Forvitin rauð - 01.12.1976, Qupperneq 6

Forvitin rauð - 01.12.1976, Qupperneq 6
6 Af láglaunaráðstefnu Sóknar HVER ER TILHAMHURIMM ? Láglaunaráðstefna á vegum verkakvennafélagsins Sóknar var haldin sunnudaginn 14. nóv.s.l. í Hreyfilshúsinu viö Grensásveg. Það er ekki ætlunin aö koma með neina úttekt á því sem þar fór fram, heldur láta þá sem ráð- stegnuna sátu segja til um tilgang hennar. Eins og flestir vita, þá hefur Rauðsokkahreyfingin haft frumkvæðið að fyrri láglaunaráðstefn- um sem haldnar hafa verið, og hefur það komið skýrt í ljós, að verkafólk er reiðubúið til að ræða sín brýnustu hagsmunamál. Þau viðtöl sem hér fara á eftir voru öll tekin á ráðstefnunni. Elísabet Sveinsdóttir. verkakvennafélaginu Framsókn: Þær ern nauðsynlegar til þess að upplýsa ástanct hjá láglaunahópum, og koma af stað upplýsingamiðlun, svo og leggja áherslu á að láglaunafólk verði að berjast saman og mynd mynda sterkan hóp, því það lítur út fyrir, að mjög erfitt sé að berjast innan þessa stóra ramma, Ragna Bergmann, verkakvennafólaginu Frajnsókn: Það er sjálfsagt að halda ráðstefnu af þessu tagi, til þess að upplýsa verkafólk um stöðu sína og hagsmuni. Dagbjört Sigurðardóttir,verkalýðsfélaglnu Bjarma Stokkseyri; Láglaunaráðstefnur af þessu tagi eru mjög nauðsynlegar til þess að efla og styrkja bar- áttu láglaunafólks og koma af stað upplýsinga streymi um hvernig málin standa. Einnig tel ég rétt að benda á það, að allar þær láglaunaráðstefnur sem haldnar hafa verið, hafa farið fram hjá ASl-forystunni: Þeir hafa átt kost á að koma eins og allir aðrir en þeir hafa ekki notfært sér það. Þórunn Valdimarsdóttir, verkakvennafélaginu Framsókn. Að láta í sér heyra, um þann launamismun sem þrífst innan ramma verkalýðshreyfingarinnar. Það eru ekki einungis launakjur,sem fólk þarf að berjast fyrir,heldur margt fleira s.s. líf- eyrissjóðirnir.Því ekki er nægjanlegt að hafa fulla tösku fjár-ef ekkert fæst fyrir það. Björgvin Sigurðsson, verkalýðsfélagjnu Bjarma. Stokkse.yri: Nauðsynlegt til að sameina fólk í baráttunni vekja umræðu um kjör láglaunafólks.Svo og er þetta til eflingar á stéttarvitund verkafólks. Herdís (5lafsdóttir. verkakvennafél.Akraness: Þetta er til þess að vekja athygli á kjörum hinna raunverulegu láglaunahópa, en hér eru þeir langt fyrir neðan það sem gerist annars staðar á Norðurlöndum. öskar Vigfússon.form.Sjómannasamb.Islands: Ráðstefnur af þessu tagi eru tvímælalaust til góða.Þær vekja athygli á raunkjörum láglauna- fólks. Þær geta einnig orðið til þess að ýta á forystuna til þess að gera eitthvað raunhæft varðandi kjör láglaunafólks. Elías Kristjánsson Iðjuverkamaður, Reykjavík Ig tel nauðsynlegt að verkafólk komi saman og ræði sín mál því heiðarleg og opin ximræða hlýtur alltaf að vera jákvæð. En allar að- gerðir, hvaða nafni sem þær nefnast, verða máttlausar ef aldrei er tekin pólitísk afstaða til málanna. Verkalýðshreyfingin á Islandi sameinuð undir einu merki, gæti verið sterkt afl, en hefur verið gerð að sljórri faghreyf- ingu, þar sem stjórnmál eru feimnismál og allt reyrt niður í geldar lagakvaðir að undirlagi fjandmanna verkalýðsbaráttunnar. Verkalýðs- hreyfingin er ekki sterkt afl í dag, stéttar- vitundin hefur verið afskræmd og launafólki att saman I stríð milli launaflokka í stað

x

Forvitin rauð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.