Morgunblaðið - 05.03.1957, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 05.03.1957, Blaðsíða 14
J4 MORCUNBLAÐIÐ í>rið,iiidagur 5. marz 1957 I fjarveru minni gegnir frú Vilborg Jónsdóttir ljósmóðir, störfum fyrir mig. Viðvíkjandi heimilishjálpimíi má hringja í síma 1877, milli kl. 6—8 e. h. daglega. Helga M. Níelsdóttir, ljósmóðir. SæBgætisgerðarmeístara vanan framleiðslu alls konar sælgætis, með og án véla, vantar vinnu nú þegar. Getur unnið algerlega sjálfstætt og tekið að sér stjórn á vinnustað. Hann hefur lært er- lendis — og getur þar af leiðandi komið fram með ýmsar nýungar. Hefur og meðmæli frá erlendum aðilum. Tilboðum veitt móttaka að Bragagötu 31, hjá Jóni Jónssyni, eftir kl. 5 e. h. Dreyfingu annast Hálfdán Helgason, Pósthólf 1414, Reykjavík, sími 81493. — „Þýzka Alþýðulýðveldið". Úr fjárlagaumræbunum; Fénu betur vurið til bruur ú Hjultudulsú Ræða Jéais Sigurðssonar EINS og skýrt hefir veri-5 frá hér í blaðinu bar Jón Sigurðsson fram þá breytingartillögu við fjárlagafrumvarpið að fjárveit- ing, sem ætluð var Norðurárbrú í Skagafirði yrði veitt til brúar á Hjaltadalsá. í ræðu sem Jc-n flutti með tillögunni rökstyður har.n rnál sitt mjög ýtarlega. Jón Sigurðsson sagði: Það er í tilefni af tillögu meiri hluta fjárvtn. um 600 þús. kr. við- bótarfjárveitingu til brúar á Norðurá í Skagafirði og breyttill. minnihluta fjárvtn. um að fjár- veitingin falli niður og í hennar stað komi Hjaltadalsá hjá Lauf- skálaholti með sömu fjárupphæð sem ég hefi kvatt mér hljóðs til að gera grein fyrir atkvæði mínu. Nokkur deila og hagsmunatog- streita hefir staðið um það innan héraðs hvar brúin á Norðurá ætti að vera. Hafa tveir staðir komið til álita, við Skeljungshöfða neðst í Norðurárdal og af svo- kölluðu Gvendarnesi 4 km. inn- ar í dalnum. Vegamálastjóri og verkfræðingur hans hafa lagt einróma til að brúin yrði byggð inni í dalnum af Gvendarnesi. Færa þeir fyrir því þær ástæður að þar falli áin í þrengslum og geti ekki haggazt úr þeim far- vegi og botninn sé öruggur hvað sem á gangi. Aætlar vegamála- stjóri að brú þar muni kosta nú um 940 þús. kr. Til er geymslu- fé, fyrri ára fjárveitingar til þessarar brúar að upphæð um 920 þús. kr. — Það er því til nú þegar að kalla nægilegt fé til að KOLBOCA- LJÓ5 (FINSEN) Nú er rétti tíminn fyrir ljóðböð. Varist vetrarþreyt w JXAN »:e ORASSE Pósthússtræti 13, sími 7394 byggja brúna á Norðurá í Gvend- arnesi eins og verkfræðingarnir hafa lagt til. í STÖÐUGRI IIÆTTU Brúnni undan Skeljungshöfða er ætlað að standa á víðáttumikl- um eyrum sem Norðurá fer yfir í stórflóðum og getur þá brotið sér farvegi sitt á hvað. Árbotninn er þannig að staur- ar verða ekki reknir niður til að tryggja undirstöðu brúarstöpl- anna svo ekki rífi undan þeim. Af þessu leiðir að brúin verður í stöðugri hættu að undan henni grafi og að hún falli ofan í ána í stórflóðum sem eru þarna tíð. Þetta er það sem verkfræðing- arnir og aðrir óttast mest. Við þetta bætist að áætlað er að brú á þessum stað kosti um 1.700 þús. kr. eða nær helmingi meira en brúin í Gvendarnesi. Vegamálastjóri hefir því farið fram á 770 þús. kr. aukafjárveit- ingu