Morgunblaðið - 24.06.1956, Blaðsíða 20
20
MORCllWfíLAÐlÐ
Sunnucfagur 24. júní 1956.
Sfyðjið frelsi og framfarir
Kjósið NOVIA skyrfur
hvítar og mislitar — allar sfœrðir
hjá kaupmönnum
kaupfélögum um
KEFLAVIK
SLÐLRIMES
ÞVOTTAVELAB, LITLAR
OG STORAR, MEÐ OG
AN HITARA, AVALLT
FYRIRLIGGJANDI
STAPAFELL
Haínarg. 35, Keflavík
Sigrum haftastefnuna,
íslendingar!
FORFEBUR vorir fluttu. til
þessa fagra og stórbrotna
lands, af því að þeir voru menn
frjálslyndir og kunnu lítt að
meta framtakssemi manna, sem
vildu gera þá sér undirgefna.
Enn lifir andi forfeðranna með
íslendingum, og honum er það
að þakka, að menn geta hér enn
í dag látið sannfæringu sína í
ljósi, án þess að eiga á hættu að
vera settir undir lás og loku.
En það er til nóg af mönnum,
sem hafa það á stefnuskrá sinni,
að færa íslendinga í fjötra
nefnda og ráða, sem ætlað er
að ráða fyrir þá.
Það er merkilegt umhugsunar-
efni, að það skuli takast, að telja
nokkrum frjálsbornum manni
trú um, að honum vegni bezt
með því að fela forsjá sína
nefndum og flokkum drottin-
gjamra manna. Hver sannur
maður ætti að hafa þá trú á
sjálfum sér, að málum hans væri
betur borgið í hans eigin hönd-
lun en annarra.
Tvær megin stefnur hafa
undanfarna áratugi barizt til
valda á íslandi, stefna for-
feðranna, sem vildu vera
frjálsir menn í frjálsu landi,
menn sem trúðu því og voru
þeirri hugsjón trúir, að frjáls
einstaklingur hefði mesta
möguleika til að vera ham-
ingjusamur. Þessi stefna er
nú borin uppi af einstakling-
um í Sjáifstæðisflokknum.
Hin stefnan er aðflutt, stefna
yfirdrottnarans, er forfeður
vorir forðuðu sér undan, en
hefur numið hér Iand og náð
fótfestu undir ýmsum póli-
tískum merkjum.
Nú er íslendingum boðið upp
á að velja um þessar tvær stefn-
ur 24. júní næstkomandi. Full-
komlega sjálfráðir gjörða okkar
gefst okkur kostur á að velja
um þessar tvær stefnur, hvort
við viljum heldur vera frjáls-
ir menn í frjálsu landi eða und-
irgefnir og niðurlútir ölmusu-
menn, er biða auðmjúkir eftir
að einhverjum fulltrúa einhvers
haftastefnuflokksins, þóknist að
rétta að okkur útdeildan verð,
eftir hæfilega langa niðurlægj-
andi bið í forstofugangi einhverr
ar haftastofnunarinnar.
Ef minni einhvers okkar
skyldi hafa sljóvgast við það, að
við búum í augnablikinu við
minni höft en þegar boðberar
haftastefnunnar, Jafnaðarmenn
og Framsóknarmenn, fóru einir
með völd, skulum við aðeins líta
til baka, og þá sjáum við hverju
við eigum von á.
Á árunum fyrir stríðið, er
Jafnaðarmenn og Framsóknar-
menn fóru með völdin, mátti
enginn maður um frjálst höfuð
strjúka.
Nefndir, skipaðar fulltrúum
þessara flokka, voru settar á
stofn, hver á éftir annarri i
þeim tilgangi aff hefta frjálst
framtak fslendinga. Mönnum
var bannaff aff flytja til lands-
Ins vélar, skip og önnur fram-
leiffslutæki, þó aff hægt væri
að fá að greiða tækin með
afrakstrí þessara tækja, og
efnivörur til byggingafram-
kvæmda var vart minnzt á.
Þjóffin varff fátækari og fá-
tækari meff liverjum degi, því
f,1*142 dugandi íslendinga fekk
ekki aðhafst fyrir haftapostul-
unum, sem sátu á rétti hvers
manns til að bjarga sér.
