Morgunblaðið - 05.03.1957, Síða 2

Morgunblaðið - 05.03.1957, Síða 2
* 2 MORCTJNBLAÐ1Ð Þriðjudsgur 5. marz 1957 4 umierðum iokið HAFNARFIRÐI — Skákmót Tafl félagsins stendur nú yfir og hafa verið tefldar 4 umferðir í meist- araflokki, en þar eru keppendur 6, þar af 2 úr Reykjavík. Eru það þeir Björn Jóhannesson og Eggert Gilfer. Var 4. umferð tefld á sunnudaginn og vann Björn þá Jón Kristjánsson, Eggert vann Ólaf Sigurðsson og jafntefli varð hjá Ólafi Stephen- sen og Stíg Herlufsen. Eftir 4 umferðir er nú staðan, sem hér segir (nokkrum skákum er þó ólokið): Ólafur Sigurðsson 2 vinn inga, Stígur 1% og eina biðskák, Eggert og Björn 1 hvor og 3 biðskákir. Verða biðskákirnar tefldar í kvöld. Ólafur Stephen- sen % vinning og 2 biðskákir. Tefld verður tvöföld umferð í meistaraflokki. Enginn keppandi er í 1. flokki, ea 13 í öðrum og er Hilmar Ágústsson þar efstur með 3% vinning af 4 mögulegum og Guðm. Jóhannesson með 3 af 3. 5. umferð verður tefld í kvöld, en teflt er í Góðtemplarahúsinu á þriðjudögum, fimmtudögum og sunnudögum. — í frétt af aðal- fundi félagsins hér í blaðinu fyr- ir skömmu, misritaðist nafn Sigurðar Þorsteinssonar, sem er í stjórninni. —G. E. Út á rúmsjó í læknis- erindum HÖFN í HORNAFIRÐI, 4. marz. — Hér á Hornafirði er það alltítt, að héraðslæknirinn er beðinn að koma um borð í útlenda togara og verður hann þá að fara langt á haf út í þessum lækniserindum. I gær bar svo við að hann þurfti samtímis að fara í þrjá enska togara sem allir voru með slasaða menn. Einn maðurinn var það mikið slasaður, að lækn- irinn flutti hann í land og verð- ur hann sendur flugleiðis til Reykjavíkur í dag. — Gunnar. Rýr afli í Homafirði. HÖFN í HORNAFIRÐI, 4. marz. — Síðari hluta febrúarmánaðar fóru Hornafjarðarbátar samtais 47 róðra og var samanlagður afli þeirra 256% eða 5,5 lestir tii jafnaðar í róðri á hvern bát. Frá áramótum hafa þeir farið samtals 103 róðra og er heildar- aflinn frá þeim tíma 610 lestir. Mestan afla hafa Helgi 155 lestir í 25 róðrum og Gissur 138 lestir í 23 róðrum. Sjóveður hafa yfirleitt verið erfið og hörð og notazt mjög illa. Talsvert línutap hefur orðið sök- um óveðra. Loðna veiðist ekki ennþá og er aflí rýr síðan loðna kom á miðin. — Gunnar. Gengu ekki til guðsþjónustu ACCRA (Gana), 4. marz. — Það vakti athygli, þegar guðsþjónusta var haldinn í gærdag til þess að biðja guð að vernda hið unga þjóðríki á Gullströndinni, að full- trúar Sovétríkjanna og kínverska alþýðulýðveldisins voru hvergi nærri. — Um 50 þús. Ganamenn og gestir þeirra tóku þátt í guðs- þjónustu þessari og var hún hin hátíðlegasta. Fulltrúar erlendra ríkja sóttu hana nema þeir sem að framan greinir.. — Fulltrúi Bandaríkjastjórnar var Nixon, varaforseti Bandaríkjanna, en hann er um þessar mundir á ferðalagi um Afríkulönd. Hann er nýkominn frá Marokkó, þar sem hann fékk einstakar viðtök- ur. — Á miðvikudag hlýtur Gana sjálfstæði sitt. Verður þá haldin hátíð mikil, eins og vænta má, og hyggjast ibúar þessa yngsta sjálf- stæða ríkis í heiminum gera sitt til að dagurinn verði öllum ó- gleymanlegur. . • FRAKKLANO Btl&IA V. ÞY2KALAN0 . H0U.AND LUXEMBURG / MILLJOSHIM DOLLAKA LUXEMBURG HÖLlANIJ v.ay/kaland V y belc-ia FRAKKLAND Hvað er sameiginlegur markaður? Skattskyldum tekjum hjónu skipt í tvennt og lugt ú hvorn helming fyrir sig % Ræða Ragnhildar Helgadóttur RAGNHILDUR HELGADÓTTIR talatfi í Neðri deild í gær fyrir frumvarpi því, sem hún ásnmt fleirum flytur um breytingu á lögum um tekjuskatt og eignarskatt. Frumvai'p þetta felur í sér í meginmáli það, að samanlögð- um skattskyldum tekjum hjóna, sem samvistum eru, skuli skipta til helminga og reikna skatt af hvorum helming fyrir sig, einnig að hækkaður verði persónufrádráttur einstæðra mæðra og feðra með böm innan 16 ára aldurs á framfæri sínu. 1. Vestur Þýzkalnnd, Frakk- land, Ítalía, Belgia, Holland og Luxembourg, fella niður alla tolla á viðskiptum sin á milli. 2. Lönd þessi hafa sameiginleg tollaákvæði gagnvart öðrum lönd um. Fyrir lönd, sem utan mark- aðsins standa þýðir það, að af verzlun þeirra þarf að greiða lægri toll en nú tíðkast í Frakk- landi, en hærri toll en nú er í Hollandi og Þýzkalandi. 3. Fjárfesting í nýlendum þessara ríkja verður sameiginleg. Hefur verið gerð 5 ára áætlun um fjárfestingarþörf nýlendn- anna. Er áætlað að hún sé 580 milljónir dollara. Frakkland og Þýzkaland leggja fram hvort um sig 200 milljónir dollara, Belgia og HoIIand hvort um sig 70 millj. dollara og Ítalía 40 nrillj. dollara. 4. ToIIar á verzlun þessara ríkja við nýlendumar verða af- numdir. 5. Tollar á iðnaðarvörum verða felldir smám saman niður á 12 árum. Á landbúnaðarvörum verða þeir felldir niður á 15 ár- um. Á þessum tíma skal gera heildaráætlun um áframhaldandi styrkveitingar og verðverndun Iandbúnaðarafurða. Rokkæðid við htfornuoio HIN fræga kvikmynd, Rock around the clock, var fmmsýnd hér í Reykjavík í gær. Margir höfuð óttazt að ungir aðdáendur rokksins myndu af göflunum ganga, en sú spá reyndist ekki á rökum reist. Ungt fólk var í al- gjörum meirihluta á öllum sýn- 6. Þá verður sett á fót kjarn- orkustofnun Evrópu, sem ætlað er að hagnýta kjarnorkuna til friðsamlegra nota. ★ SKÁKIRNAR SKÝRÐAR Taflfél. Reykjavíkur sér um framkvæmd einvígisins og verð- ur Jón Pálsson, form. fél. skák- stjóri. Stjórn félagsins og fleiri ræddu við blaðamenn í gærdag um einvígið. Lét Jón Pálsson þess getið, að einvígisskákirnar yrðu sýndar á sýningarborðum svo allir, sem vilja geti fylgzt með þeim á skákstað. Ingi R. Jóhanns- son mun annast skýringar ef þurfa þykir. * UMMÆLI PILNIKS Þeir Pilnik og Friðrik háðu 6 skáka einvígi haustið 1955. Friðrik vann þá 4 skákir en 2 urðu jafnar. Pilnik kvaðst nú vera í betri þjálfun en þá, og vonast til að keppnin nú geti orðið jöfn. Frið- rik hefur, hélt Pilnik áfram tek- ið framförum síðan við mættumst og það er mjög eftirtektarvert, því að hann var þá þegar í flokki beztu skákmanna og þegar menn RANGLÁT LÖG Ragnhildur Helgadóttir benti í upphafi máls síns á hver væru grundvallaratriði góðra laga og sýndi fram á að skattalögin full- nægðu engan veginn þeim skil- yrðum sem góð lög þurfa að full- nægja. Benti Ragnhildur síðan á að hjón bera t. d. hærri skatta en ógift fólk; ekki gætu það heldur talizt réttlát lög, sem skertu svo mjög afrakstur af aukaerfiði fólks að það lamaði athafnasemi eru komnir langt, er erfitt að taka greinilegum framförum. Hann er að mínu áliti bezti skák- maður Norðurlanda. Þó Larsen ynni hann í einvíginu hér og væri % vinning hærri á Hastings mótinu, þá er það ekki einhlítt til dóms um ágæti þeirra. Friðrik má þegar telja í hópi stórmeistara. Frammistaða