Morgunblaðið - 04.01.1955, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 04.01.1955, Blaðsíða 6
i MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 4. janúar 1955 Verðmæfi litrar 11 mil!j. kr. á tveimur árum Frá aðalfundi lifrarsamlags Vestmannaeyja VESTMANNAEYJUM, 3. jan. LIFRARSAML.AG Vestmannaeyja hélt aðalfund sinn hinn 30. des. s. 1. Var aðalfundur þessi fyrir tvö starfsár eða 1952 Og 1953. GÓÐUR HAGUR Hagur samlagsins er mjög góð- ur, en það er eins og kunnugt er eina lifrarvinnslustöðin í Eyjum og samlagsfélag útgerðarmanna. ■— Árið 1952 tók samlagið á móti 2248 smálestum af lifur af 78 heimabátum og 18 aðkomubátum. Fengust úr þessu 1574 smálestir af lýsi fyrir að verðmæti 5,580.000 kr. Fengu félagsmenn greitt fyrir hvert innlagt lifrarkíló kr. 1,45. Árið 1953 tók samlagið á móti 2306 smálestum af 67 heima- bátum og 16 aðkomubátum. Feng ust úr því 1459 smálestir af lýsi. ■— Útborgunarverð til samlags- íélaga varð á því ári kr. 1,60 pr. kg, en verðmæti alls lifrarmagns ins var það ár alls 5,501,000 kr. HÚSAKOSTURINN ENDURBÆTTUR Á undanförnum árum hefir markvisst verið unnið að því að endurbæta húsakost samlagsins, og er nú svo komið, að þau húsa- kynni, sem upphaflega voru til, voru svo til eingöngu úr timbr:, en eru nú orðin öll steinsteypi. Þar að auki hefir öll aðstaða t;l vinnslu og móttöku afurða verið stórlega bætt. Má í því sambandi benda á, að lýsisgeymar samlags- ins hafa árlega verið auknir, og á það nú lýsisgeyma sem taka 1300 smálestir, og byggst bæta einum 300 lesta geymi vió á kom- andi vetri. Að þeirri framkvæmd lokinni hefir samlagið geymslu- rúm í geymum fyrir árlega fram- leiðslu samlagsins. Þar að auki Sæmdir Fálkaorðu á nýársdag A NYARSDAG sæmdi forseti Is- lands, að tillögu orðunefndar, þessa menn heiðursmerki fálka- orkunnar: 1) Davíð Stefánsson, skáld, Ak- ureyri, stórriddarakrossi fyrir • bókmenntastörf, 2) frú Guðrúnu Pétursdóttur, Reykjavík, stórriddarakrossi, fyr- ir störf að málefnum kvenna, 3) Helga Arason á Fagurhóls- mýri, stórriddarakrossi, fyrir störf að rafvirkjunum í sveitum o. fl., 4) Olaf Bjarnason, bónda í Brautarholti, riddarakrossi, fyrir Störf að búnaðarmálum, 5) Olaf Thorarensen, bankastj., Akureyri, riddarakrossi, fyrir störf að bankamálum. 6) Pál Isólfsson, tónskáld, Reykjavík, stórriddarakrossi, fyr ir störf að tónlistarmálum, og j 7) Sigtrygg Klemensson, skrif- stofustjóra, Reykjavík, riddara- krossi, fyrir embættisstörf. (Frá orðuritara). hefir það látið gera frárennslis- leiðslu inn á Eiði, og með því komið í veg fyrir það, að óhrein- indi frá verksmiðjunni renni í höfnina. Einnig hefir samlagið lát ið gera leiðslu frá lýsisgeymum félagsins niður að aðalathafna- svæði hafnarinnar, svo að hægt er að láta lýsið renna beint um borð í tankskipin, sem taka lýsið til útflutnings. Aðstaða til vinnslu í verk- smiðjunni hefir einnig verið mjög bætt, og er nú fyrirhugað að auka húsakost félagsins og afkastagetu verksmiðjunnar. Allar þessar endurbætur hafa að sjálfsögðu stórbætt alla vinnslumöguleika og um leið skapað aukið öryggi í sambandi við brunahættu og fleira. Úr stjórn samlagsins áttu að ganga að þessu sinni þeir Jónas Jónsson og Ástþór Matthíasson, en þeir voru báðir endurkjörnir. FÆRÐAR ÞAKKIR Á fundinum var Jóhanni Þ. Jósefssyni færðar sérstakar þakk ir fyrir vel unnin og góð störf í þágu