Morgunblaðið - 24.06.1956, Side 8

Morgunblaðið - 24.06.1956, Side 8
 MORCZJ'NB'LAÐIf, Sunnudagur 24. júní 1956. Ingólfur Flygenring sexfugur INGÓLFUR FLYGENRING, al- þingismaður okkar Hafnfirðinga, er sextugur í dag. Ingólfur er borinn og barn- fæddur Hafnfirðingur, alinn upp á einu mesta myndarheimilinu hér í bæ í stórum og efnilegum systkinahóp. Hér hefur hann svo ætíð dvalið og lagt sinn skerf til að vinna að vexti og viðgangi fæðingarbæjar síns með æfistarfi sínu. Það er ekki lítið happ hverju bæjarfélagi að eiga farsæla at- hafnamenn, sem með starfi sínu leggja sitt lið til að skapa velsæld og atvinnuöryggi meðal bæjar- búa. Afmælisbarnið er einn þess- ara manna. f öl'lu starfi Ingólfs hafa komði fram tveir góðir kost- ir hans: íhygli og gætni. Þeir hafa gjört honura það kleyft að treysta grunninn undir farsælum atvinnu framkvæmdum, en þeir hafa aldrei verið honum fjötur um fót er hafizt var handa um stærri og víðfeðmari framkvæmdir en áður og nýrri og hagnýtari vinnslu á fiskafurðum okkar. Ingólfur hafði gott veganesti úr heimahúsum til þessara starfa, en meðfædd sam- vizkusemi hans og ást á starfinu hefur haldið honum sívakandi fyrir öllum nýtilegum nýjungum til að vinna á sem hagnýtastan hátt úr þessu mikilvægasta hrá- efni, sem við höfum yfir að ráða og sem gjaldeyristekjur okkar hyggjast á að mestu leyti. Ég hefi ekki marga hitt á lífs- leiðinni, sem hafa geðþekkari framkomu en Ingólfur, látleysi hans og prúðmennska við hvern sem er, er honum í blóð borin. Þegar svo þar við bætist góðvild hans og hjálpsemi hins orðheldna manns, þá skilja menn betur hvernig stendur á hinum miklu vinsældum hans. En eins og títt er um slika menn, sem láta lítið yfir sér, þá er Ingólfur hlédrægur mjög, svo vinum hans og kunn- ingjum, sem þekkja mannkosti hans, hefur stundum fundist nóg um. Á þessu verður víst lítil breyt ing í framtiðinni, svo mikla óbeit hefur afmælisbarnið á allri sýnd- armennsku og bægslagangi enda eru leikarahæfileikar ekki til hjá honum. Þetta hefur ekki hvað sízt einkennt störf hans á Alþingi. sem notuð voru hér í hafnargarð- inn og sem svo mikil bót hefur verið að. Nokkru síðar var Ingólfur svo í framboði fyrir Sjálfstæðisflokk- inn við kosningar til Alþingis með þeim glæsibrag, sem kunnugt er. Þeir voru margir utan Hafnar- fjarðar, sem undruðust yfir því hve ört óx fylgi frambjóðanda Sjálfstæðisflokksins í tveim síð- ustu kosningahríðum, en hér í bæ kom það mönnum ekki á óvart. Ýmsar stoðir hnigu þar að og ekki hvað sízt vinsældir og prúðmannleg framkoma frambjóð andans og örugg vissa kjósend- anna um að þeir væru að kjósa á Alþing góðan dreng og sam- vizkusaman mann. Hafnfirðingar hafa aldrei verið gefnir fyrir sýndarmennsku eða bægslagang í stjórnmálum enda baráttan yfir- leitt prúðmannleg, því rógur og illkvitni hefur aldrei fengið hér hljómgrunn meðal kjósenda, en komið þeim í koll, sem beitt hafa slíkum aðferðum. Ingólfur hefur verið kvaddur til ýmissra annara trúnaðarstarfa bæði hér í bæ og utan hans og ætíð komið fram sem vaxandi maður, ráðhollur og sanngjarn. Þeir verða margir sem þrýsta hönd Ingólfs og hans ágætu konu á þessum merkisdegi, en margir eiga þess ekki kost á þessum mikla annadegi í lífi hans. öll færum við honum okkar beztu þakkir fyrir heilladrjúg störf og óskum þess að dagurinn í dag verði þeim hjónum og okkur öll- um blessunarríkur hamingjudag- ur