Alþýðublaðið - 24.12.1954, Síða 14

Alþýðublaðið - 24.12.1954, Síða 14
* verðurðu a'ð láta mig vera í ' friði. Ég elska Andrea, og við giftum okkur á morgun“. i Vittario æstist: ,,Ertu nú viss um, að þú elskir hann? — Varstu hrædd um, að þú myndir koma aftur til mín, þegar þú hentir lyklunum?“ Ekki langt frá, þar sem þau stóðu, heyrðist viðarhögg, og Anna gekk í átt til neðan- íarðarbyrgis rétt þar hjá. Vittario fór á hæla henni og opnaði dyrnar. Þau gengu inn. Þarna var engin hætta á, ■að neinn heyrði til þeirrá, hugsaði Anna. Og hún sagði: „Reyndu að skilja mig, Vittario. Ég gat ekki haldið áfram að þekkja þig'. Þú hef- ur verið mér til ills. Eftir að • ég kynntist Andrea, hef ég hatað þig. Farðu!“ „Veit Andrea, hvað gerzt hefur milli okkar?“ spurði Vittario æstur. „Kannske ekki allt“, anzaði stúlkan. Hann greip um axlir henn- .ar: „Ætlarðu að segja mér, að jþú elskir hann!“ „Já, og aftur já!“ stundi Anna. Vittario kastaði henni frá sér, en gekk að henni aft- ur og gaf henni hvern löðr- unginn á fætur öðruin um leið og hann hrópaði: „Segðu svo enn, að þú elsk- ir hann! Segðu það — ef þú þ>orir!“ „Já! Ég geri það! Eins og ég hata þig!“ Én í þessu kastaði hann sér á hana eins og tigrisdýr, 'ienti henni niður í steingólfið og reyndi að neyða á hana koss- um og faðmlögum, sem svo oft áður hafði endað með því, að hún gafst upp fyrir lion- um. En í sama mund var dyr- unum hrundið upp, og Andrea, sem hafði heyrt hávaðann, gekk inn. Hann sá Vittario og Önnu í átökunum og heyrði hana hrópa: „Aldrei — aldrei fer ég með þér!“ Þá rauk Andrea á Vittario, og þeir tókust á. Báðir voru nokkurn veginn jafnir að kröftum, en Vittario hafði ekki úthald á við Andrea. Brátt var hann afkróaður úti í horni, og þegar hann sá sér ekki undankomu auðið, þreif hann niður í vasa sinn. And- artak gljáði á skammbyssu í hendi hans, en áður en haim gæti miðað var Andrea hlaupinn á hann. Það kvað við skot, og Vittario féll sam- an. Kúlan hafði lent í honum sjálfum. Andartak stóð Andrea óttasleginn og starði á hinn dauða; leit síðan á Önnu, sem stóð með hend- urnar fyrir andlitinu. „Þú hefur gert mig að morðingja ■— fjarðu, segi ég — farðu — ég vil ekki sjá þig framar!“ hrópaði hann ör- vita. Anna hljóp út úr byrg- inu og eitthvað inn í skóginn. Hróp Andrea fylgdu henni. Stjörf af ótta náði hún út á þjóðveginn og reikaði þar sem blindingi eftir akbraut- inni. Hugur hennar bjó að- eins yfir einni hugsun: að komast sem lengst burtu, burt frá þeim heimi, sem ekki var henni viðráðanlegur, burt frá því lífi, sem ekki var fært henni, jafn tvískiptri og hún var. Bifreið nam skyndilega staðar að baki henni og hafði næstum ekið yfir hana. Tveir karhnenn stigu út. Þeim var ljóst, að aðeins eitt var hægt að gera — og í skyndingu settu þeir Önnu upp í bílinn og óku með hana til sjúkra- hússins í borginni. Það var einmitt sjúkrahúsið, sem síð- an hafði verið