Forvitin rauð - 01.05.1978, Qupperneq 5

Forvitin rauð - 01.05.1978, Qupperneq 5
5 Orskakir þessa, skortur á leiktækjum, skipu- lagsleysi og fæð starfsfólks, má rekja til afstöðu yfirvalda, sem líta á dagheimilin sem illa nauðsyn og reyna að komast frá vandanum á sem billegastan hátt. "GÓð" barnaheimili Ef barnaheimili á að vera gott þarf að huga að mörgu og þá í fyrsta lagi að byggingunni sjálfri. Burt með þessar hefð- bundnu aldursskiptu deildir, sem allar byggingar virðast nú miða við. Við viljum aldursblöndun sem er að öllu leyti heppi- legri fyrir börnin. Þá geta þau bæði verið með jafnöldrum sínum,yngri börnum og eldri. Yngri börnin bæta við orðaforða sinn og líkja eftir hinum eldri hvað varðar daglegar venjur, sem örvar þroska þeirra. Þau eldri lasra að umgangast sér yngri börn, taka tillit til þeirra og sýna þeim umhyggju. Systkini gætu þá líka veri ð saman. Þar að auki kemur aldursblöndun í veg fyrir flutninga milli deilda, en þeir eru í hæsta máta óæskilegir fyrir barnið. Það er þá rifið úr umhverfi sem það er farið að venjast, frá leikfélögum og þeim fóstrum sem hafa annast það. Þetta skapar öryggisleysi, sem getur orðið afdrifaríkt fyrir börn. Áður en lög um dagvistunarheimili gengu í gildi í apríl 1973j voru aðstæður víðast hvar hörmulegar. H1jóðeinangrun og loftræsting voru algerlega vanræktir þættir, og ef barn þurfti að fara á salerni varð það að enda- sendast húsenda á milli. Með áðurnefndum lögum batnaði ástandið til muna en enn vantar mikið á. Það er grundvallaratriði að hús- næðið sé bjóðandi bæði börnum og fullorðnum. Það þarf að vera hlýlegt og vistlegt en kuldalegt umhverfi vekur öryggisleysi hjá barninu. Rannsóknir síðari ára hafa sýnt að einhæft umhverfi getur haft skaðleg áhrif á þroska barnsins. Það er í hæsta máta óæskilegt að börn ákveðinna hópa og atvinnugreina skuli ganga fyrir um pláss á barnaheimilum. Margoft hefur verið bent á að börn þessi fá skekkta og afbakaða mynd áf lífinu, þar sem þau umgangast á barnaheimilinu börn sem koma úr nákvæmlega samskonar umhverfi og þau sjálf. Ramvinna starfsfólks og foreldra í samtali okkar við tvær fóstrur kom fram að áhugi foreldra er sorglega lítill á því sem fram fer á dagheimilum þar sem börn þeirra dvelja. Líta foreldrar kannski á dagheimilin sem geymslustaði eins og yfirvaldið? Halda þarf foreldrafundi reglu- lega ef foreldrar þurfa einnig að taka virkan þátt í stríðinu við yfirvöldin um betri og fleiri dagheimili. Koma þarf á nánarl sam- vinnu við foreldra. Foreldrar öðlast þannig skilning á starfinu og öllum aðstæðum á barnaheimilinu en einnig auðveldar það uppal- endum að koma sér saman um leiðir til að ráða fram úr vanda sem upp kann að koma hjá hverju einstöku barni. Starfsfólk Störf á barnaheimilum eru mjög ábyrgðarmikil því að þar fer fram uppeldi komandi kynslóða. Störfin hafa hingað til verið vanmetin, kaupið lágt, enda eru þetta kvennastörf. Sem dæmi má nefna fóstrurnar, en þær eru í 10. launaflokki. Vegna mikilvægi starfs- ins þarf fólkið sem vinnur á dagheimilum að vera vel menntað á sviði uppeldis og sálarfræði, til þess að það geti sinnt þörfum barnsins. Starfsfólk þyrfti að vera af báðum kynjum og á öllum aldri. Af báðum kynjum vegna þess hve óæskilegt það er, að börn séu eingöiagu alin upp af konum, móðirin fyrst, þá fóstran og loks kennslukonan í skólanum. Nú þegar finnast dæmi þess að börn hræðist karlmenn og gamalmenni, vegna þess að þau þekkja ekki slík fyrirbæri. T.d. þyrfti gamalt fólk að hafa tækifæri til að heim- sækja dagheimili, tala við börnin, segja sögur og þess háttar. Auk þessa þarf að fjölga starfsfólki til muna, til þess að hægt verði að huga að fjöl- þættara starfi innan barnaheimila. Þau mega ekki vera geymslustaðir.

x

Forvitin rauð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.