og að við fáum sem lengst að njóta starfskrafta Ingólfs hér í bæ og á Alþingi. Bjarni Snæbjörnsson. Reykvíkingar! Kynnið yður auglýsingu D-LISTANS á baksíðu blaðsins. Reykvígingar! Sigur D-listans er sigur ykkar. Kosningohandbók Heimdullar Þar hefur hann unnið að hætti hins samvizkusama og gjörhygla manns. Sett sig vel inn í málin og myndað sér sinar skoðanir á lausn þeirra. Þegar hann svo hef- ur fundið heppilegustu lausnina, hefur hann fylgt henni beint fram, en ekki verið að fara eftir neinum diplomatiskum krókaleið- um. Fyrir þetta hafa sumir and- stæðingar hans í stjórnmálum verið að narta í hann, en þeir sem starfa með honum í nefndunueða öðrum störfum á Alþingi og annars staðar, meta hann því meir, er þeir kynnast honum bet- ur og störfum hans. Lengi vel gekk okkur Sjálf- stæðismönnum illa að fá Ingólf til að skifta sér opinberlega að bæjar- og landsmálum, en við gáfumst ekki upp, því við viss- um að í honum höfum við prýði- Itiúsnæði óskast Húsnæði undir léttan hreinlegan iðnað óskast til leigu, helzt sem hæst miðbænum. Upplýsingar í síma 6111 eftir k. 18. LETTIÐ yður STARFIÐ með LAV-O-LÍN ÞVOTTURINN verður LEIKUR með LAV-O-LÍN þvottaleginum Heildsölubirgðir: H. ÓLAFSSON & BERNHÖFT Símar 8-27-90. legan fulltrúa. Það var ekki fyr en 1950 að hann gaf kost á sér til að vera í framboði við bæjar- stjórnarkosningar. í bæjarstjórn voru hafnarframkvæmdirnar Ingórifi hjartfólgnastar og var hann annar þeirra tveggja bæj- arfulltrúa, sem sendir voru til Hollands til að skoða og festa kaup á steinsteyptu kerunum, BEZTA kosningahandbókin sem úl hefur komið fyrir þessar kosn- ingar er gefin út af Heimdalli í Reykjavik. Eru í henni myndir af öllum frambjóðendum og ná- kvæmar upplýsingar um alþingis- kosningarnar, allt frá árinu 1942 eða 14 ár aftur i tímann. Þá eru og i bókinni upplýsingar um úr- slit hæjarstjórnarkosninganna frá 1942. Þá eru og í bókinni tölurn- ar i þeirri riið sem þær bárust frá hinum ýmsu kjördæmum í siðustu Alþingiskosningum og voru lesnar upp i útvarpinu. Eyk- ur það gildi bókarinnar. Allir ættu að kaupa bókina og rita i hana á kosningakvöld þegar úrslit fara að berast. Þannig geta þeir bezt fylgzt með gangi kosn- inganna. Bókin er græn að lit og fæst í öllum bókaverzlunum. shriFar úr daglega lifinu Kosningarabb. IDAG er gengið til Alþingis- kosninga á íslandi. Mikið hefir gengið á, mörg fögur fyrir- heit hafa verið gefin og mörg fúk yrði látin falla eins og vant er, þegar kosningar fara í hönd. Það er varla hægt að furða sig á, þótt venjulegt friðsamt fólk, sem að jafnaði gefur sig lítt að stjórn- málum verði beinlínis ruglað í ríminu af öllum ósköpunum — þegar að því kemur að ráðstafa atkvæði sínu. Sannleikurinn er sá, að fjöldanum öllum af kjós- endum býður við þeim kynlega blandaða hrærigraut, sem vinstri öflin í íslenzkum stjórnmálum hafa stofnað til við þessar alþing- iskosningar, ekki einungis hinum hægrisinnuðu, heldur — og ekki síður þeim, sem til vinstri eru og hefir nauðugum viljugum verið kastað út á súpuna. Slík hrossa- kaup með sannfæringu manna er íslenzkri skaphöfn mjög ógeðfelld. íslendingar hafa alltaf metið sjálfstæði og frelsi í hugsun og athöfnum til hinna æðstu verðmæta. Andúð og vantraust. ÞAÐ er einmitt vegna þessa, að svo margur vinstri sinnað- ur kjósandinn hefir í undangeng- inni kosningabaráttu lýst megn- ustu andúð sinni og vantrausti á