Morgunblaðið - 05.03.1957, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 05.03.1957, Blaðsíða 20
Veðrið N-kaldi. Léttskýjaít. nrguwiMa' 53. tbl. — Þriðjudagur 5. marz 1957. Heilsumerki í HoIIywood Sjá blaðsíðu 6. Kveíkt í hœsi hér í bæntun k LAUGARDAGSKVÖLDIÐ var kveikt í húsi hér í Reykjavík. ■í*- Gerðist þetta á Skólavörðustíg 33, en það hús er tvílyft timbur- hús, járnvarið. Þegar slökkviliðið kom, var mestur hluti járnsins á austur- gafli hússins rauðglóandi orðinn. Inni í húsinu var enginn eldur. Brunaverðir urðu að rífa járnið af gaflinum á stóru svæði til þess að komast að eldinum sem var þar í spónastoppi og tjörupappa. Það vakti strax athygli bruna- varðanna, að engar rafleiðslur voru í húsgaflinum, eða annað, sem hægt var að setja þennan eldsvoða í samband við. Þá er slökkvistarfi var lokið, voru Bæjarfttllirúi hreppti íbúðina í DAShapp- drættinu í GÆR var dregið í 11. flokki happdrættis DAS. — í þessum flokki er hver vinningurinn öðr- um meiri og glæsilegri. Mestur er þriggja herbergja íbúð í nýju húsi að Bogahlíð 26. Kom hún á miða nr. 55569, en eigandi hans er Helgi S. Guðmundsson, bæjar- fulltrúi, Suðurgötu 45 ,í Hafnar- firði. Vélbátinn Snætind fékk ungur netjagerðarmaður á Akra- nesi, Jón Jónsson að nafni, bróðir hins nafntogaða knattspyrnu- manns Ríkharðar. Kom báturinn á miða nr. 23351. Hinn glæsilegi Borgward bíll kom á miða 22871, sem Bragi Bjarnason, verkamað- ur, Laugavegi 11, á og fjórði vinningurinn, Hornung & Möller píanó, kom í hlut 14 ára telpu, á miða nr. 6419, en hún heitir Sig- ríður Erlingsdóttir, Eskihlíð 11. Tónleikar i Dómkirkjunni I DAG er 41 ár liðið síðan dr. Páll ísólfsson hélt sína fyrstu orgeltónleika. — Æskulýðsráð Reykjavíkur hefur í þessu til- efni ákveðið að efna til tónleika í Dómkirkjunni og hefjast þeir í kvöld kl. 8,30 e. h. Nemendura I skólum bæjarins er gefinn kost- ur á að sækja tónleikana en allir eru velkomnir. Tónskáldið mun leika verk ým- issa höfunda, en Þuríður Páls- dóttir syngja einsöng. Borgar- stjórinn, Gunnar Thoroddsen, mun flytja ávarp og einnig séra Jón Auðuns, dómprófastur. brunaverðir þeirrar skoðunar, að eldsupptökin myndu hafa orðið með einhverjum óvenjulegum hætti. STUNGIÐ UNDIR JÁRNIÐ Rannsóknarlögreglan skýrði Mbl. frá því í gær, að fullvíst væri að kveikt hafi verið í hús- inu. Einhverju eldfimu hefur ver- ið stungið innundír bárujárnið, kveikt í því og hefir svo eldurinn komizt eftir því í tjörupappan undir bárujárninu. SENNILEGA UNGLINGAR Um það hvort hér hafi verið heldur að verki fullorðnir eða unglingar sagði rannsóknarlög- reglan ýmis verksummerki benda til þess, að þar hafi unglingar eða börn verið að verki. AUmiklar skemmdir urðu á húsinu. Þar búa fimm manns og er þeirra á meðal Valdemar Helgason leikari og fjölskylda hans, en hann var að leika í Þjóð- leikhúsinu er þetta gerðist. Ekkert sam- komulag Sáttanefndarfundur í sjó- mannadeilunni stóð enn í gær kvöldi er blaðið fór í prentun. Var þá ekkert vitað um sam- komulagshorfur. Á sunnudag- inn hélt Sjómannafélag