Morgunblaðið - 30.03.1957, Blaðsíða 23
Laugard. 30. marz 1957
MORCTJIV BLAÐIÐ
23
— Heimdallur
Frh. af bls. 16.
Vestmannaeyja, Akureyrar,
Stykkishólms, Borgarness o. fl.
Auk þess var farin skógræktar-
ferð í Heiðmörk.
í sambandi við alþingiskosning-
arnar sl. vor vann Heimdallur
mikið og fjölþætt starf. Auk
venjulegs kosningaundirbúnings
má einkum nefna útgáfustarf-
semi félagsins. Félagið gaf út tvo
bæklinga, í stóru upplagi, og voru
þeir sendir inn á svo til hvert
heimili í landinu. Bjarni Bene-
diktsson, þáverandi ráðherra, rit-
aði annan bæklinginn og var
hann um varnarmálin. Hinn
bæklingurinn nefndist „Vina-
minni“ og voru það kveðjur, sem
Hræðslubandalagsmenn höfðu
sent hver öðrum á undanfömum
árum. Auk þessa gaf Heimdallur
út vandaða kosningahandbók.
Formaður gat þess sérstaklega
að það hefði verið Heimdellingum
milcil hvatning í kosningaundir-
búningnum, að einn félagi þeirra,
frú Ragnhildur Helgadóttir, al-
þingismaður, skipaði baráttusæti
Hsta Sjálfstæðismanna í Reykja-
vík.
Formaður ræddi að lokum um
þau verkefni sem félagið á fyrir
höndum. Minnti hann sérstak-
lega á í því sambandi, að í byrjun
næsta árs fara fram bæjarstjórn-
arkosningar og biði Heimdallar
mikið starf í sambandi við þær.
Að lokinni skýrslu formanns
las gjaldkeri félagsins, Ásgeir
Einarsson, upp reikninga félags-
ins og voru þeir samþykktir at-
hugasemdalaust.
Þvínæst var gengið til stjórnar-
kjörs og lagði Höskuldur Ólafs-
son fram tillögur kjörnefndar sem
samþykktar voru óbreyttar.
Pétur Sæmundsen, viðskipta-
fræðingur, var endurkjörinn for-
maður og með honum eiga sæti
í aðalstjóm: Baldvin Tryggvason,
lögfræðingur, Björn Þórhállsson,
viðskiptafræðingur, Hannes Haf-
mm
jfeiBéíog
HHFNflROflRÐHR
stein, menntaskólanemi, Indriði
Pálsson, lögfræðingur, Jóhann
Ragnarsson, stud. jur., Sigurður
Helgason, stud. jur., Skúli Möll-
er, verzlunarskólanemi, Stefán
Snæbjörnsson, iðnnemi. Vara-
stjórn skipa: Hrafn Þórisson,
stud. oecon., Ólafur Jensson, vél-
virki, Vilhjálmur Lúðvíksson,
verzlunarskólanemi.
Að stjórnarkjöri loknu voru
frjálsar umræður og samþykkti
fundurinn tillögur, sem síðar
mun getið verða.
- Loftleiðir
Frh. af bls. 14.
vara; þar þekkjast engir stjóm-
skipaðir matmálstímar.
Innan stundar er veitingasal-
urinn setinn skrafandi fólki, og
eitt tungumálið blandast öðru í
hljóðum klið, tær norska, sein-
mælt Suðurrikjamál og flá Lund-
únamállýzkan berast að eyr-
um mínum. Við eitt borðið í saln-
um situr Víkingadrottningin að
vestan, sem verið hefur um hríð
á fornum slóðum, en snýr nú aft-
ur til þess lands, sem forfeður
hennar norrænir fundu á undan
öllum öðrum mönnum, að frá-
töldum Rauðskinnum einum.
Þegar nokkuð er liðið á mál-
tíðina heyrast véladrunur í
lofti og önnur flugvél Loftleiða
sezt á völlinn, komin frá höfuð-
borgum Danmerkur og Noregs.
