættuð að fara heim“. „En hvað um barnið?“ spurði maðurinn og komst til sjálfs sín andartak. „Við tökum drenginn að okkur, þangað til þér hafið fengið atvinnu og tekið yður á. Þá getið þér komið aftur — fyrr ekki“. Silvaha Manganó. Kujkmynöa'sag'a'n RDn JÓLAHELGIN

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.