Morgunblaðið - 13.01.1952, Qupperneq 12
MORGVNBLAÐIÐ ^
r 12
Sunnudagur 13.janúar 1952 .
Tyrkir flyfja úl ko!
fyrsla sitini
AÍSTKAR — í fýrsta skipti flytja"
Tyrkir nú út kol. Hafa um 50
þús. smálestir þegar verið flutt-
ar til Frakklands. Er kolafram-
leiðsla Tyrkjg nú meiri en
nokkiu sinni fyrr, þar sem varið
hefur verið 40 millj. dala af
Marshallfé til etlingar Songuldak
kolanámunum.
í hittiðfyrra voru framleiddar
2.834 millj. smálesta af góðum
kolum, en 1.744 smál. 1938. Ætl-
unin er að koma framleiðslunni
upp í 3.500 millj. smálest á þessu
ári. __________________
Tii að koma í veg
fyrir árásarsíríð
PARÍSARBORG 12. janúar. —
Allsherjarþing S.þ. samþykkti í
dag tillögurnar um viðbúr.að að-
ildarríkjanna gegn árásarstríði,
sem Stjórnmálanefndin hafði
áður goldið jákvæði sitt við.
Gert er ráð fyrir, að aðildar-
ríkin hafi jafnan einhvern hluta
herafla síns tiltækan handa S.þ.
Geti þær gripið til þessa liðs, hve
nær sem þeim sýnist, til varnar
árásarstríði. Tillagan var sam-
þykkt með 51 atkvæði gegn 5
atkvæðum Rússa og hjáríkjanna.
Enn gin- og kiaufa-
vefki í Noregi
NÝTT tilfelii af gin- og klaufa-
veiki hefir orðið vart í Östfold í
Noregi. Öllum búpeningi var
slátrað í einum hreppi þar og
mjóikurbúinu í Sarpsborg hefir
verði iokað. Leikur grunur á að
manskur landbúnaðarverkamað-
ur hafi borið veikina. Yíirdýra-
læknirinn hefur skorað á bændur
að taka menn af sýktum svæðum
ekki til starfa fyrr en að undan-
genginni sótthreinsun á fötum
þeirra. — G.A._________
Yfiriýsing frá lands-
samlökum i9n-
aðarins
VEGNA frásagnar í dagblaðinu
Tíminn hinn 6. þ.m. að milli Fé-
lags ísl. iðnrekenda og Landssam
bands iðnaðarmanna sé nú „í upp
siglingu allhörð deila um hinn
væntanlega bankastjóra hins ráð
'gerða Iðnaðarbanka“, þá vilja
stjórnir L. I. og F. í. I. taka fram
eftirfarandi.
1. Það er tilhæfulaust með öllu
að nokkur deila sé í uppsiglingu
milli þessara aðila um banka-
stjóraval eða önnur atriði í sam-
bandi við stofnun Iðnaðarbank-
ans. Fullkomin samvinna hefur
ríkt og mun ríkja með landssam-
tökum iðnaðarins um að koma
þessari lánsfjárstofnun á la.gg-
irnar.
2. Verkefnið, sem nú bíður for
ystumanna iðnaðarins í sambandi
við Iðnaðarbankann, er söf.uur.
hlutafjár að upphæð 3Yz milli.
króna, og er það mjög illa til
fundið um þessar mundir að
koma þeim söguburði á kreik, að
iðnaðarsamtökin séu í innbyrðis
ósætti um þetta mikilvæga mál,
stofnun og rekstur Iðnaðarbank-
ans.
3. Það eru enganveginn stjórn-
ir L. I. og F. í. I., sem velja munu
bankastjórann, þegar sá tími
kemur, heldur stjórn hlutafélags
ins, sem kosin er með hlutfalls-
kosningum á árlegum aðalfundi.
Stjórn Landsambands
iðnaðarmanna.
Stjórn FéJags ísl.
ranrlo
Marskáikur af Frakkiandi
PARÍSARBORG, 12. janúar. —
Lagt hefir verið til, að Tassigny,
er var yfirmaður franska hersins
i Indó-Kína, verði sæmdur æðsta
nafnbót franska hersins og kall-
aður marskálkur af Frakklandi.
