Forvitin rauð - 01.12.1976, Síða 5

Forvitin rauð - 01.12.1976, Síða 5
5 vísað til foðurhusanna! - um nýju vinnumálalöggjöfina - Borgarastéttinnihefur tekist á undangengnum 2 árum aö auka gróöa sinn gífurlega. Henni hefur tekist að minnka félagslega þjónustu til muna og takmarka samneyslu. Fjárveitingar til skóla, sjúkrahúsa, dagheimila o.s.frv. hafa farið stórlega minnkandi. Henni hefur tekist aö minnka kaupmátt launa um liölega helming. Og allt þetta hefur henni tekist án þess aö verkalýðshreyfingin hafi veitt neina teljandi mótspyrnu. Og bjartsýnin veöur uppi. I sigurvímu sinni reynir hún síðan að ganga enn lengra. Pólitískir fulltrúar hennar á þingi taka sig til og berja saman frumvarp. Og í þetta sinn á nú aö nota tækifærið meðan byrlega blæs og njörva samningsrétt verka- lýösins í þær skorður sem borgarastéttinni hentar. Nýja vinnumálalöggjöfin er ein sví- virðilegasta atlaga aö samningsrétti verka- lýösins, sem atvinnurekendur í bræöralagi viö fulltrúa sína á þingi, hafa vogaö sér aö gera tilraun til. Framan af var heldur ekki annað sýnt en aö henni tækist þaö. ASl forystan gætti draganna eins og sjáaldurs augna sinna og virtist ekkert á þeim buxunum að hefja umræöur meðal alls verkafólks um frumvarpið og undirbúa gagnaðgerði. Sjálf forysta verkalýöshreyfing arinnar lúrði á þeim £ marga mánuði þangað til frumkvæðis hennar varÖ ekki lengur beðið. Andstaöan hefur farið hrað vaxandi. Nú er svo komiö aö flest öll verkalyösfelög hafa tekið málið fyrir og sent fra ser alyktanir sem hvetja til baráttu gegn löggjöfinni í heild. Og af hvaða sökum er andstaðan gegn henni slík að krafist er að henni verði gjörsam- lega vísað á bug og aldrei lögö fyrir þing? I drögunum felst siðlaus tilraun ríkisvalds- ins til aö skeröa lýðræðisleg réttindi verka- fólks, réttinn til aö hafa áhrif á kjör sín og skipuleggja sig fyrir faglegum og póli- tískum hagsmunum stéttarinnar. Ihlutunarvald fulltrúa ríkisvaldsins er aukið til muna á kostnað réttar verkalýðsins til frjálsra samninga. Verkfallsrétturinn er takmarkaður með auknum möguleika ríkisvaldsins til aÖ ráðskast aö eigin geöþótta meö framkvæmd verkfalla. Stéttarandstæðingum verkafólks er gefiö vald til að fresta verkföllum og sátta- semjara er gert lýgilega auðvelt að koma miðlunartillögu í gegn. Tryggja á áframhald ólýðræöislegra samningagerða meÖ því að skrúfa fyrir upplýsingastreymi frá umbjóðend- um verkafólks út til allrar stéttarinnar. Af einskærri ást til lýöræöisins eru póli- tískir fulltrúar atvinnurekenda látnir semja slíkt frumvarp og af sömu lýðræðisástinni á að láta jábræöur þeirra á þingi samþykkja slíkt yfir verkafólk. Stéttarandstæðingar verkafólks hafa engan rétt til aö setja því skorður með löggjöf. Það er réttur stéttarinnar og engra annarra að skapa sér leikreglur. Uppsagnafrestur samninga og önnur atriði sem varÖa vígstöðu stéttarinnar eiga ekki aé vera lögbundin heldur samningsatriöi. Með því að beita því afli sem í verkalýös- stéttinni býr, getur hún aukið áhrif sín í þjóðfélaginu og orðið afl sem einungis lýtur eigin hagsmunum. VerkafólkT Við verðum að búa okkur undir baráttu gegn frumvarpinu. Það er ekki nóg að setjast niður og álykta um málið. Það eitt út af fyrir sig fær ekki ríkisstjórnina til að hörfa. Við verðum að búa okkur undir að beita öllum þeim meðölum sem okkur eru til- tæk til aö koma í veg fyrir að frumvarpið verði nokkru sinni lagt fyrir þing. Og ef þeir skil'ja ekki fyrr en skellur í tönnum þá búum við okkur undir að beita okkar sterk- asta vopni - allsherjarverkfalli. Hildur jónsdóttir.

x

Forvitin rauð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.