Morgunblaðið - 11.11.1950, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 11.11.1950, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 8. nóv. 1950. MORGUNBLAÐIÐ lí Ólafur BJörnsson, Árbakka SÍSH S. K. K. K. S. K. R. R. Minnlngarorð í DAG verður jarðsunginn í Höfðakaupstað Ólafur Björns- son bóndi á Árbakka, fyrrum oddvití Vindhæiinga, er andað- ist að heimili sínu þann 1. þ.m. 85 ára að aldri. Hann var nú elstur þeirra manna er efíir lifðu af þeim er á fyrstu áratugum þessarar aldar stóðu í fararbroddi í fje- lagsmálum Húnvetninga. Þeir Inafa að undanförnu fallið i val »nn hver af öðrum og eru nú fáir eftir. Ólafur BjÖrnsson var fæddur í Finnstungu í Blöndudal 14. febrúar 1865. Foreldrar hans voru hjónin Björn Ólafsson bóndi á Ystagili og síðar í Finnstungu og kona hans Anna Lilja Jóhannsdóttur bónda á Þorbrandsstöðum Jónssonar. Björn bóndi Ólafsson var al- bróðir Arnljóts prests og al- þingismanns í Sauðanesi. Ólafur Björnsson ólst upp hjá foreldrum sínum, en fór snemma að vinna hjá öðrum og bjarga sjer á eigin hönd Hann fór á Möðruvallaskóla 25 ára og útskrifaðist þaðan 1892. Þann 18. júlí 1895 gift- £st hann effirlifandi konu sinni Sigurlaugu Sigurðardóttir bónda á Hellu í Blönduhlíð Sigurðssonar. Hófu þau bú- skap á Spákonufelli árið eftir, en fluttu síðan að Hofi á Skaga strönd og bjuggu þar nokkur ár. Að Árbakka fluttu þau ár- ið 1911 og hafa búið þar síð- an. Þau eignuðust tvö börn: — Björgu gifta Guðmundi Guð- laugssyni bónda á Árbakka og Björn er dó fulltíða maður ár- íð 1935. Þrjú börn tóku þau sem fósturbörn og ólu þau upp frá barnæsku, þau: Maríu Árnadóttur, Ólaf Ólafsson, nú bónda í Kambákoti og Þór- hildþ Jakobsdóttur Frímanns- sonar skálds á Skúfi. Voru þau Árbakkahjón þessum fóstur- börnum sem sínum eigin, og voru af þeim elskuð og virt sem foreldrar. Ölafur Björnsson fór snemma hð beita sjer í sveitar- og fje- íagsmálum. Hann kom ungur á stærsta hrepp Húnavatnssýslu Vindhælishrepp. Þar ól hann allan sinn aldur upp frá þvi. Þar beitti hann sjer fyrir sír.- «m áhugamálum og þar var hann um langt skeið einn af helstu forustumönnum og nauí mikils trausts. í hreppsnefnd var hann í 24 ár og þar af odd- viti í 21 ár. Hann var einn af aðal hvatamönnum um stofnun Verslunarfjelags- Vindhælinga. Formaður þess fyrstu 3 árin pg f. stjórnarnefnd þess samtals í £4 ár. Meðan Vindhælishreppur var óskiftur og það var hann allan þann tíma sem Ólafur var oddviti, þá mun hann hafa ver- £ð einhver allra stærsti hrepp- ur á landinu um 80 km. á lengd og mjög fólksmargur Er óhætt að segja, að $að var eigi heigl- um hent að standa þár fyrir HIÐ íslenska biblíufjelag var stofnað 10. júlí árið 1815, með 22 mönnum í Reykjavík. Sjera Ebenezer Henderson, fulltrúi Hins breska og erlenda Biblíu- fjelags, undirbjó jarðveginn, en forystu tók Geir biskup Vídalín. Mun fjelagið því vera elst allra starfandi f jelaga hjerlendis. Saga Biblíufjelagsins verður ekki rakin hjer. Hún er of löng til þess, en merk er hún og lærdómsrík á ýmsa lund og því miður flestum lítt kunnug, eins og eðlilegt er, þegar þess er