samlagsins, en hann hefir verið formaður þess frá stofnun eða s.l. 22 ár. í tilefni af 20 ára starfrækslu samlagsins, þá samþykkti fund- urinn að gefa 30 þús. kr. til turnbyggingar við Landakirkju, svo og 15 þús. kr. til að láta gera líkan af gömlu áraskipunum. Sömuleiðis af fyrstu vélbáta- gerðinni og nútíma vélbáti. Og mun ætlunin að þessi líkön verði afhent væntanlegu byggðasafni Eyjanna. — Bj. Guðm. Fróðlegl erindi um eldfjöll llalíu Á FUNDI Hins íslenzka náttúru- fræðifélags, er haldinn var í Há- skólanum í gærkveldi flutti Sig- urður Þórarinsson, jarðfræðingur erindi, er hann nefndi ,.Frá Albanafjöllum til Etnutinds". Fjailaði það um eldfjöll Ítalíu, en í sambandi við þátttöku í al- þjóðaþingi jarðeðlisfræðinga s.l. haust gafst Sigurði tækifæri til að skoða flestar eldstöðvar þessa lands, bæði á Ítalíu-skaganum sjálfum og einnig á Liparisku eyj unum og Sikiley. Virkustu eldfjöllin síðan sögur hófust eru Etna, Vesivíus og Stromboli. En auk þess hefir gos- ið alloft á eynni Ischia í Napoli- flóa og á Brimavöllum tCampi Phlegrai) norðan við Napoli, en þar myndaðist nýtt eldfjall, Monte Nouova, árið 1938. Sumir fræðimenn telja og að gosið hafi í Albanafjöllum, skammt suður af Róm, eftir að sögur hófust. Sigurður kom á öll þessi svæði nema til eyjarinnar Ischia, og sýndi fjölda litskuggamynda. Auk þess brá hann upp nokkr- um myndum frá raforkuverunum í Larderello suðvestur af Florenz, en þau eru knúin jarðhita og eru þar og á svæðum í Toscana virkj- uð um 350 þús. hestöfl á þann hátt, en víða í Ítalíu er nú borað eftir gufu og gera menn sér sér- staklega vonir um árangur af borunum á Brimavöllum við Napoli og undirbúningur er haf- inn að borun í Vesivius sjálfan. lamilton-félagið nær allri starfsemi EINS og utanríkisráðherra skýrði! vallagerð með það fyrir augum O- -□ r Araméfamóflaka forsela blands FORSETI íslands hafði móttöku í Alþingishúsinu á nýársdag svo sem venja hefur verið. Meðal gesta voru rikisstjórnin, fulltrúar erlendra ríkja, ýmsir embættismenn og fleiri. senda kveðjur MEÐAL árnaðaróska sem forseta íslands bárust á nýjársdag voru heillaskeyti frá Hákoni Noregs- konungi, Friðriki Danakonungi, Gústafi Adolf Svíakonungi. Paasikivi Finnlandsforseta og Francisca Franco ríkisleiðtoga Spánar. Hýr báfur III Eyja Svíþjóð seglr upp loflferðasamningi Maður hætt kominn vegnn kolsýrueitrunnr KEFLAVÍK, 2. jan.: — í gær var maður hætt kominn vegna kolsýrueitrunar, er verið var að bjarga m/b Auði frá því að reka upp í fjöru í Njarðvíkum. Þetta vildi til með þeim hætti, að m/b Auður var að slitna frá bryggjunni. Vélstjórinn var ekki viðstaddur en maður að nafni Þorsteinn Eiríksson er þarna var nærstaddur, var fenginn í hans stað, enda var hann þaulkunnur vél bátsins. Þegar hann hafði sett vélina í gang fór hann upp, en þurfti svo að bregða sér niður aftur að aðgæta vélina. Er Þor- steinn kom ekki upp aftur var farið að gæta að honum, en þá lá hann meðvitundarlaus vegna kol- sýrungs er myndast hafði frá út- blástursröri vélarinnar. Ekki mátti tæpara standa að honum yrði bjargað þar sem hann mun hafa legið um hálf- tíma niðri meðvitundarlaus. — Ingvar. □---------------------□ frá í útvarpi þann 26. maí s.l. var síðastliðinn vetur samið um það milli ríkisstjórna íslands og Bandaríkjanna, að Hamilton fé- lagið hætti sem fyrst störfum hér á landi. Skyldi áherzla lögð á að