Forvitin rauð - 01.05.1978, Síða 13
©
ráðist sé gegn sjálfum rótum hennar:
|H| þjóðfélagsgerðinni. Kvennabaráttan sé því
þáttur í baráttu verkalýðsstéttarinnar
fyrir þjóðfélagslegum völdum og sköpun
nýrra þjóðfélagshátta. Byltingarsinnaðir
femínistar vilja þannig taka þátt í baráttu
verkalýðsins fyrir brýnustu baráttumálum
hans hverju sinni. Það getur ekki verið
markmið verkakonunnar að öðlast sömu stöðu
og arðrændur eiginmaður hennar, faðir og
bróðir.
Af hverju ólíkar stefnur?
Af ofansögðu má vera ljóst að kvennabarátta
í stéttasamfélagi kapítalismans tekur á
sig ólíkar myndir. Allar konur eru kúgaðar
sem kyn, en þær upplifa þessa kúgun á ólík-
an hátt eftir því hvaða stétt eða þjóðfé-
lagshóp þser tilheyra. Allir femínistar
berjast gegn karlveldiseiginleikum samfé-
lagsins, gegn karlrembuhugmyndum, og rísa
upp gegn hefðbundnum hugmyndum um stöðu
kvenna og hlutverk þeirra. Til eru hópar
borgaralegra femínista sem láta staðar
numið við þetta. Þeir vilja ekki leita or-
sakanna að kúgun kvenna í samfélagsgerðinni
og reyna því að kenna "vonsku" eða "eigin-
girni" karlmanna um það hvernig ástandið
er. Þeir líta svo á að þar sem karlmenn
kúgi konur séu þeir höfuðóvinurinn sem
berjast þurfi gegn.
Yfirstéttarkonur eiga ekki við sömu
vandamál að stríða og verkakonur. ÞÓtt þær
fari ekki varhluta af kynferðislegri og
hugmyndalegri kúgun þá hafa þær efnahags-
lega möguleika til að losa sig undan þeim
vanda sem hrjáir verkakonur mest: tvöföldu
vinnuálagi, menntunarskorti, slæmri vinnu-
aðstöðu, skorti á barnagæslu, fjárhags-
áhyggjum o.m.fl.
Andstætt borgaralegum femínistum byrja
byltingarsinnaðir femínistar einmitt á
þessum vandamálum. Baráttumál þeirra miða
að því að leita lausnar á þeim, leita
lausna sem stuðla að alhliða frelsun
kvenna (og karla) samhliða því sem þeir
berjast gegn afturhaldssömum viðhorfum og
karlveldiseiginleikum samfélagsins. Bylt-
ingarsinnaðir femínistar leita allt annarra
skýringa á kúgun kvenna en hinir borgara-
legu.
Orsakir kvennakúgunar
Hvað eigum við rauðsokkar við með þeirri
fullyrðingu að orsakir kvennakúgunar liggi
í samfélagsgerðinni? Hverra hagsmunir ráða
því að konur eru undirokaðar efnahagslega
og félagslega? Þessum spurningum verður
best svarað með því að byrja á sjálfum
"hornsteini þjóðfélagsins", fjölskyldunni.
12
í öllum stéttskiptum þjóðfllögum sög-
unnar hefur fjölskyldan gegnt sama hlut-
verki í meginatriðum. Hún ber ábyrgð á
umönnun og framfærslu þeirra einstaklinga
sem innan vébanda hennar eru. Innan hennar
hefur konan verið húsdýr og heimilis-
þræll.
Með uppkomu kapítalismans glataði fjöl-
skyldan því hlutverki að vera í senn fram-
leiðslu- og neyslueining. Hún einangraðist
frá framleiðslunni og varð aðsetur einka-
lífsins. Konan hélt þjónustuhlutverki sínu
á heimilinu, einangraðist hins vegar frá
framleiðslunni og varð efnahagslega háð
framfæranda fjölskyldunnar, sem í flestum
tilvikum var eiginmaður hennar. Þetta hef-
ur leitt af sér efnahagslegt ósjálfstæði
kvenna og ósjálfstæði þeirra á öðrum
sviðum.
Hlutverk kvenna á heimilinu, að þjóna
eiginmanni, börnum og oft á tíðum gömlu
fólki og sjúku, hefur afgerandi áhrif á
stöðu þeirra í atvinnulífinu. Úti í at-
vinnulífinu vinna konur nú þau störf sem
áður voru unnin á heimilunum. Þær vinna
ýmiss konar þjónustustörf á spítölum, í
skólum og almenn skrifstofustörf, og eru
þessi störf á sama hátt og heimilisstörfin
lægst metin og lágt launuð. Almennt er
litið á laun kvenna sem aukagetu við heim-
ilistekjurnar, og konurnar hyllast til að
líta á heimilisstörfin sem aðalstarf sitt.
Það er litið á einkalífið sem óviðkomandi
hinu opinbera og vandamál kvenna það að
lútandi sem ópólitískt mál.
"Aðsetur ástar og umhyggju"
Ríkjandi hugmyndafræði borgaralegs þjóðfé-
lags beinist öll að því að réttlæta ríkj-
andi astand. Hlutverk fjölskyldunnar er
hafið til skýjanna, hún á að vera aðsetur
ástar og umhyggju, það er lögð áhersla á
að hún sé "hornsteinn þjóðfélagsins".
Reynt er að svæfa meðvitund kvenna um rétt
sinn með því að innprenta þeim þær hug-
myndir að hið rétta eðli konunnar sé að
vera blíð og undirgefin, að sýna fórnfýsi
og þjónustulund. Hennar S9ðsta sæla á að
vera að komast í hjónaband og eignast börn
til þess að fórna sér fyrir. Allt uppeldi