Tíminn - 03.04.1965, Síða 3
LAUGARDAGUR 3. apríl 1965
TfMINN
KLUX
KLAN
WBmmmmmmmmmmmmmmmm
JHM-Reykjavík.
Fyrir skömmu lýsti Johnson
Bandaríkjaforseti stríði á hendur
Ku Klux Klan glæpahreyfingunni,
sem 'hefur vaðið uppi í Suðurríkj
unum í áraraðir með glæpa- og
ofibeldisstarfsemi. Ku Klux Klan,
er sú hreyfing sem hefur sett svo
svartan blett á bandaríska þjóð-
félagið, að hann verður seint af-
máður. Þótt LBJ hafi nú lýst því
yfir, að hann ætli að láta FBI-
ríkislögregluna athuga starfsem-
ina hjá KKK, þá er ekki þar með
sagt að henni verði útrýmt.
Það eru fáir sem ekki hafa
heyrt um Ku Klux Klan hreyfing
una, og nú síðustu dagana hefur
hún oft verið á forsíðum heimsblað
anna. Hreyfingin hefur notað jafn
réttindabaráttuna í Bandaríkjun-
um til að vekja á sér athygli enn
á ný, auk þess myrtu fjórir KKK-
meðlimir hvíta konu, sem hafði
tekið þátt í baráttu svertingjanna
í Alabama.
KKK-hreyfingin varð fyrst til
í Suðurríkjunum rétt eftir að
borgarastyrjöldinni lauk, og var
upphaflega andspyrnuhreyfing
gegn yfirgangssemi Norðurríkja fyrir stjórnarhermennirnir fjólubláa. Mörg önnur félög, með
manna sem ka iaðir voru Yank á j öðrum nöfnuií spruttu einnig
ees, og til að stemma stigu við , . . '• _____1 u »
frelsi svertingjanna. Hin upphaf j , Ku Klux Klan menmrmr voru : uPf> en markmiðið var það sama
lega hreyfing varð aldrei langlíf, j a lerl1 eltlr óimma tok og j þ m um.
en margar aðrar hreyfingar með roru marSir saman til að fremja Smam saman lognaðist hreyfing
sama nafni hafa verið stofnaðar ! g^æpaverk sín. Þeir hengdu, húð i in út af, en þá var listi glæpa- og
síðan. Þær hafa allar eitt sameig- i strýktu, og veltu fólki upp úr: myrkraverkanna orðinn langur og
inlegt og það er að ná hámarki í: tjöru og fiðri, samkvæmt eigin ■ blóðugur, og Ku Klux Klan hreyf
stærð og veldi og hjaðna svo nið-ídoml- Sambandsþingið og stjórn- ingin var búin að setja óhugnan
ur aftiir Sii trpvfinn sem nú á ln reyndu oft að rannsaka' legt hrennimerki a þjoðina. Starf
Ur aítUr‘ 6U hrC-m° Sem nU starfsemi þeirra, en þá „iugu þeir! semin hjá hreyfingunni var 4ittl
eins og herramenn", þegar þeir i um og eftir aldamótin, eða þar
voru yfirheyrðir. Þeir urðu fljót- j til 1915, en þá var ný hreyfing
, lega fjölmennir og öflugir en ! stofnuð. Aðalmaðurinn var Willi-
samstaðan var aldrei mikil, og: am J. Simmons, fyrrverandi her
að rannsaka er ekkert skyld hinni
upphaflegu hreyfingu, nema að
naf/iinu til og ýmiss sjónarmið eru
þau sömu.
Fyrsta Ku Klux Klan félagið var
stofnað á aðfangadagskvöld árið
1865, af sex ungum hermönnum
úr Suðurríkjahernum. Nafnið
bjuggu þeir til úr gríska orðinu
„kyklos“, sem þýðir hringur. Síð-
an bættu þeir orðinu „klan“ við til
að fá samhengið. Búninginn, hinn
síða, hvíta kufl, tóku þeir í notk-
un að gamni sínu, og þegar þeir
þeystu um héraðið Pulaski í Tenn
essee tóku þeir eftir því að veg-
farendur urðu mjög skelfdir.
Hreyfingin stækkaði mjög ört,
og fljótlega varð það markmið
hennar að hindra sem mest allt
frelsi hinna nýfrelsuðu svörtu
þræla. Eins reyndu þeir að koma í
veg fyrir að Norðurríkjamenn
næðu of miklum tökum á Suður-
ríkjunum á Endurreisnartímabil-
inu frá 1867 til 1876.
Hreyfingin var formlega stofn-
uð í Nashville, Tennessee, árið
1867, og var kölluð af meðlimun-
um ,hið ósýnilega ríki Suðursins".
KKK-hreyfingunni var skipt niður
í ríki héruð og flokka, sem voru
kallaðir „ljónabæli". Æðsti mað-
urinn var nefndur ,,hinn mikli
töframaður" og næstir honum
komu „stór drekar", þá ,hinir
miklu risar“ og þannig mætti lengi
telja. Kuflarnir voru notaðir til
að hræða negrana og koma í veg
KKK-félögin voru mörg, og litur; foringi, prédikarí, og .félagslvnd
inn á kuflum þeirra var marg-1 ur maður“. F. B. Simkins segir í
breytilegur, allt frá h^ítum í I bók sinni „History oí thc South“,
Hér er eiknimynd af upprunalegum Ku Klux Klan mönnum í Norður-
Karólínu. Þeir ætluðu sér að hengja þennan mann, sem hét John
Campell, og hafði nnið það eitt af sér að vera republlnkanl. Honum var
bjargað á síðustu stundu af lögreglunni.
að þessi nýja KKK hafi verið
stofnuð sem þjóðernislegur félags
skapur sem hafi haft það mark
mið að halda merki Suðurríkjanna
hátt á lofti og til þess að
klekja á „svertingjum, kaþólikk-
um, Gyðingum, útlendingum, og
mönnum sem væru frjálslegir f
trúarbrögðum sínum.“ Auk þess
var það markmið þeirra að verja
„virðingu hvítu konunnar“ og
veldi mótmælenda.