útivinnu félagsins yrði lokið um þessi áramót og annari vinnu sið- an eins fljótt og auðið er. Sam- komulag varð um, að nýjum verk samningum yrði ráðstafað beint til íslenzkra verktaka, svo fram- arlega sem það sé á þeirra færi að framkvæma verkið. Jafnframt var ákveðið, að fyrir lok þessa árs yrði samið um framkvæmd verka á árinu 1955. Þessum samningum er nú ný- lokið og varð samkomulag um eftirfarandi: 1. Hamilton félagið hættir allri útivinnu, nema hvað örfáir menn munu enn í byrjun þessa árs vinna að því að ljúka fáeinum smáverkum. Auk þess mun félag- ið fram eftir næsta ári halda áfram eftirliti með verkum, sem það hafði hafið fyrir febrúar 1954 en sem framkvæmd eru af ís- lenzkum verktökum. Hér er eink- um um að ræða radarstóðvar á Austur- og Vesturlandi. Emnig mun það halda áfram viðgerð vinnuvéla sem nú stendur yíir þar til félagið hefur skilað öllum tækjum í góðu ástandi. Því mun lokið á næsta sumri. Hafr.ir eiu þegar samningar við íslenzka verktaka um sand- og grjótnám varnarl. í Stapafelli og annars staðar, sem og um framkvæmd allmargra verka, sem verða tekin af Hamilton félaginu um áramót- in. Þá náðist samkomulag um, að þeir íslendingar, sem vinna hjá Hamilton félaginu við innivinnu þar til félagið fer alveg, verði að svo miklu leyti, sem unnt er á ráðningarsamningi hjá íslenzkum verktökum. 2. íslenzkir verktakar munu framkvæma milliliðalaust öll verk á þessu ári að undantekinni flugvallargerðinni. Að dómi ís- lenzkra sérfræðinga geta íslenzk- ir verktakar því aðeins tekið flugvallargerðina að sér, að þeir ráði til sín hóp erlendra sérfræð- inga, því hér er um mjög vanda- samt verk að ræða, sem einkum er fólgið í nauðsynlegu viðhaldi á flugbrautum. Samkomulag varð um, að verkfræðingadeild varnarliðsins sjái sjálf um flug- vallargerðina og fái leyfi til að ráða til sín erlenda sérfræðinga til þess verks. Flugvallargerðin er tiltölulega Uítill hluti framkvæmdanna á næsta ári. Til hennar þarf um 200 til 300 manns og fá þeir út- lendingar sem þörf er á aðeins dvalarleyfi hér næsta sumar með an verkið stendur yfir. Jafnframt verða íslendingar þjálfaðir í flug að taka við viðhaldi flugbrauta í framtíðinni. Ákveðið var að framkvæmdir skyldu miðast við vinnuafl sem fyrir hendi er á hverjum tíma í landinu, þannig að þær trufli sem minnst íslenzkt atvinnulíf. Rétt þykir að vekja athygli á því, að samningar þeir sem nú hafa farið fram eru nýtt skref í framkvæmd varnarsamningsins. Þetta er í fyrsta sinn, sem fram- kvæmd verka á Keflavíkurflug- velli er ákveðin í fullu samráði við íslenzku ríkisstjórnina. Er ætlunin að sami háttur verði hafður í framtíðinni samhliða mjög auknu eftirliti með öllum varnarframkvæmdum. (Frá utanríkisráðuneytinu) HangikjöHð sauð vel - slökkvillðið kvatt á vellvang SIÐASTA gamlárskvöld hefir sennilega verið það alrólegasta í sögu slökkviliðsins ,og er ánægja til þess að vita. Jón Sigurðsson, slökkviliðsstj., sagði blaðinu í gær, að liðið hefði aðeins einu sinni verið kvatt út snemma um kvöldið. Rauk mik- ið út um glugga á húsi einu og hringdu nágrannarnir. Þegar slökkviliðið kom á staðinn, var þar ekkert athugavert, heldur var komin góð suða upp á hangikjöt- inu og rauk gufan út um glugg- ann. Þá var Tiðið gabbað einu sinni um nóttina, og var það allt og sumt. Dagiepr ferðír yfir FjarSarkelli SEYÐISFIRÐI, 30. des. — Mjög snjólétt er