Forvitin rauð - 01.12.1976, Side 13
★★★★★★★★★★★★ ★★★★★★★★★★ 13 ★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★
starfsfólks í veitingahúsum
sínu sem stéttarfélag. En hafa þá félags
menn ekki brugðist þeirri skyldu að veita
forustu sinni aðhald.
KB.: Það hefur lítið veriö gert til að breyta
félaginu hingað til. En nú viröist eins
og fólk sé að vakna til meðvitundar um
stöðu núverandi félagsforustu og að þörf
sé róttækra breytinga.
HJ.: Við höfum talað við fjölda fólks og lang
flestir virðast gera sér grein fyrir
ástandinu og eru reiðubúnir til að leggja
sitt af mörkum í því skyni að gera fél-
agið að raunhæfu stéttarfélagi. Það hlýt-
ur að vera kominn tími til að grípa til
einhverra ráðstafana þegar vænlegra er
orðið fyrir verkafélk að leita til at-
vinnurekenda en félags síns í von um leið
réttingu sinna mála.
Að lokum viljum við benda á, að núverandi
formaður hefur setið í 8 ár og það er
kominn tími til að hann taki sér frí.
Viðtal við Indriða Halldérsson formann
Félags starfsfélks í veitingahúsum.
- —i
Hversu lengi hefur þú verið formaður fé-
lagsins ?
Sv. Frá árinu 1968 - eða samtals um 8 ár.
Hvaða tilgangi þjénar þetta verkalýðsfélag?
Sv. Þetta félag hefur innan sinna vébanda allt
ófaglært starfsfélk á veitinga- og gistihúsum,
og sér um að bæta hag þess, svo sem með kaup-
kröfum o.fl.
Telur þú að mikill árangur hafi náðst frá
því að félagið var stofnað ?
Sv. Já, það tel ég. Ég hef fylgt þessu félagi
frá stofnun eða frá 1949, og tel ég stofnun
þess tvímælalaust hafa verið til hagsbéta fyrir
félkiö.
Eru allir þeir sem vinna við þessi störf
félagsbundnir?
Sv. Já, þeir eiga að minnsta kosti að vera það,
kannski þé ekki þeir sem vinna í litlum sjoppum
en allir þeir sem vinna á stofnunum sem eru í
Sambandi Veitinga-og Gistihúsaeigenda.
Félk verður líka nú orðið að vera í verkalýðs-
félagi sérstaklega vegna atvinnuleysisbéta og
fæðingarorlofs.
Hver innheimtir félagsgjöldin ?
Sv. Þau eru innheimt einu sinni á ári og sjá
veitingahúsin um það, og við fylgjumst með þv£,
sérstaklega £ sambandi við lifeyrissjéðina,
þannig getum við fylgSt vel með þv£, hverjir
eru £ félaginu
Telur þú kjör félagsmanna vera sambærileg
við kjör annarra innan ASÍ.
Sv. Já, meira að segja heldur fyrir ofan önnur
félög, þar sem við tékum inn £ okkar samninga
1% meira, þ.e.a.s. okkar fólk fær þetta greitt
£ stað þess að önnur félög láta þetta ganga upp
£ ýmsan kostnað svo sem sloppakaup, b£lakostnað
o.fl.
Er mikið leitað til félagsins, ef félki er
sýnt éréttlæti, t.d. samningsbrot ?
Sv. Já, töluvert, þé sérstaklega varðandi kaup-
útreikninga og útskýringar á samningum.
Einnig leitar félk utan af landi talsvert til
okkar, og látum við það fá samningana. En
þetta folk er ekki í felaginu, heldur þv£
verkalýðsfélagi sem er á hverjum stað fyrir
sig.
Hefur félagið þurft að standa £ málaferl-
um við atvinnurekendur - vegna samningsbrota?
Sv. Nei, þess hefur aldrei þurft, málin hafa
verið sjötluð. En annars höfum við okkar
lögfræðing - ef til þess þarf að koma.
Hins vegar var eitt préfmál fyrir Félagsdémi,
við töpuðum þv£ en þar var um sérsamninga að
ræða svo það kemur ekki hér inn£.
I tengslum við ofangreind viðtöl féru nokkrir
félagar úr Rsh. á vinnustaði og hittu að máld
félk sem er £ félagi starfsfélks á veitinga-
húsum, og spurðum það um kaup þess, vinnu-
aðstöðu, stéttarfélagið og fleira.
Hér fara á eftir þær upplýsingar sem £ ljés
komu ( ath. nöfn eru ekki nefnd ).
Umferðarmiðstöðin
Fastakaup er um 65.oo kr. á mánuði, en þar
ofan á bætist vaktaálag og mest er hægt að
komast £ loo.ooo kr.,en þá er unnið alla
néttina £ 3 vikur ( þ.e.a.s. á næturvakt ).
Starfsaðstaða félks er ágæt. A veturna er
fastur matartfmi, en á sumrin er mun meira
að gera og þá er matartiminn tekinn þegar
tækifæri gefst.