Þegar styrjöldin breytti þessu
ömurlega ástandi ófrelsis og
niðurlægingar Islendinga, og
kallaði menn til starfa fyrir
I sameiginlegt málefni lýðræðis-
þjóðanna, var hér fjöldi ungra
og hraustra manna yfir tvítugs-
aldur, sem aldrei höfðu fengið
tækifæri til að vinna fyrir fram-
færi sínu.
Öll stríðsárin lögðu íslend-
ingar mikið af orku sinni til
starfa í þágu hins sameiginlega
málefnis, að vinna styrjöld þá,
sem nazistar og heimskommún-
isminn stofnuðu til. Fjöldi
hraustra og dugmikilla Islend-
inga fluttu bandamönnum sín-
um matvæli frá ströndum ís-
lands — hergögnum verðmæt-
ari — og létu sér hvergi bregða
þó siglt væri gegnum neðansjáv-
ar flota óvinanna.
í hildarleik heimsstyrjaldar-
innar létu margir vaskir synir
íslands lífið fyrir sameiginlegan
málstað frelsisunnandi þjóða,
hafandi í huga, að þeirra land
var í hættu af völdum árásar-
mannanna, nazista og kommún-
ista. í styrjaldarlokin var hafizt
handa undir forustu Sjálfstæð-
isflokksins að endurnýja fram-
leiðslutækin. Togaraflotinn var
allur endurnýjaður og fjöldi
minni fiskiskipa voru keypt til
landsins eða byggð hér á landi.
Fjöldi stórvirkra vinnuvéla, sem
fslendinga hafði aldrei dreymt
um'að eignast, voru keyptar til
landsins.
Vegna fyrirstríðshafta hafta-
postulanna skorti tilfinnanlega
húsnæði og foreldrar, sem höfðu
ráð á íbúð, þurftu oft að taka
fleiri en eina fjölskyldu upp-
kominna barna sinna inn í íbúð
sína, sem aðeins var ætluð for-
eldrunum. Islenzkir menn og
konur hugsuðu því til hreyfings
er möguleikar opnuðust til bygg-
ingaframkvæmda eftir stríðið
og hófu að byggja nauðsynlegt
húsnæði yfir sig.
En Adam var ekki lengi í
Paradís.
Haftapostularnir voru
komnir til valda áffur en
varffi og gerffu kröfu til, aff
þeir fengju aff blanda
sér í innflutningsmálin. Fjár-
hagsráff var stofnaff til aff
taka ráffin af mönnum. í staff
þess að starfa aff nauffsynleg-
um byggingaframkvæmdum
fyrir húsnæffislaust fólk, urffu
byggingamenn aff taka sér
stöffu í forsal Fjárhagsráffs
og biðu þar í halarófu mikinn
hluta dagsins eftir aff þjónar
haftastefnunnar — oftast fólk,
sem hafffi enga þekkingu á
byggingarmálum —, gerffi
þeim handahófslega úrlausn,
sem höfðu fundiff náff fyrir
augum haftapostulanna. Fyr-
ir atbeina Sjálfstæffisflokks-
ins var slakað svo á höftum
þessum, að íslendingar fá nú,
án manngreinarálits, aff
byggja sér mannsæmandi
íbúðarhúsnæði. En haftapost-
ulunum finnst nú nóg um
frelsi íslendinga í þeim efn-
um. Stofnað er til kosninga
áffur en kjörtímabilið er út-
runnið meff þaff fyrir augum,
aff reyna að koma hér á sama
neyðarástandinu i samvinnu
við Jafnaðarmenn, sem ríkti
hér áður undir stjórn Fram-
sóknar og Jafnaðarmanna.
