Morgunblaðið - 24.06.1956, Side 10

Morgunblaðið - 24.06.1956, Side 10
10 MORCUNBLAÐIÐ Sunnudagur 24. júní 1956. Reykvíkingar! Kjósum Sjálfstæðismenn á BJARNI BENEDIKTSSON ráöherra og 1. þingmaður Reyk- víkinga, er efstur á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í borginni. Bjarni er fæddur 30. april 1908, varð stúdent 1926 og lögfræð- ingur 1930. Hann stundaði síðan framhaldsnám erlendis, lengst- um í Berlín, en varð 1932 prófess- or í lögum við Háskóla íslands, aðeins 24 ára að aldri. Varð borg- arstjóri í Reykjavík 1940 og al- þingismaður 1942. Hann hefir átt sæti á þingi síðan. Ráðherra varð hann 1947. Hann hefur verið ráð- herra alla tíð síðan, alls í 4 rikis- stjórnum, og farið með ýmis xnál. Hann var utanríkisráðherra 1947 —1953, dómsmálaráðherra frá 1947 til þessa dags, menntamála- ráðherra frá 1953. Af öðrum störfum ber fyrst að nefna, að hann vann ötiullega að undirbún- ingi þcim, sem gerður var af ís- lendinga hálfu, áður en lýðveld- ið var stofnað 1944, m.a. í milli- þihganefnd í stjórnarskrármál- inu. Hann hefur átt sæti í bæj- arstjórn Reykjavíkur og bæjar- ráði, í útvarpsráði og ýmsum op- inberum nefndum öðrum. Þá hef- ur hann ritað margt bæði um stjórnmál og lögfræði og verið meölimur Visindafélags íslend- infa síðan 1935. Bjarni er vara- formaður Sjálfstæðisflokksins. — Víirburðir gáfna og diugnaðar skipuðu Bjarna Benediktssyni ungum í röð þjóðarleiðtoga, ó- trauð forysta hans um þau mál, er varða heill og heiður íslands er öllum kunn. BJÖRN ÓLAFSSON alþingismaður er í 2. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík. Björn Ólafsson íæddist 26. nóvember 1895. Hann varð póstmaður í pósthúsinu í Reykjavík 13 ára gamall, hvarf þaðan eftir 8 ára starf 1916 og gerðist verzlunarmaður. Hann setti á stofn eigin heildverzlun 1918 og hefur verið stórkaupmað- iur í Reykjavík síðan. Björn hóf snemma afskipti af stjórnmálum og var bæjarfulltrúi 1922—1928. Hann var fjármála- og viðskipta- málaráðherra í utanþingsstjórn dr. Björns Þórðarsonar 1942— 1944. Sömu mál fór hann með i ríkisstjórn Ólafs Thors 1949— 1950 og hann var menntamála- og viðskiptamálaráðherra í sam- stjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins undir for- sæti Steingríms Steinþórssonar á árunum 1950—1953. Björn Ólafs- son sat á Alþingi sem ráðherra 1942—44, tók sæti Péturs Magn- ússonar við fráfall hans 1948, var kjörinn þingmaður Reykvík- inga 1949 og endurkosinn 1953. — Björn er formaður útgáfu- stjórnar dagblaðsins Vísis og meðal annarra starfa hans má nefna, að hann hefur verið í stjórn Verzlunarráðs íslands og Rauða kross íslands. Þá hcflur hann átt sæti í ýmsum samninga- nefndum um utanrikisviðskipti. Hann er í flokksráði Sjálfst.fl. Björn er íþróttamaður og starf- aði á sínum tima mikið í íþrótta- hreyfingunni. — Björn Ólafsson er einn þeirra manna, sem vegna atorku sinnar og mannkosta hafa hafizt af sjálfum sér til virðingar og áhrifa. Drenglyndi og stefnu- festa eru aðalsmerki hans og þeir eiginleikar hafa skapað traust á honum meðal alþjóðar. JÓHANN HAFSTEIN bankastjóri og alþingismaður er í 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík. Jóhann er fædd- ur 19. sept. 1915, varð stúdent 1934 og lögfræðingur frá Háskóla íslands 1938. Að því loknu stund- aði hann framhaldsnám i London, en réðist síðan í þjónustu Sjálf- stæðisflokksins og var jafnframt um skeið kennari við viðskipta- háskólann. Hann varð fram- kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokks- ins 1942 ög gegndi því starfi unz hann var ráðinn bankastjóri við Útvegsbanka íslands 