Morgunblaðið - 09.03.1957, Side 16
le
MOR CVKB 140Iti
Laugarclagur 9. marz 1957
Stjórn Í.R. í fremri röó: Aðalstjórn frá vinstri: Öm Eiðsson,
Ragnar Þorsteinsson, Jakob Hafstein, formaður, Guðmundur Vil-
hjálmsson, Kjartan Jóhannsson. Aftari röð: Fulltrúar deilda í að-
alstjóm. Frá vinsíri: Halldór Magnússon, fimleikar, Skúli R. Guð-
jónsson, framkv.stj. félagsins, Haraldur Árnason, skíðadeild, Gunn-
ar Bjarnason, handknattleiksdeild, Helgi Jónsson, körfuknattleiks-
ðeild, Kristján Jóhannsson, frjálsíþróttadeild, Guðmundur Gísla-
son, sunddeild.
Atmœlissundmót ÍR
Met Guðmnndar og Helgu
ber hœst oirebu
Ármann vann
stigakeppnina
AFMÆLISSUNDMÓT var annar liður hátíðahalda I til-
efni 50 ára afmælis ÍR.Fór það fram í Sundhöllinni á fimmtu-
dagskvöldið. Náðist þar prýðilegur árangur í ýmsum greinum.
4 íslandsmet voru sett og það 5. jafnað. Þrjú drengjamet voru sett
og telpnamet jafnað. Ármann vann stigakeppni mótsins, hlaut 39
stig, ÍR 31, Ægir 16, ÍBK 9%, ÍA 5, SH 4%. Pétur var stigahæstur
Ármenninganna og geymir því stigabikarinn 3. árið í röð fyrir
Ármann.
GUÐMUNDUR OG HELGI
Tveir sundmenn bera sérstak-
lega af á þessu móti, og verða
minnisstæðir öðrum fremur, þó
margir aðrir hafi náð mjög góð-
um árangri.
Skal þar fyrstan telja Guð-
mund Gíslason ÍR. Hann er nú
16 ára gamall og keppti í 4 grein
um á mótinu. Hann byrjaði mót-
ið með því að slá 14 mán. gamalt
íslandsmet sitt í baksundi um 2
sek í 1:11,6. í sama sundi setti
hann ísl. met í 50 m baksundi.
Skömmu síðar vann hann 100 m
skriðsund drengja á 1:04,7 — 7
sek á undan næsta manni. Stund-
arfjórðungi síðar vann hann 50
m flugsund drengja á 33,0 sek
— 1,4 sek undir sínu gamla
drengjameti, og rúsínan í pylsu-
endanum var, er hann öðrum
fremur tryggði ÍR sigur í 3x100
m þrísundi á nýju glæsilegu meti.
Tími Guðmundar á baksunds-
spretti boðsundsins var 1:11,6 eða
sami og metið, þó þetta væri 4.
sund hans á 1% klst.!!
Helgi Sigurðsson stórbætti ís-
landsmet sitt í 400 rn skriðsundi.
Synti á 4:49,5 en gamla metið var
4:55,3. Þetta er framför sem seg-
ir sex, þegár um enga keppni er
að ræða.
Ágústa jafnaði met sitt í 100
m skriðsundi og sýnir það hvers
vænta má af henni, en hún gekk
ekki heil til skógar í fyrrakvöld.
Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigr-
aði Ágústu í 50 m bringusundi.
Sund þeirra beggja var vel út-
fært og hörkuspennandi keppni.
Svo var einnig í 200 m bringu-
sundi karla, þar sem 1/10 úr sek
svildi Sigurð Akurnesing og
Torfa Tómasson. í ýmsum öðrum
greinum var keppnin geysihörð,
t.d. voru 2. og 3. maður í 50 m
bringus. drengja jafnir, og dóm-
arar gátu ekki gert upp á milli.
Pétur Kristiánsson virðist ekki
í fullri þjálfun. En athygli vakti
baksund Ólafs Guðmundssonar,
sem byrjaður er æfingar aftur eft
ir nokkurra ára hvíld, en náði nú
sínum bezta tíma á vegalengd-
inni.