nú hér eystra og hafa daglegar ferðir verið yfir fjarð- arheiði að heitið má. Flutningur er nú mikill yfir heiðina, þar sem Seyðfirðingar fá mjólk ofan af Héraði, og einnig í safnbandi við flugferð- irnar að sunnan, en reglubundnu áætlunarflugi er haldið uppi frá Reykjavík til Egilsstaða. •—B. „$ólfaxi“ fór tvær ferð- ir til Sauðárkréks SÆNSKA ríkisstjórnin hefur sagt upp loftferðasamningi íslands og Svíþjóðar, er gerður var 3. júní 1952. Afhenti sendiherra Svía, hr. Leif Öhrvali, utanríkisráðherra í MIKLAR annir voru hjá Flug- Miklar annir hjá Flugfélagi íslands. A ÞRIÐJA JOLADAG kom til Vestmannaeyja nýr vélbátur, sem hlotið hefir nafnið Frosti. Var hánn byggður í Svíþjóð og er 53 lestir að stærð. Hann er með 180 gaer opinbera orðsendingu þessa félagi Islands s.l. sunnudag. hestafla June Munktell vél, og efnis. „Gullfax'i“ fór til Kaupmanna- er ganghraði um 9 sjóm. Þá er í Samkvæmt 11. grein samnings- hafnar á sunnudagsmorgun og hon,um 10 hestafla ljósavél af ins, fellur hann úr gildi 12 mán- kom aftur samdægurs til Reykja- sömu gerð. Sömuleiðis talstöð, uðum eftir uppsögn eða 30. des. víkur. A innanlandsflugleiðum miðunarstöð og dýptarmælir. j 1955, hafi ekki orðið samkomulag félagsins voru fluttir hátt á 3. Oll yfirbygging bátsins er úr um að afturkalla uppsögnina fyr- hundrað farþegar, og tók „Sól- aluminium og er mjög létt, vigt- ir þann tíma. faxi“, hin nýia millilandaflug- aði 700 kg áður en innréttingin; | orðsendingu sinni hefur vél F.L, þátt í þeim flutningum. var sett í hana. — Rúm er fyrir sænska ríkisstjómin jafnframt Voru farþegar selfluttir í Kata 11 pnanna áhöfn. •— Skipstjórí á stungið upp á samningaviðræðum lína- og Douglasflugvélum frá Frosta VE 363, verður Ingólfur Um nýjan loftferðasamning milli Akureyri, Siglufirði og Hólmavík' fluttir voru samanlagt í janúar Matthíasson. Verður báturinn landanna. yfir til Sauðárkróks, en þar tók fyrstu fimm árin, sem félagið gerður út á línu og net í vetur. I (Frá utanrikisráðuneytinu). „Sólfaxi“ við þeim og flutti til I starfaði. Reykjavíkur. Fór hann tvær ferð- ir fullskipaður farþegum og voru um 60 manns í hverri ferð. Auk þessa fóru aðrar flugvélar F. I. fjórar ferðir milli Akureyrar og Reykjavíkur á sunnudag og eina milli Siglufjarðar og Reykjavík- ur. — Sem dæmi um hinn öra vöxt í flugsamgöngum hér innan- lands má geta þess, að flugvélar Flugfélags Islands flyt.ja nú álíka marga farþega á einum degi og Barnakennarar óánægðir með lélegar kjarabælur KEFLAVIK, 27. des. 1954. — A aðalfundi „Félags barnakennara á Reykjanesi*, er haldinn var í dag, var rætt um launakjör barna- kennara og launauppbót þá, er Alþinig afgreiddi fyrir skömmu og voru allir á einu máli um, að sú afgreiðsla væri með öllu óvið- unandi. Var út af þessu samþykkt eftir- farandi: „Aðalfundur „Félags barna- kennara á Reykjanesi“, haldinn 27. des. 1954 lýsir óánægju sinni yfir óeðlilega lélegum kjarabót- um barnakennara og lægst laun- uðu starfshópa opinberar starfs- manna, er fengust með launaupp- bót þeirri, er ríkisstjórnin nýlega hefur úthlutað. Einnig lýsir fundurinn sig full- komlega samþykkan framkom- inni tillögu Kennarafélags Hafn- arfjarðar, um að barnakennar- arnir geti ekki sætt sig við lægri laún en kr. 4.000.00 á mánuði, miðað við núverandi verðlag og peningagildi".

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.