Morgunblaðið - 25.08.1948, Side 8

Morgunblaðið - 25.08.1948, Side 8
MORGUNBLAÐIÐ VTiðvikudagur 25. ágúst 1948. Út*.: H.f. Arvakur, Reykjavik. Framkvítj.í 6ifffúg Jónsson. f jj Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrfSarnt). Frjettaritstjórl: ívar Guðmundsson. Auflýslngar: Aml GarCar Krlstlnaara. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiSsla: Auaturstræti 8. — Sírni 1600. Askrlftargjald kr. 10,00 á mánuði, innanlflnda, í lausasölu S0 aura eintakið. 75 aura m«3 Lasbók. kr. 12,00 utanlands. s • „Ovenjuleg mann- dómsraun “ „Á UNDANFÖRNUM árum hefur það verið óvenjuleg mann- dómsraun að stunda landbúnað á fslandi.“ Þannig er komist að orði i svartleiðara Tímans í gær. Svo mörg eru þau orð. „Óvenjuleg manndómsraun“. Orsökin til þess fyrst og fremst talin sú, að fólkið flýr svo ört úr sveit- unum. Líklegt væri, að einhverjum Framsóknarmönnum dyttu í hug orð skáldsins ástsæla: „Hvað er þá orðið okkar starf“ — í þrjá tugi ára. Skyldi ekki sumum þeirra geta fundist, að til lítils hafi verið unnið að búnaðarumbótum á Fram- sóknarvísu, úr því það skuli vera orðin alveg „óvenjuleg manndómsraun" að stunda búskap hjer á landi? Höfundur þessarar Tímagreinar reynir að vísu að bera fram afsökun fyrir flokk sinn, segir að vondir menn hafi helst viljað að lagður yrði niður landbúnaður íslendinga, og því hafi fólkið ekki tollað í sveitunum. En hverjir skyldu það vera, sem viljað hafa landbúnaðinn feigan, aðrir en kommúnistar, sem að sjálfsögðu vilja vinna hjer það skemd- arverk, sem önnur, til þess að gera þjóðina ósjálfbjarga. Stefna Sjálfstæðisflokksins gagnvart landbúnaðinum hef- ur verið, er, og verður þessi: Að bændur njóti styrks til sjálfsbjargar, svo búskapurinn á velræktuðum jörðum verði í framtíðinni öruggasti atvinnuvegur landsmanna. En það hafa verið ær og kýr Framsóknarflokksins frá fyrstu tíð, að gera bændastjett landsins sem háðasta styrkj- um og ívilnunum. Þó Framsóknarflokkurinn hafi aldrei feng- ið helming bændastjettarinnar í lið með sjer, eftir 30 ára gerfiforystu í málefnum þeirra, þá hefur þessi flokkur tafið svo fyrir gagngerðum breytingum til bóta, í atvinnuháttum bænda, að það er að hans dómi orðin óvenjuleg manndóms- raun, að stunda búskap á Islandi. Þetta er sorgarsagan í hnotskurn um feril Framsóknar- flokksins. Væri Framsóknarmönnum full alvara með umbótavið- leitni sína, á sviði búnaðarmála, þá myndu þeir taka öðru vísi á þeim, reyna að læra af 30 ára óförum sínum. Og taka x verki undir með mönnum innan Sjálfstæðisflokksins, sem sagt hafa, og segja enn, að megináherslu verði að leggja á það, að gera landbúnaðarframleiðsluna sem ódýrasta og óháðasta öllu öðru atvinnulífi í landinu. Eftir því sem fram- leiðslukostnaðurinn er minni, en framleiðslan öruggari, eftir því verður það minni „manndómsraun" að vera bóndi á Is- landi. Grundvöllurinn að tryggri framleiðslu og ódýrari, var lagður með Jarðræktarlögunum fyrir aldarfjórðungi síðan. En fyrir pólitískt brask Framsóknarflokksins, hafa lög þessi ekki enn í dag komið að því gagni, sem þeim var ætlað. Allan tímann, sem þau hafa verið í gildi, hefur það t. d. verið vanrækt, að láta jarðræktarframkvæmdir þær, sem styrks njóta, fara fram eftir skipulagðri áætlun sjerfræð- inga. Það sem var gert að undirstöðuatriði við setning lag- anna í upphafi, bætt hirðing á búfjáráburðinum, er ekki komin í lag enn í dag. En þrátt fyrir þessa lítt skiljanlegu og óafsakanlegu undanlátssemi, er hrópað og kallað á áburð- arverksmiðju, eins og það eitt ætti að vera allsherjar um- fcót að framleidd verði innanlands ein tegund áburðar af þrem, sem til jarðræktarinnar þarf. Og það áður en tekið er fyrir þau vanþrif, er af því hlýst, er áburðarefni þetta er látið fara forgörðum í hlaðvörpum bænda. En hinir pólitísku spekúlantar, sem í Tímann skrifa tala digurbarka- Iega um það, að bændur þurfi mikil verkfæri. Og það er satt. En hafa sömu menn hreift sinn fingur, til að sporna við því, að