Boðsundið var þó ef til vill
skemmtilegasta grein kvöldsins.
Guðmundur skapaði ÍR forystu
sem Ármann var sífellt að
minnka, en bræðurnir Ólafur og
Gylfi Guðmundssynir tryggðu ÍR
sigur og tími sveitarinnar var 3,8
sek undir gamla félagsmetinu og
4/10 úr sek betri en landssveitar-
met það er Hörður Jóh., Sig.
Þingeyingur og Ari settu 1949.
Það sýnir kannski bezt þá fram-
þróun sem orðið hefur í sundinu
síðan „blómaskeiðið" mikla var
1948—50.
Á mótinu var keppt um 3 bik-
ara gaf Ólafur Logi Jónasson þá
alla. Unnust 2 til eignar í baks.
og 400 m skriðsundi karla, en
Pétur hlaut þann þriðja í 100 m
skriðs. Það er farandbikar.
Úrslit
100 m baksund karla:
1. Guðm. Gíslason ÍR 1:11,6 m
ísl.met og drengjamet.
2. Ólaf. Guðmundss. ÍR 1:15,6 m
3. Sig. Friðriksson ÍBK 1:20,0 m
100 m skMðsund karla:
1. Pétur Kristjánsson Á 1:01,5 m
2. Gylfi Guðmundss. ÍR 1:02,7 m
3. Guðm. Sigurðss. ÍBK 1:05,0 m
100 m skriðsund kvenna:
1. Ágústa Þorsteinsd. Á 1:09,3 m
(metjöfnun)
2. Margrét Ólafsd. Á 1:29,2 m
100 m skriðsund drengja:
1. Guðm. Gíslason ÍR 1:04,3 m
2. Sólon Sigurðsson Á 1:11,8 m
3. Sígurj. Hanness. SH 1:12,6 m
4. Sæm. Sigurðss. ÍR 1:15,3 m
Forystufélog í iþrdttum i 50 úr
AMÁNUDAGINN eru 50 ár liðin frá stofnun íþróttafélags
Reykjavíkur. Með stofnun þess voru mörkuð tímamót í íþrótta-
sögu landsins. Þeir 90 menn sem stofnuðu ÍR á fundi að Hótel ís-
land, en til þess fundar boðaði A. J. Bertelsen, er varð fyrsti form.
félagsins, létu ekki sitja við orðin tóm. Á skömmum tíma efldist
félagið á öllum sviðum og það varð um mörg mál forystufélag.
FYRSTU ÁRIN
Samheldni ÍR-inga og félags-
anda var viðbrugðið og sú sam-
heldni ruddi mörgum erfiðum
hindrunum úr vegi fámenns og
fátæks félags. En frumherjarnir
hösluðu félaginu þann völl, að
saga þess er samstæð sögu allra
hræringa á sviði íþróttanna.
Stofni ÍR, sem gróðursettur
var á fyrstu árunum er enn sí-
fellt að bætast nýjar greinar. Og
nú á 50 ára afmælinu stendur
meiður félagsins e.t.v. blómgaðri
en nokkru sinni. Það er því bjart
framundan.
NÝJUNGAR
■Á ÍR hefur lagt góðan skerf
til fjölmargra mála. Það er fyrsta
félagið á landinu, sem beitir sér
fyrir æfingum í frjálsum íþrótt-
um og fyrst til að kaupa fullkom-
in áhöld til þeirra hluta. Það var
og eitt þeirra félaga er beitti sér
fyrir byggingu íþróttavallar.
★ ÍR var meðstofnandi að
íþróttasambandi íslands og sendi
ÍSÍ í því sambandi fyrsta starfs-
fé þess.
A ÍR myndaði árið 1920 Ol-
ympíusjóð íslands með 500 kr.
framlagi.
A ÍR efndi til fyrsta víða-
vangshlaups á íslandi og heldur
það enn. Sú keppni varð mjög
til að auka á íþróttaáhuga lands-
ins barna.
