Morgunblaðið - 05.03.1957, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 05.03.1957, Blaðsíða 13
ÞriSjudagur 5. marz 1957 MORGVNBLAÐIÐ 13 Þannig er umhorls við hafnargarðinn á Dalvík á síldarvertíðinni. Dalvíkurbréf um ógœftir og lítinn afla og leikstarfsemi í 45 ár Dalvík, 12. febrúar. SÍÐAN um mánaðamót hefur tíð- arfar verið mjög rysjótt, fann- koma öðru hverju, en þó ekki meiri en það að engum samgöngu truflunum hefur valdið. Fram til janúarloka mátti heita að sjaldan gránaði í rót, ekki aðeins á lág- lendi heldur til hsestu fjallatinda, þegar undan er skilið hríðarskot, sem gerði um miðjan desember, en snjóinn tók upp á nokkrum dögum. Það má því segja að skotfæri (eins og bílstjórarnir kalla það) hafi verið um allar byggðir Eyjafjarðar, það sem af er þessum vetri, og mun það sjaldgæft ef ekki einsdæmi, síðan Dalvík komst í akvegasamband við Akureyri. En þrátt fyrir hlýindin og snjó- leysið hefur tíð verið misviðra- og stormasöm. Um miðjan janúar geisaði hér sem víða annars stað- ar sunnan og suðvestan stórviðri, svo dögum skipti, en ekkert tjón varð þó af, svo orð sé á gerandi. ÓGÆFTIR OG LÍTILIj AFLI Um útgerðarmálin er lítið að segja. Fjórir litlir þilfarsbátar hófu róðra hér laust eftir ára- mótin, en lítið orðið úr þeirri út- gerð vegna sífelldra ógæfta, að- eins stöku sinnum hægt að róa hér „út með fjörunum" eins og kallað er, og aflabrögðin eftir því, 2—4 skpd. í róðri, aðallega smóýsa. Er því eins og að líkum lætur dauft yfir atvinnulífinu, eins og jafnan er á þessum tíma árs. Hefur því meginþorri sjó- manna, og annarra, er vinna að nýtingu sjávarafla, leitað til Suð- urlands og Vestmannaeyja, og stundað þar atvinnu, sumpart við heimabáta og sumpart við ýmis störf í landi, eða samtals 100— 120 manns. Er það mikill meiri hluti þeirra manna, sem hafa þessi störf að aðalatvinnu. BÁTAFLOTINN MINNKAR Mjög hefur veiðiflotinn gengið saman á sl. ári. Tveir bátanna, mb. Björgvin og Þorsteinn, hafa þegar verið seldir, og ekki er annað vitað en ms. Baldur verði einnig seldur á næstunni, svo eft. ir verða aðeins 4 stærri þilfars- bátar (50—70 tonna), Júlíus Björnsson, Bjarmi, Baldvin Þor- valdsson og Hannes Hafstein, sem allir eru gerðir út frá Keflavík og Sandgerði, og hafa aflað eftir at- vikum. Ekki mun enn ráðið hvort nokkur bátur verður keyptur í stað hinna seldu, og verður þá um mikinn samdrátt veiðiflotans að ræða, sem hafa mun alvarleg- ar afleiðingar fyrir atvinnulíf og afkomu þorpsbúa, þegar það er haft í huga, að í meðalári gefur hver bátur 6—800 þús. kr. í at- vinnutekjur. LEIKSTARFSEMI í 45 ÁR Félags. og skemmtanalíf er heldur dauft um þessar mundir, eins og að líkum lætur. Milli jóla og nýjárs hafði Leikfélag Dalvíkur 4 sýningar á leikritinu „Gimbill”, alltaf fyrir fullu húsi. Þótt ekki væri þess . sérstaklega minnzt, voru þetta allsöguleg tímamót í „leiklistarsögu" Dalvík ur, því haustið 1911 hóf Umf. Svarfdæla leikstarfsemi hér, og síðan — eða í 45 ár — hafa leik- sýningar aldrei fallið niður að vetrinum, verið lengst af á veg- um ungmennafél. Aðeins hin síðustu ár að frumkvæði Leikfé- lags Dalvíkur. Þess er einnig vert að minnast, ,að einmitt þessa sömu daga voru nákvæmlega 55 ár liðin frá því að sjónleikur (Jólaleyfið) var fyrst settur á svið á Dalvík (sem hét þá raunar Böggvisstaðasandur). Af þeim, sem þátt tóku í þessari fyrstu leiksýningu, er nú aðeins einn maður ofar moldu: Hallgrímur Gísláson, Bjarnarstöðum við Dal- vík. Þá minntist Verkalýðsfélag Dal víkur nýlega 25 ára starfsafmælis síns með fjölmennu hófi í sam- komuhúsi ungmennafélagsins. — Allfjölmennt bridgefélag er hér einnig starfandi, er kemur saman öðru hverju til æfinga og keppni, og þá venjulega við framsveit unga (Svarfdælinga), og loks eru það svo spilakvöldin „með dansi á eftir“. Á árinu sem leið og það sem af er þessu, hefur heilsufar manna almennt verið mjög slæmt og er mikið um það rætt manna á milli hvað valda muni, en við því fást eðlilega engin svör önn- ur en þau, að fólkið hljóti að vera