Farþegarnir ganga í salinn og nú
er þéttskipað við hvert borð. En
innan stundar er salurinn aftur
auður, skraf gestanna hljóðnað
og glamur diska og hnífa.
Farþegarnir eru horfnir til véla
sinna, og að bragði hefja þær sig
til flugs, tveir silfurfuglar, sem
hverfa út í sólskinið í öndverðar
áttir yfir veglausa víðáttu hafs-
ins.
En salurinn stendur aðeins um
stund auður, og þögnin ríkir ekki
lengi yfir flugbrautunum. Innan
dægurs heyrast aftur drunur í
lofti. Vélar Loftleiða hvilast
aldrei, eigind þeirra er erill og
starf; þar er einskís þeðið.
gffs.
— Salisbury
Framh. af bls 1
ástands, sem aftnrkoma Mak-
ariosar kynni að hafa — og
kveður audúð sína á gerðum
þessum hafa orðio til þess, að
hann sagði af sér.
•
Macmillan hefur svarað Salis-
bury lávarði bréflega — og segir
hann, að málið hafi mikið verið
rætt innan stjórnai'innar og
ákvörðunin tekin með fullu sam-
þykki Hardings landsstjóra.
Kveðst Macmillan binda vonir
við að þessi stefnubreyting verði
til þess að opna leiðina til lausn-
ar deilunni um Kýpur, en hann
bætir því við að vissulega sé
það framtíðin ein, sem skorið
getí. úr því hvor þeirra hefur haít
á réttu að Standa.
Tillaga IMassers undir
iSvoínlausibrtópminnj
pl
Gamanleikur í 3 þáttum ,
eftir Arnold og Bach, í þýð- 1
ingu Sverris Haraldssonar. ,
Sýning sunnud. kl. 9,00. ,
Aðgöngumiðasala í Bæjar-
bíó frá kl. 2 í dag.
IEIKHIMJALLARI1
Matseðill
kvöldsins
30. marz.
Consomme Olga
S
s
i
s
s
i
s
s
s
s
>
>
s
s
s
Soðin smálúðuflök Dugléré S
S
— s
Aligrísasleik m/rauðkáli. ^
eða s
Buff Tirolienne |
Ananas-fromage \
S
Leikhúskjallarinn S
i
Einar Ásmundsson,
hæstaréttarlögmaður.
Hafsteinn Sigurðsson,
lögfræðingur.
Hafnarstræti 5, 2. hæð.
Alls konar lögfræðistörf.
Félagslíf
Farfuglar
Skíðaferð í Heiðarból um helg-
ina. Félagsmenn hafi með sér
skírteini. — Nefndin.
smasganm
LONDON, 29. marz. — Brezka
stjómin hefur nú til athugunai
skýrslu Hammarskjölds um við-
ræðurnar við Nasser á dögunum.
Stjórnum Frakklands og Banda-
ríkjanna mun einnig hafa borizt
skýrslan, en hún hefur enn ekki
verið birt. í henni mun felast ný
tillaga Nassers vun starfræksiu
Súez-skui'ðarins. Svo sem lcunm-
ugt er hafa Bretar varað brezka
skipaeigendur við því að láta
skip sín sigla um skurðinn fyrr
en Ijóst verður hvemig rekstri
skurðarins verður hagað í fram-
tíðinni — svo og vegna þess, að
ekki er fullvíst, að öll tundur-
dufl hafi verið fjarlægð úr skurð-
inum. Franska stjómin hefur
einnig farið að dæmi Breta hvað
þessu viðvíkur.
IP»
M.S DRONNINC
ALEXANDRINE
fer til Færeyja og Kaupmanna-
hafnar fimmtudaginn 4. apríl n.
k. —. Pantaðir farseðlar óskast
sóttir sem fyrst. — Tilkynningar
um flutning komi sem fyrst.
Sklpaafgreiðsla Jes Zimsen.
Erlendur Pétursson.
Reykjavíkurmút í stórsvígi
verður haldið í Jósefsdal, laug-
ardaginn 30. marz ’57 og hefst kl.
