Morgunblaðið - 24.06.1956, Page 11

Morgunblaðið - 24.06.1956, Page 11
MORGVNBLAÐIÐ 11 Sunnudagur 24. júní 1956. færi til aS koma sjónarmiSunr hennar á framfæri og er einn þeirra, sem þátt hafa átt í að gera Sjálfstæðisflokkinn að bandalagi allra stétta. SVEINN GCÐMUNDSSON vélfræðingur er í 9. sæti á lista Sjálfstæðisfl. í Rvík. Sveinn er fæddur 27. ágúst 1912. Stundaði á unglingsárum alla almenna vinnu, einkum við jarðrækt á Suðurlandi. Hóf iðnaðarnám í Reykjavík 1929, og lauk námi i rennismíði árið 1933. Stundaði síðan vélfræðinám í Stokkhólmi um tveggja ára skeið. Sarfaði sem vélfræðingur í Vélsmiðjunni Héðni í Reykjavík, unz hann tók við störfum sem framkvæmda- stjóri árið 1943. — Er Sveinn kom frá námi, hóf hann þegar í stað umfangsmikil störf í þágu uppbyggingar sjávarútvegsins og stóriðnaðar þess er honum fylgir, svo sem við byggingu síldar- verksmiðja og frystihúsa. — Sveinn hefur átt sæti í varastjóm Eandssambands iðnaðarmanna og Félags ísl. iðnrekenda. Starfaði sem fulltrúi iðnaðarmanna að stofnun Iðnaðarbankans og hef- ur fyrr og siðar látið iðnaðar- málin til sín taka. Formaður Iðn- sýningarnefndar var kann 1952 Undir stjórn Sveins hefur Vél- smiðjan Iléðinn og islenzkur járn- iðnaður tekið miklum framför- um. DAVÍB ÓLAFSSON fiskimálastjóri, er 10. maður á lista Sjálfstæðisflokksins i Reykja vík. Hann fæddist 25. april 1916, varð stúdent 1935 og lauk hag- fræðiprófi í Þýzkalandi 1939. — Hann varð forseti Fiskifélags Is- lands í marz 1940 og varð fiski- málastjóri, er forsetastarfinu í Fiskifélaginu var breytt. Fiski- málastjúri hefur hann verið síð- an. Davið hefur tekið þátt í f jöl- mörgum alþjóðlegum ráðstefnum um efnahags- og sjávarútvegs- mál, m. a. á vegum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna og Efnahagssamvinnu- stofnunarinnar í París. Ilann er fastafulltrúi íslands í alþjóða haf- rannsóknarráðinu. Hann hefur verið formaður Varðarfélagsins frá 1955. — Davíð Ólafsson er flestum mönnum kunnugri ís- lenzkum sjávarútvcgsinálum og hefur innt af höndum mikið starf í þeirra þágu. AUÐUR AUÐUNS forseti bæjarstjórnar, skipar 11. sæti á lista Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Hún er fædd 18. febr. 1911, varð stúdent 1929 og lauk lögfræðiprófi 1935. Er hún fyrsta íslenzka konan, sem lauk því prófi. Á árunum 1935—36 stund- aði hún málflutning á ísafirði. Lögfræðingur mæðrastyrksnefnd ar hefur hún verið frá 1940. — Auður var fyrst kosin í bæjar- stjórn Reykjavíkur 1946 og hef- ur átt þar sæti síðan og er nú foseti hennar. Hún hefur verið í stjórn Kvenréttindafélags Is- lands, Hallveigarstaða og Kven- stúdentafélags íslands. Hún átti sæti í stjórnskipaðri ncfnd til að rannsaka réttarstöðu og atvinnu- skilyrði kvenna. Iiún átti einnig sæti í nefnd til endurskoðunar stjómarskrárinnar og nefnd sem endurskoðaði tryggingarlöggjöf- ina nú nýlega. Frú Auður er glæsileg forystu- kona, sem nýtur óskoraðs trausts Reykvíkinga. KRISTJÁN SVEINSSON læknir, er í 12. sæti á framboðs- lista Sjálfstæðisflokksins í Reykja vík. Kristján er fæddur 8. febr. 1900. Hann hóf læknisfræðinám að loknu stúdentsprófi 1922 og varð cand. med. 1927. Starfaði í Danmörku á sjúkrahúsum í Ár- ósum, Vejle og Kaupmannahöfn, en var héraðslæknir í Ðalahéraði 1929. Nám í augnlækningum er- lendis 1930—1933, lengst af í Vín- arborg. Settist