hans á skákmótum undanfarið og hin háa vinningstala hans í Moskvu sýna það og sanna að það er að- eins tímaspursmál hvenær al- þjóðasambandið titlar hann sem stórmeistara. Hann á þann titil þegar skilið. Friðrik lét svo ummælt, að ein- vígið yrði erfiðara nú en áður. Pilnik var ekki í góðri þjálfun síðast. Frammistaða hans á mót- um undanfarið sýnir að hann er það nú. Ég held að ég sé í sæmi- legri þjálfun, og þetta ætti að geta orðið hörð képpni og skemmtileg. þess. Það hefði jafnvel verið við- urkennt af hinu opinbera, að skattalögin væru ekki framkvæm anleg. Þá sagði hún að núverandi samsköttun hjóna hefði ýmis éeðlileg áhrif og benti á hinn ört hækkandi skattstiga, sem hefði það í för með sér að á vissu stigi borgaði sig betur að sitja auðum höndum en að taka á sig við- bótarvinnu, þvi að afraksturinn hyrfi að mestu til hins opinbera. En á sama tíma væri fólk ráðið til vinnu hingað erlendis frá. LAUN GIFTRAR KONU MINNI „ Þá lrvað Ragnhildur reglumar um samslcöttun hjóna leiða til þess, að laun giftrar konu, sem vinnur utan heimilis yrðu í raun- inni lægri en ógiftrar. Þá benti hún á að margir vildu miða sérsköttun hjóna við það að bæði hjónin ynnu utan heimilis. En það þýddi að vinna konunnar utan heimilis væri þjóðfélagslega hærra metin, en hinnar, sem vinn ur einungis á heimili sínu. Það yrði hins vegar að telj- ast fráleitt, þar sem ómögu- legt væri að slá þvi föstu að kona, sem ynni utan heimilis, legði á sig meira erfiði, en sú sem einungis vinnur á heim- ilinu. Framh á bls. 19 Búnaðarþingsfullfrúar í kveðjuhófi fyrir Pál Zóphóníasson ENN voru fundir á búnaðarþingi í gærmorgun. Voru þar lögð fram nokkur mál, en þrjú þeirra voru tekin til fyrri umræðu. •— Voru það breytingar á sandgræðslulög- unum, rannsókn á hagkvæmum áhöldum til að klippa með sauð- fé, og þá sagði Bjarni Bjamason á Laugarvatni frá reynslu manna fyrir austan Fjall af hjarðfjósum, sem hann taldi góða og við þau væri miklar vonir tengdar. í gærkvöldi sátu búnaðarþings- fulltrúar mikið kveðjuhóf, sem haldið var í Þjóðleikhússkjallar- anum, til þess að heiðra Pál Zóphóníasson, sem í Jiaust er leið lét af störfum búnaðarmála- stjóra. Skók-keppnin 2. BORÐ Svart: Reykjavík (Björn Jóhanness.- Sv. Kristinss.) abcdefgh abcdefgh Hvítt: Akureyri (Ingimar Jónss. - Kristinn Jónss.) 39. a3—a4 ingum Stjörnubíós á þessari vin- sælu mynd í gær, en miðar allif voru uppseldir á 2% klst. Unga fólkið virtist skemmta sér prýði- lega, vaggaði og klappaði lófun- um í takt við hljómfallið í hinum ;; æsandi rokklögum Bill Haleys, rokkkóngsins fræga, en hafði sig að öðru leyti ekki í frammi. — Þessar myndir voru teknar við Stjörnubíó í gær, þar sem löng biðröð var þegar miðasalan hófst. Margir keyptu miða fyrir skólasystkini sín og vini og stundum keypti sami bíógestur 20—30 miða. Friðrik er bezli skákmaður Norðurlanda - segir Pilnik og einvígi þeirra hefst d miðv.d. OTÓRMEISTARINN Hermann Pilnik hefur skorað á Friðrik Ól- -J afsson í skákeinvígi. Hefur svo um samizt þeirra á milli, að skákirnar verði 6 talsins, en séu þeir jafnir að vinningum að þeim ioknum verði tefldar tvær til viðbótar. Einvígi þetta hefst í Sjó- mannaskólanum n.k. miðvikudagskvöld. Hefur þá Pilnik hvítt. Leiknir verða 40 leikir á 5 klst.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.