Morgunblaðið - 05.03.1957, Side 9

Morgunblaðið - 05.03.1957, Side 9
Þriðjudagur 5. marz 1957 MORGU1VBLAÐIÐ 9 Irskar kosningar í skugga kreppu og jbjóðernisæsinga I' RAR ganga til kosninga í dag. í>eir velja 147 fulltrúa á þing sem allir eru kosnir hlutfalls- bundinni listakosningu. I>ar af leiðir aö allmargir stjórnmála- flokkar eru starfandi í írlandi og hefur aðeins einn þeirra, Fi- anna Fail, flokkur de Valera, möguleika á að fá meirihluta á þingi. Skipting stjórnmálaflokka á Irlandi fer ekki eftir vinstri- eða hægri-stefnu, sósíalisma eða frjálslyndi. Flokkarnir hafa flest- ir myndazt á ákveðnum örlaga- stundum í sjálfstæðisbaráttu íra, þegar menn innan sjálfstæðis- hreyfingarinnar greindi á um Kveðja kjósendurnir de Valera enn til að taka við stjórninni? Eamon de Valera, hinn aldni forustumaður. Sýna kjósendur honum traust? hvaða leiðir bæri að fara. Síðan hafa flokliarnir haldizt við á sögulegum grundvelli og um- hverfis mikilhæfa persónuleika. HELZTU FLOKKAR Stærstu flokkamir eru þessir: Fianna Fail er flokkur Eamon de Valera, sem um langt skeið var foringi íra í sjálfstæðisbar- áttunni og síðan um áraraðir sjálfkjörinn forsætisráðherra. — Hann er nú 74 ára, þjáist af sjón- depru, en er stöðugt virtur mest manna. í síðustu kosningum 1954 hlaut flokkur hans 67 sæti og skorti þar með 7 upp á hrein- an meirihluta. Fine Gael er sögulega séð flokkur, sem fyrr vildi ganga að samningum við Breta en flokkur de Valera. Hann hlaut í síðustu kosningum 48 þingsæti. Foringi hans er John Costello, sem verið hefur forsætisráðherra hið liðna kjörtímabil. Verkamannaflokkurinn er flokkur verkalýðshreyfingarinn- ar. Hann er ekki sósíalískur flokkur, en hefur að undanförnu barizt fyrir auknum almanna- tryggingum. Foringi hans er Norton, er verið hefur varafor- sætisráðherra. Hann hlaut við síðustu kosningar 17 þingsæti. Lýðveldisflokkurinn er smá- flokkur þjóðernissinna er berzt fyrir sameiningu alls Irlands. — Hann hefur aðeins þrjú þingsæti. en vegna skiptingar sætanna á þingi hefur hann haft oddaað- stöðu og því verið miklu áhrifa- meiri en fylgi hans bendir til. Foringi hans er Sean McBridc. ERFH)Hi TÍMAR Síðasta kjörtímabil var við völd á trlandi samsr.eypu- stjórn Fine Gael, Verkamanna floKksins og Lýðveldisflokks- ins undir forsæti Costellos. Samstarf þeirra iiefur ekki verið sérlega gott né ánægju- legt. Stjórnln hefur átt við mikla efnahagsörðugleika að stríða. Stjómin setti á við- skiptahöft, hækkaði tolla og skatta og af þessu er nú farið að gæta erfiðleika hjá fram- leiðsluatvinnuvegunum, at- vinnuleysi hefur gert vart við sig, fólk flýr svcitirnar og margir flytjast úr landi. — Stöðnun er greinilcg i við- skipta- og atvinnulífi hvar sem litið er. Fyrir stjómarflokkana eru kosningar þessar því haldnar á hinum versta tíma og virðist al- mennt viðurkennt, að þeir muni tapa fylgi vegna öngþveitisins í efnahagsmálunum. Og það er einmitt vegna þeirra, sem flokk- ur de Valera gerir sér vonir um að hljóta nú slíka fylgisaukn- ingu, að hann nái meirihluta á þingi. STJÓRNARSAMSTARF ROFIÐ Nú lcynnu menn að spyrja, hvers vegna Costello, sem er gamall og reyndur stjórnmála- maður velji svo óheppilegan tíma fyrir flokk sinn til að leggja út í kosningar. Og er því til að svara, að því réðu atvilc sem hann gat ekki ráðið við. Minnsti flokkurinn, Lýðveldisflokkurinn, rauf stjórnarsamstarfið út af mjög harkalegri deilu, er allt í einu kom upp um sameiningar- mál írlands. SAMEINING ÍRLANDS Sjálfstæðisbarátta íra stefndi frá upphafi að því að sameina alla hina „Grænu eyju“ í eitt sjálfstætt ríki. I>að olli írum því miklum vonbrigðum, er