Reykjavíkur fund með verk- fallsmönnum og mun þar hafa komið fram það álit ráða- manna í félaginu og samn- inganefndar að samkomulags- horfur væru nokkrar. Afmælishóf Hvafar SJÁLFSTÆÐISKVENNAFÉ- LAGIÐ HVÖT, sem átti 20 ára afmæli 15. febr. síðastliðinn, minnist þess með veglegu hófi í Sjálfstæðishúsinu á mánudaginn kemur. Hefst það með borðhaldi kl. 7.30. Eru félagskonur hvatt- ar til þess að mæta þar og bjóða mönnum sínum eða öðrum gest- um með sér. Allar upplýsingar varðandi hóf ið verða veittar hjá frk. Maríu Maack í síma 4015. Sama aflaleysið FRÉTTARITARAR Mbl. á Akra- nesi og í Keflavík símuðu í gær- kvöldi, að enn- væri sama afla- leysið hjá bátunum. Akranesbát- ar höfðu beitt loðnu í gær, en aflinn varð þó ekkert meiri fyrir það. Afli Keflavíkurbáta var um 6 tonn almennt í gær. „í sömu úft — tíl nð raíssu ekki fótannu" Þannig hmgsar listamaður inn meirihluta fjárveitinga- nefndar útfæra í verki skoð- un sína ,sem samkv. nefndar- áliti meirihlutans við af greiðslu fjárlaga hljóðar svo: „Sá maður sem bjargar sér út úr vagni, sem er á hraðri ferð, kemst ekki hjá því, til þess að forða sér frá að missr fótanna, að hlaupa fyrst í sömu átt og vagninn stefndi“ Þó hefir nú komið í ljós eft- ir að afgreiðslu fjárlaga er lokið, að nefndin hefir gert betur en að hlaupa í sömu átt og dýrtíðarvagninn. Hún hef- ir sem sagt farið langt fram úr honum, þar sem fjárlög hafa aldrei verið jafngífur- lega há og nú, aldrei liærri skattar, aldrei meira ríkis- bákn og svo má lengi telja. Meirihluti fjárveitinga- , nefndar hefur sem sé þotið fram úr dýrtíðarvagninum með Karl Gkiðjónsson í broddi fylkingar og halarrófuna á eftir sér: Karl Kristjánsson, Halldór Sigurðsson, Halldór Ásgrímsson, Sveinbjörn Högnason og Áka Jakobsson. En Eysteinn situr við stýr- ið og gerir nú ekki betur en að hann ráði við vagninn á þeirri gífurlegu ferð sem hann er köminn á. Fjúröílunardogur Rauða kross íslands er ú raorgun í MORGUN, ÖSKUDAG, er aðalfjáröflunardagur Rauða kross fs- ■!*■ lands. Hefur þessi dagur verið til þess valinn mörg undanfarin ár, og annast þá allar starfandi deildir RKÍ merkjasölu og fjáröflun um allt landið, en deildirnar eru nú orðnar 14 talsins. Áttu blaða- menn í gær viðtal við stjórn Reykjavíkurdeildar Rauða krossins í þessu tilefni en formaður hennar er séra Jón Auðuns, dómprófastur. MIKIL STARFSEMI Starf Kauða kross íslands er margvíslegt og mikið. Reykja- víkurdeildin rekur þrjár sjúkra- bifreiðir og komu tvær þeirra til landsins í vetur. S. 1. sumar rak deildin þrjú sumardvalar- heimili fyrir reykvísk börn. Þá vinnur hún stöðugt að því að auka birgðir hjúkrunargagna sinna til útlána í heimahúsum og veikindatilfellum. Námskeið hafa verið haldin í „hjálp í við- lögum“ fyrir almenning og er sá liður orðinn fastur í starfsemi deildarinnar, vor og haust. Yfir vetrarvertíðina rekur deildin einnig sjúkraskýli í Sandgerði. f vetur komu hingað til lands á vegum Reykjavíkurdeildar Rauða krossins 52 flóttamenn og hefur deildin greitt götu þeirra. ÞARFNAST MIKILS FJÁR Mikið fé þarf til framkvæmda í þessum málum og meira en Rauði krossinn hefur nú til um- ráða. Leitar hann því til allra landsmanna um liðsinni með því að kaupa Rauða kross-merkin og hvetja börn til að selja þau. Merkjaafhending fer fram frá kl. 9,30 á eftirtöldum stöðum: Skrifstofa RKÍ, Thorvaldsens- stræti 6. Skóbúð Reykjavíkur, Aðalstr. 