4,30. Nafnakall í öllum flokkum
hálf tíma fyrir keppni.
Skíðadeild K.R.
Körfuknattleiksdeild K.R.
Æfing í dag í íþróttahúsi Há-
skólans kl. 3,15—4,45, hjá öllum
flokkum karla. — Stjórnin.
Badmintonfélag Reykjavíkur
Samæfing hjá öllum flokkum kl.
6—8,30. Munið áskorunartímabilið
I. O. G. T.
Barnastúkan Díana nr. 54
Fundur á morgun kl. 10,15. —
Kosning embættismanna. — Fjöl-
breytt skemmtiatriði. Mætið öll.
— Gæzlumaður.
Unglingastúkan Unnur nr. 38
Fundur á morgun, sunnudag, kl.
10 f.h. stundvíslega, í G.T.-húsinu.
Inntaka. Kosning embættismanna
og framkv.n. Spurningaþáttur. —
Upplestur. — Fjölsækið réttstund
is. — Gæzlumenn.
Vinna
Heimamyndatökur
Barna-, passa- og brúðarmynd-
ir. — Stjörnumyndir, sími 81745.
Samkomur
K.F.U.M. — Á morgun:
Kl. 10 f.h. Sunnudagaskóli.
Kl. 10,30 Kársnesdeild,
Kl. 1,30 Drengjadeildirnar.
Kl. 8,30 Almenn samkoma. —
Gunnar Sigurjónsson, cand. theol.
talar. —
IÐNÓ
DANSLEIKUR
í kvöld klukkan 9
Hinir vinsælu dægurlagasöngvarar
★ Sigrún Jónsdóttir
★ Ragnar Bjamason
★ K. K.-sextettinn
SKEMMTA.
Aðgöngumiðar seldir frá klukkan 4.
I Ð N O
f Dansleik
halda Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík
fyrir meðlimi sína í Sjálfstæðishúsinu í kvöld kl. 9
Aðgöngumiðasala á skrifstofunni kl. 5—6.
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík.
Sjálfstæðisfélag Kópavogs
heldur
almennan fund
í Barnaskólanum við Digranesveg n.k. þriðjudag, 2. aprfl,
kl. 8,30 síðdegis.
Fundarefni:
1. Ólafur Thors, alþm. ræðir um stjórnmála-
viðhorfið.
2. Baejarmál.
Allt Sjálfstæðisfólk velkomið.
Sjálfstæðisfélag Kópavogs, ^
Silfurtunglið
OANSLEIKUR
í KVÖLD TIL KLUKKAN 8
Hin bráðsnjalla hljómsveit Riba leikur.
Þar sem f jörið er mest,
skemmtir fólkið sér bezt.
Aðgöngumiðar seidir eftir kl. 8.
Sími: 82611 Silfurtunglið.
Getum útvegað allskonar skemmtikrafta.
Símar 82611, 82965, 81457.
Eiginkona mín og móðir okkar
ENGILBORG H. SIGURÐARDÓTTIR,
Kirkjuhvoli, við Reykjanesbraut, andaðist 29. maxz.
Helgi Guðmundsson og börn.
Jarðarför eiginmanns mins
GUÐMUNDAR P. KOLKA
fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 1. apríl n.k.
kl. 2. Blm og kranzar eru afþakkaðir, en í þess stað er
minnt á minningarspjöld Héraðshælis Austur- Hún-
vetninga.
Ingribjörg J. Kolka.
Þökkum af alhug auðsýnda vináttu og samúð við fráfall
konu minnar, móður okkar og tengdamóður,
LÁRU HANNESDÓTTUR
Margrét Ólafsdóttir, Ólafur Sigurðsson,
Erla Þórðardóttir, Sigfrið Ólafsson.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlúttekningu
við andlát og jarðarför mannsins míns og föður okkar
STEFÁNS BJÖRNSSONAR
frá Skuld.
Margrét Jónsdóttir og börn.