Morgunblaðið - 04.01.1955, Blaðsíða 1
16 sáður
42. árgangur
1. tbl. — Þriðjudagur 4. janúar 1955
Prentsmiðja Morgunblaðsins
lóðrar tefjasf vegna um-
ræðna m
LÍKLEGT er talið að vetrarvertíð hér á Suð-Vesturlandi hefjist
ekki í dag. Ástæða þess er sú, að ekki hefur ennþá tekizt
endanlegt samkomulag milli samtaka útvegsmanna annarsvegar
og ríkisstjórnarinnar hinsvegar um framlengingu þeirra gjaldeyris-
fríðinda, sem bátaútvegurinn hefur notið undanfarið. Tillögur
munu hafa komið fram um það að draga eitthvað úr þeim fríð-
indum.
Endanleg ákvörðun í máli þessu verður sennilega ekki tekin
fyrr en undir lok þessarar viku.
Á Vestfjörðum hófust róðrar víðast hvar í október eða nóvem-
ber. Var afli þar sæmilegur í desember og voru farnir um 20
róðrar frá ýmsum verstöðvanna í þeim mánuði.
Snnþfkkt útgerðannamia
í GÆRKVÖLÐI héldu útgerðar-
menn vélbáta í Reykjavik fund
með sér og var þar gerð eftir-
farandi samþykkt:
„Þar sem ekki hefur náðst
samkomulag við ríkisstjórnina
um starfsgrundvöll fyrir vél-
bátaflotann næstu vetrarver-
tíð, ákveður fundur Útvegs-
mannafélags Reykjavíkur,
haldinn í fundarsal L.Í.Ú. 3.
jan. 1955, að hefja ekki veiðar
fyrr en fullt samkomulag hef-
ur náðst.“
Virkiun Efra-Sogs
ins boðin út
Viðtal við Steingrím Júnsson rafmagnsstjóra
Verkið gæti hafizt næsta sumar
eba haust
SAMKVÆMT því, sem Steingrímur Jónsson rafmagnsstjóri skýrði
Mbl. frá í gær, var á fundi Sogsvirkjunarstjórnarinnar, sem
haldinn var s. 1. þriðjudag, tekin ákvörðun um að hafa útboð a
framkvæmd byggingarvinnu, vélum og rafbúnaði til stöðvarinnar
við Efra-Sog. — Útboðinu verður liagað á sama hátt og gert var
haustið 1949, þegar útboð var gert um virkjun írafossvirkjunar-
innar, þannig að auglýst er almennt hér á landi en gert er ráð
fyrir að hafa takmörkuð útboð á byggingarvinnu innan Norður-
landanna, þannig að bjóða þeim firmum, sem við höfum verið í
sambandi við og þekkjum, að taka þátt í samkeppninni um bygg-
ingaframkvæmdirnar. Út af vélunum er aðeins auglýst hérlendis
en umboðsmenn ýmsra erlendra fyrirtækja munu vafalaust gera
tilboð fyrir hönd aðila í ýmsum löndum í Evrópu og Ameríku.
LÁNSHEIMILD FENGIN
Stjórn Sogsvirkjunarinnar hef-
ur fengið þingheimild til lántöku
með ríkisábyrgð, sem nemur allt
að 100 millj. kr. Er búizt við að
fjáröflun til virkjunar Efra-Sogs-
ins verði reynd að útboði loknu
og ef til vill í sambandi við bjóð-
endur sjálfa.
Seato-ráðsfefna
í febréar
★ MANILA, 3. jan. — Utanrík-
isráðuneyti Filippseyja tilkynnti
síðdegis í dag, að utanríkisráð-
herrar hinna átta landa, er aðild
eiga að varnarbandalagi Suð-
austur Asíu hyggisthalda með sér
fund í Bangkok, höfuðborg Thai-
lands, 23. febrúar til að ræða,
hver háttur verði hafður á, um
framkvæmd Seato-sáttmálans, er
undirritaður var í Manila í lok
september.
■Jr Þau átta lönd, er aðild eiga
að bandalaginu eru: Astralía,
Bretland, Frakkland, Nýja Sjá-
land, Pakistan, Thailand, Banda-
ríkin og Filippseyjar.