þeir lýstu yfir sjálfstæði 1921, að hluti landsins, eða Norður-Irland hélt áfram tryggð við Breta og vildi ekki ganga í hið unga írska rílci. Flestir írar líta svo á að sjálf- stæoisbaráttunni sé hvergi lokið hefur, reis upp í Norður-írlandi í desember s.l. Telja menn að orsök hennar séu m. a. hinar áhrifamiklu utanaðkomandi fréttir um frelsisbaráttu í Ung- verjalandi og um viðbrögðin við Súez-árásinni. Skemmdarverkin hófust 12. desember, samdægurs á fjölda- mörgum stöðum. Var sýnilegt, að þau myndu vera nákvæmlega skipulögð frá írska lýðveldinu. Þennan dag voru margar brýr sprengdar upp, einnig lögreglu- stöðvar. Benzíni var sprautað yfir dómhús 'eitt og síðan kveikt í, herskálar sem voru í smíðum voru eyðilagðir, útvarpsstöð BBC í Londonderry var eyði- lögð, símalínur voru skornar á víð og dreif o. s. frv. — Þessi skemmdarverk héldu áfram næstu vikur og var auðvitað að IRA eða írski lýðveldisherinn var að verki. Áður hafa írsk stjómarvöld látið sig litlu skipta aðgerðir skæruliðanna í Norður-írlandi. En nú brá hún út af sínum vana ef til vill vegna þess hve skemmd arstarfsemin var mikil að þessu sinni. Costello forsætisráðherra birti yfirlýsingu, þar sem hann sagði að enda þótt allir írar vildu sameiningu landsins, væri ekki hægt að styðja né sjá gegnum fingur við slíkar hermdaraðgerð- ir og ekki væri hægt að þola leynifélagsskap, sem færi með ránum og morðum. Hóf írska lögreglan nú skipulagða leit að skemmdar- verkamönnum. Hafa senniiega um 200 verið handteknir og fangelsaðir í írlandi. En at- hyglisvert er hve þeir bera sig borginmannlega í réttar- salnum. Setja þeir upp arm- bönd með litum þjóðfánans og eru hinir hermannlegustu. Æsingar hafa orðið víða um írland vegna handtaka og þegar fram fóru jarðarfarir írskra mamia er féllu í bar- daga við brezka lögreglu, fóru menn úr lýðveldishernum fylktu liði um götumar á und- an líkvagninum. FORINGI SKÆRULIHA HANDTEKINN Hinn 8. janúar gerðist sá at- burður, að írskur blaðamaður að nafni Sean Cronin var handtek- inn þar sem hann var á ferð i bifreið sinni skammt frá landa- mærum Norður-írlands. í fögg- um hans fundust vasabækur með skrifuðum nafnalistum og ýms- um áætlunum um „skæruliða- hernað". Það er nú talið að þessi maður hafi verið herráðsforingi írska lýðveldishersins. Mál hans er í rannsókn í Dublin og má vera að í þeirri rannsókn verði grafið fyrir rætur leyniíélagsins. Jolin Costello foringi Fine Gael. Stjórn hans átti í erfiðleikum. meðan Norður-írland er enn hluti brezka ríkisins. En menn greinir á um, hvemig vinna skuli að sameiningu. Áður fyrr háðu írar vopnaða frelsisbaráttu gegn Bretum. Þeir stofnuðu hinn svonefnda lýðveldisher, sem hélt uppi skæruhernaði og skemmd- arverkum. Af þessu telja sumir írar það eðlilega þróun, að skæru- liðahernaðinum sé haldið áfram í Norður-írlandi. Hafa alltaf við og við verið að ber- ast fregnir þaðan um að árásir hafi verið gerðar á lögreglu- stöðvar, samgöngutæki séu eyðilögð og jafnvel að mönn- um sé gerð vopnuð fyrirsát. Mjög er þetta þó misjafnlega mikið. Stundum hafa skemmd arverkin alveg legið niðri lengri tíma, stimdnm blossað upp á mörgum stöðum. En at- hyglisvert er að skemmdar- verkin hafa ætíð verið mest rétt við írsku landamærin og þvi á almanna vitorði, að skærnliðarnir komi handan' yfir landamærin frá írlandi. SKIPULÖGÐ SKEMMDARVERK Nú vildi svo til, af einhverjum Sean Mac Bride foringi Lýðveld- ástæðum, að ein sú mesta isflokksins rauf stjórnarsam- skemmdarverkaalda, sem komið starfið. írskir skæruliðar hafa undanfarið unnið fjölmörg skemmdarverk í Norður-írlandi. Myndin sýnir lögreglustöð er þeir sprengdu