orðið hálfgerðar „vometa- kindur“, þrátt fyrir minnkandi strit, bætt húsakynni og betri lífskjör yfirleitt frá því sem áður var, og víst er um það, að gamla fólkið, sem ólst upp í torfbæjun- um við þröngan kost og þrotlaust strit, virðist að mörgu leyti standa sig betur en yngri kyn- slóðin, þótt ó því kunni máske að finnast eðlilégar skýringar. Sem dæmi um það í hvert óefni er komið, má geta þess að einn gjaldaliður (sjúkrahúskostnaður) Sjúkrasamlags Svarfdælinga tvö- faldaðist á sl. ári, frá því sem var 1955. ★ ★ ★ ★ Nýlátinn er hér Þorsteinn Antonsson, útgerðarmaður og bóndi , Efstakoti við Dalvík, sjö- tugur að aldri. Hann var maður vel ættaður, Svarfdælingur í báð- ar ættir, borinn og barnfæddur í næsta nágrenni Dalvíkur, eða eins og skáldið orðar það: „Hann var alinn upp við sjó, ungan dreymdi um skip og sjó, stundaði alla ævi sjó“, fyrst á árabátum og hákarlaskip- um um og eftir aldamótin, og síð- 1 ar á vélbátum, þegar þeir komu til sögunnar (1906). Rúmlega tví- tugur að aldri gerðist hann for- maður á einum þeirra, og var það um aldarfjórðungsskeið, fyrst í annarra þjónustu, síðar með eig- in bát. Fór brátt orð af því að Þorsteinn væri fyrir öðrum ung- um mönnum um sjósókn . g afla- brögð, enda um langt skeið við- urkenndur sem einn af mestu aflamönnum á vélbátaflota Eyja- fjarðar. Þorsteinn var að öðru leyti mjög vel gerður maður, gæddur mörgum þeim eðliskost- um, er sköpuðu honum traust og vinsældir þeirra manna, sem með honum störfuðu á sjó og landi. Hann var hispurslaus í háttum sínum, léttur í skapi og viðræðu- glaður, æðrulaus á hverju sem gekk, og þessir skapgerðareigin- leikar entust honum allt til ævi- ' loka, enda þótt honum væri vel ljóst að hverju bar með heilsuna. Á Þorsteini sannaðist öðrum frem ur hið fornkveðna: „Glaður og reifur, skyldi gumna hver, uns sinn bíður bana“. Hér mun Þorsteins Antonsson- ar lengi verða minnzt sem hins mætasta manns og prýði svarf- dælskrar sjómannastéttar. — Sipjó. ^-J^venhióÉin ocj IxeimiíiÁ BYKSUGAN HUSMÆÐURNAR eru áreiðan- lega margar, sem finna hjá sér hvöt til að gera vel hreint í stof- unum, þegar búið er að taka nið. ur allt jólaskrautið, og barrnál- unum, sem setjast í allar rifur og Raddir uppi í DanmÖrku um afhendingu handrifa NOKKUR blaðaskrif eru haf- in að nýju í Danmörku um ís- lenzku handritin og er orsök þeirra þingsályktunartillaga þeirra Péturs Ottesens og Sveinhjörns Högnasonar. Flest dönsk blöð hafa skýrt allýtarlega frá þessari tillögu og hafa þau fréttina eftir greinargóðum símskeytum fréttaritara Ritzaus á íslandi. Fréttin hefur síðan vakið menn til umhugsunar um þetta mól að nýju. Vekur það nokkra athygli, að umræðurnar hafa fram til þessa verið óvenju vinsamlegar í garð íslands og nýir menn ger- ast málsvarar íslendinga í hand- ritamálinu. Mætti e. t. v. af þessu ráða, að almenningsálit sé að myndast fyrir þvi að íslending- um skuli afhent handritin, hvernig sem málinu reiðir af. Nýlega rituðu tveir mikilsvirtir danskir prestar bréf til Politik- en, þar sem þeir tóku málstað íslendinga. G. Sparring Petersen prófastur ritaði m. a.: „— Hugsið yður það: Á Is- landi geymist bókstaflega ekk- ert frá gamalll tíð, nema hin stórbrotna náttúra. Hví þá ekki að aflienda íslandi aft- ur þær minjar, sem það þrálr svo og telur sig Jafnvel elga rétt á, — já, að afhenda þeim þaer aftur með gleði. Handrit- in sem hér um ræðir skilja víst aðeins 5—6 menn hér á landi, sem geta starfað að fræðirann sóknum á þeim og auk þess hafa verið teknar ljósmyndir af þeim. Á íslandi eru einnig fyllilega jafngóðar aðstæður til varðveizlu þeirra." Nokkru síðar birtist í Politik- en bréf frá sr. K. Svejstrup Niel- sen sóknarpresti, þar sem hann tekur undir ummæli Sparring Petersens um að skila ætti ís- lendingum handritunum. Og hann bætir við: „Eg minnist þess, að árið 1953 var bent á það sem mót- rök gegn afhendingu handrit- anna ,að Reykjavík væri af- skekktur staður og því ekki heniugur sem fræðimiðstöð. Nú finnst mér vera tímabært að benda á það, einmitt um það leyti, sem verið er að vígja flugleiðina yfir Norður- pólinn, að þessi rök eru ógild fallin. Eg veit það að árin 1934—35, þegar ég dvaldist um tíma á íslandi voru sigling- arnar eina sambandið við um- heiminn. En nú hefur flug- tæknin valdið slíkri byltingu, að ísland liggur við hliðina á Bellahöj-húsunum í Kaup- mannaþöfn. í Reykjavík eiga handritin heima og þar á að vera aðstaða til að rannsaka þau.