fyrrverandi forystumenn sína, sem nú taka eitt víxlsporið öðru óheillavænlegra og ógeðfelldara. Þeir sjá réttilega að stjórnmála samvinna, sem stofnað er til á slíkum grundvelli, er dauðadæmd fyrirfram og getur ekki leitt til annars en upplausnar og vand- ræða í þjóðfélaginu. — Sjálfstæð isflokkurinn er eini flokkurinn, sem gengur einn og óstuddur fram fyrir kjósendur, trúr sinni fyrri stefnu. Þeir, sem vilja fá að vinna í friði næstu árin, þeir sem vilja geta eignazt þak yfir höfuðið eða lokið við húsið sitt eða íbúðina, sem þeir eiga í smíðum, húsmæð- urnar, sem hrýs hugur við vand- ræðum og skorti skömmtunarár- anna, kjósa þess vegna að vel hugsuðu máli D-listann og láta hina sundruðu bræðingsflokka sigla sinn sjó. Einstakt tækifæri. JÁ, reykvískum konum gefst einstakt tækifæri til að kjósa sjálfum sér í vil. Frambjóðand- inn í baráttusæti D-listans er ung og greind kona, sú eina sem hefir möguleika til að komast á þing við þessar kosningar. Öllum hugs andi húsmæðrum og mæðrum hlýtur að vera það ljóst hve mik- rr~n ils virði það er þeim að eiga sinn fulltrúa á Alþingi, sem væri á verði um hagsmunamál þeirra. Þar með er ekki verið að gefa í skyn, að karlmennirnir séu ekki allir af viljanum gerðir til að gera þeim til þægðar, en samt mun það nú satt vera, að kona hefir betri skilning á þeirra hjart ans málum og betri aðstöðu til að hrinda þeim áleiðis. — Auk þess ætti það að vera íslenzkum kon- um metnaðarmál að eiga að minnsta kosti eina úr þeirra hópi á Alþingi. — Það er í rauninni hláleg staðreynd, að með sívax- andi menntun kvenna og bættri aðstöðu til að hafa áhrif á þjóð- félagsmál — þá hverfa konurnar úr sölum Alþingis. — Við svo búið má ekki standa til lengdar, — við eigum allt of margar greindar og gegnar konur til þess. Sjálfstæðisflokkurinn er eini flokkurinn, sem Veitir konu mögu leiga til að komast á þing við þessar kosningar. — Það ættu reykvískar konur, sem ganga að kjörborðinu í dag’ að virða og meta sem vert er. Mold á röngum stað. VELVAKANDI góður! Það var ljótt sem ég sá á götu hér í Reykjavík um daginn. Á götunni var slóð af mold, sem auðsjáanlega hafði fallið niður af vörubíl. Ekki sá ég bílinn en lík- lega hefur verið mokað svona miklu á bílinn eða svona illa geng ið frá vörupallinum. I fyrsta lagi var óþverralegt að sjá moldarskánina á götunni. í öðru lagi myndast ryk af henni, þegar þornar í veðri. í þriðja loga festist moldin neð an í skóm fólksins. í fjórða lagi veldur þetta ó- þarfa erfiði götusópurunum, sem þó sannarlega hafa nóg á sinni könnu. Ég skora á alla holla Revkvík- inga að ganga vel um, og sérstak- lega vil ég biðja vörubilstjóra, sem flytja mold á bílum sínum, að gæta þess að vel sé gengið frá moldarhlassinu. Einn þriflegur“. Væri það ómaksins vert? ÞAÐ er sagt, að hvers konar áhyggjur og búsorgir geti valdið magasári í mönnum. Hvað sem hæft er í því, þá er það víst, að mikill fjöldi fólks virðist grip- ið þessum kvilla nú upp á síð- kastið. Ekki verður það til að hressa upp á sálarástandið — til viðbótar við allt það, sem amaði að áður. — Og svo þetta klingj- andi í eyrunum alla daga: — Þú ættir ekki að borða alveg svona mikið, elskan mín. Manstu hvað læknirinn sagði?“ Oh — fari hann norður og nið- ur, þessi læknir. — Ég sé ekki hvers vegna ég ætti að drepa mig úr hungri til að lifa deginum lengur!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.