að í Reykjavík sem augnlæknir 1933 og liefur stundað lækningar síðan. Hann hefur á þessum árum siglt oftsinnis til útlanda til að kynna sér nýjung- ar í sérgrein sinni. llann er nú augnlæknir Landsspítalans og kennari í augnlækningum við Háskóla íslands. Kristján Sveins- son cr með afbrigðum vinsæll og vel látinn læknir, enda sér- staklega lipur maður og íarsæll í störfum. PÉTUR SÆMUNDSEN viðskiptafræðingur, er 13. mað- ur á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavik. Hann er fæddur 13. febrúar 1925, varð stúdent 1946 og viðskiptafræðingur frá Há- skóla íslands 1950. Hefur hann síðan verið skrifstofustjóri Fél. ísl. iðnrekenda og verið fulltrúi þess í mörgum stjórnskipuðum nefndum. Pétur hefur látið mál- efni verzlunarmanna mikið til sín taka og verið í stjórn Verzl- uarmannafélags Reykjavíkur um 5 ára skeið. Er hann nú vara- formaður félagsins. Ilann er full- trúi bæjarstjórnar Reykjavíkur í stjórn Verzlunarsparisjóðsins. — Pétur Sæmundsen var kosinn for- maður Heimdallar á s. I. vetri og er ritari Sambands ungra Sjálf- stæðismanna. — Pétur er ungur maður, en honum hafa verið fal- in mörg og mikilvæg störf, sem hann hefur innt af Iiöndum af dugnaði og samviskusemi. BIRGIR KJARAN hagfræðingur, skipar 14. sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykja vík. Ilann er fæddur 13. júni 1916, lauk stúdentsprófi 1935, stundaði nám í hagfræði í Eng- landi og Þýzkalandi og lauk námi í Kiel 1939. Eftir heimkomuna varð hann kennari í hagfræði við Verzlunarskóla fslands og síðar forstjóri Bókfellsútgáfunnar og heildverzlunar föður síns. Auk þess hefur hann gegnt ýms- um öðrum störfum, á sæti i stjórn Eimskipafélags fslands og er varaformaður bankaráðs Lands- bankans. Hann var formaður Landsmálafélagsins Varðar 195 —1955 og hefur verið formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík síðan 1955. f bæjar- stjórn Reykjavíkur héfur hann átt sætl. Birglr Kjaran er dug- mikill maður, sem nýtur álits fyrir störf sín í þágu opinberra mála og þjóðnýtra fyrirtækja. ÓLAFUR H. JÓNSSON framkvæmdastjóri, skipar 15. sæti framboðslista Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík. Hann varð stúdent 1924 og lögfræðingur 1930. Það ár gerðist hann starfs- maður hjá fiskveiðihlutafélaginu Alliance í Reykjavík og síðar framkvæmdastjóri þess og hefur gengt því starfi síðan. Hann hefur gengt fjölmörgum trúnaðarstörf- um í þágu útvegsins, verið í stjórn Félags ísl. botnvörpuskipa- eigenda, Lýsissamlags isl. botn- vörpunga, Samtrygginga ísl. botn vörpunga og Landssambands ísl. útvegsmanna. Einnig hefur hann átt sæti í nefndum, sem undir- búið hafa löggjöf um þessi mál. Ólafur hefur verið einn af helztu athafnamönnum sjávarútvegsins um árabil og hefur öðlast mikla reynzlu í þeirri atvinnugrein. SIGURÐUR KRISTJÁNSSON 16. maður á lista Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík er fæddur 14. april 1885. Að loknu búfræði- námi á Hólum og kennaraprófi 1910 stundaði hann kennslu um margra ára skeið aðallega á ísa- firði þar sem hann var lengi bú- settur. Þar ávann hann sér fljót- lega traust og gegndi fjölmörg- um trúnaðarstörfum, m. a. var hann bæjarfulltrúi í mörg ár, ráðunautur Búnaðarsambands Vestfjarða, form. skattanefndar ísafjarðar, einn af stofnendum togarafélagsins „Græöis“ og í Stjóm þess. Hann var