upp. Það var í skugga þessara at- burða, sem lýðveldisflokkurinn rauf stjórnarsamstarfið. Hann leit svo á, að írski lýðveldisher- inn væri skæruliðafélag sem ynni að sameiningu. írlands. — Starfsemi hans sé því fullkom- lega lögmæt. DE VALERA NÝTUR TRAUSTS Kosningarnar í dag eru haldnar á vi'ðsjárverðum tím- um. Það er kreppa í efnahags- lífi írlands, vopnaðar róstur og lögregluaðgerðir hafa æst hugi manna. Það er margra álit að hinn aldni stjórnmála- leiðíogi de Valera hljót? á ný meirihluta-fylgi. Fólk trúir því að honum megi auðnast að færa allt til betri vegar, leysa verzlunarhöftin og stuðla að sameiningu alls ír- lands. Mikill iramfarahugur ÁRNESI, 1. febr. — Eins og kunn ugt er hefur veturinn, það sem af er, verið óvenjumildur. Allt fram á jólaföstu var hægt að vinna hvers konar útistörf hér n'orðanlands. Margt var því unn- ið til hagræðis hjá mörgum bænd- um og hvert tækifæri gripið, sem gefst, vor, sumar, haust og vet- ur.til þess að byggja, rækta og prýða jarðirnar. Merki þessa framfarahugar og skapandi starfs sjást nú víða blasa við, þá ferðazt er um land- ið. Sennilega mun það þó vera eindæmi hér á landi, að einn bóndi hafi steypt fullkomna ak- braut heim að bæ sínum röska 100 m. leið frá þjóðbraut. Bóndi sá er lauk þessu starfi í svartasta skammdeginu norð- anlands er Óskar Jónsson óðals- bóndi í Klömbur í Aðaldal. Um nokkur undanfarin ár hefur Ósk- ar unnið að þessu verki, ýmist einn eða með sonum sínum -— aðallega í frístundum að aflokn- um mestu haustönnunum. Eðlilegt væri, að sjálft íslenzka ríkið hefði orðið á undan þess- um 72 ára þingeyska bónda um lagningu þjóðvega úr varanlegu efni, þar sem ætla má að steypt- ar akbrautir verði framtíðar- lausnin í samgöngumálum þjóð- arinnar á landi. Og víst er um það, að ánægjulegt væri, að ferð- ast um sveitir íslands eftir renni- sléttum, steyptum þjóðvegum ef hver heimreið og bóndabýli væri Óskar Jónsson með því handbragði er bóndinn í Kömbur hefur tileinkað sér í verki. Ætla má, að fáir íslenzk- ir bændur hafi fremur unnið til æðstu heiðursmerkja fyrir vask- leik, ræktun og búnaðarstörf, en Óskar Jónsson, er hefur nú með einstæðri framsýni sýnt þjóð sinni hvernig hægt er að leysa samgöngumálin á landi til fram- búðar. Þetta framtak merkisbónd ans, svarar til þess, að allir bænd ur landsins gætu í sameiningu lagt steypta akbraut milli Ak- ureyrar og Reykjavíkur á 3—4 árum. — Fréttaritari. Helmingur bílakostsins á landinu er í Reykjavík ¥ SKÝRSLU vegamálastjóra yf- ir bifreiðir landsmanna seg- ir að hér á landi hafi hinn 1. jan- úar síðastl. verið 16.911 bílar stórir og litlir í umferð, þar af um helmingurinn hér í Reykja- vik, eða 8049 bílar. Utan Reykjavikur eru flestir bílar í Gullbringu- og Kjósar- sýslu 1500 og á Akureyri og Eyjafirði 1032. Fæstir bílar eru í Ólafsfjarðarlcaupstað 49, en sú sýslan sem fæsta bíla telur er Strandasýsla 102. Enn eru jeppamir flestir af einstökum tegundum fólks- bíla, 2284 bílar alls, þá kemur Ford 1364, Chevrolet 1035, Austin 559,, Skoda 531, Dodge 519, Opel 409, Plymouth 304 og Valkswag- en 274. Flestir vörubílanna, sem alls eru 5473, eru Chevrolet 1483, Ford 1161 og síðan kemur Dodge 429. Og flestir stærri fólksflutn- ingabíla, langferðavagna, stræt- isvagna o. s. frv. eru Fordbílar 95, Chevrolet 62 og Volvo 45. Hér á landi voru í fyrra 15,611 bílar og árið þar áður 12293. Elzti bíllinn, sem nú er í um- ferð er síðan 1923, en af árgang- inum 1957 eru 9 bílar. Flestir bílanna eru síðan 1946, 3255. I skýrslunni er einnig skýrt frá tölu bifhjóla og eru þau nú alls 328.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.