Morgunblaðið - 24.06.1956, Blaðsíða 23
Sunnudagur 24. júní 1956.
M0RCUNRLAÐ1Ð
23
Storskemmdar kartöflur í búðunum
HÚSMÓÐIR cin í Austurbæn-
um hringdi í gær tii Mbl. og
kvaðst lengi liafa beðið eftir því,
að sjá því hreyft í Mbl., hvílíkt
óæti Grænmelissala ríkisins leyf-
ir sér að bera á borð fyrir bæj-
arbúa. Þessi ríkisstofnun, sem
hefur verið trúað fyrir því að
kaupa einu helztu nauðsynjavöru
íslcnzkra heimila, hefur svo gjör-
samlcga brugðizt skyldu sinni að
furðulcgt er, að ráðamenn henn-
ar skuli ekki biðjast afsökunar á
því, hversu kartöfluinnkaupin
Veiðibjallan hefur
drepið marga unga
I»RÁTT fyrir ítrekuð blaðaskrif
um nauðsyn þess að halda þeim
mikla vargi, veiðibjöllunni, frá
Tjörninni meðan andarungarnir
eru aii vaxa upp, hefur því ekki
verið sinnt sem skyldi. Mun
veiðibjallan að frásögn kunnug-
ustu manna, hafa valdið meiri
ungadauða á þessu vori en á
nokkru öðru. Eru nú allmargar
endur aðeins með einn eða tvo
en þær voru áður með þetta 4—6
og jafnvel fleiri.
í gær urðu menn sjónarvottar
að því er veiðibjalla hremmdi
einn unga um leið og hún stakk
sér niður að nokkrum andarung-
um. Hún gerði síðan aðra atlögu
að ungunum og hremmdi þá ann-
an. Hann barðist um í nefi rán-
fuglsins sem missti hann, en
þrisvar stakk veiðibjallah sér á
ungann, en honum tókst að
stinga sér og ko^iast un'dan í
öll skiptin og veiðibjallan gafst
upp.
Hundfuð manna hafa byssu-
leyfi í þessum bæ og þar -er
margt góðra skotmanna Þeir
ættu nú að taka sig til'og koma
bjölluna á brott af Tjörninni.
hér til hjálpar og hrelcja veiði-
Dy ftromh&rq a&
RAFMOTORAR
vatnsþétftir
0,33 ha., 0,5, 0,66, 0,75, 1,
lbi, 4, 5‘/a, 7%, 10 ha.
LUDVIG STORR & (ó.
Samkomnr
ZlOPf
Almenn samkoma í kvöld kl.
8,30. — Hafnarfjörður: Almenn
samkoma í dag kl. 4 e.h. — Allir
velkomnir.
Heimatrúboð lcikmanna.
41mcnnar sanikomur
Boðun Fagnaðarerindisins
er á Austurgötu 6, Hafnarfirði,
á sunnudögum kl. 10 f.h. og kl. 2
og 8 e. h.
hjá þeim hafa farizt þeim illa úr
höndum.
EKKI í GÆÐAFLOKKI?
Konan benti réttilega á það, að
svo lélegar væru kartöflurnar, að
það muni ekki vera hægt að
flokka þær, svo sem gert er með
ætar kartöflur, en þeir gæða-
flokkar munu vera fjórir alls,
einn úrvalsflokkur og síðan hinir
I.—III.
Margir hafa gripið til þess að
borða rúgbrauð með fiski þar eð
þeir hafa ekki treyst sér til að
borða kartöflurnar.
BOllflA AÐRIR ÞETTA?
Það kann að vera, að Græn-
metiseinkasalan hafi á taktein-
um skýringar á þessu öllu sam-
an og telji þá málið afgreitt af
sinni hálfu. — En ástæða er til
þess að spyrja: Getur það verið,
að Hollendingar, írar eða Danir,
láti bjóða sér svona stórkostlega
skemmdan mat, sem Grænmetis-
einkasalan býður íslendingum
upp á?
Margir halda því nefnilega
fram, að það sé sá flokkur lcart-
aflna, sem nú er fluttur hingað
til landsins, sem erlendis er not-
aður sem svínafóður.
Yfirlýsing
frá SÍF
VEGNA þrálátra blaðaskrifa
vegna þátttöku Sambands ísl.
fiskframlesðenda í byggingu
Morgunblaðsins vill SÍF upp-
lýsa, að það byggir í húsi þessu
skrifstofuherbergi til eigin af-
nota eingöngu. Nemur pláss-
ið hálíri hæð í húsinu. Fyrir
skrifstofuherbergjum þessum
er löglegt byggingar- og fjár-
festingarleyfi. Skal tekið fram
að SÍF hefur verið í Ieiguhús-
næði s. 1. 24 ár.
Fiskifélagið lætur teikna
nýja 20 og70 tonua báta
Stærri báturinn verði línu- og hringnótabátur
1 NÝJU hefti af Ægi, sem út
kom í gaer, er sagt frá því að
Fiskifélag Islands hafi látið gera
teikningu að nýrri gerð fiski-
báta. Er birt um þetta grein í
blaðinu og teikningar fylgja.