eigandi og ritstjóri blaðsins „Vesturlands" frá stofnun þess 1923—30, ritstj. „ísafoldar og Varðar“ 1930—1932, ritstjóri „Heimdallar“ 1932—1934. í miðstjórn Sjálfstæðisflokksisn var hann kjörinn 1931 og átti þar lengi sæti. Um skeið var hann framkvæmdastjóri Sjálfstæðis- flokksins. Sigurður varð þing- maður fyrir Reykjavík 1934 og var þingmaður til 1949. Á Alþingi gegndi hann mörgum trúnaðar- störfum, aðallega á sviði sjávar- útvegsmála, þar sem þekking hans og reynsla komu að dýr- niætum notum. — Sökum mann- kosta sinni og gáfna hefur Sigurð ur ávalt verið einn af vinsælustu forvígismönnum Sjálfstæðis- flokksins. Er þjóðnýtingin gleymd! ÁRUM SAMAN hafa hinir svo- kölluðu vinstri flokkar prédikað okkur kjósendum ágæti hinnar sósialisku lífsstefnu, sem meðal annars hefur að höfuðmarkmiði fullkomna þjóðnýtingu allra at- vinnutækja, þjóðnýtingu verzl- unarinnar, bankanna, flutninga- tækjanna o. s. frv. Hvað hefur komið fyrir þessa málsvara þjóð- nýtingarstefnunnar? Er ágæti „ hennar ekki lengur í gildi eða er hún nú þegar orðin að veru- leika hjá okkur? Þessu er íljót- svarað: Þjóðnýtingarstefnan hefur gold ið slíkt afhroð fyrir einstaklings- framtakinu, að jafnvel forustu- menn frjálsrar þjóðnýtingar í brezka verkamannaflokknum, lentu í slíkri sjálfheldu, eftir þj óðnýtingarreynslu sína, að þeir urðu að velja sér allt aðra stefnu- skrá fyrir síðustu þingkosningar í Bretlandi, og viðurkenna þar með algjöra uppgjöf þjóðnýting- arstefnunnar. Það skal því engan undra þó íslenzkir kommúnistar, og áhang- endur þeirra, standi rökþrota frammi fyrir þjóðinni og reyni á annan hátt að ná fylgi þess fólks, sem fyrir löngu er búið að viður- kenna yfirburði einstaklingsfram- taksins. Þetta sannaðist bezt með því, að fyrir kosningar þær sem í hönd fara, hefur ekki verið minnst á þjóðnýtingaráform, sem við allar kosningar hingað til hef- ur verið málefna samnefnari rauðu flokkanna. Glerhúsa- mennirmr ÞAÐ er eitt af slagorðum and- stæðinga Sjálfstæðisflokksins, að hann sé „flokkur braskara“. — Þetta er svo barnalegt slagorð, að það er í rauninni tilgangslaust að eyða mörgum orðum að slíku og öðru eins. Það er rétt að inn- an Sjálfstæðisflokksins eru, hafa verið og munu verða, margir vel efnum búnir menn. En af hverju eru þeir það, sem kallað er „vel efnum búnir“? Það er einfaldlega vegna þess, að svo margir dug- miklir framkvæmdamenn hafa valizt í þann flokk og kosið stefnu hans, vegna þess að hún virðir dug og dáð og vill hlynna að þeim dyggðum. Svo koma þeir menn, sem sjálf- ir búa í glerhúsi og fara að kasta grjóti að slíkum mönnum. Þessir glerhúsamenn, — ef svo mætti kalla þá — eru fjölmennir, en eftir þá marga liggur litið, þótt ýmsir þeirra hafi auðgazt stór- lega. Hvað má t. d. segja um Hermann Jónasson, einhvern mest áberandi „glerhúsamann“, sem nú er uppi. Hermann er — að allra dómi — efnaður maður á íslenzkan mælikvarða. — Á hverju- hann hefur efnast þarf ekki að ræða hér. Það hefur margt verið um það sagt. En eitt er víst að ekki hefur hann auog- azt af miklum framkvæmdum, sem eru „til blessunar fyrir land og lýð.“ Malarastrákurinn sagði: „Ég sé að grísirnir hafa fitnað, en ég sé ekki af hverju þeir hafa fitnað“! Fyrir slíka „glerhúsamenn" er áreiðanlega hollast að hætta að henda grjótinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.