heimili hennar og verndað hana fyrir þeim freistingum, sem hvarvetna biðu utan múra þess, en mjög sjaldan náðu inn fyrir þá. Kaþólsku systurnar tóku hana til reynslu í sína tölu. Systir hennar hafði reynt að fá. hana þaðan — en árang- urslaust. j*. Anna stóð við rúm Andreas. Hann komst smám saman til meiri meðvitundar, og augnaráð hans hvarflaði að verunni við rúmstokkinn. „Það er ég, Andrea. Anna. Líttu á mig“. Anna laut nið- ur að andliti hans. „Þú ert ekki Anna“, svar- aði hann dræmt. „Það getur ekki verið“. Andartak stóð Anna ráða- laus. Síðan reif hún af sér höfuðklæðið. „Líttu á mig, Andrea. Þetta er Anna. — — Okkur hefur liðið illa, Andrea“. „Já. Þú ert hún Anna. —• Já, okkur hefur liðið illa. Fn ekki lengur“. „Nei, ekki lengur“, svaraði Anna, en Andrea féll aftur í mók, sökum þreytu og sótt- hita. Anna féll á kné við rúm- stokk hans. „Leið oss ekki í freistni — heldur frelsa oss frá illu“, bað hún. Hún fann, að hún myndi hafa andlegt þrek til að taka hverju, sem að höndum bæri, gekk út úr sjúkrastofunni og lét aðra systur taka við. Læknamir sögðu, að Andrea væri úr allri hættu. Anna hað yfir- lækninn um að fá að starfa við aðra deild fyrst um sinn, en þeirir bón var illa tekið, Þeir sögðust ekki geta án hennar verið einmitt þar sem starfið væri erfiðast, því hún væri duglegust allra, Tveim dögum síðar. Andrea lá í rúmi sínu á einkaher- berginu, og gömul nunna hjúkraði honum. Hann horfði þögull á hana um stund, en spurði síðan: „Er ekki systir hér á spítal- anum, sem heitir Anna?“ „Jú. En undanfarið hefur hún unnið á skurðlækninga- deildinni". „Skurðlækningadeildinni? Því þá þar?“ spurði Andrea undrandi. „Ja, það er nú svo“, anzaði systirin. „En nú skuluð þér hvíla yður og reyna að sofna, annars eykst hitinn aftur“. Andrea lagðist út af, en fékk ekki skilið, hvers vegna Anna hafði flutzt til. Á sama tíma var Anna að ganga inn í skurðlæknastof- una. I því sem hún gekk inn, var ein af ungu aðstoðar- stúlkunum að galskapast við ungan lækni. Hann var nð ljúka við að kyssa hana, og um leið og hún reyndi að losa sig sagði hún: „Slepptu mér •— ég þarf að fara með slcýrslu til hans prófsa gamla“. „Gefðu mér þá einn koss enn. Svo máttu fara“, sagði læknirinn. Anna hafði séð þetta og heyrt, og gekk nú inn í stofuna. Læknirinn flýtti sér út, strax er hami sá Önnu, en Anna nam staðar fyrir framan stúlkuna: Systir Anna og prófessorinn. Við höfum venjulega mikið úrval af verkfærum, járnvörum til bygginga og búsáhöMum, meðal annars: VATNSFOTUR BALAR 1»V OTTAKLEMUR KJÖTKVARNIR BORÐBÚNAÐUR BÚRHNÍFAR SKÆRI BOLLAPÖR DISKAR o. fl. o. fl. HEFLAR HAMRAR ÞVINGUR HALLAMÁL JÁRNSAGABOGAR JÁRNBORAR TRÉBORAB ÞJALIR TOMMUSTOKKAR o. fl. o. fl. SAUMUR TRÉSKRRÚFUR INNIHURÐALAMIR SKRARog HANDFÖNG SMEKKLÁSAR SKOTHURÐAJÁRNN GLUGGAT JALDASTENGUR GUGGATJALDAGORMAR o. fl. o. fl. Reykjavík, 14 ALÞYÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.