Forvitin rauð - 01.12.1976, Blaðsíða 15

Forvitin rauð - 01.12.1976, Blaðsíða 15
15 Um AST Tpirtg 33. þing ASl er nýlokið þegar þetta er skrif- að. Undanfarin ár hafa stórfelldar kjaraskerð ingar dunið yfir launafólk og það er greini- legt að hægri stjónin sem nú situr við völd virðist ekki kvika frá stefnu sinni að skerða kaupmátt launa, sem einustu leið til að mæta óðaverðbólgunni. Auk þessa hefur hún í bí- gerð drög að vinnumálalöggjöf, sem á að skerða samningsrétt verkafólks að miklum mun. Þó segja megi að öll þing ASl seu mikilvæg á það ekki síst við nú, þegar verkalýðsstétt- in stendur frammi fyrir þeim vanda sem blasir við. ATÖK Heyrst hafði fyrir þing og kom strax í ljós í upphafi, að átök yrðu á þessu þingi. Hópur þingfulltrúa átti erfitt með að skilja, að fulltrúar íhaldsins ættu sæti I stjórn ASÍ. Einn þeirra Kolbeinn Friðbjarnarson sagði í blaðaviðtali: "Sjálfstæðisflokkurinn er flokk ur atvinnurekenda og fjármagnseigenda, stofn- aður til að verja forréttindi þeirra fyrst og fremst gegn verkalýðshreyfingunni. Sem for- ystumenn I verkalýðshreyfingunni eru þeir auðvitað skemmdarverkamenn." En fljótlega kom í ljós að ekki voru allir gegn Sjálfstæðismönnum I þessu máli og úrslit in urðu þau,að enn sitja þeir íhaldsmenn í miðstjórn ASÍ. "ÖRÖLEGA DEILDIN" Hópur fulltrúa, sem ýmist eru skipulagslega óháðir sjtórnmálaflokkum, meðlimir í Abl., eða Fylkingunni, vöktu athygli á þessu þingi fyrir að vilja ganga lengra en"forystan" í mörgum málum, t.d. afstöðunni til íhaldsins. Þessi hópur var kallaður "órólega deildin" I fjölmiðlum. Og víst virtist hún skapa ugg ekki bara hjá íhaldinu, heldur einnig meðal gamalla, vel gróinna forystumanna ASÍ, þegar hver tillagan annarri róttækari var borin upp. Umræður urðu því töluverðar, ekki síst vegna áhrifa þessa hóps. Samt setti makkið, písk- rið og uppgjörin í bakherbergjunum of stóran svip á þetta þing, sem hin fyrri. NIÐURSTÖÐUR ÞINGSINS Geysilegt ályktanaflóð kom frá þessu þingi og verða þær teknar til meðferðar í verkalýðs málahóp Rauðsokkahreyfingarinnar, og vonandi víðar. Við ætlum að láta okkur nægja að nefna nokkur mikilvæg atriði. - Samþykkt var að, stefna að 100 þúsund kr. lágmarkslaunum - . Að sjálfsögðu er þessi upphæð of lág til að lifa af I dag. Þó gekk ekki þrautarlaust að fá þessa tillögu samþykkta, og voru jafnvel fulltrúar innan ASl henni mótfallnir. Það verður að leggja mikla áherslu á þessa kröfu og við vonum að ASl framfylgi henni og skrifi aldrei undir samninga um lægri laun. - Þá var samþykkt ályktun gegn rikistjórninni Það er mjög eðlilegt og sjálfsagt að samþykk- ja slíka ályktun á ASl þingi. En hvað kemur I staðinn? Er það heildarlausn mála að fá vinstri sjórn? Það var vinstri stjórnin sem á sínum tíma tók vísitölutryggingu launa úr sambandi. Við verðum að berjast fyrir skilningi á nauð- syn verkalýðsvalda I þjóðfélaginu. - Island úr Nató og herinn burt - Þetta er gleðileg ályktun frá þinginu og mikilvægt að ASl láti málið kröftuglega til sín taka. Einnig voru samþykkt mótmæli gegn drögum að nýrri vinnumálalöggjöf. Alyktað var um dag- vistunarmál, og var ríkisvaldið hvatt til að auka fjárveitingu til dagvistunarstofnana. En Það er ekki nóg að samþykkja ályktanir gegn árásum á alþýðu, ef ekki er haldið áfram, spurt hvað á að koma I staðin, og hvernig baráttunni skuli hagað.' Reynslan hefur kennt okkur, að hvað sem segja má um mikilvægi þinga sem þessara, þá er sú barátta mikilvægust sem háð er af verkafólki alla daga ársins, á vinnustöðum þess og I verkalýðsfélögum. Alfheiður Steinþórsdóttir.

x

Forvitin rauð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.