minnst, að sárfámenn stjórn, sí- endurkosin meðan ævin entist, annaðist allar framkvæmdir, þegar einhverjar voru, og birti almenningi engar ársskýrslur. Undirritaður hefur sótt um j 2> anó íeiL u r I BREIÐFfRÐlNGABÚÐ I KVÖLB KL. 9. Aðgöngumiðasala r anddyri hússins frá kl. 5. *■■■■■■■■■■* ■■■■■■■■■■■■■*■■■■»»*■■■ sveitarmálum á þriðja tug ára eins og öllum högum var hátt- að á þeirri tíð. En Ólafur Björnsson var mjög áhugasam- ur og ósjerhlífinn forvígismað- ur sveitar sinnar út á við og innbyrðis, enda gefur að skilja, að hann naut traustsins éigi að ástæðulausu svo lengi sem raun varð á. Á samvinnumál- unum hafði hann og mikinn á- huga og taldi miklu varða, að sá fjelagsskapur dafnaði vel. Ólafur tók mikinn þátt í stjórnmálum, einkum á yngri árum. Hann fylgdi Sjálfstæðis flokknum g'amla, em gekk í Framsóknarflokkinn þegar hann var stofnaður og fylgdi honum upp frá því. Þó svo væri um þenna mann, að hann væri svo mjög tengd- ur fjelagsmálum og opinbervi starfsemi, þá var hann þó fyrst og fremst bóndi og heim- ilisfaðir. Heimili hans er og hefir verið mesta sæmdarheim- ili. Húsbóndinn glaður og reif ur. Húsfreyjan greind og sköru leg. Gestkvæmt mun þar oft hafa verið og gestrisni í besta lagi. Við sveitina og sveitástörfin var allur hugur Ólafs á Ár- bakka bundinn. Þar taldi hann farsældina helst að finna. Hann var ræktunarmaður mikili og það bæði á jurtir og búpening. Fór vel með fjenað sinn og hafði af honum góðan arð, enda jafnan öruggur með nægan fóðurforða. Á síðustu árum hafði hann að vonum dregið sig út úr öll- um opinberum störfum, enda heilsan þá farin að bila. Fans: honum þá margt ganga á ann- an veg en æskilegt væri en fagnaði þó þeim miklu verk- legu framförum sem orðið hafa á síðustu árum. Nú, þegar þessi aldraði bóndi kveður vora veröld, þá hafa sveitungar og vinir og samstarfsmenn margs að minn- ast frá liðinni æfi. En flestar og hugljúfastar eru þó minn- ingarnar fj'rir nánasta skyldu- lið. Konuna sem horfir yfir ást- ríkt hjónaband og langa æfi, dóttujina, tengdasoninn, fóstur börnin og aðra þá er nánust og lengst kynni höfðu af hinum látna. Minningarnar eru mikil eign og góð. Þakkirnar fyrir hið liðna fylgja út yfir hafið. J. P. Súglirðingar Súgfirðingar, búsettir í Reykjavík og nágrenni, sem hug hafa á að stofna Súgfirðingafjelag, eru vinsamlega beðnir að rita nöfn sín á áskriftarlista, sem liggur frammi í raftækjaverslun Eiríks Hjartarsonar h.f., Laugaveg 20B, fyrir 18. þ. m. 45 Biblíufjelagsfundi síðan^um; aldamót. Fundartíminn var röskur hálftími einhvern synó- dusdaginn. Þá var ársreikning- ur lesinn, stjórnin endurkosin „til næsta fundar“, og loks- greiddu viðstaddir guðfræðir.g- ar árstillög sín, eina eða tvær krónur. Ekkert minnst á, ao , aðrir væru eða ættu að vera fjelagsmenn. Svo var sá fund- ur á enda. Fyrir tveim árum var tveim mönnum bætt við í stjórn fje- lagsins. Skipa hana nú: biskup Sigurgeir Sigurðsson formað- ur, vígslubiskup Bjarni Jóns- son fjehirðir, prófessor Sigur- björn Einarsson bókari og sjera Magnús Már háskólakennari, og undirritaður, meðstjórnend- ur. — Þessi