A ráðstefnunni munu ráð-
herrarnir einnig ræða, hvernig
bezt verði komið á friði og öryggi
í Suð-austur Asíu, en í því er
fólginn einn aðaltilgangur Seato-
sáttmálans.
ORKA, SEM NEMUR
27 ÞÚS. KW.
Það sem virkja á er fallhæð-
in milli Þingvallavatns og Úlf-
ljótsvatns. Sjálft stöðvarhúsið
mun standa á vatnsbakkanum við
norðurenda Úlfljótsvatns en
vatnið verður tekið úr Þingvalla-
vatni um aðrennslisgögn til
stöðvarinnar.
Gert er ráð fyrir tveimur véla-
samstæðum, hverri um sig 13500
kw eða alls 27 þús. kw og er þá
virkjunin fullkomin. Lág stífla
verði í Þingvallavatni til vatns-
miðlunar, þannig að fyrst um
sinn haldist vatnsborðið milli
102—103 m yfir sjó en það er
það, sem mælingar hafa sýnt að
vatnsborðið breytist, af náttúr-
unnar völdum, frá lægsta sumar-
vatnsborði til hæsta vetrarvatns-
borðs. Ekki er gert ráð fyrir, að
hægt sé að hækka hæsta vatns-
borð frá þessu vegna Þingvalla.
Virkjun Efra-Sogsins er tölu-
vert minna mannvirki en íra-
fossvirkjunin og á því að verða
Framh. á bls. 7
Forseti Panama myrtur
á veðreiðum
iólabcðskapur
páfans
VATÍKANINU, 3. jan.: — Páfinn
hefir hvatt bæði vestrænar og
austrænar þjóðir til að leitast við
að lifa í sátt og samlyndi. í jóla-
boðskap sínum, er nokkur töf
varð á vegna veikinda hans, lét
hann svo ummælt, að friður sá,
er nú ríkti í heiminum, ætti rót
sína að rekja til ótta.
★ Ef tryggja ætti friðinn í
heiminum yrðu þjóðirnar að gera
friðrof að broti á siðferðilegri
skyldu, og þessu broti ætti að
fylgja ströng refsing, sagði páf-
inn.
Margir hafa ver/ð handteknir.
Fylgismenn fyrrverandi forseta, Arias,
liggja undir grun
Panama, 3. jan. — Reuter—NTB.
JsjTJÓRN Panama lét það boð út ganga. að
strangri reglu yrði haldið uppi um land allt,
eftir að forseti ríkisins, José Antonia Remon,
var myrtur í gærkvöldi á veðreiðabrautinni
í Panama City.
Sú ez-skurð urinn opn-
aður á ný í gærkvöldi
Umferð kemst í samt lag á morgun
LONDON, 3. jan. — Reuter-NTB/
VONIR standa til, að Súezskurðurinn verði opnaður að nýju í
kvöld og hægt verði að sigla gegnum skurðinn n. k. miðviku-
dag. Mikil mergð skipa bíður báðum megin skurðsins við Port
Said og Súez. Til að koma í veg fyrir allt of mikla þröng á þingi
befir 60 skipum verið leyft að sigla frá Rauðahafinu inn á Great
Bitter Lake, sem er víðasti hluti skipaskurðsins.
• EITT VERSTA SLYSIÐ
Á SKURÐINUM
Eins og áður hefir verið skýrt
frá var skurðinum lokað eftir að
olíuskipið „World Peace“ frá
Líberíu rakst á stálbrúna við E1
Ferdan, er liggur við norður-
enda Great Bitter Lake. Slys
þetta, sem er eitt hið versta í
sögu Súez-skurðsins, átti sér stað
á gamlárskvöld.
• BRUIN HÆTTULEG
SKIPUM
Hefir nú tekizt að ná skipinu
undan brakinu úr brúnni og
flytja það nokkrir mílur frá slys-
staðnum, en ráðgert er að flytja
það til Port Said til viðgerðat.
Nokkur hluti úr stálbrúnni ligg-
ur enn á aftur hluta þilfarsins.
Því hefir oft verið haldið fram,
að brúin, er byggð var á stríðs-
árunum, væri hættuleg skipum
og hefir oft verið skorað á
egypzku stjórnina að láta rífa
hana.
Örin sýnir staðsetningu stálbrúar-
innar riS El Ferdan í nánd við
borgina Isniailia.