Hershöfðinginn lézt I gær.
— Reykjavlkurbrjef
Framh. af bls. 9.
nema þau fái nægilegt magn
köxnunarefnis, fosfórsýru og kalís
Þaö hefir komið í ljós við
athwganir á eðli íslenzks jrirð-
vegs á síðnstu árnm, að fosfór
sýruskortur er óvenjulega
mikill í íslenzkum ræktar-
lóndusn. Er því a!vei; sérstíik
ástæða til að minna á tillögu
Ásgeirs Þorsteinssonar vsrk-
frasðijigs, sem hann bar fram
hér í blaði.mi fyrir nokkru um
að slá tvær flugur í einu höggi.
Ilvería frá einhlioa köfnunar-
■eínis framleíðslu, og framleiða
biiindu fosfórsýru o% köfnun-
areínisáhurðar, er koma mnn
íslenzkum bændum r.ð tvö-
ffthium notum. Efnivöruna —
fosfórgrjótið, er hægt að fá í
Norður Aíríku. Er auðvelt að
flytja það hingað til lands með
þehn skipum, sem flytja fisk
héðan til MiðjarSarhafsJanda.
Með því að kaapa hingað
þessa efnivöru sparast erlend-
ur gjaldeyrir. Að öðrum kosti
þarf að kaupa fosfórsýrnáburð
inn tilbóinn til landsins.
Aburðartegund sem hefir inni
að halda tvö aðaláburðarefnin,
„nitrat“ og fosfórsýru, er bænd-
um hentugust bæði i ílutningum
og notkun. Þar er sprengihættan
ekki lengurfræðilegur möguleiki,
hvernig sem að er farið. Og þessi
áburðartegund er hin öruggasta
í geymslu. En „nitrat“-tegund-
irnar eru rakasæknar og því hætt
við að þær rýrni mjög vio
geymslu. t. d. yfir sumarið í
skemmum eða lélegum útihúsum
sveitanna.
Með því að snúa sér að hinum
blandaða áburði munu bændur
fá ódýrastan, notadrýgstan og
rneðfærilegastan áburð.
Hafís
FREGNIR hafa í þessari viku
borizt um nálægð hafíss við Vest
firði. Enda þótt ísfregnir hljóti
jafnan að vekja nokkurn ugg í
brjóstum þessarar þjóðar, sem á
liðnum öidum hefur orðið fyrir
þungum búsifjum af völdum haf-
ísa, er. þó naumast ástæða til þess
að verða mjög uppnæmur við
þeim að þessu sinni. Það er ekk-
ert ný bóla að hafís sé nálægur
norðvesturhluta landsins um
þetta leyti. Hitt er jafnvel al-
gengara að hann sé þar, að vísu
misjafnlega nálægt landi.
Fyrir nokkrum dögum hitti ég
níræða konu austan af Langa-
n.esi. Hún mundi oft eftir haf-
ísum við land þar. Einu sinni
henti það atvik á næsta bæ við
hana, að þegar komið var niður
úr svefnlofti að morgni hafði
stór hvítabjörn gert sig heima-
kominn og ruðst inn í bæinn.
Lagði hann leið sína í búrið og
tók að lepja mjólk úr fati. En
r.ærri má geta að fólkinu hafi
orðið allhverft við þessa heim-
sókn utan af ísbreiðunni, sem lá
við landið. Ekki varð neitt tjón
af henni og var bjorninn unninn.
Litvinoff og'
spádómur hans
LITVINOFF, fyrrverandi utan-
ríkisráðherra Sovét Rúslands og
einn af brautryðjendum komm-
únismanns þar í landi er nýlega
látinn. Með honum er til moldar
genginn einn af þekktustu og
svipmestu stjórnmálamönnum
Evrópu.
í sambandi við lát hans hefur
verið rifjað upp samtai, sem hann
átti við blaðamenn i Kaupmanna
höfn þegar hann dvaldi þar árið
1919, sem sendimaður þeirra
Lenins og Trotskýs þeirra erinda,
að vinna að friðarsamningum við
þau ríki, sem sent höfðu heri
til Rússlands gegn byltingarmönn
um.