1. sept. 1952. Jóhann var kosinn á þing 1946 og hefur verið endurkosinn siðan. Hann tók sæti í bæjarstjórn Reykjavíkur sama ár, 1946, og hefur einnig verið endurkjörinn í þeim bæjarstjórnarkosningum, sem síðar hafa verið. Bæjarráðs- maður frá 1946—1954. Jóhann hefur verið fulltrúi íslands á þingi Sameinuðu þjóðanna. Hann á sæti í bankaráði Framkvæmda- banka íslands og átti sæti í milli- þinganefnd sem undirbjó hús- næðismálalöggjöfina frá 1955, enda hefur hann látið þau mál mjög til sín taka bæði á Alþingi og í bæjarstjórn Reykjavíkur. Hann er fulltrúi Sjálfstæðis- flokksins í stjórn atvinnuleysis- tryggingasjóðs. Á sæti í miðstjórn og flokksráði Sjálfstæðisflokks- ins. Jóhann starfaði á sinum tíma ötullega i samtökum ungra Sjálfstæðismanna, var formaður Heimdallar 1939—1942 og tfor- maður Sambands ungra Sjálf- stæðismanna 1943—1949. — Jó- hann Hafstein var kjörinn á þing sem fulltrúi æskunnar i Reykja- vík. Kynni hans af högum og kjörum æskunnar og stjórnmála- viðhorfum hennar hafa mótað lífsskoðun hans. Hann er þvi í hópi þeirra, er sterkasta trú hafa á sibatnandi kjörum þjóðarinnar í krafti framkvæmda og stórhugs. GUNNAR THORODDSEN borgarstjóri er í 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Gunnar er fæddur 29. desember 1910. Hann varð stúdent 1929 og lauk prófi í lögum 1934. Ilann var við framhaldsnám í Danmörku, Þýzkalandi og Englandi 1935— 1936, en kom síðan heim og starf- aði á vegum Sjálfstæðisflokksins og við málflutning til ársins 1940. Þá um haustið varð hann pró- fessor við lagadeild Háskóla ís- lands. Snemma árs 1947 varð hann borgarstjóri í Reykjavík. Gunnar Thoroddsen kom ungur á þing, er hann varð landskjörinn þingmaður árið 1934. Hann sat á þingi til 1937 og varð síðan þing maður fyrir Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu 1942—1949. Þá varð hann þingmaður Reykvík- inga. Hann hefur verið bæjarfull trúi í Reykjavík siðan 1938, bæj- arráðsmaður síðan 1946. Gunnar Thoroddsen var formaður Ileim- dallar 1935—1939 og formaður Sambands ungra Sjálfstæðis- manna 1940—1942. Hann hefur átt sæti í nefndum, sem fjallað hafa um stjórnarskrármálið, hann undirbjó lögin um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna og er forseti Landsbankanefndar. Hann á sæti í miðstjórn og flokks ráði Sjálfstæðisflckksins. — Gunnar Thoroddsen hefur frá æskuárum sínum verið meðal áhrifaríkustu fory^tumanna Siálf stæðisflokksins, og leiðsögn hans í bæjarmú'am Reykjavíkur hef- ur mótað borg okkar. Hann nýt- ur álits, virðingar og trausts allra borgarbúa fyrir störf sín í þeirra þágu og fyrir glæsl- mennsku og prúðmennsku. RAGNHILDUR HELGADÓTTIR frú, síiud. jur., skipar nú 5. sætið á lista Sjálfstæoisflokksins í Reykjavík. Ragnhildur er fædd 26. maí 1930. Hún varð stúdent 1949 og hóf þá um haustið nám við lagadeild Háskóla íslands. Hún lauk fyrra hluta prófi 1953 og býr sig nú undir embættispróf. Jafnframt námi sínu liefur hún verið húsfreyja í Reykjavík. Á menntaskólaárum sínum tók frú Ragnhildur mikinn þátt í skóla- lífinu, gekkst m.a. fyrir stofnun málfundafélags menntaskóla- stúlkna og var fyrsti fcrmaður þess. Hún hefiur átt sæti í stjórn Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta og átti sæti í Stúdenta- ráði Háskóla íslands 1954—55. Hún er eini kvenstúdentinn, sem hefur verið fulltrúi í ráðinu frá stofnun þess. Hún er nú í stjórn Kvenstúdentafélags íslands. Frú Ragnhildur hefur átt sæti í full- trúaráði Heimdallar í 8 ár og hef- ur verið fulltrúi félagsins á und- anförnurn þingum Sambands ungra Sjálfstæðismanna. Hún hefur hin síðari ár verið í full- trúaráði Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavílc og á nú sæti í flokks- ráði Sjálfstæðisflokksins. f AI- þingiskosningunum 1953 var hún í 13. sæti á lista flokksins í Reykjavík, en hefur nú setzt í baráttusæti hans sem fulltrúi reykvískra kvenna og reykvískr- ar æsku. — Frú Ragnhildur hef- ur á undanförnum árum sýnt á- huga og hæfni til félagsstarfa. Menntun hennar og viðhorf sem ungrar komu og móður valda því, að hún er líkleg til að verða til- lögugóður og glæsilegur fulltrúi á Alþingi. 