20 TONNA BÁTIJR
Hér er um að ræða 20 og 70
tonna báta. Minni báturinn er
með vistarverur fyrir 5 menn aft-
ast undir þilfari og tvo menn í
framlúkar. í Ægi segir m. a. á
þessa leið í lýsingu á hátnum.
„Báturinn er með „krussara"
skut með gafli og veitir gott neta-
pláss að aftan, auk þess er aftur-
mastrið svo framarlega að greiða
má net yfir káhettureisnina. Úr
stýrishúsinu er góð aðstaða til
að sjá á línuna. Fremst er hoga-
myndað skýli úr aluminium fest
þannig, að hægt er að taka það
af þegar stundaðar eru veiðar
með reknetum.
Mörg undanfarin ár hefir sild
ekki veiðzt á grunnmiðum svo
nokkru nemi, svo að síldarveiði-
bátarnir hafa neyðzt til að sækja
á djúpmið jafnvel út á reginhaf.
Sjósókn þessi hefur valdið tjóni
og missi á nótabátum.
LÍNU- OG HRINGNÓTABÁTUR
Til þess að komast hjá því að
nota hringnótabáta, er það bein-
asta leiðin að smíða síldarskip-
in með sama lagi og Fanney RE
4. Fyrirkomulagið og húnaður-
inn á þessu skipi er talinn henta
vel til síldveiða með hringnót, en
siður til veiða með línu.
Fiskimálastjóri hefur lagt fyr-
ir að gera athugun á, hvort hægt
sé að gera skip með hæfni til
veiða mað línu og jafnframt til
veiða með hringnót án hringnót-
arbáts.
1 þessu augnamiði hefur 70
rúmlesta bátur verið teiknaður.
Hann er líkur að gerð og 20 rúm-
lesta báturinn og er áhöfnin 14
menn.
Það sem einkum er frábrugðið
því sem tiðkast á fiskibátum hér,
er stór stálpallur fyrir vörpuna,
sem nær yfir mikið af afturhlutá
skipsins. Pallur þessi er hring-
lagaður 5 metrar í þvermál og
60 cm djúpur. Hann snýst á oddi
undir miðju og á hjólabraut ut-
ast, svo að hægt er að snúa hon-
um með tveim vírum sem leiddir
eru fram á vindu. Smíði á undir-
stöðunum og á pallinum sjálfum
er miðuð við það að auðvelt sé
að f jarlægja hvorttveggja, þegar
skipið stundar veiðar með línu.
★
Bárður G. Tómasaon hefur gert
teikningar að þessum nýju bát-
um“.
Silfurtunglið
Göenlu dansarnir
í kvöld til kl. 1.
Hin vinsæla hljómsveit RIBA leikur.
Dansstjóri Baldur Gunnarsson.
Aðgöngumiðar scldir eftir kl. 8.
SILFURTUNGLIÐ
Sími 82611.
í síðdegiskaffitímanum leikur og syngur hljómsveit Riba
Drekkið síðdegiskaffið í Silfurtunglinu.
SILFURTUNGLIÐ.
Hjartanlega þakka ég börnum mínum, stjúpbörnum og
venzlafólki, og öllum öðrum er glöddu mig með heim-
sóknum, gjöfum, blómum, skeytum og hlýjum handtökum l
á 70 ára afmæli mínu þann 20. þ.m. — Guð blessi ykkur
öll.
Asgeir Damelsson. ,
Blaðaprentvél
su, sem Morgunblaðið hefir verið prentað
í undanfarin ár, er tii sölu.
Uppl. hjá framkvæmdastjóra blaðsins.
onuiufilahih
ELEKTROLUX
HRÆRIVÉLAR
BÓNVÉLAR
RYKSUGUR
LOFTBÓNARAR
Komnar aftur
Pantanir óskast siVttar.
Einkaumboðsmenn:
Hannes
Þorsteinsson & Co.
Ungur maður vanur
verzlunarstörium
óskast til að gegna verzlunarstjórastarfi hjá
stóru fyrirtæki. — Góð kjör. — Tilboð send-
ist Mbl. fyrir 30. júní merkt: „Dugmikill —
2744“.
Jarðarför
SIGRÍDAR ÞORSTEINSDÓTTUR
fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 25. júní kl. 10,30
f.h. — Blóm afbeðin.
Vandamenn.
BræSraborgarslíg 34
Almenn samkoma I kvöld kl.
8,30. Allir velkomnir.
I. O. G. T.
St. Framtíðin nr. 173
Fundur annað kvöld kl. 8,30. —
Fundarefni: Kosning embættis-
uianna. Hagnefndaratriði. Æ.t.
Lokað vegna sumarleyfa
frá 9.-28. júlí.
Kassagerð Reykjavíkur h.f.
Eiginmaður minn, faðir, sonur og bróðir
JÓN HALLDÓRSSON
Hamarstíg 26, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju.
þriðjudaginn 26. þ.m. kl. 2 e.h.
Lilja Jónsdóttir og börn, Helga Jónsdóttir
Sylvía Halldórsdótiir, Fanney Halldórsdóttir.