Litvinoff lýsti því yfir í þessu
blaðasamtali, að kommúnistar
myndu þe.gar veita rússnesku
þjóðinni fullt prentfrelsi og
fundafrelsi er landið hefði verið
friðað.
Rúm 30 ár eru liðin síðan
scndimaður Lenins gaf þetta
fyrsrheit. En ennþá hefur rúss
neska þjóðin ekki fengiö það
efnt. Hinsvegar hafa frum-
kvöðlar byltingarinnar haldið
áfram að týna tölunni. Fimm-
tán úr innsta hring þeirra,
„Politbureauinu“, hafa orðið
ið „hreinsunum“ að bráð. Að-
eins tveir eru ennþá á lífi hinn
mikli Stalin og maddama
Kollontay. Jafnvel Karl
Radek, afkastamesti rithöfund
ur byitingariimar, sem Lit-
vinoff fékk framseldan úr
fangelsi í Þýzkalandi í fanga-
skiptum fyrir brezkan borg-
arstjórason, féll í ónáð og var
dæmdur fyrir svik og undir-
ferli gagnvart Sovéískipulag-
inu.
Þannig hefur rússneska bylt
ingin étið börn sín.
Ein af frásögnunum um dvöl
Litvinoffs í Kaupmannahöfn 1919
greindi frá því að einn af blaða-
mönnum kommúnista þar hefði
rætt við hann um væntanlega
kommúnistabyltingu í Dan-
mörku. Litvinoff brosti þá og
komst að orði á þessa leið:
Hér er enginn grundvöllur
fyrir byltingu. Þið skuluð ekki
hugsa um slíkt. Þið eigið allt
það, sem við í Rússlandi erum
að berjast fyrir. Vel má vera
að fyrir Maxim Litvinoff hafi
vakað að afla þjóð sinni þeirra
réttinda og þess frelsis, sem
hin fámenna en menntaða
danska þjóð naut. En hann
hefur orðið fyrir miklum von-
brigðum. Rússneska þjóðin
fékk ekki frelsið þót oki zars-
ins væri af henni létt. Nýtt
helsi var á hana Iagt, svart-
nætti nýrrar ofbeldisstjórnar
luktist um hana.
Dregið í happ-
drætli L. B. K.
DREGIÐ hefir verið í happdrætti
Landssambands blandaðra kóra.
Aðalvinningurinn, Piper Cup-
flugvél, kom upp á nr. 2234.
Flugferð tii Norðurlanda kom
upp á nr. 19953, málverk upp á
nr. 29631 og ferð frá Reykjavík
til Akureyrar með Ríkisskip nr.
12853.
Loftleiða ffetfai
aíis 1542H farþega s.L ár
SU MIKLA aukning, sem orðið hefir á farþega- og vöruflutning-
um Loftieiða á s. 1. ári sýnir m. a. að óðfluga stefnir nú til þess,
að flugvélin verði eitt helzta samgöngutæki okkar og eigi síður
notuð til flutninga á vörum en farþegum, en aukning farþega-
fiugsins nemur 24% í innanlandsflugi Loftleiða og 196% á vöru-
flutningum, miðað við árið 1950.
— Þýik viðreisn
Framh. af bls. 8
manna hljómsveit við Grosses
Haus.
Ýmsum Þjóðverjum er alls ekk
ert vel við, að útlendingar hafi
orð á hagsæld þar í landi. Benda
þeir á, að þar sé 1,25 .miUj. at-
vinnuleysingja. En ái’ið 1951
veitti atvinnumálaráðuneytið ,530
þús. atvinnuleysingja vinnu. Og
fjöldi vinnandi fóiks er nú hlut-
fallsiega miklu meiri en 1938.
Það er líka staðreynd, að í
Vestur-Berlin eru 225 þúsundir I
atvinnuleysingja að staðaldri. •—
Þetta er fólk, sem getur unnið og
vill vinna. Það kostar líka hér
um bil milljarð marka árlegan
styrk að halda Vestur-Berlln upp
úr skítnum.