Til þess að gera hlut íslend-
inga enn aumlegri næstu árin,
hefur Framsóknarflokkurinn
gengið til samvinnu við Jafn-
aðarmenn, Þjóðvarnarmenn og
kommúnista, um að stöðva vinnu
við mannvirkjagerð varnarliðs-
ins og reka burtu áf landinu
hina fámennu varnarliðssveit
hinna frjálsu þjóða, sem íslend-
ingar deildu kjörum við á stríðs-
árunum í harðvítugri baráttu
fyrir lifi sínu og frelsi. Þetta
vanhugsaða frumhlaup Fram-
sóknarflokksins og Jafnaðar-
manna á að koma þeim í sam-
eiginlega valdastöðu á íslandi
svo hið fyrrverandi glæsilega
stjórnartímabil þessara flokka
fái endurtekið sig. Framsóknar-
forustan segist ætla að krefjast
þess, að öll vinna við varnar-
liðsframkvæmdir á íslandi falli
niður, en í þess stað vill flokk-
urinn bjóðast til að gæta mann-
virkjana, þegar varnarliðið er
farið. Þetta lögreglulið íslend-
inga á að gæta hernaðarmann-
virkjanna undir stjórn íslenzks
hemmálaráðherra? Ég trúi því
ekki, að 24. júní næstkomandi
verði margir Islendingar með
því, að fá haftastefnuflokkun-
um í hendur fjölmennt lögreglu-
lið, sem auðveldlega mætti mis-
nota í þágu haftastefnu og frels-
isskerðingarprógrams þessara
flokka.
Forfeður vorir voru vanir að
standa við orð sín, þó að það
hefði einhver óþægindi í för með
sér. Ég trúi því ekki að margir
íslendingar fáist til að kjósa þá
menn fulltrúa sína, sem vilja í
alvöru skerast úr leik hinna
frelsisunnandi þjóða, sem ný-
verið börðust fyrir frelsi sínu,
á meðan þessar vinaþjóðir telja
nauðsynlegt að standa saman
viðbúnar árás heimskommún-
ismans. Okkur íslendingum er
óhætt að trúa því, að Ameríku-
menn óska ekki eftir að dvelja
hér á landi lengur en nauðsyn-
legt er vegna öryggis hinna
frelsisunnandi þjóða. íslenzka
þjóðin mun ekki hafa þá fulltrúa
sína í hávegum, sem gera þjóð-
ina að viðundri í augum vina-
þjóða okkar, með því að slá á
framrétta bróðurhönd þeirra.
Allir góffir íslendingar
hljóta aff standa saman um
frelsi sitt, inn á viff og út á
viff. Látum ekki haftastefnu-
flokkana fá tækifæri til aff
leggja þjóffina í haftafjötrana
á ný. Látum þá ekki fá tæki-
færi til aff spilla vináttu okk-
ar við sameinuðu þjóðirnar.
Vinnum virffingu þeirra meff
skilningi og heiffarlegri fram-
komu, svo þeir treysti okkur
og trúi okkur fyrir hluta fjár-
muna sinna.
ísland býr yfir ótakmörkuðum
möguleikum. Oss skortir aðeins
fjármagn til að beizla orku ís-
lenzkra fallvatna, og byggja
stór iðjuver við þær aflstöðvar.
Nokkur slík iðjuver gætu tryggt
öllu dugandi íslenzku fólki, sem
ekki hefði atvinnu við núver-
andi atvinnugreinar, nóg að
starfa um ókomin ár og skapað
nægan gjaldeyri til að flytja til
landsins allar þær efnivörur,
sem við framleiðum ekki sjálfir
og óskuðum eftir til eigin
þarfa.
Viff megum ekki láta
postula haftastefnunnar eyffi-
leggja traust vinaþjóffa okk-
ar á íslenzku þjóðinni og þar
meff möguleika hennar til aff
lyfta því Grettistaki, sem
bíffur hennar í átökunum viff
auðlindir Íslands. Viff verff-
um að vera samtaka um þaff,
að senda fulltrúa frelsis og
mannréttinda inn á næsta Al-
þing. Ef viff vinnum ötullega
að sigri Sjálfstæðisflokksins
24. júní, þá stígum viff spor
til framfara og heilla, en sigri
haftastefnan mun okkur bera
hraffbyri til þess niffurlægj-
andi ástands, sem viff þekkj-
um alltof vel og enginn ís-
lendingur óskar eftir.
Þorkell Ingibergsson.
s;