8. Efnalaug Vesturbæjar, Vestur- götu 53. Kjötbúð Vesturbæjar við Ás- vallagötu. Borgarþvottahúsið við Hjarðar- haga. Sunnubúðin, Sörlaskjóli 42. Körfugerðin, Skólavörðust. 17. l^yjabátur með 34 tonn í þorsknót \ Netjavertíð að hefjast í Vest- mannaeyjum, en afli línubáta var þó ágætur í gærdag Vestmannaeyjum, 3. marz. HINN KUNNI dugnaðar- og afla- maður, Benóný Friðriksson frá Gröf, fór í fyrradag með þorsk- nót austur með söndum. Hann kom að landi með 34 tonn af fiski. Mun hann hafa kastað sex sinnum en 3 köstin misheppnúð- ust. Fiskurinn sem fékkst var mjög fallegur göngufiskur. Benó- ný fór aftur út með nótina á bát sínum Gullborgu og mun hafa farið á sömu mið. Benóný telur að fiska megi í þorsknótina með góðum árangri þá aðeins að logn sé og sjór lá- dauður. Annar bátur er að und- irbúa sig á þorsknótaveiðar. Allur flotinn var á sjó í dag í hinu bezta sjóveðri. Hjá þeim bátum sem komnir voru að landi milli kl. 7 og 8, var yfirleitt góð- ur afli, frá 8—13 tonn af óslægð- um fiski. Hins vegar lízt mörg- um formanninum svo á að línu- vertíðin hér í Vestmannaeyjum sé senn á enda, og hafa því marg- ir hafið undirbúning að því að hefja netjaveiðar og nokkrir bát ar lögðu net sín í fyrsta skipti í dag. Fram að þessu hefur aflinn hjá netjabátunum, sem verið hafa að veiðum kringum Vest- mannaeyjar, verið mjög tregur, en þó fékk einn bátur í dag til- tölulega góða veiði, 15 tonn. — Bj. Guðm. Verzl. Skúlaskeið, Skúlagötu 54. Silli og Valdi, Háteigsveg 2. Sunnubúðin, Mávahlíð 26. Verzl. Elíasar Jónssonar, Kirkju- teig 5. Verzl. Axels Sigurgeirssonar, Barmahlíð 8. KFUM við Reykjaveg. UMFÍ við Holtaveg. Sveinsbúð, Borgargerði 12. SKÓLAFÓLK HJÁLPAR TIL Undanfarin ár hafa nemendur úr Kvennaskólanum, Hjúkrunar- kvennaskólanum, Húsmæðra- skóla Reykjavíkur, Gagnfræða- skóla Austurbæjar og stúdentar úr læknadeild Háskólans, boðið aðstoð sína við afhendingu merkjanna. Eins hefur verið gert að þessu sinni. Vill Reykjavíkur- deildin flytja þeim sérstakar þakkir fyrir þá aðstoð og einnig forstjórum kvikmyndahúsanna sem lofað hafa góðfúslega kvik- myndasýningum fyrir sölubörnin deildinni að kostnaðarlausu. Yfirmenn segja líka upp TIL viðbótar uppsögn samninga og yfirstandandi verkfalli meðal háseta á kaupskipaflotanum og aðstoðarmanna í vélarúmi, þá hafa allir yfirmenn flotans sagt upp samningum sínum frá 1. júní nk. að telja. Er hér um að ræða skipstjóra, stýrimenn, vélstjóra og loftskeytamenn. Einnig hafa matsveinar á skipunum og þjóna- lið sagt upp samningum sínum — einnig frá 1. júní. STJÓRNMÁLANÁMSKEIÐIÐ um atvinnu- og verkalýðsmál hcldur áfram í Valhöll í kvöld klukkan 8,30.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.