V.-þýzki sendiherran í London býðst til að
segja af sér vegna ummæla konu sinnar
BONN, 3. jan. — Reuter-NTB
VESTUR-ÞÝZKA stjórnin í Bonn hefir sent brezku stjórninni
afsökunarbeiðni vegna ummæla vestur-þýzku sendiherrafrúar-
innar í jólaboði. Vestur-þýzki sendiherrann, Oskar Schlitter, hefir
boðizt til að láta af embætti, en talsmaður utanríkisráðuneytisins
í Bonn sagði í dag, að enn hefði ekki verið tekin endanleg ákvörð-
un um tilboð Schlitters. Hinsvegar hefir sendiherrann verið leyst-
ur frá störfum í bili.
★ „í ÓVINAI,AND1“
Schlitter var þegar kallaður
heirn, er kunnugt var, að kona
hans, sem er fyrrverandi kvik-
myndaleikkona, og var kjörin
fegursta kona Berlínar 1930, hafði
látið svo um mælt í ræðu, er
hún hélt í jólaboði starfsmanna
vestur-þýzka sendiráðsins í Lon-
don, að Þjóðyerjar yrðu að halda
vel saman „í óvinalandi1. Sendi-
herrahjónin komu flugleiðis til
Bonn frá London. Var frú Schlitt-
er lasin og var þegar flutt í
sjúkrahús.
★ TAUGAÓSTYRK OG
ÓUNDIRBÚIN
í opinberri tilkynningu í Bonn
í dag var sagt, að frú Schlitter
iðraðist mjög þesasra ummæla
Framh. á bls. 7
W Fyrrverandi forseti landsins,
dr. Arnulfo Arias og margir fylg-
ismenn hans hafa verið hand-
teknir í sambandi við morðið, en
almennt er álitið meðal stjórn-
málamanna í Panama, að Arias
eigi ekki beinan þátt í morði for-
Setans. Rannsókn málsins hefur
verið haldið sleitulaust áfram í
dag.
Ostaðfestar fregnir herma, að
kona nokkur, er var í fylgd með
forsetanum hafi bent morðingj-
unum á hann, og hafi hún verið
handtekin.
★ VEÐHLAUPAHESTUR
HANS SIGRAÐI
Veðreiðavöllurinn hafði því
nær tæmzt af áhorfendum, er
skotið var á forsetann af flokki
árásarmanna með vélbyssum. Var
forsetinn þegar fluttur í sjúkra-
hús og dó þar nokkrum klst.
síðar. Einn af veðhlaupahestum
forsetans hafði unnið í veðreið-
unum og dvaldist forsetinn á vell-
inum, þar sem hann hafði ætlað
að fagna sigrinum með nokkrum
vinum sínum. Einn af lífvörðum
forsetans var drepinn í skothríð-
inni.
Þekktur sundmaður, Danila
Sousa, var drepinn í skothríð
þeirri, er fylgdarlið forsetans
hleypti af gegn árásarmönnunum.
Sousa var ákafur fylgismaður
hins fyrrverandi forseta, Arias.
★ ARIAS STEYPT 1951
Arias var steypt af stóli með
uppreisn alþjóðar og almennu
verkfalli 10. maí 1951, eftir að
hann hafði lýst yfir þeirri fyrir-
ætlun sinni, að nema úr gildi
stjórnarskrána frá 1946, en setja
í gildi stjórnarskrána frá 1941,
er hann sjálfur gegndi forseta-
embættinu.
Enn önnur kona liggur undir
grun í þessu morðmáli. Hún er
menntakona, að nafni Chelma
King. Ekki er vitað, hvaða stjórn
málaflokki kona þessi tilheyrir,
en óstaðfestar fregnir herma, að
hún hafi veitt tilræðismönnunum
forustu og gefið þeim skipun um
að skjóta.
VARAFORSÆTISRÁÐHERR-
ANN TEKUR VIÐ EMBÆTTI
Varaforsætisráðherra Panama,
Juan J. Guizado, vann í dag em-
bættiseið sinn sem forseti lands-
ins.
Remon var kosinn forseti lands
ins með yfirgnæfandi meirihluta
atkvæða í maí 1952. Tók hann við
af Alcibiades Arosemana, er
kjörinn var forseti í maí 1951, er
! Dr, Arnulfo Arias var steypt af
stóli.