Forvitin rauð - 01.12.1976, Blaðsíða 2
2
útgefandi
efnisyfirlit
Rauösokkahreyfingin, Skólavöröustíg 12, Reykja
vxk. Sími 28798.
Að útgáfu blaðsins unnu aö þessu sinni:
Guörún ögmundsdóttir
Helga ölafsdóttir
Ingibjörg Rán Guðmundsdóttir
Álfheiður Steinþórsdóttir
Margrét Jóhannsdóttir
Silja Aöalsteinsdóttir
Forsíða: Hjördís Bergsdóttir
Ljóö: Pétur Gunnarsson.
Merktar greinar eru á ábyrgð
höfunda - ekki hreyfingarinnar.
u
Úr starfinu bls.
Þing Rauösokka "
Vinnumálalöggjöf "
Láglaunaráöstefna "
ASB "
Frá Mandebevægelsen "
Dagvistunarmál "
Frá Fél. starfsfólks í veitinga-
húsum "
Af ASÍ þingi "
Ræða Snorra Sigfússonar haldin
1. des . "
Atvinnulýöræöi "
Viötal "
2
3-4
5
6
7
8
11
12
15
16
19
20
fréttir af starfinu
I haust og vetur hefur hreyfingin starfað í
hópum, sem hafa haft ákveðin starfssviö. Þeir
hópar sem nú eru starfandi eru:
Verkalýðsmálahópur. Hann hefur farið í gegnum
drög aö nýrri vinnumálalöggjöf og sent frá sér
ályktun til fjölmiöla, þar sem löggjöfin er
fordæmd. Einnig hefur hann kynnt sér stefnu-
skrá ASÍ. Nokkrar úr hópnum fóru á láglauna-
ráðstefnu Sóknar og geröu þar grein fyrir
starfi hópsins varðandi vinnumálalöggjöf o.fl.
Verkalýðsmálahópur hefur aö mestu séð um"For-
vitin Rauð"aö þessu sinni, þar sem blaðið
fjallar aöallega um verkalýösmál.
-Tengill hópsins er Guðrún ögmundsdóttir.
Dreifbýlishópur■ Hópurinn hefur samband viö þá
aðila úti á landi sem starfa £ samvinnu við
hreyfinguna. Ætlunin er að
Staglið komi út á vegum hópsins fyrst á næsta
ári í þeim tilgangi aö komast í samband viö
einstaklinga og hópa sem áhuga hafa á starfi
með Rauðsokkum.
Hópur um dagvistunarmál■ Hann var stofnaður á
ráðstefnu um kjör láglaunafólks 16. maj 1976.
I hópnum eru félagar úr verkalýðshreyfingunni,
rauðsokkar og annaö áhugafólk. Starfshópurinn
setti sér tvíþætt verkefni:
1. að vinna að kynningu á dagvistunarstofnunum.
2. að vinna að því að fá ákvæði inn £ kjara-
samninga um ákveðnar greiðslur £ dagheimila-
sjóð.
Hópurinn hefur unnið að þv£ að undirbúa kynn-
ingu á dagvistunarmálum £ fjölmiðlum. Mark-
miðið með þessari herferð er að kynna innra
starf dagvistunarheimila, uppeldisgildi þeirra
og vekja menn til umhugsunar um það, hvers
vegna dagvistunarheimili eru nauðsynleg £ nú-
t£ma þjóðfélagi.
Starfshópurinn sendi öllum aðildarfélögum ASl
bréf, þar sem félögin voru hvött til að láta
dagvistunarmálin til s£n taka.
Tengill hópsins er Rannveig Jónsdóttir.
Húshópur■ HÓpurinn kemur saman vikulega.
Hann sér um að fá fólk á daglegar vaktir, en
£ Sokkholti er opið alla virka daga nema laug-
ardaga milli 5 og 7. Sömuleiðis reynir hóp-
urinn að halda £ horfinu á staðnum. Fylgst er
með greiðslum £ hússjóð og haldið við spjald-
skrá yfir félaga £ hreyfingunni.
Mikilvægt er fyrir hreyfinguna að hafa tengi-
lið í hverjum skóla og einnig á stærri vinnu-
stöðum.
I Haskola Islands er Svava Guðmundsdóttir
tengill , Kennaraháskóla Islands Ingibjörg
Rán Guðmundsdóttir og Lindargötuskóla Fanný
Gunnarsdóttir. Fleiri eru beðnir að gefa sig
fram sem fyrst
Opið hús er fyrsta fimmtudagskvöld £ hverjum
mánuði.
I miðstöð hreyfingarinnar eru nú:
Helga ðlafsdóttir s. 26777
Herdis Helgadóttir s. 19638
Ingibjörg Rán Guðmundsdóttir s. 82732
Svava Guðmundsdóttir s. 33339
Hildur Jónsdóttir s. 30504
Helga Kristmundsdóttir s. 74862
Margrét Jóhannsdóttir s. 85163
Staglið, fréttabréf hreyfingarinnar, kom út
siðast í november. Guðrún ögmundsdóttir og
Svava Guðmundsdóttir sáu um útgáfu þess.
Ath. I Sokkholti, Skólavörðustig 12 er opið
alla virka daga nema laugardaga milli 5 og 7■
Þar er hægt að fá allt útgáfuefni hreyfingar-
innar. Bókasafn hreyfingarinnar er opið á sama
t£ma. S£mi 28798.