A ÍR beitti sér fyrir allsherj-
aríþróttanámskeiði 1922. Var til
þess stefnt mönnum hvaðanæva
af landinu og kenndir fimleikar,
frjálsíþróttir, sund, knattspyrna
o.fl. 33 tóku þátt í því en nám-
skeiðið stóð 6 vikur og var ó-
keypis. Þetta námskeið skapaði
nýja strauma í íþróttalífi lands-
ins.
A ÍR sendi úrvals fimleika-
flokka um landið þvert og endi-
langt og tvívegis utan. Þessir
flokkar vöktu hvarvetna athygli.
Mótuðu áhuga um landið og kven
flokkur félagsins sem sýndi í Cal-
ais 1927 — á alheimsmóti í fim-
leikum, var talinn bezti flokkur
er til mótsins kom.
A ÍR var fyrsta íþróttafélag
landsins, sem eignaðist sitt eigið
íþróttahús.
★ ÍR er fyrst ísl. aðila til a3
hefja útgáfu íþróttablaðs „Sum-
arblaðsins", „Vetrarblaðsins" og
„Þróttar". Þetta voru eingöngu
blöð um íþróttamál og urðu í-
þróttum að miklu liðL Bókaút-
gáfu hefur félagið og látið sig
miklu skipta. Það lét þýða
„Frjálsíþróttabókina" sem kenndi
mönnum rétta iðkun íþrótta, og
ÍR lét fyrst allra þýða knatt-
spyrnulögin á íslenzku, svo að
menn færu eftir leikreglum í
leiknum, þó félagið hefði þá ekki
knattspyrnuflokka. En það lét
sig skipta öll mál er verða máttu
íþróttum í einhverri mynd til
framdráttar.
★ ÍR varð fyrst félaga til að
stofna skíðaheimili. Keypti fé-
lagið Kolviðarhól í því skyni.
Var þar skíðaheimili Reykvík-
inga í mörg ár.
Þannig mætti lengur telja nýj-
ungar sem ÍR hafði forgöngu um
og urðu til eflingar íþróttunum.
Ötula forystumenn hefur fé-
lagið alltaf átt. 14 hafa formenn-
irnir verið og þeir eru allir á
lífi og í starfi fyrir félagið,
mynda svonefnt „formannafélag
ÍR“ sem hefur ásamt stjórn, úr-
skurðarvald hverju sinni í öllum
stærri málum félagsins. Form.
„formannanna" er nú Þo’steinn
Sch. Thorsteinsson, lyfsali.
★ GÓÐIR ÍÞRÓTTAMENN
Innan ÍR hafa ætíð verið starf
andi margir meðal fremstu
íþróttamanna landsins, og ÍR-
ingar hafa jafnan'lagt fram mjög
mikla krafta í millilandaleikum
íslands við aðrar þjóðir, eink-
um í frjálsum íþróttum.
ÍR-kvöld að Hálogalandi :
Keppt í stongostökki í
1. sinn opinberlegn
IKVÖLD fer fram að Hálogalandi innanhússmót í frjálsíþróttum
og verður keppt í atrennulausu stökkunum, hástökki, langst.
og þrístökki, hástökki með atrennu, stangarstökki og kúluvarpi.
Þetta mót er liður í afmælishátíðahöldum ÍR.
★ STANGARSTÖKK
Þarna verður í fyrsta sinn keppt
í stangarstökki innanhúss á op-
inberu móti. Á innanfélagsmót-
um í ÍR-húsinu hefur Valbjörn
stokkið hæst 3,90 með 1114 m at-
rennu, en þarna innfrá er atrenn-
200 m bringusund karla:
1. Sig. Sigmðsson ÍA 2:53,0 m
2. Torfi Tómasson Æ 2:53,1 m
3. Einar Kristinsson Á 2:58,3 m
4. Magnús Guðmundsson
ÍBK 2:59,8 m
5. Hörður Finnsson ÍBK 2:59,9 m
50 m bringusund telpna:
1. Sigr. Sigurbjörnsd. Æ 41,3 sek
2. Ágústa Þorsteinsd. Á 41,3 sek
3. Bergþóra Lövdahl ÍR 42,2 sek
4. Hrafnhildu Guðmundsdóttir
ÍR 43,1 sek
50 m flugsund drengja:
1. Guðm. Gíslason ÍR 33,0 sek
drengjamet.