“ Er þetta kápa eðo kjóll ? EF TIL VILL finnst flestum það varla tímabært að tala um prjón- aða ullarkápu, en það sem er at- hyglisvert í þessu tilfelli er að flíkin getur verið hvort tveggja: kápa að sumrinu og kjóll að vetrinum. Henry a la Penseé í París er höfundurinn. Taskan er stór og síð og hlýtur að geta rúm. að sitt af hverju. En þetta er það töskulag, sem fallegast þykir nú. skorur, er auðveldast að ná upp með ryksugunni. Ryksugan er reyndar ekki ný uppfinning. Hún hefur verið til á mörgum heimilum í fjölda ára. Þó er það svo enn, að margar hús- mæður, ungar sem gamlar, líta á hreingerningu með ryksugu með tortryggni og finnst hún bera vott um leti. Ef vel á að vera, finnst þeim þurfa að bera út húsgögnin, berja þau og banka og varla finnst þeim nógu hreint loft í stofunum nema gólflistar og jafn- vel veggir og loft sé þvegið vand- lega með sterku sápuvatni. Ég held næstum að grænsápa og salmíak eigi að vera nóg trygg- ing fyrir því að nú sé allt orðið tandurhreint. Það er sjálfsagt mikið rétt, en sú staðreynd að húsgögn, málning og sá sem stendur í hreingerningunum verð ur allt útslitið löngu fyrir tím- ann, virðist ekki hafa nein áhrif. Margar húsmæður hafa þó komizt að raun um að alveg eins má notast við góða ryksugu í stað inn fyrir vatnsfötu, skrúbb og gólfklút, og það er ekki nærri eins þreytandi. En til þess að gólfið verði vel hreint, verður að renna ryksugunni yfir það allt, en ekki bara hér og þar. Ef við reynum á eftir að þvo yfir gólfið með hreinum klút, munum við sannfærast, þegar við sjáum hvað vatnið verður lítið óhreint. Eins og allir vita, geta bakterí- ur þrifizt vel í ryki innanhúss. Þess vegna getur smitun átt sér stað, þegar ryk þyrlast upp frá gólfum, borðum, hillum, sængur- fatnaði, fötum og vasaklútum o. fl. Með hreingerningu viljum við m. a. koma í veg fyrir slíkt. Og þá er aðalatriðið að útrýma ryk- inu, en ekki eingöngu flytja það úr stað, eins og svo oft vill verða þegar þurrkað er yfir gólf og hús- gögn með þurrum klút. Við erum að lofta vel út, þegar við ryk- sjúgum? Á Hygienisk Institut í Kaup- mannahöfn hafa verið gerðar rannsóknir á bakterímagninu í loftinu á heimilum þar sem ólíkt var farið að við hreingerningu. í 8 daga var gert hreint upp á gamía mátann á fjórum heimil- um. Gólfin voru sópuð með þurr- um kúst, rykið var þurrkað af Þannig á að renna ryksugunni yf- ir gólffleti. húsgögnunum með þurrUm klút og fjaðrakúst, og teppi og bólstr. uð húsgögn voru barin og burst- uð. Síðan var bakteríumagnið i loftinu mælt. Næstu 8 daga var gert hreint á þessum sömu heim- ilum með því að ryksjúga teppi, húsgögn og gólf, þurrkað var af húsgögnum með klút sem vættur var í glyserínupplausn, og síðan voru aftur gerðar mælingar. Þá kom í ljós að bakeríumagnið gat orðið allt að því 6—7 sinnum meira í loftinu við hreingerningu upp á gamla mátann, heldur en þegar ryksogið var. Það kom einnig í ljós að pokinn í ryksug- unni hélt eftir flestum bakteríum sem komu í hana, þannig að loftið sem kom út úr henni aftur var nokkurn veginn hreint. Sameiginlegt er það öllum ryk- sugum að tæma verður pokann að minnsta kosti við og við. Það er leiðinlegt verk, og á helzt að gera úti yfir öskutunnunni. — Heppilegra væri, ef pokarnir væru þannig úr garði gerðir að hægt væri að fleygja þeim, þegar þeir væru orðnir fullir og setja þá nýjan í staðinn. Þeir yrðu þá auðvitað að vera úr pappír eða einhverju öðru ódýru efni. Ef til vill ættum við héðan í frá að venja okkur af að telja það leti, að gera hreint með ryksug- unni?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.