ef byggja eigi brúna hjá 'Skeljungshöfða en meirihluti fjárvn. hefir tekið upp þar af 600 þús. til brúarinnar. Eftir- stöðvarnar 170 þús. kr. eiga þá væntanlega að heimilast á fjár- aukalögum, á sínum tíma. Brú á Norðurá hvar sem hún verður staðsett er ætlað að koma 8 heimilum sunnan árinnar í öruggt akvegasamb. Tvö þeirra óska mjög eftir að brúin verði byggð í Gvendarnesi. SÓTT MEIRA AF KAPPI EN FORSJÁ Ábúendur hinna 6 jarðanna hafa flestir lagt mikla áherzlu á að brúin verði byggð undan Skeljungshöfða ella yrðu þeir að fara 4 km. leið inn í dalinn til að komast á brúna, þ. e. rúm- lega 8 km. krók ef farið væri til Sauðárkróks. Því miður verða margir að búa við það að þurfa að taka á sig krók til að komast á brýr, og mun svo ávallt verða, því engum kemur til hugar að vatnsföll verði brúuð undan hverjum bæ. Hraðfara farartæki gera nú sitt til að vegalengdanna gætir lítið eða gleymast að mestu. Undanfarið hafa bifreiðir verið á flestum þessum bæjum. Meðan svo er mun þessi krókur ekki valda miklum töfum. Þetta brúarmál hefir því mið- ur verið sótt meir af kappi en forsjá t. d. var fyrir nokkrum árum safnað undirskriftum í ná- grannasveitum undir áskorun um að byggja brúna á eyrunum und- an Skeljungshöfða áður en ón Sigurðsson. nokkurar botnrannsóknir höfðu farið fram, eða endanlegar kostn- aðaráætlanir lágu fyrir. Þá verður á það að líta í þessu sambandi að samkvæmt brúarlög um á að byggja brú á Héraðs- vötnin nálægt Flatatungu er tengi þessa bæi sunnan Norður- ár við vegakerfið vestan Héraðs- vatna til Sauðárkróps. Höfum við þingm. Skagf. unnið að því — en með þessari brú og vegarkafla frá henni fá þessir bæir nærri 6 km. styttri .leið til Sauðárkróks en um veg og brú hjá Skeljungs- höfða. Loks má geta þess að brú í Gvendarnesi í sambandi við fyr- irhugaða brú á Héraðsvötnum hjá Flatatungu tryggir bezt öruggt vegarsamband yfir Skaga- fjörð á leiðinni milli Suðurlands og héraðanna norðan Öxnadals- heiðar. Vísast um það til álits vegamálastjóra. ÞYNGST Á METUNUM Þegar ég lít á þetta mál í heild og að mér finnst alveg hlutlaust, þá verða 3 atriði þyngst á met- unum. 1. Allir verkfræðingar vega- málastj. eru sammála um að ráða frá því að brúin sé byggð undan Skeljungshöfða, það verður því gjört algjörlega á ábyrgð rikis- stjórnarinnar og þeirra þingm. sem knýja það fram. 2. Það er að líkindum aðeins nokkurra ára íímaspursmál að þessir 6 bæir fái styttri veg til 'Sauðárkróks en um brú hjá Skeljungshöfða, og þeim pening- um sem færu í brú hjá Skelj- ungshöfða því betur varið til ann- ars. 3. Það er áætlað að ríkissjóður verði að leggja fram nær 800 þús. kr. til viðbótar ef brúin verður byggð undan Skeljungshöfða. Fyrir þessa upphæð mætti byggja 'allstóra brú í_ Skagafirði eða 2—3 minni brýr. Ég gæti tal- ið upp ekki allfáar brýr í Skaga- firði sem bændur bíða eftir með óþreyju, þar sem brúarleysi tor- veldar mjólkurflutninga og aðrar nauðsynlegar samgöngur, svo að jarðir haldist í byggð eða endur- byggist fyrir atbeina Nýbýla- DRAGTIR ■f SQMK Mjög fjölbreytt úrval CJtfc Oóó Aðalstræti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.