Morgunblaðið - 24.06.1956, Blaðsíða 3
Sunnncla<*!ir ’''r? lORfi.
jl/rtRcnn'P' *r>iT>
3
Ólafur Xhors
Kosningaskrifstofur
Gullbringu- og Kjósarsýsla
TryggSð Ólafi Thors
glœsilegan kosningasigur
KEFLAVlik.
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðis-
flokksins á Suðurnesjum og
Keflavíkurflugvelli er í Sjálf-
stæðishúsinu í Keflavík. Sími 21.
NJARÐVÍK
Kosnin-gaskrifstofa Sj álfstæðis-
flokksins í Njarðvík er að Brekku
stíg 4, Ytri-Njarðvík. Sími 719.
MIÐNESHREPPUR
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðis-
flokksins í Miðneshreppi er að
Tjarnargötu 1, Sandgerði, símar
5, 42 og 43.
SELTJARNARNESHREPPUR
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðis-
flokksins er á Tjörn í Lamba-
staðatúni. — Sími 1256.
HINN 9. janúar síðastliðinn voru
rétt 30 ára frá því Ólafur Thors,
forsætisráðherra, var kosinn á
Alþing sem frambjóðandi Sjálf-
stæðisflokksins í Gullbringu- og
Kjósarsýslu. Hann er því nú að
byrja 40. áratuginn sem umboðs-
maður kjördæmisins á Alþingi.
Framboð Sjálfstæðisflokksins í
Gullbringu- og Kjósarsýslu er
hiklaust talið langsamlega sterk-
asta framboðið á öllu landinu,
enda ber þar margt til. Ólafur er
það vel kunnur öllum landslýð,
að óþarfi er hér í stuttri grein,
að segja nein deili á honum, en
öllum, sem nokkuð þekkja til
stjórnmálaferils hans, kemur
saman um það, að hann sé einn
víðsýnasti og stórbrotnasti stjórn
málamaður síðari ára hér á landi
og vinsæidir hans ná langt inn
í raðir andstæðinga hans, enda
mun Ólafur sjálfur ekki bera
hatur eða óvildarhug til nokkurs
manns. Til þess er góðhugurinn
og réttlætiskenndin of rík með
honum.
Undir forustu Ólafs Thors hef
ur Sjálfstæðisflokkurinn haft
megin áhrif í stjórn landsins allt
frá 1939, eða hin síðustu 17 árin.
En þetta árabil hefur Ólafur
verið í ríkisstjórn nær óslitið.
Óhætt er að segja, að aldrei í sögu
íslands hafa átt sér stað jafn
stórfelldar breytingar til batnað-
ar á þjóðarkjörum og efnahags-
legri afkomu einstaklingsins sem
á þessu tímabili. Á þessum 17
árum hefur allt atvinnulíf blómg
ast, efnahagsleg þróun og hvers
konar framfarir með þjóðinni til
sjávar og sveita orðið svo miklar
og örar, að þess eru engin dæmi
meðal nokkurra þjóða hér i álfu.
Undir forustu Ólafs Thors sem
forsætisráðherra var lagður
grundvöllur að atvinnumálum
þjóðarinnar fyrir ókominn tíma
og hlaut sú ríkisstjórn nafnið ný-
sköpunarstjórnin vegna þess, að
á valdatímabili hennar hófst ný-
sköpun atvinnutækja landsmanna
í stórbrotnari mynd en áður
hafði þekkst hér á landi.
Þótt Ólafur hafi öll þessi 30
ár á Alþingi látið sér annt um
velferð og framfaramál kjör-
dæmis síns og beitt sér fyrir
margs konar framkvæmdum þar
svo sem rafvæðingu Suðurnesja,
hafnarbótum, vegagerð o. fl. o. íl.
þá hefur hann þó öðru frer.n'r
látið sig skipta velferðamál þjóð-
arinnar allrar, bæði út á við og
inn á við, og má þar til nefna
forustu hans í sjálfstæðismáli
þjóðarinnar og landhelgismálinu.
Flestum kemur saman um, að
Ólafur Thors sé þingmaður þjóð-
arinnar allrar í ríkari mæli en
nokkur annar þingmáður, að
þeim öllum ólöstuðum.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
aldrei gengið eins heill og ein-
huga til kosninga eins og nú, en
málefnalegt öngþveiti hinna
flokkanna lýsir sér bezt í þvi, að
þeir ganga nú til þessara kosn-
inga ýmist undir fölsku flaggi
eða með breytt yfir nafn og
númer til að dyljast og villa á sér
heimildir.
Sjálfstæðismenn í Gullbringu-
og Kjósarsýslu standa nú þétt
saman og fylkja sér meir en
nokkru sinni áður undir merki
flokksins og formanns hans og
daglega fer fylgi hans meðal kjós-
enda í sýslunni vaxandi, enda er
val þeirra nú ekki erfitt frekar
en endra nær, að öðrum fram-
bjóðendum ólöstuðum.
Kjósendur í Gullbringu- og
Kjósarsýslu eru ákveðnir í því,
að gera sigur Ólafs Thors nú 1
þessum kosningum meiri og
glæsilegri en nokkru sinni fyrr.
X — Ólafur Xhors.
Alfreð Gíslason.
Kópavogur
KOSNINGASKRIFSTOFA Sjálfstæðisflokksins i Kópavogi er
að Melgerði 1. Bílasímar 5636 og 5603. Upplýsingar: 80525.
Fólk, sem ætlar að vinna fyrir flokkinn í dag mæti kl. 9 f. h. —
Finnig fer þá fram skráning bila. — Stuðningsmenn Ólafs Thors,
hafið samband við kosningaskrifstofuna sem fyrst.
Sýnishorn af kjorseSli
Finnbogi Rútur Valdemarsson frambj óðandi Alþýðubandalagsins
Guðmundur í. Guðmundsson frambjóðandi Alþýðuílokksins
X Ólafur Thors frambjóðandi Sjájfstæðisflokksins
Valdemar Jóhannsson frambjóðandi. Þjóðvarnarfl. íslands
A Landslisti Alþýðuflokksins
B Landslisti Framsóknarflokksins
D Landslisti Sjálfstæðisflokksins
F Landslisti Þjóðvarnarflokks íslands
G Landslisti Alþýðuflokksins
Þannig lítur kjörseðillinn út, þegar krossað hefur verið við
Ólaf Thors
HAFNARFJÖRDVR...
ALLT það fólk, er vinna vill að kosningu Ingólfs Flygenring, er
góðfúslega beðið að mæta snemnia á kjördag. — Símar: Bíla-
afgreiðsla 9228—9828. Upplýsingar um kjörskrá 9928. Aðrar upp-
lýsingar 9580.
X Ingólfur Fiygenring
Þannig lítur kjörseðillinn út eftir að Ingólfur Flygenring,
frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins hefur verið kosinn.
Geir Gunnarsson
frambjóðandi Alþýðubandalagsins
Emil Jónsson
frambjóðandi Alþýðuflokksins
Ingólfur Flygenring
frambj óðandi Sj álfstæðisflokksins
Kári Arnórsson
frambjóðandi Þjóðvarnarflokks íslands
A Landlisti Alþýðuflokksins
B Landlisti Framsóknarflokksins
D Landlisti Sjálfstæðisflokksins
F Landlisti Þjóðvarnarflokks íslands
G Landlisti Alþýðubandalag'sins
í dag er kosið um það, hverjir eigi að skipa þessi sæti á Alþingi íslendinga
Kjósið Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins!