Morgunblaðið - 30.03.1957, Page 24
Veðrið
Stinningskaldi NA. Rigning með
köflum.
ísland undir snjó
Sjá myndasíðu bls. 10.
75. tbl. — Laugardagur 30. marz 1957.
Eimskip lætur byggja
annað vöruflutningaskip
Nú verður Brúarfoss seldur fil Danmerkur
MORGUNBLAÐIÐ frétti í gærkvöldi að Eimskipafélag Islands
hafi ákveðið að láta smíða eitt skip til viðbótar því sem
Álborg Værft mun byrja á næsta haust. Verða þessi 2 skip af sömu
gerð, vöruflutningaskip með stóru frystirúmi. I>á hefur Eimskip
ákveðið að nú skuli undinn að því bráður bugur að selja Brúarfoss.
Systurskip þau sem hér um
ræðir verða 3500 lesta skip, eða
um 1000 lestum stærri en „þrí-
lembingamir“: Goðafoss, Lagar-
foss og Dettifoss. — I>á verða
þessi skip með 100 þús. rúmfeta
frystirúmi. Verður frystirúmið
allt þiljað að innan með alumin-
ium, sem hefur mjög mikið ein-
angrunargildi og þá ekki sízt í
sambandi við geislahitun.
SEX „GENGI“ SAMTÍMIS
Þrjár lestir eru fyrir framan
yfirbyggingu og ein fyrir aftar,.
Geta því sex „gengi“ verka-
manna, eins og það er kallað,
unnið samtímis við losun skips-
ins. í hverju gengi eru 14 verka-
menn. Tvö gengi vinna þá við
krana, sem em á skipinu sjálfu.
Hið fyrra skip mun verða full-
búið og sigla hingað heim í des-
ember 1958, en kjöl á að leggja
að því í september næstkomandi.
VORED 1960?
Varðandi systurskip það sem
nú hefur verið ákveðið að byggja,
mun eklci vera búið að ganga frá
öllum atriðum varðandi smiða-
samninga skipsins, en það mun
verða á næstunni, sem endanlegir
samningar verða gerðir við Ál-
borg Værft, sem er, eins og
kunnugt er, stærsta skipasmíða-
stöð í Evrópu. — Er það ekki
fjarri að áætla að þetta skip geti
siglt hingað heim vorið 1960.
BRÚARFOSS
Svo sem skýrt hefur verið frá
í fréttum, hefur Eimskipafélagið
boðið til sölu aldursforseta Foss-
anna, hinn gamla Brúarfoss. Nú
hefur Eimskip ákveðið að selja
hann, en það er fyrirtæki eitt i
Danmörku, sem gert hefur tilboð
í skipið, sem í ráði mun að taka.
Ketill
á straum
Ö
SLÖKKVILIDIÐ var í gærdag
kallað vestur í Garðastræti 4, en
þar hafði hraðsuðuketill verið
skilinn eftir í sambandi í íbúð
einni og hlotizt af eldur. Er
slökkviliðið kom, hafaði ket-
illinn brunnið niður úr eldhús-
borðinu. Annað tjón varð ekki.
Þá var slökkviliðið kallað niður
að höfn. Eldur hafði kviknað í
olíuskipi frá varnarliðinu. Skipið
er álíka stórt og Þyrill. Skip-
verjar höfðu ráðið niðurlögum
eldsins áður en tjón hlauzt af.
Loks var svo slökkviliðið gabbað
inn á Vitatorg.
Yerkamaður gefur hús fil
elliheimilis í Keflavík
KEFLAVÍK.
ASÍÐASTA fundi bæjai’stjómarinnar, sem haldinn var í byrjun
vikunnar, veitti bæjarstjórnin móttöku þeirri veglegustu gjöf
er nokkur einstaklingur hefur heiðrað bæjarfélagið með. Er það
húsið að Faxabraut 13 ásamt lóðarréttindum. Gefandi þessarar
nöfðinglegu gjafar er Jón Guðbrandsson, Faxabraut 15. Gefur hann
húseign sína í þeim tilgangi að bærinn hagnýti hana fyrir væntan-
legt elliheimili hér í Keflavík.
ar innréttingar. í húsinu er rúm
fyrir 11—12 herbergi auk dag-
stofu, borðstofu, eldhúss o. fl. Er
húsið steinsteypt og hin vegleg-
asta bygging.
Einu skilyrðin sem gjöf þessari
fylgja eru þau, eins og Jón
kemst að orði í gjafabréfinu,
að hann fái að njóta þar ókeypis
umönnunar, í hinu væntanlega
elliheimili, eftir að hann er orð-
inn sjötugur, ef líf endist.
HENTUGT HÚS
Faxabraut 13 er 125 ferm. hús,
tvílyft með porti og risi. Það er
fokhelt með nokkurri innrétt-
ingu. Því fylgir efni til miðstöðv-
ar að undanteknum katli. Þó hús-
ið hafi upphaflega ekki verið
byggt fyrir slíka starfsemi er það
talið hið hentugasta til vistheim-
ilis. Eru breiðir gangar á hæðun-
um, en að öðru leyti eru þar eng-
HEIMILI SETT Á STOFN
Á fundi bæjarstjórnarinnar var
samþykkt að setja á stofn og
reka elliheimili í húsinu að Faxa-
braut 13. Samþykkti bæjarstjórn
að kjósa nefnd manna til undir-
búnings og til aðstoðar við fram-
kvæmd þessa máls.
Að bæjarstjómarfundinum
loknum gengu bæjarfulltrúar á
fund Jóns Guðbrandssonar. Þar
ávarpaði Alfreð Gíslason, forseti
Kommúnistar hafa misst duluna sina
„Málgögn Framsóknarfiokksins og Alþýðuflokksins hafa því orðið
að draga í land. Þau komast ekki framhjá þeirri staðreynd, að
samþykktin frá 28. marz er úr gildi fallin. Með það verða komma-
skinnin einnig að sitja. Nú hafa þeir ekki lengur neina „dulu til
að dansa í“.“ (Sjá Staksteina á bls. 13).
bæjarstjórnar, Jón og afhenti
honum þakkarávarp er undirrit-
að var af bæjarfulltrúum.
Jón Guðbrandsson er fæddur
3. febr. 1894. Hann stundaði bú-
skap vestur í Dölum til ársins
1931, en þá fluttist hann hingað
til Keflavíkur og hefur búið hér
síðan. Jón er maður einhleypur,
og hefur stundað daglaunavinnu.
— Ingvar.
Hlutavelta
Hvatai
HVÖT, Sjálfstæðiskvennafélag!#,
efnir til hlutaveltu í Listamanna-
skálanum kl. 2 e. h. á sunnudag.
Þegar er vitað um margt góðra
muna, sem þar verða á boðstól-
um, en ennþá von á mörgum i
viðbót. Tekið er á móti gjöfum
í Listamannaskálanum í dag.
»•*— •—— .......................
Svona
— ........—ta—.-— verða
Sæbvika Skatjfirðinga
Á MORGUN byrjar hin þjóð-
kunna sæluvika Skagfirðinga
á Sauðárkróki. Hefst hún með
guðsþjónustu kl. 2 e. h„ síðan
verður kvikmyndasýning og
um kvöldið frumsýning á
leiknum Gasljós. Á mánudag
verður frumsýning á leiknum
Barnaskemman, en á föstudag
inn verða málfundur stúdenta
félagsins, söngur karlakórsins
MJög veruleg farm-
gfaldahækkun
ákveðin
Akvörðun Innflutnings-
skrifstofunnar i gær
rrFLUTNINGSNEFND hefur í gær leyft mjög veru-
Iega hækkun á farmgjöldum.
Hefur verið ákveðin 5% hækkun á öllum farmgjöldum.
Þó eru einstöku liðir hækkaðir enn meir. Hækka farm-
gjöld fóðurbætis um kr. 40.00 á smálestina, sem er 17,85%
hækkun, farmgjöld kornvöru um 30 kr. á smál., sem er
13,4% og ennfremur hækka farmgjöld sykurs, haframjöls
og smjörlíkisolíu líka um 30 kr. á smálestina.
Skipafélögin hafa að undanförnu óskað eftir hækkun á,
farmgjöldum vegna hækkandi tilkostnaðar og versnandi af-
komu. Þess má geta í sambandi við hækkunina á farm-
gjöldum fóðurvöru og annarrar þungavöru að þessi farm-
gjöld hafa lengi undanfarið verið ákveðin tiltölulega lág
og til þess ætlazt að farmgjöld fyrir aðrar vörur bættu það
upp.
Friðrík vtmn 7. skók-
inn eitir 62 leiki
V GÆRKVÖLDI var tefld biðskák þeirra Pilniks og Friðriks og
lauk henni með sigri Friðriks. Pilnik hafði hvítt, en staða hans
var mun verri er skákin fór í bið. Það leið ekki á löngu þar til
Friðrik fórnaði peði því er hann hafði yfir, og það varð til þess
að báðir komu á ný upp drottningum. en Friðrik skákaði Pilnik
allt hvað af tók og Pilnik gaf er örfáir leikir voru í mát og gat
ekkert beitt drottningunni.
Er biðskákin hófst var staðan 50. fxe4 f4
þannig: 51. Ke2 Hc2t
52. Kd3 Hxg2
Eftir það tefldist skákin þann- 53. c5 Hgl
54. c6 f3
42. Kg6 55. c7 tz
43. Hc8 a4 56. c8D flDt
44. c4 a3 57. Kd4 Df2t
45. Hg8t Kf6 58. Ke5 Dg3t
46. Ha8 Hc3t 59. Kf5 Hflt
47. f3 e5 60. Kg5 De5t
48. Ha6t Kg7 61. Kxg4 Dxc4t
49. Kf2 e4 62. gefið.
Heimi^og sýning Verkamanna
félagsins Fram á Förin til
Brasilíu. Auk þessa verða kvik
myndasýningar alla vikuna,
dansleikir flest kvöldin og
jafnan eitthvað til skemmíiun.
ar alla daga.
Horfur eru á því, að gott
vegasamband verði um Skaga
fjarðarsýslu meðan á sæluvik-
unni stendur og þess er vænzt
að þjóðvegurinn yfir Öxnadals
heiði og Vatnsskarð verði opn-
aður innan skamms.
Stúlka horíin
í GÆR lýsti lögreglan í útvarp-
inu eftir unglingsstúlku sem ekki
hefir komið heim til sín síðan á
þriðjudag. Er hér um að ræða
Guðrúnu nokkra Brynjólfsdóttir,
13 ára að aldri. Guðrún var síð-
ast þegar fréttist klædd rauðri
kápu og var í bláum gallabuxum.
Hún er frekar stór eftir aidri,
nokkuð feitlagin. Guðrún sást í
fyrrad. og daginn þar áður. Allir
sem geta gefið upplýsingar um
hana og ferðir hennar eru beðnir
að láta lögregluna vita.
Varðarkaffi í Valhöll
í dag kl. 3—5 s.d.