Morgunblaðið - 24.06.1956, Blaðsíða 5
Sunnudagur 24.júní 1956.
M O R n 11N fí f. A f> 1Ð
5
S jávarútvegurinn
— lífæd íslendinga
Bréfruslið í Lækjargöfu
SJÁVARÚTVEGURINN er lífæð
þjóðarinnar. Án hans væri
ekki unnt að lifa menningarlífi
í landi voru. Eins og kunnugt er,
verðum vér að kaupa erlendis
mest af þeim nauðsynjavörum er
þjóðin þarfnast, og leggur sjávar-
útvegurinn þjóðinni til 95 af
hundraði, af þeim gjaldeyri sem
til þessara kaupa fer, og sjá þá
allir hvílíkur hyrningarsteinn
þjóðfélagsins sjávarútvegurinn
er.
Sjálfstæðisflokkurinn er sá
stjórnmálaflokkur sem mest og
bezt hefur stuðlað að vexti og I
viðgangi þessa atvinnuvegar, og
sá eini flokkur, sem einhvers
raunhæfs er af að vænta í fram-
tíðinni. Að vísu keppast hinir
flokkarnir um að semja sem glæsi
legastar ályktanir um sjávarút-
vegsmál á landsfundum sínum,
og öðrum samkomum, en það er
aöeins gert til þess að sýnast, og
lítur nógu vel út á pappírnum,
en meira verður það ekki. Stað-
reyndirnar eru þær, að Sjálf-
Etæðisflokkurinn hefur haft for-
ystu um uppbyggingu fiskiskipa-
flotans, bæði bátaflotans sem
þrefaldast hefur síðan árið 1938,
og togaraflotans, en aukning hans
hefur á þessum árum numið 120
af hundraði.
Togararnir eru stórvirkustu at-
vinnutæki sem til eru í landinu,
Ekapa þeir mikil verðmæti fyrir
þjóðina í erlendum gjaldeyri, og
veita mörgum atvinnu á sjó og
1 landi, en rekstur þeirra hefur
ekki verið á heilbrigðum og
traustum grundvelli undanfarin
ár, en það verður að breytast hið
fyrsta. Sömu sögu er að segja um
bátaflotann. Til þess að viðun-
andi breytingu til batnaðar í
þessu efni verði komið í fram-
kvæmd, þarf samstillt átak allra
þeirra sem einhver áhrif geta
haft á farsæla lausn málsins.
Kostnaðurinn við framleiðslu
sjávarafurða hefur farið fram úr
því verði sem fyrir hana fæst,
hann hefur farið sívaxandi, en
verðlag útflutningsafurðanna hef-
ur ekki hækkað að sama skapi,
en þær verða að sæta því verð-
lagi sem á erlendum markaði
fæst, og við getum engin áhrif
á það haft til hækkunar.
Málið sem mesta þýðingu hefur
haft fyrir afkomu fiskiskipaflot-1
ans, er landhelgismálið eða stækk
un hins friðaða svæðis umhverfis
landið. — Sjálfstæðisflokkurinn,
með Ólaf Thors sjávarútvegs-
málaráðherra í brjósti fylkingar,
hefur unnið að því máli með
festu, og var friðunarlínan, á
fyrsta stigi málsins, færð eins
langt út frá landinu og frekast
var unnt að standa við og verja,
fyrir hvaða dómstóli sem er, og
var þar stuðst við niðurstöðu þá
er dómstóllinn í Haag komst að, í
deilumáli Breta og Norðmanna
út af rýmkun norsku landhelg-
innar.
Það sem sjávarútvegurinn
þarfnast mest er þetta:
1. Heilbrigður og traustur rekst-
ursgrundvöllur.
2. Nægilegt stofnfé til endurnýj-
unar og aukingar framleiðslu-
tækj anna.
3. Hagkvæm reksturslán.
Ólafur H. Jónsson.
4. Aukin og bætt aðstaða í landi
til móttöku og vinnslu sjávar-
afurðanna, og meiri fjöl-
breytni í vinnslunni.
5. öflugri rannsóknarstarfsemi
um fiskigöngur, einkum síld-
argöngur, sjávarstrauma og
-hita, og átu í sjónum, og ýmis-
legt fleira í sambandi við veið-
arnar og meðferð og vinnslu
fisksins.
6. Víðtækari tilraun með veiði-
tæki og veiðiaðferðir.
7. Aukin leit að nýjum fiski-
miðum.
Sjálfstæðisflokknum er bezt
treystandi í þessum málum sem
öðrum, og þar sem sjávarútvegs-
málin hafa megin-þýðingu fyrir
þjóðina, þá munu allir þjóðhollir
fslendingar gefa Sjálfstæðis-
flokknum atkvæði sitt við þessar
kosningar.
ÞAÐ var mikiff verk að þrífa
Lækjargötuna og Austurstræt
ið í gærmorgun og hef'ur víst
aldrei sézt þvílíkt bréfarusl í
Miðbænum.
Ástæðan var sú að Þjóðvarn
arflokkurinn tók upp á því að
dreifa ókeypis málgagni sínu
Skrum Framsóknar-
manna
FYRIR nokkru birti Framsókn-
arblaðið grein um Kaupfélag
Skaftfellinga í tilefni merkisaf-
mælis þess. En grein þessi var
svo skrumkennd á köflum og
fáránleg, að Skaftfellingum of-
býður hræsnin.
