Morgunblaðið - 30.08.1953, Síða 16
Yeðurúflit í dag:
N og NV-gola. — Léttskýjað
með köflum.
&
195. tbl. — Sunnudagur 30. ágúst 1953.
Reykjavíkurbréf
cr á bis. 9.
Verðmæti síldarinnar
á vertíðinni við Norður-
land um 60 millj. kr. virði
Vertíðinni senn lokið
FULLVÍST má telja, að síldarvertíðinni við Norðurland sé nú lokið.
Skipin eru nú flest hætt veiðum, og á söltunarstöðvunum er flest
aðkomufólk komið heim. — í fyrrakvöld flutti Davið Ólafsson
fiskimálastjóri erindi í útvarpið um síldarvertíðina. Var þar mik-
jnn fróðleik að fá. Skýrði hann m. a. frá því, að samanlagður afli
síldveiðiskipanna, en þau voru 163, væri að magni um 270 þús.
mál eða um 1660 mál á hvert skip.
Kvikmynd um nýtl
fáknmál fyrlr feeyrn-
Norðurlandameisiaranum bersf gjöf
TJARNARBiÓ sýmr ra. k.. sssnnu-
dag kl. 2 e. h. mýjj® ikvu&sisynd,
The New Sign ’Lwngmsgg*, «an efni
hennar hefir Sir Kikferii Paget
Bert, samið.
Myndin er nýtl 'ítabfflisDial fyrir
heyrnarlausa og naá]Ife''assa-_ —■- Á
undan myndinní roiíijitm préí£. Alex-
ander Jóhannessem sdkyEa efni
hennar.
Allir skólastióraK,, tonærarar og
aðrir, sem láta sig Isctiia. .msal varða
eru velkomnir á s.ýsii!5fflgiima á
meðan húsrúm leylir.
■SALTSÍLDIN
Á þessari vertíð lögðu skipin á-
íierzlu á að veiða síldina til sölt-
imar, enda mikill verðmunur á
saltsíldinni og bræðslusíldinni. — j
Bftir vertíðina nemur síldarsö.t-
unin rúmíega 150 þúsund tunnum
og eru útflutningsverðmæti þess-
arar síldar um 60 milljónir króna.
HÁLFS SÓLARHRINGS
BRÆHSLUAFLI
í erindi sínu skýrði fiskimála-
stjóri frá því að síldarverksmiðj-
urnar á Norðurlandi hafi enn í ár
crðið fyrir stórfelldum töpum. —
Bræðslusíldin sem veiddist var
RÉTT í ÞANN MUNÐ OG BLAÐ
IB VAR AÐ FARA í PRESS-
UNA, SÍMAÐI FRÉTTARITARI
MBL. Á RAUFARHÖFN, EINAR
JÓNSSON, AÐ ÖLL HERPI-
NÓTASKIP VÆRU HÆTT VEIÐ
UM VIÐ NORHURLAND. —
FRÉTTARITARINN SAGÐI REK
NETJABÁTANA SEM ERU
DJÚPT AUSTUR í HAFI OG
SALTA UM BORÐ, HAFA FENG
I® FRÁ HÁLFRI í HEILA
TUNNU SÍLDAR í NET í FYRRI
NÓTT.
HELSINGFORS, 28. ágúst —
Níunda umferð í heimsmeisf-
arakeppninni í bridge var spil-
uð i gær. Þegar fréttin barst,
var engri keppni lokið. —
Staðan er nú þannig, að Bretar
eru efstir með 12 stig, Sv'ss,
Ítalía, Frakkland og Svíþjóð
hafa II hvert, Egyptaland 9,
Belgía og Noregur 6, írland 5,
Danmörk og Finnland 4 hvott.
fundur Horðurlanda
á morgun
UTANRÍKISRÁ&HERRAFUND
UR Norðurlandanna verður hald-
inrt í Stokkhólmi dagana 31. ág.
og 1. september næstkomandi.
Fó- Magnús Vignir Magnússon
skrifstofustjóri utanríkísráðu-
neytisins, utan í morgun tíl að
sitja fundinn í foríöllum Bjarna
Benediktssonar, utanríkisráð-
hei’ra. Helgi P. Briem sendiherra
er sem stendur fjarverandi frá
Stokkhólmi.
|Á FÖSTUDAGINN var hringt í
j ritstjórn Mbl. og spurzt fyrir um
það, hvort það myndi brjóta í
bág við lög og reglur um skák-
! áhugamenn, að senda þeim
| nokkrar krónur. — Að fengnum
upplýsingum um, að slíkar gjaf-
ir væru þeim reglum óviðkom-
andi, var ritstjórninni sent opið
í bréf sem í voru 1000 kr. í pen-
ingum, með þeirri ósk að blaðið
kæmi þeim í hendur Friðriks!
Ólafssonar, skákmeistara Norð-
urlanda. — Starfsmenn hjá Agli
Vilhjálmssyni h.f., Laugavegi i
118, voru sendendur. — Friðrik '
var svo afhent peningabréfið i
ritstjórnarskrifstofum Mbl. og
gerði það einn blaðamannanna,
Anna Bjarnason. — Þessar línur
létu starfsmennirnir fylgja til
Friðriks: „Við dáumst af hinum
glæsilega skákferli þínum og
óskum þér innilega til hamingju
með unninn sigur. Hjálagða upp-
hæð biðjum við þig að þiggja,
sem vott um þakklæti okkar.“
Hefur Friðrik beðið Mbi. að
færa þakkir fyrir þessa höfðing-
legu gjöf.
(Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
ckki meiri en' það, að verksmiðj-
Xirnar nyrðra hefðu getað brætt
þetta magn allt á hálfum sóiar-
hring.
AFKOMA SKIPANNA
Um rekstrarafkomu síldveiði-
ekipanna sagði Davíð Ólafsson í
tæðunni, að flotinn hefði ekki orð
ið fyrir stóráföllum að þessu
sinni, þó nokkur skip hafi fengið
mjög lítinn afla. Þegar athugað-
air er afli þeirra skipa, sem eitt-
hvað fengu, er meðalafli herpi-
nótaskipa um 3800 mál, en
hringnótaskipa um 2800.
Á blaðsíðu 2 er útdráttur úr
Tæðu fiskimálastjóra.
9 hermannaskála? i senáð-
um á KeflavikuErflugveiíi
Ný fegund steypumófa nofuð við smíðlna
KEFLAVÍKURFLUGVELLI 29. ágúst. — Nýlega hafa verið teknar
i notkun tvær nýjar herskálabyggingar á Keflavíkurflugvelli. Eru
það varanlegar steinsteyptar byggingar, þriggja hæða. Sjö skálar
til viðbótar af sömu gerð eru enn í smíðum og verða senn tilbúnir.
Ný-naiisfar hand-
r
l
AMSTERDAM, 29. ágúst — Ný-
lega hefur hollenzka lögreglan
•tekið nokkra menn fasta í
Amsterdam, sem grunaðir eru
Um að hafa unnið að því að skipu
leggja hinn gamla nazistaflokk
Hollands. — í síðustu viku fór
nokkuð að bera á flokknum í
Hollandi og tilkynnti henfi m a.,
að hann mundi hafa menn í kjöri
við næstu þingkosningar í land -
Inu.
Meðal hinna handteknu er
forystumaður hollenzku n y -
nazistanna, Pal van Tienen Er
hann 31 árs að aldri og fyrrum
gestapómaður. Á skrifstofu hans
fannst fjöldinn allur af ýmis-
konar áróðursritum, sem öll voru
gerð upptæk. —dpa.
Skálarnir eru svo byggðir skv.
kröfu varnarmálanefndar að auð-
velt sé að breyta þeim í íbúðir
Islendinga þegar þeirra er ekki
lengur þörf fyrir varnarliðið.
í hverjum skála eru 72 herbergi
og auk þess sameiginleg dagstofa
á hverri hæð. Jafnframt verða
reistir tveir matsalir, er hver um
sig getur rúmað 500 manns í einu.
UPPFYLLA ISLENZKAR
BYGGINGARKRÖFUR
Samkvæmt ósk varnarmála-
nefndar uppfylla húsin kröfur,
sem gerðar eru til bygginga af
svipuðu tagi hér á landi. Verða
húsin því látin standa, þótt varn
arliðið hverfi af landi brott og
má þá taka þau til notkunar fyr-
ir íslenzkt starfsfólk á Keflavík-
urflúgvelli.
