Tíminn - 03.04.1965, Side 2

Tíminn - 03.04.1965, Side 2
ÍÞRÓTTIR ÍÞRÓTTIR tíminn LAUGARDAGUR 3. apríl 1965 Alfreð Þorsteinsson skrifar frá Nyköping: Oruggur sigur í fyrsta leiknum ísleizka unglingalandsliðið vann það finnska með 20-14. Alf. — Nyköping. íslenzku pilfarnir voru öruggir sigurvegarar í fyrsfa leik sínum í Norðurlandamóti ungl- inga í Nyköping, sem hófst í gærkvöldi. Þeir mættu mjög taugaóstyrkir til leiks og gekk illa í fyrri hálfleik. í hálfleik var staðan þó 9—6 íslandi í vil. í síðari hálfleik var taugaóstyrk- ur fokinn út í veður og vind, og skoraði Island fljótlega átta mörk meðan Finnarnjr skoruðu einungis tvö mörk. Staðan var 17—8 og úrslitin ráðin. Lokatölur urðu svo 20—14. Það voru einkum Geir Hallsteinsson og Hermann Gunnarrson, sem sköruðu framúr í íslenzka lið- inu. Hvað eftir annað komu þeir finnsku vörninni úr sambandi og skoruðu. Þá voru báðir markverðirnir, Finnbogi Kristjánsson í fyrri hálfleik og Einar Hákonarson í síðari hálfleik, góðir. Nyköpmg á Falstri, þessi um það bil tuttugu þúsund manna danska borg, hefur verið í hátíða skapi vegna Norðurlandamóts unglinga og meðfram helztu göt- unum hefur danski fáninn blakt- að við hún í blíðskaparveðri í dag. íslenzku piltarnir hafa kunnað vel að meta góða veðrið, en hins veg- ar ekki að sama skapi aðbúnaðinn. Þeim er gert að búa í frekar litlum sal í kjallara skólahúss, sem er á næsta leitfl við íþrótta- höllina í Nyköping. Síðastliðna nótt var ekki þægilegt fyrir þá að sofa á köldu steingólfi með þunnt ullarteþpi sem ábreiðu. Þægindi voru lítil, t.d. emgin herðatré að fá til að hengja upp föt sín og fleira mætti telja. Ekki þýðir að fást um það, etn segja verður eins og er, að þessi aðbúnaður er fyrir neðan aliar hellur og bitnar jafnt á öllum þátttökulöndunum, þvi piltarnir búa allir í þessum sama kjallara. Sjálft mótið hófst í nýrri íþrótta- höll í Nyköping kl. 20.15 eftir dönskum tíma, en þá gengu lið allra landanna fylktu liði inn í salinn. Setningarathöfnin var fá- brotin og voru þjóðsöngvar ekki leiknir. Eftir stutt hlé hófst svo fyrsti leikur mótsins, sem var milli Svíþjóðar og Noregs. Honum lauk með jafntefli með 14 mörkum gegn 14. í hálfleik var staðan 8—5. Finnbogi Kristjánsson — varði vel í fyrri hálfleik Mótmæli Islands tekin til greina Alf—Nyköbing, föstudag. Eins og skýrt hefur verið frá hér í blaðinu, var upp- haflega ákveðið, að íslenzka liðið á Unglingameistara- móti Norðurlanda léki sína fjóra leiki á tveimur dög- um, það er tvo leiki á laugardag og sunnudag. fslenzku fulltrúarnir, Axel Einarsson og Valgeir Ársælsson, mót- mæltu þessu, þar sem ísland lék á mótinu í fyrra fjóra leiki á tveimur dögum. Mótmæli þeirra voru tekin til greina, og leikur því íslenkza liðið sinn fyrsta leik í kvöld gegn Finnum. Á laugardag verður leikið við Dani, en Svía og Norðmenn á sunnudag. Þessi breyt- ing verður tvímælalaust til hagsbóta fyrir íslenzka liðið. Á fundi handknattleiksleiðtoganna kom fram sú tillaga að næsta mót yrði háð á íslandi næsta ár. en íslenzku fulltrúarnir töldu ,að hin nýja íþróttahöll yrði ef til vill ekki fullgerð fyrir þann tíma, sem mótið á að fara fram, og verður mótið háð í Finnlandi næsta ár. Leikurinn við Finna. íslenzku piltarnir mættu tauga- óstyrkir til leiks og voru lengi að finna sig. Geir Hallsteinsson skor- aði fyrsta markið og litlu síðar skoraði Hilmar Björnsson 2:0. Finnsku leifcmennirnir voru líka lengi að finna sig, en tókst þó fljótlega að jafna hlut sinn og skora tvö mörk, 2;2 .