Þessi nýja KKK-hreyfing var
stofnuð í Georgíuríki og hafði að-
eins um 5000 meðlimi þar til
1920, segir Simkins. en þá dreifðu
tveir auglýsingastjórar, Edward Y.
Clarke, og frú Elisabeth Tyler,
áróðri um KKK starfsemina, sem
hafði þau áhrif, að tugir þúsunda
félagsmanna bættust við. í kring
um 1925 voru meðlimirnir í KKK
orðnir á milli fjórar og fimm millj
ónir manna. Krossar voru víða
brenndir í Bandaríkjunum á
þessu timabili, segir Simkins, en
brennandi kross er tákn Ku Klux
Klan manna. Á fjöldafundum sín
um mótmæltu þeir negrum, kaþól
ikkum, bruggurum, Gyðingum,
bjartsýnismönnum, Bolsevikkum,
og þeim sem fylgdu þróunarkenn-
ingunni. Þessir menn voru aftur
haldsinnar, þröngsýnir og hrædd
ir við þróun nútímans, og vildu
helzt geta skriðið aftur f fornöld
og framið svartagaldur.
Stjórnmálamenn í Suðurríkjun
um notfærðu sér hreyfinguna til
að komast til valda og fremja alls
konar óheiðarlega starfsemi. Þetta
var ein af ástæðunum fyrir veldi
því sem stafaði frá hreyfingunni,
auk þess sem hún kenndi fólkinu
að óttast starfsemina og myrkra-
verkin. Á tímabilinu 1926—29
flettu dagblöð landsins ofan af
glæpum hreyfingarinnar og upp
Framhald á 14. síðu
1
3
Á? VÍÐAVANGI
150 millj. kr. óðatjot
Áætlun gatnamálastjóra um
framkvæmdir í gatna- og hol-
ræsagerð í Reykjavík á þessu
ári, var samþykkt í borgarráði
í miðri þessari viku. Á mið-
vikudag var áætlun þessi send
borgarfulltrúum til álita, en
ætlazt til ,að hún væri endan-
lega afgreidd á fundi borgar-
stjórnar daginn eftir. Þetta er
150 millj. kr. áætlun, eða því
sem næst, og hún víkur tölu-
vert frá heildaráætluninni, sem
gerð var til fimm ára árið 1962.
Sumum borgarfulltrúum
fannst þetta að vonum fullmik
ið óð-agot, og lítill tími gæfist
til athugunar á þessari mikil-
vægu áætlun, og Einar Ágústs-
son, borgarfulltrúi Framsókn-
arflokksins, mæltist til þess,
að tvær umræður færu fram
um áætlunina í borgarstjórn,
eða að borgarfulltrúum gæfist
að minnsta kosti meiri frestur
til að athuga hana. Borgar.
stjóra virtist afar illa við þetta
og sagði, að slíkt kæmi sér
mjög illa, og varla væri til of
mikils mæl<zt, að borgarfull-
trúar tækju þegar — eftir eins
dags athugun — fullnaðará-
kvörðun um málið.
Slík afgreiffsla í borgarstjórn
er að sjálfsögðu fyrir neðan all
ar hellur. Smámál eru athuguð
miklu lengur og betur í borg-
arstjórn og miklu Iengri frest-
ur er heimtaður, ef leggja á
fram einfaldar tillögur í borgar
stjórninni, en áætlun um meg-
inframkvæmdir borgarinnar,
upp á 150 millj. kr. eiga borg-
arfulltrúar að afgreiða með
dagsfresti. Og borgarstjórinn
beitir hiklaust meirihlutaliði
sínu til þess að neita um at-
hugunarfrest og knýja málið f
gegn með hraði. Það er eins
og íhaldinu standi einhver ótti
af nánari athugun þessa máls.
Nánar verffur sagt frá áætlun
inni, umræðum um hana og
gagnrýni Einars Ágústssonar
um meðferð málsins hér í blað
inu næstu daga.
Erlend fjárfesting
Það er engu líkara en Vísir
opni augun í stóriðjumálinu í
fyrsta sinn. Hann sér allt í
einu nokkra annmarka á mál-
inu og ýmsar hættur ,sem var-
ast beri. Hann uppgötvar allt í
einu, að þetta er „erlend fjár-
festing” á íslandi en ekki ís-
lenzk. Auðvitað sér hann kost-
ina við alúmín-verksmiðju
fyrst, við öðru var varla að bú-
ast, en á eftir bregður svo viff,
að hann sér nokkra annmarka
og segir:
„En vitanlega þarf margt að
varast í þessum efnum, þótt
kostir erlendrar fjárfestingar
séu margir og augljósir. Við
höfum búið við mikla þenslu
í efnahagslífinu og mikla um-
frameftirspurn eftir vinnuafli.
Ef sú þensla er enn aukin, hef-
ur það í för með sér ,að dýrtíð-
arhjólið mun snúast með enn
meiri hraða. Þess vegna verður
að fara hér með fyllstu gát,
vegna þessara ómótmælanlegu
staðreynda........Við höfum
lengi treyst á fiskinn ,og víst
má það ekki ske, að erlend
fjárfesting verði til þess að
draga úr framkvæmdum í sjáv-
arútvegsmálum”.
Vísir er sem sagt ekki alveg
staurblindur, þrátt fyrir alla
glópskuna, sem hann hefur lát-
Framhald á 14. sfffu