ERU FLÓTTAMENNIRNIR
ENGIN BYRSI?
Ósigurinn í stríðinu og gengis-
festingin 1948 losaði Vestur-
Þýzkaland við hér um bil allar
innlendar ríkisskuldir. Aftur á
móti streymdu inn í landið
milljarðar í dölum. Skuldirnar
við útlönd, bæði þær, sem stafa
frá árunum fyrir og eftir stríðið,
hafa minnkað.
Margra skoðun er, að flótta-
mennirnir séu til engrar byrði,
þegar til lengdar lætur. Aftur á
móti heyrist oft talað um að auka
við vinnuaflið og jafnframt fram
leðsluafköstin. Og Bandaríkin
búa sig undir að veita Vestur-
Þýzkalandi víðtæka flóttamanna-
aðstoð.
Margir Vestur-Þjóðverjar, eink
um innan vébanda kirkjunnar,
líta vígbúnað landsins óhýru
auga. Hinir eru þó miklu fleiri,
sem telja að um sé að ræða leið-
ina að viðreisn landsins. Og prest
ur einn í Hameln, Graff heitir
hann, biður í kirkjunni fyrir
þýzkri æsku endurborinni í hin-
um prússneska anda.
> Árið 1951 ferðuðust alls 15.428
farþegar með flugvélum Loft-
leiða. Eru það heldur fleiri en
fluttir voru með vélum félagsins
árið 1950, enda þótt „Hekla“,
millilandaflugvél félagsins, væri
leigð allt árið og ferðuðust því
ekki aðrir farþegar á vegum fé-
lagsins landa í milli en þeir, sem
fiuttir voru vegna Grænlandsleið
angurs Dr. Lauge Koch, og -er
auk.ningin 24% í innanlandsflug-
inu miðað við fyrra ár. Aukn-
ingin er hlutfallslega miklu meiri
að því er vöruflutning'ana varð-
ar, en flutt voru alls 320,5 tonn
árið 1951 og er það 196% meira
en fyrra ár. Langmest hefir ver-
ið flutt af vörum til Vestmanna-
eyja og nemur aukningin á þeirri
leið einni 121,5 tonnum. Póst-
flutningar voru heldur meiri en
fyrra ár, eða alls 29.5 tonn.
Á s. 1. ári voru farnar 15 Græn-
landsferðir með Catalínavélum
Loftleiða og auk þess farnar
nokkrar ferðir milli hafna á
Grænlandi. Fluttir voru 210 far-
þegar og 13.5 tonn af vörum í
þessum i'erðurn.
Aukahmdur verSi
ekki að svo sföddu
PARÍSARBORG, 12. janúar. —
Allsherjarþingið hefir gert sam-
þykkt um aukafund Oryggisráðs-
ins. Lagði Vishinskí fyrir nokkru
til, að ráðið kæmi saman þegar
í stað og ræddi m. a. vopnahlés-
málin í Kóreu,
Bornar voru fram breytingartil
iögur, svo að nú hefir orðið að
samkomulagi, að aukafundur
komi saman seinna meir, þegar
henta þykir. Ekki verði þar raétt
um Kóreusamningana, því að það
muni aðeins spilla fyrir að sitja
að þeim á tveimur. stöðum sam-
tímis.
Rússar og hiáríkin greiddu at-
kvæði gegn tillögunum í þessari
nýju mynd.
ÚTSALA
Höfum ákveðið að selja ýmsar eldri vörur versl-
unarinnar fyrir allt að
IfáEf virði.
GJÖRIÐ SVO VEL AÐ LÍTA í GLUGGANA
imimimiiMiMiMiMMnmMimmMMMiluamHmiii.itmiimíimmmiiiiiiiiiiiiiimininmiiiiinimimimjiiiinni
imiimmmmifmBV
1) Nokkurn tíma skreiðist 2) Þeir þreýta hana. Það dreg-
birnan áfram á undan þeim ur stöðugt af henni. Loks nemur
Markúsi og Matta.
Ihún staðar og býzt til að verja
húnana sína með síðustu kröft-
um sínum.