'íLAFUR BJÖRNSSON prófessor, skipar 6. sæti á fram- boðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Ólafur er fæddur 2. febrúar 1912, varð stúdent 1931, las hagfræði við Hafnarhaskóla og lauk þaðan prófi með cand. polit.-gráðu 1938. Starfsmaður Landsbankans var hann um stund en starfaði síðan á Hagstofu fs- lands. Hann varð kennari í hag- fræði við Viðskiptaháskólann og síðan dósent við laga- og hag- fræðideild Háskóla fslands. Skip- aður prófessor árið 1948. Ólafur hefur gegnt ýmsum opinberum störfum og verið ráðunautur ríkis stjórnarinnar um efnahagsmál. Ólafur hefur verið formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja frá 1948. Þá er hann for- maður íslandsdeildar norrænu menningarmálanefndarinnar og íslandsdeildar Norræna sumar- háskólans. Hann hefur setið á AI- þingi sem varamaður fyrir Sjálf- stæðisflokkinn. Ólafur hefur rit- að mikið um hagfræði á íslenzku og í erlend tímarit. Hann nýtur mikils álits sem einn fróðasti maður um efnahagsmál íslands og hefur áunnið sér mikið traust sem forystumaður í hinum fjöl- mennu samtökum opinberra , starfsmanna. I ÁSGEIR SIGURÐSSON skipstjóri er í 7. sæti á framboðs- lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Hann fæddist 28. nóv- ember 1894. Árið 1914 lauk hann prófi úr Stýrimannaskólanum i Reykjavík og starfaði síðan um hrið sem háseti á þilskipum og togurum. Hann réðist í þjónustu Eimskipafélags íslands h.f. árið 1917 og var stýrimaður á skipum þess, unz hann tók við skipstjórn á Esju 1929. Hann er nú skip- stjóri á m..s. Heklu. Ásgeir Sig- urðsson hefur tekið mikinn þátt í félagsstarfsemi sjómanna, verið í stjórn Skipstjórafélags íslands og forseti Farmanna- og fiski- mannasambands íslands hcfur hann verið frá stofnun þess 1936. Hann á sæti í flokksráði Sjálf- stæðisflokksins. Ásgeir Sigurðs- son er einn af þekktustu og traustustu sjómönnum íslend- inga, sem með áratuga starfi hef- ur áiunnið sér vinsældir og traust. ANGANTÝR GUÐJÓNSSON verkamaður er í 8. sæti á fram- boðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Hann er fæddur hér I bænum 22. maí 1917, stundaði hér barnaskólanám, og hefur ver- ið verkamaður í Reykjavík síðan því lauk. Barnungur tók hann að vinna við fiskverkun hjá H. P. Duus og mun hafa verið 7 ára, er liann var skráður þar sem verkadrengur í fyrsta skipti. Um fjölda ára vann hann hjá Slipp- félaginu í Reykjavík, en fyrir 17 árum tók hann að starfa hjá Reykjavíkurbæ og hefur unnið þar síðan. Angantýr Guðjónsson hefur starfað mikið í Sjálfstæðis- flokknum. Hann hefur verið i stjórn Óðins, málfundafélags Sjálfstæðisverkamanna og sjó- manna, um 12 ára skeið og for- maður félagsins var hann um tíma.. í fulltrúaráði Sjálfstæðis- félaganna í Reykjavík hefur hann verið í 16 ár og hann hefur starf- að mikið fyrir Landsmálafélagið Vörð. — Angantýr Guðjónsson hefur um langt skeið unnið sem verkamaður í Reykjavík og gjör- þekkir kjör og áhugamál stéttar sinnar. Hann hefur í starfi sínu í Sjálfstæðisflokknum haft tæki-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.