stjórn sendi í ársbyrjun 1949, í sambandi við nýskipað- an Biblíusunnudag, ávarp eða áskorun til landsmanria um að ganga í Biblíufjelagið. — Var því prýðilega tekið víða og mur, fjelagið telja nú um 800 með- limi. í vor sem leið var — i ryrsta sinn um langt skeið — enginn Biblíufjelagsfundur haldinn, í sambandi við synódus, enda fjelagið nú hætt að vera fyrst og fremst prestafjelag, þótt enn vanti leikmenn í stjórn þess. Nú á að halda aðalfund, með nýju fjelögunum — og þeim, sem við kunna að bætast á fundinum, — í Dómkirkjunni, mánudagskvöldið kemur kl. 8,30. Auk venjulegra aðalfundar- staNa verður þar lagt fram frumvarp að endurskoðuðum fjelagslögAi. mikilvæg fram- tíðarmál rædd væntanlega og erindi flutt. Vonandi verður fundurinn fjölsóttur. Sigurbjörn Á. Gíslason. - Úr heimsfrjetium Frh. af bls. 6 frá völdum og leitaði á náðir indverska sendiráðsins í höfuð- borginni ásamt ríkisarfanum og- öðru skylduliði sínu. Þriggja ára sonahsonur hans er settur í tignarstólinn, þó væntanlega ekki ýkja valdamikill. 48 TÝNA LÍFINU I FLUGSLYSI j Á föstudaginn var týndist 'indversk farþegaflugvjel í j Alpafjöllum. Var hún á leið frá ' Bombay til Lundúna með 40 indverska sjómenn, áhöfnin var 8 manns. Á sunnudag fannst vjelin á Mont Blanc. Var hún í gífurlegri hæð, þar sem geisaði. j stórhríð og grimmdarfrost. Sjö j manna björgunarleiðangur fór j . áleiðis til flugvjelarinnar, og; fórst einn þeirra í snjóflóði á j leiðinni. Ekki þarf að spyrja að j ■ ævilokum þeirra, sem í flug-j slysinu lentu. KVÖÍ, slálfslæoiskvennsfjclagið barnaskemmtun í Sjálfstæðishúsinu á morgun, og hefst hún stundvís- )ega klukkan 3,30. Skemmtiatriði: 1. Skrautsýning. 2. Kvikmyndasýning. 3. Baldur og Konni. 4. Aage Lorange spilar á skemmtuninni. Aðgöngumiðar fyrir börn f jelagskvenna og gesti þeirra og líka fyrir þá, sem þurfa að fylgja litlum börnum, verða seláir í dag í miðasölu Sjálfstæðishússins kl. 1— 4 e. h. — Óreldir aðgöngumiðar verða seldir á sunnu- dag kl. 1C—12 árd. á sama stað. SkemmtinefniHn. Al menn skemmtun i HÓTEL HVERAGERÐI, laugardaginn 11. nóvember og hefst klukkan 9 síðdegis. SKEMMTIATRIÐI: Ræða. Stúlkur syngja. Kvikmynd. Dans. Ferð frá Ferðaskrifstofunni klukkan 9 e. h. . _ . SLYSAVARNADEILDIN MANNBJÖRG. FUNDUB verður haldinn í Fóstbræðra|jelagi Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík, sunnud. 12. nóv. kl. 5 e. h. í Fríkirkjunni. FUNDAREFNI: Sjera Þorsteinn Björnsson, ávarp. Sigurður Isólfsson, orgelleikur. - Óperusöngvari Sigurður Skagfield syngur Próf. Guðbrandur Jónsson flytur erindi. Fjelagsmál. Nýir fjelagar velkomnir. STJÓRNIN. Keflvíkingar! Suðurnesjamenn! Tllkynning til viðskiptamanna Aðalstöðvarinnar. Höfum nú fengið útisíma við stöð okkar. Viðskipta- menn okkar geta því hringt í þann síma, þegar stöðin sjálf er lokuð. AÐALSTÖÐIN, Keflavik, * Sími 420. EEIBBBEM „BBBI" S.F. opnar í dag verslun að Laugaveg 74 undir nafninu ,,ROÐI“. — Seldir verða íslenskir leirmunir, olíumál- verk og vatnslitamyndir. LEIRBRENNSLAN ROÐI S/F. Laugavc^ 74. m ’«4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.