BYGGÐIR AF ÍSLENDINGUM
Skáiar þessir hafa að öllu leyti
verið byggðir af íslenzkum bygg-
ingarmönnum og verkfræðingum.
Eru það Sameinaðir verktakar,
sem annast hafa framkvæmdirn-
ar. Atbyglisvert er að íslenzkur
vikur er mikið notaður til einangr
unar við smíði húsanna.
Strætisvagni varaarliðsins
v O
fullum farþegnra hvolfir
STRÆTISVAGNI herliðsins á Keflavíkurflugvelli hvolfdi á leið-
inni frá Reykjavík til Keflavíkur á föstudaginn. Farþegar í vagn-
inum skrámuðust, en enginn slasaðist alvarlega.
SÉRSTÖK TEGUND
STEYPIMÓTA
Einnig má geta þess að
steypumótin voru ekki smíðuS
úr borðum, eins og venjuiegt
er hér á iandi, hcldur voru þau
sett saman úr stórum vatns-
þcttum krossviöarpiötum, sem
smurt var á jarðolíu til að
hindra að stcypan festist við
mótin. Þegar steypan í mótun-
um hafði þornað, voru plöt-
urnar felldar af veggjunum og
voru þeir þá nægilega sléttir
til þess að ekki þurfti að póssa
þá frekar.
(Frá varnarliðinu)
KAUPMANNAHÖFN, 29. ágúst
— Nýlega var haldið þing í Ráð-
húsinu í Kaupmannahöfn, sem
fjallaði um það, að setja bæri á
stofn eina alheimsstjórn. 465 full-
trúar frá 30 löndum sátu þingið
og var forystumaður brezka
Frjálslyndaflokksins, Clement
Davies, forseti þess. í setningar-
ræðu sinni kvað hann nauðsyn-
legt að setja á stofn eina al-
heimsstjórn og væri þess að
vænta, að henni yrði komið á
fót á vegum S. Þ. — Heiðurs-
gestur þingsins var Lord Boyd
Orr. —dpa.
VESTAN 1 VOGASTAPA
Gerðist þetta klukkan hálf sex,
þar sem vagninn kom niður af
Vogastapa, niður að Innri-Njarð-
vík. Innanborðs vdru allmargir
skemmtikraftar úr skemmtiflokkn
um bandaríska All-Coliege Varí-
ety Show, sem verið hefur til
skemmtunar á Keflavíkurflug-
velli. Var strætisvagninn að mæta
veghefli, er þetta gerðist.
FARÞEGAR SLÖSUÐUST
LÍTIí)
Farþegar, sem voru 32, skrám-
uðust margir og fengu rispur.
Voru þeir sumir’ hverjir fluttir
í sjúkrahús hersins, þar sem gert
var að sárum þeirra. Síðan fengu
þeir að fara heim. Enginn slasað-
ist alvarlega. Strætisvagninn var
sáralítið skemmdur.
ÖrÞOLfNDI ÁSTAND
VEGARINS
Bílstjórar, sem Mbl. ræddi við
í sambandi við slys þetta, kvarta
mjög yfir því, hve Keflavíkurveg
urinn er í afleitu og algerlega ó-
forsvaranlegu ástandi. Segja þeir
að ofaníburð vanti í hann. Hann
sé alsettur holum og grjótharð-
ur svo að mikil hætta sé á því að
stýrisútbúnaður og hvers konar
öryggistæki á bílum hrökki í sund
ur fyrr eða síðar. Er þetta
ambögulegt, þar sem þessi vegur
mun nú vera sá fjölfarnasti á öllu
Islandi. Bifreiðar varnarliðsins
aka mikið eftir þessum vegi, en
ekkert hefur orðið vart við að
varnarliðið eigi nokkurn þátt í
viðhaldi vegarins.
Myndin sýnir einn hinna nýju hermannaskála, sem Sameinaðir vcrktakar hafa reist fyrir bandaríska
varnarliðið á Keflavíkurflugvelli. Tveir skálanna eru þegar tilbúnir, en alls munu þeir verða 9 talsins
(Ljósm.: Varnarliðið).
Kosningar í nóvcmber
Lundúnum — Kosningarnar til
þings í Júgóslafíu eru ákveðnar
í fyrri hluta nóvembermánaðar,
að því er júgóslafneska frétta-
stofan hefur tilkynnt.