þau hin sömu verkfæri, ryðguðu niður á sömu slóðum, og hin dýrmætustu áburðarefni renna til ónýtis? Það verður manndómsraun að breyta loddaraskap Tíma- manna gagnvart umbótamálum bændanna í skipulagðar að- gerðir sem að gagni koma. En það mun takast, fyrir atgerðir Sjálfstæðisflokksins, sem frá öndverðu hefur lagt aðal áherslu á, að hver íslenskur bóndi gæti lifað sjálfstæðu lífi, t jörð sinni, sem kóngur í ríki sínu. ÚR DAGLEGA LÍFINU Skriffinska. ERLENDIR skátar komu hing að í sumar sjer til skemtunar og fróðleiks. Þeir kunnu, að sögn, heldur vel við sig. Voru enda hepnir með veður og fengu bestu viðtökur hjá íslensku skát unum. En þegar þessir skátar ætluðu að fara heim til sín, eftir nokkra vikna dvöl í landinu og fóru í skipaafgreiðsluna til að kaupa sjer farmiða heim var þeim sagt að ekki gætu þeir fengið keyptan farmiða, nema að þeir kæmu með skjöl og skilríki fyrir því frá tollstjóra og bæjaryfir- völdum, að þeir skulduðu enga skatta á íslandi! Skátum er kent að vera við- búnum, en þessu höfðu þeir ekki gert ráð fyrir. En þannig er skiffinskan orð- in hjer á landi á mörgum svið- um. Gesturinn átti ekki að fá heimfararleyfi. ALDRAÐUR merkismaður ís lenskur, sem gegnt hefir em- bætti 'í Danmörku í 40 ár var boðinn hingað til íslands í sum- ar. Það voru vinir hans og ætt- ingjar, sem buðu honum til að sjá gamla landið og hitta vini og venslamenn eftir langa úti- vist. ' Þessi heiðursmaður var hjer í góðu yfirlæti og átti sjer einsk is ills von, fyr en hann fór að hugsa til heimferðar. Þá þurfti maður að ganga undir manns hönd til þess að fá leyfi fyrir hann til að kaupa farseðil heim. Gesturinn átti ekki að fá heim faraleyfi. Fleiri álíka dæmi um fáránlega skiffinsku hafa kom- ið fyrir hjer síðustu vikurnar. Eftirlit nauffsynlegt ■ — en ji ÞAÐ ER að sjálfsögðu nauð- synlegt að eftirlit sje haft með því, að erlendir menn komi ekki hingað til lands til að græða pen inga og hlaupi svo út aftur án þess að greiða lögboðin gjöld. ■ Er það ætti að liggja í augum’ uppi að skátaunglingar komi ekki hingað til að græða f je. * Það verður að gera greinar-, mun á erlendum ferðamönnum og hinum, sem koma hingað í fjáröflunarskyni og ætti það ekki að vera mikill vandi að sjá það í hendi sjer. < Til nokkurs að vera að hæna' erlenda ferðamenn til landsins 1 þeim tilgangi m. a. að afla er- lends gjaldeyris, en gera þeim síðan svo erfitt fyrir með skrif- finsku, að þeim finnist ekki ómaksins vert að koma hingað í skemtiferð. • Reyna að slá sjer upp . EN BROSLEGT er að sjá þeg ar kommúnistar reyna að slá sjer upp á þessum mistökum. Það er þó vitað, að hvergi er eins mikil skriffinska, eins og þar sem þeir ráða. Skriffinskuna er ekki hægt að kenna neinum einum stjórnmála flokki, eða ákveðinni ríkisstjórn. Hún er afleiðing þeirra hafta og banna, sem allir flokkar hafa staðið að, meira og minna, og ekki s'ist kommarnir. Og nú þykjast þeir ætla að „slá sjer upp“ á misfellunum. Það væri líklega eitthvað betra ef þeir rjeðu! Skussarnir þeir og óráðsíurnar, sem þeir hafa sýnt sig vera, bæði hjer og annars- staðar. • Hætta á ferðum. SKRIFFINSKAN, eftirlit hins opinbera og afskiftasemi á öll- um sviðum hefir farið mjög í vöxt hjer á landi undanfarin ár. Það má segja með nokkrum rjetti, að almenningur bjóði hættunni heim, sem felst í mikl um afskiftum ríkisvaldsins, með því m. a., að gera sífelt meiri kröfur til ríkisins. Það er heimt ‘að að ríkið sjái fyrir matvælum, fatnaði og öðrurn nauðsynjum og þá er eðlilegt, að ríkisvaldið ,vilji fá íhlutun um framferði 'borgaranna í einhverju hlutfalli -við kröfurnar. 