2. Birgir Jónsson Á 38,5 sek
3. Tómas Zoega Á .... 40,2 sek
4. Björn K. Gunnarss. Æ 41,0 sek
400 m skriðsund karla:
1. Helgi Sigurðsson Æ 4:49,5 m
fsl.met. (4:55,3).
2. Pétur Kristjánss. Á 5:28,4 m
3. Magnús Guðmundsson
Æ 5:33,0 m
50 m bringusund drengja:
1. Einar Kristinsson Á 36,2 sek
2. Birgir Dagbjartsson SH og
Hörður Finnsson ÍBK 37,8 sek
4. Tomas Zoega Á .... 38,8 sek
an 21 m og ætti því stökkið að
verða mun hærra.
★ KEPPENDUR
Þá keppir Vilhjálmur Einars-
son nú í fyrsta sinn á opinberu
móti eftir Melbourneferðina.
Hann hefur á innanfélagsmótum
sett ísl. met í langstökki og há-
stökki án atrennu, en fer nú auk
þess í þrístökk. — Af öðrum kepp
endum má nefna Guðm. Her-
mannsson í kúluvarpi og Sig.
Lárusson í hástökki með atr.
■mr- - ■ V -.j > ’ ■
Valbjörn Þorláksson
Hann hefur stökkið 3,90 m í ÍR-
húsinu en þar er atrennubrautin
aðeins 11,5 m. Gerð liefur verið
21 m færanlcg braut og þá braut
er hægt að nota á Hálogalandi.
Búast má við því, að Valbjörn
bæti innanhúsmetið að mun við
þessa lengingu atrennubrautar.
Nú um nokkurra ára skeið hafa
ÍR-ingar átt marga af beztu skíða
mönnum landsins.
ÍR-ingar hafa og staðið mjög
framarlega í sundi, körfuknatt-
leik (tvisvar íslandsmeistarar)
og handknattleik.
Fimleikameistara fslands hafa
ÍR-ingar átt fjölmarga, öfluga
fimleikaflokka karla og kvenna,
sem bæði hafa sýnt hérlendis og
erlendis víða við góðan orðstír.
Nú á félagið á að skipa upp-
rennandi afbragðs fimleikaflokki
kvenna undir stjórn frú Sigríðar
Valgeirsdóttur.
Fyrir dyrum standa líka utan-
farir, frjálsíþróttamenn til Sví-
þjóðar til vinafélagsins Bromma
I. F., er hér var á sl. sumri, og
handknattleiksmenn til Vestur-
Þýzkalands í haust. Auk þess
fer sennilega fimleikaflokkur
kvenna úr ÍR til London á þessu
sumri. Er nú ötullega unnið að
öllum þessum málum.
HÚSBYGGINGAMÁL
Húsbyggingamálin hafa jafnan
verið ofarlega á baugi hjá fé-
laginu, og hafa Formannafélag
ÍR og stjórn félagsins samþykkt
í tilefni af 50 ára afmælinu að
leggja á næstu 3 árum fram 600
þús. kr. til þessara mála, annað
hvort beint í eigin byggingu eða
þá í samstarfi við önnur íþrótta-
félög hér í bænum eða aðra að-
ila, ef samkomulag næst í þeim
efnum.
Form.: Jakob Hafstein, lögfr.;
varaform.: Ragnar Þorsteinsson;
gjald.: Guðm. Vilhjálmsson; rit-
ari: Orn Eiðsson; meðstjórn.:
Kjartan Jóhannsson. Handkn:
Gunnar Bjarnason; Sund: Guðm.
Gíslason; Frjálsíþróttir: Kristján
Jóhannsson; Körfuknattl.: Helgi
Jónsson; Fimleikar: Halldór
Magnússon; Skíði: Haraldur
Árnason. — Framkv.stj. félags-
ins er ráðinn fyrst um sinn Skúli