Sem dæmi um þetta má nefna,
að sagt er að Kaupfélag Skaftfell
inga hafi byggt frystihúsið á
Kirkjubæjarklaustri og eigi það.
Er það ekki nema fjarstæða, því
að það er Sláturfélag Suðurlands,
sem hefur byggt og á þetta frysti-
hús. Sætir það furðu ef kaupfélag
ið ætlar þannig að eigna sér
frystihúsið.
Þá er sagt frá bví að Kaupfé-
lagið hafi fyrir mörgum árum
keypt flutningaskipið Skaftfell-
ing. Þetta er líka alrangt. Það
voru bændur í sveitinni og aðrir
íbúar Vestur-Skaftafellssýslu,
sem lögðu fé í skipið. Það má
vera að Kaupfélagið hafi lagt
fram einhverja litla fjárhæð, en
víst hefur verzlun Halldórs Jóns-
sonar ekki lagt fram minni fjár-
hæð til kaupa á skipinu.
• Frjálsri þjóð. Margir úr hin-
um mikla fjölda, sem var á
ferli um Lækjargötuna á leið
inni á Sjálfstæðisfundinn tók
við blaðinu, en þegar fólkið
hafði séð, hver snepillinn var
missti það alla lyst á að lesa
þetta dreifirit.
Því miður voru ekki nógu
stórar bréfakörfur við ljósa-
staurana til þess að þeir gætu
tekið við öllu þessu rusli. Eru
Þjóðvarnarmenn því beðnir
um næst þegar þeir ætla að
dreifa blaði sínu ókeypis að
gera hreinlætisyfirvöidunum
aðvart, svo hægt sé að setja
upp stórar körfur á I.ækjar-
götunni.
______________________ s
Góð veðráila
í Arnarfirði
BlLDUDAL, 20. júní — Veður
hefur hér undanfarið verið mjög
hlýtt og gott, gróðurskúrir af og
til. Gróðri öllum hefur fleygt
fram síðustu dagana.
Nokkrar trillur hafa stundað
handfæraveiði en afli hefur verið
fremur tregur. — Rækjuveiðar
liggja niðri í bili en munu hefj-
ast aftur innan skamms.
—Friðrik.
MADRID — Spanska stjórnin
hefur lagt blessun sína á upp-
drætti að geysimikilli 16 km.
langri bíla og járnbrautarbrú,
sem tengja á saman tvær heims-
álfur. Annar brúarendinn verður
í Afríku, en hinn í Evrópu, við
Gibraltar. Fullyrt er að ekki muni
taka nema tvö ár að gera brúna
og að hún eigi að kosta 50 millj.
sterlingspunda, eða á þriðja
milljarð króna. Peningana vant-
ar ennþá.
Ólafur H. Jónsson.
K]ósi5 D-listann
Upplýsingamiðstöð
er í V.R.-Vonarstræti 4
D-LISTANS
Sími 1275 (3 línur)
Bílasímar D-LESTAIMS í dag
Miðbæjarskólahverfi 7566 — Austurbæjarskólahverfi 80601 — Laugarnesskólaliverfi 1400.
A X D F G
Listi Alþýðuflokksins L i s t i Sjálfstæðisflokksins L i s t i Þjóvarnarflokks íslands L i s t i Alþýðubandalagsins
Haraldur Guðmundsson Gylfi Þ. Gíslason Rannveig Þorsteinsdóttir Eggert G. Þorsteinsson Jóhanna Egilsdóttir Egill Sigurgeirsson Kristinn E. Breiðfjörð Hjalti Gunnlaugsson Guðmundur Sigtryggsson Ellert Ág. Magnússon Grétar Ó. Fells Skeggi Samúelsson Guðbjörg Arndal Pálmi Jósefsson Jón Eiríksson Sigurður Guðmundsson Bjarni Benediktsson Björn Ólafsson Jóhann Hafstein Gunnar Thoroddsen Ragnhildur Helgadóttir Ólafur Björnsson Ásgeir Sigurðsson Angantýr Guðjónsson Sveinn Guðmundsson Davíð Ólafsson Auður Auðuns Kristján Sveinsson Pétur Sæmundsen Birgir Kjaran Ólafur H. Jónsson Sigurður Kristjánsson Gils Guðmundsson Bergur Sigurbjörnsson Þórhallur Vilmundarson Björn E. Jónsson Guðríður Gísladóttir Hákon Kristjánsson Gunnar Jónsson Karl Sigurðsson Eggert H. Kristjánsson Unnsteinn Stefánsson Sigurður Kári Jóhannsson Jafet Sigurðsson Dagbjört Eiríksdóttir Ólafur Pálsson Þórhallur Bjarnason Friðrik Ásmundsson Brekkan Einar Olgeirsson Hannibal Valdimarsson Alfreð Gíslason Eðvarð Sigurðsson Adda Bára Sigfúsdóttir Snorri Jcnsson Eggert Ólafsson Hólmar Magnússon Áki Pétursson Drífa Viðar Ingimar Sigurðsson Benedikt Daviðsson Skúli H. Norðdal Hulda Ottesen Þórarinn Guðnason Halldór Kiljan Laxness
A B D F G
Landslistl Alþýðuflokksins Landslisti Framsóknarflokksins Landslisti Sjálfstæðisflokksins Landslisti Þjóðvarnarflokks íslands Landslisti Alþýðubandalagsáns
Þannig lítur kjörseðillinn út, þegar D-LISTINN — listi Sjáltstœðisflokksins - hefir verið
kosinn með því að krossa fyrir framan D,