Alþýðublaðið - 24.12.1954, Síða 27

Alþýðublaðið - 24.12.1954, Síða 27
Rannsóknarstöð á Esju Framhald af bls. 8. sæti niður í nítjánda sæti vegna nótunnar. í rauninni var þetta mér mátulegt, því Sæfinnur gamli var sá af ýmsu skritnu fólki í bænum, sem við strákarnir vildum sízt mein gera, því hann var mesti gæðakarl og sérlega bamgóður. Tólf ára gamall fór ég að ganga á eyrina, sem kallað var, og fékk oft vinnu hjá kaupmönnum, einkum þó hjá verzlunum Fischers og Brydes, við fiskþurkun á fiskreitunum, fiskstöflun í geymsluhúsunum og í skip- um, sem fluttu fisk til Italíu og Spánar. Eyrarvinnu stund- uðu þá, auk fullorðinna karl- manna, bæði drengir og stúlkur. Vinnutíminn var tíu stundir, og oft lengri. Og mat og kaffi varð að gleypa í sig á sem skemmstum tíma. Tímakaup drengja og stúlkna var 10—15 aurar eftir aldri, og örlítið hærra í salt- og kolavinnu. Vinnulaun voru greidd með vörum úr við- komandi verzlun, en pening- ar fengust ekki, nema til kaupa á bráðnauðsynlegum lyfjum samkvæmt framvísuð- um lyfseðli. Til brauðakaupa fengum við brauðseðla eða brauðpeninga úr látúni. Fyrir þá gátum við keypt brauð hjá bakaranum, samkvæmt samningi milli hans og kaup- mannsins. Á þennan hátt var séð fyrir því, að ekki var hægt að kaupa nauðsynlega og jafnvel ódýrari hluti h.iá næsta kaupmanni, sem ekki voru fáanlegir í þeirri verzl- un, sem unnið var hjá í þann svipinn. Varð fólk því að sæta verri kaupum, bæði hvað verð og gæði snerti, vegna þessa fyrirkomulags. Skipin, sem fluttu saltfisk- inn til útlanda, lágu fyrir akkerum nokkuð langt frá landi, og var fiskurinn flutt- ur í stórum bátum út að skipunum. Bátsverjar réttu fiskinn í föngum (knippum) til manna, sem unnu á þilfari, en þeir réttu hann svo til þeirra, sem unnu í lestinni. Þá kom til okkar kasta ungl- inganna, bæði drengja og stúlkna, sem í lestinni unnu að því, að ,,stúfa“ fiskinum, sem kallað var, það er að segja, að leggja fiskinn þann- ig niður, að roðið sneri upp og hnakkinn fram á við, og síðan haldið áfram að láta hnakka nema við hnakka og sporð við sporð, svo að fisk- urinn lá hálfflatur í lestinni. Á þennan hátt kom hvert fisklagið ofan á annað alveg upp undir þilfar. Að síðustu var lestaropið fyllt, og þótti þá öruggt, að ekki kastaðist til í lestimii, þótt skipið fengi veður stór og velting. Við þetta unnum við frá morgni til kvölds, og vorum ferjuð fram og aftur í flutn- ingabátunum. kíatarbita og kaffisopa fengum við sent að heiman með flutningsmönn- unum tvisvar á dag. Soðning og kartöflur var send á diski og öðrum diski hvolft yfir hann, og utan um diskana vafinn stór klútur, sem bund- inn var saman á homunum að ofan. Kaffið var látið á flösku, sem stungið var ofan : í ullarsokk, og þar hjá nokkr- ar brauðsneiðar, smurðar með smjörlíki eða bræðingi. Síðan var hvorttveggja, klút- urinn og sokkurinn, bundið saman með snærisspotta. Varð svo hver að þekkja sitt, þegar út í skipið var komið, sem oftast gekk greiðlega, því hver var sínum umbúnaði kunnugastur. Þetta þótti okkur skemmti- leg vinna, og stundum varð nokkur hvíld í bili, ef hleðslu bátanna seinkaði eitthvað í landi, og við handfljót að stúfa fiskinum. Þá þutum við upp á þilfar, og soguðum að okkur hreina loftið. Það var ljúf hressing, því andrúms- loftið í lestinni var saltmett- að og kyrrstaðið. Og gott var að fá sér vatnssopa að drekka og rétta úr sér dálitla stund, því mest allan tímann urð- um við að liggja á hnjánum við þessa vinnu. Aftur á móti var vinna við uppskipun á kolum og saíti mesta þrælavinna, því allt var borið á bakinu upp í geymsluhúsin, sem voru á malarkambinum fyrir oían fjöruna, en fjöruborð var þá þar sem nú er syðri brún Tryggvagötu. Þetta var erfitt verk fyrir ekki fullharðnaða unglinga, einkum þegar lág- sjávað var og bátarnir lágu við bryggjusporð, því það lengdi burðarleiðina. Sjaldan stóð þessi vinna þó lengur yf- ir en tvo til þrjá daga í einu. Mjöl- og kornsekkir og alls konar stykkjavara var borin á handbörum, og var öll þessi vinna mjög lýjandi fyrir handleggi og fætur. djúpar reiðgötur milli hárra þúfna. Og brátt var komið þreyfandi myrkur. Hvað eftir annað var ég að því kominn að hrópa upp yfir mig. „Nei, nú get ég ekki meira“, en ég þraukaði. Samt sem áður var ég farinn að sjá eftir því að hafa ekki farið sjóleiðina þó að ískyggileg væri. Loksins, um klukkan 8, þóttist ég grilla í ljósadýrðina í Reykjavík, og það er alveg óþarft að lýsa því, hve glaður ég varð. Já, birtan frá ljós- kerunum í Reykjavík þótti mér fegurri en skærasta ljósadýrð í París, drottningu meðal borga í Evrópu. Og það leið ekki á löngu þar til ég sat meðal vina minna í hótel Alexandra. Þeir höfðu komizt til bæjar- ins klukkan 4. Og nú sett- umst við að veizluborði. Á borðum var steikt gæs. Það fór eins og ég hafði hálft í hvoru búizt við. Um- stangið á Esju hefur ekki bor- ið tilætlaðan árangur. Útbún- aðurinn hefur ekki verið með lífsmarki enn sem komið er. Ég er allt af að horfa þangað upp eftir í sjónaukanum mín- um og sé útbúnaðinn sæmi- lega, einnig hef ég fengið þær fréttir ofan frá Mógilsá að neðan til sé allt í lagi. En jafn vel þó að veðrið hafi verið gott á kv.öldin, hef ég ekki komið auga á nein sér- stök ljósfyrirbrigði yfir fjail- inu eða frá leiðslumii í neðstu brekku þess. En neikvæður árangur er líka árangur frá vísindalegu sjónarmiði. Norðurljósin hafa og seinni hluta vetrarins verið mikiix daufari en þau voru fyrri hluta hans. Að vísu sjást dauf Ijós þegar himininn er heið- ur, en þau eru mjög lítilfjör- leg — og ég vil ráðleggja Frakklendingnum, sem kom hingað með síðasta póstskipi, og hlakkar til þess 'að sjá norðurljós, að fara heim til sín við fyrsta tækifæri, því að þar fær hann áreiðanlega eins mörg tækifæri til þess að horfa á fegurð norðurljós- anna og hann fær hér . . . UTVEGSBANKI ISLANDS H REYKJAVIK Annast öll ven juleg bankaviðskipti.. Útibú hefur bankinn á eftirtöldum stöðum: AKUREYRI SIGLUFIRÐI fSAFIRÐI SEYÐISFIRÐI og VERSTMANNAEYJUM Arður fyrir árið 1952 af hlutabréfum bankans (4%) er greiddur gegn afhendingu vaxtamiða í bankanum sjálfum og ofangreinum stöðum. UTVEGSBANKI ISLANDS H.F ( • | T JÓLAHELGIN 27j

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.