íslenzka vörn in opnaðist illa í bæði skiptin, en í því fólst aðal-veikleiki varnar- innar og má það rekja til að- stæðna í þröngum Hálogalands- salnum, þar sem íslenzkir hand- knattleiksm. þurfa ekki að verja eins homin og í stórum sal. Á 12. mín (leiikið er tvisvar sinnum 25 mínútur) sfcoraði Hermann Gunnarsson 3:2 fyrir fsland, brauzt fallega upp í hægra hom- ið, og Gísli Blöndal skoraði svo 4:2. Enn átti léleg vörn í hornun- um þátt í því, að Finnar jöfnuðu, en þeir skorðuð tvö næstu mörk. Síðarí hluti fyrrí hálfleiks var vel leikinn af hálfu ís- lenzku piltanna ,og höfðu þeir náð í hálfleik forystu, 9:6. f síðari hálfleik mættu piltarair svo ákveðnir til leiks, og voru ekki lengur taugaóstyrkir. Kaflinn fram á miðjan síðari hálfleik var mjög góður, og þá Getr Hallsteinsson (t.v.) og Hermann Gunnarsson voru beztu menn íslenzka liðsins og komu finnsku vörninni úr sambandi. var sigurinn tryggður með átta mörkum, meðan Finnarnir skoruðu einungis tvisvar sinn. um og var staðan þá orðin 17:8 — níu marka munur. Und ir lokin missti íslenzka liðið örlítið tökin á leiknum, en sigri liðsins var aldrei ógnað. Loka- Gísli Blöndal tölur urðu sem fyrr segir 20:14i Mörk íslands skoruðu; Geir 5, Hermann 4, Jón, Hilmar og Ágúst 3 hver og Gísli 2. Ekki er gott a ðsegja, hvað ís- lenzku piltunum tekst í þessu Norðurlandamóti, — eða í leikj- unum ,sem eftir eru, — það háir þeim greinilega, að þeir eru óvanir stórum velli. Sérstaklega á þetta við um vömina, þar sem homin eru mjög opin, en í dag leika ís- lenzku ,-ltarnir gegn Dönum, og hefst leikurinn kl. 15.30 e. dönsk- um tíma, en nánar verður hægt að segja frá þeim leik í sunnudagsbl. ERLENT LÍFTRYGG- INGAFÉLAG FB-Reykjavík, miðvikudag. Erlent líftryggingafélag, The International Life Insurance Com- pany Ltd., hefur ákveðið að opna útibú hér á landi, og verður það væntanlega gert eftir einn til einn og hálfan mánuð. Aðalumboðs- maður félagsins hér á landi verð- ur Konráð Axelsson. Tilgangur félags þessa er að annast hvers konar líftryggingar, en það hefur hins vegar ekki með höndum neinar aðrar tryggingar. Mun starfsemin verða byggð á nokkuð öðrum grundvelli en þeirra tryggingafélaga, sem hér eru starfandi, en hin nýja tegund trygginga, sem þarna verður fáan- leg, er mjög að ryðja sér til rúms erlendis, að því er Konráð Axels- son safði í viðtali við blaðið. Heimili og varnarþing félagsins er í Englandi, en það hefur um- boð í öðrum löndum, m.a. í Lux- emburg. Fyrir tæpum mánuði var opnuð ný verzlun í Hraunsholtshverfinu, þar sem verzlunin Ás hafði áður ei+t af útibúum sínum. Nýja verzlunin heitir Garðakjör. Eigandi hennar er Gísli Ingólfsson. Þarna er verzlað með allar almennar vörur og nýlenduvörur Þetta er eina verzlunin á stóru svæði, en verzlunarþörf þarna hefur verlð leyst með bílum Heims=ndingar eru á döfinni í Garðakjöri, sem er hin vistlegasta verzl- un, eins og meðfylgjandi mynd ber með sér. (Tjmamynd KJ)

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.