'I, Við, sem höllumst að frelsi einstaklinga á sem flestum svið- ,um þykjumst sjá, að stefnt sje ’í ranga átt og að þjóðin sje nú einmitt að súpa seyðið af því, að það heíir verið hlustað of mikið á bullara og lýðskrumara eins og kommúnista og jafnvel farið að ráðum þeirra, því miður. En áhrif þeirra fara nú senn að minka og eiga eftir að hverfa með öllu, þegar almenningur hef ir áttað sig á hverskonar menn þeir eru. • Vandamál. JÁ, þau eru mörg vandamál- in Það er t. d. stúlkan, sem segist hafa hinar mestu áhyggj ur af því, að X-9 myndasagan sje hætt að koma í blaðin, eink- um vegna þess, að nú geti hún ckki fengið að vita hvort X-9 giftist Lindu eða Vildu. En stúlk an, sem hefir áhyggjur af þessu stóra vandamáli, heitir Sigga Stína og biður mig að segja sjer hvorri X-9 giftist. Það skal jeg gera. X-9 giftist hvorugri. Það er ekki hægt að láta svoleiðis karl, eins og X-9 giftast, því þá væri sagan búin. X-9 myndi setjast í helgan stein og ekki fá að fara út á kvöldin til að elta bófa fyrir konunni sinni, hvort sem hún hjeti Linda eða Vilda. MEÐAL ANNARA ORÐA . . . . i 5 I Mexiko vill fleiri ferðamenn Eftir GUILLERMO MORENO, frjettaritara Reuters. STJÓRNARVÖLDIN í Mexi- kó hafa ákveðið að hefja mikla herferð til þess að auka ferða- mannastrauminn til landsins. Næstum miljón Bandaríkja- dollurum verður varið til að auglýsa landið utanlands, en af þessari fjárupphæð hafa ein- staklingar og fyrirtæki lagt fram um það bil helminginn. Ríkisstjórn Mexikó, sem ger ir sjer vel ljóst hversu efna- hagur landsins á mikið undir ferðamönnum komið, hefur heit ið því, að leggja fram jafnmik- ið fje og safnast meðal almenn- ings. • • MIKIL ÁHRIF Erlendir ferðamenn hafa um mörg undanfarin ár haft geysi- mikil áhrif á fjárhag Mexikó og allra ibúa landsins, jafnt ríkra sem fátækra. Þetta sjest best, þegar það er athugað, að meðal fyrirtækjanna, sem nú styrljja túristaherferð stjórnar- valdanna, eru hjólbarðaverk- smiðiur, rafmagnsstöðvar, mexi kanska happdrættið, mörg vá- tryggingáfjelög og jafnvel nokk rir veðlánarar. Sjerstök nefnd hefur verið skipuð til þess að stjórna á- róðrinum fyrir auknum ferða- mannastraumi. Enda þótt öllum undirbúningi sje enn ekki lok- ið, má búast við því, að nefnd- in taki mjög bráðlega til ó- spiltra málanna. • • AUKIN DÝRTÍÐ Margt hefur orðið til þess, að mexikönsku stjórnarvöldin hafa sjeð nauðsyn þess að aug lýsa kosti Mexikó fyrir vænt- anlegum ferðamönnum. Eink- um er óttast, að vaxandi dýr- tíð muni draga úr ferðamanna straumnum, auk þess sem bú- ast hefði mátt við aukinni sam keppni Evrópulanda. Nú hefur hinsvegar komið í ljós, að sam kepni Evrópu er ekki enn orðin hættuleg, sjerstaklega vegna stjórnmálaástandsins þar og ó- vissunnar, sem ríkir hvarvetna í álfunni, En dýrtíðin hefur reynst Mexikönum erfiðari viðureign ar. Ljóst er orðið, að ef ekk- ert verður að gert, kann vax- andi verðlag að hafa það í för með sjer, að stöðugt færri ferða menn leggi leið sína til Mexí- kó, og þó einkum frá Banda- ríkjunum, en ferðamenn það- an eru auðvitað eftirsóttastir, vegna dollaraeklunnar allsstað ar í heiminum. • • 100.000 FERÐAMENN Mexikanska stjórnin hefur gefið út skýrslu um ýmislegt, sem við kemur erlendum ferða- mönnum fyrstu fimm mánuði þessa árs. Skýrslan ber það með sjer, að ennþá sækir fjöldi manna Mexikó heim, enda þótt stjórnarvöldin sjeu þó hvergi ánægð. Samkvæmt skýrslunni komu 104,497 ferðamenn til Mexíkó á þessu tímabili. Þessir ferða- menn eyddu samtals 30.000.000 dollurum • • BJARTSÝNI Þrátt fyrir alla erfiðleika, er þó svo að sjá, sem Mexíkó- búar geri sjer góðar vonir um, að erlendir ferðamenn færi þeim með tímanum jafnmiklar tekjur og fyrir stríð. Þessi bjarsýni kemur meðal annars fram í því, að í Mexikóborg eru mörg ný og stór hótel í smíðum. En stjórnarvöldin eru þó þeirrar skoðunar, að tak- ist ekki að lækka dýrtíðina, megi búast við síminnkandi ferðamannatekjum. Embættis- menn láta jafnvel á sjer skilja, að ekkert þýði að auglýsa Mexí kó sem ferðamannaland, meðan ekki hefir tekist að stöðva hið síhækkandi verðlag. Frægur landkönnuður látinn. Los Angeles — Gena Lamb, frægur landkönnuður, rithöfund- ur og fyrirlesari, sem var fyrsti maðurinn, sem tók mynd af La- manum í Tíbet 1924, ljest nýlega af hjartaslagi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.