Morgunblaðið - 03.05.1957, Page 17
Fðstudagur 3- maf 1957
MORGVNBLAÐIÐ
17
Járntjaldslanda-vöru-
sýning hér í júlímánuði
Tékkar og A-Þjóðverjar sýna
í skólaporti Austurbœjarskólans
STÓRKAUPMENNIRNIR Haukur Björnsson og ísleifur Högna-
son, forstjórar Kaupstefnunnar, skýrðu blaðamönnum frá því
í gær, að langt væri nú komið undirbúningi að umfangsmikilli
vörusýningu hér í Reykjavík í júlí-byrjun í sumar, á vörum frá
Tékkóslóvakíu og A.-Þýzkalandi. Einnig verður Rúmenía þar með
upplýsingadeild.
Kaupstefnan hefur fengið skóla
portið í Austurbæjarskólanum til
þess að koma þar upp stórum og
miklum sýningarskála, með því að
byggja alveg yfir skólaportið,
líkt og gert var hér fyrir tveim
árum er Kaupstefnan efndi til
vörusýningar í Miðbæjarskóla-
portinu.
TÉKKAR ÁNÆGÐIR
Sýning Tékka verður allmiklu
stærri en sýning Austur-Þjóð-
verja. Munu koma hingað til lands
og starfa við uppsetningu sýning-
arinnar milli 50 og 70 manns frá
löndum þessum. Er þetta í annað
sinn sem hér er haldin tékknesk
Vörusýning, því Tékkar voru með
Stóra sýningardeild þá er vöru-
sýningin var haldin í Miðbæjar-
skólanum. Upplýsti Haukur
Björnsson, stórkaupmaður, að
Tékkar hefðu verið mjög ánægðir
með útkomuna á þeirri sýningu,
en hún gaf í gjaldeyristekjur um
S milljónir, að því er Haukur upp-
lýsti. Hann sagði einnig að Tékk-
ar myndu nú sýna meira almennt
vöruúrval, af alls konar fatnaðar-
og vefnaðarvörum, skófátnað, ým
iss konar smávörum, búsáhöldum
og fleira og fleira. Einnig yrðu
Abalfundur
Veggfóðrarans
NÝLEGA var haldinn aðalfund-
ur Félags veggfóðrara í Reykja-
vík. Voru þá í því bæði meist-
arar og sveinar og hefir sú skip-
an verið á um 12 ára skeið.
Gerði formaður ítarlega grein
fyrir störfum félagsins á starfs-
árinu og skýrði frá hag þess.
Fyrir fundinum lá tillaga er
áður hafði verið samþykkt um
að meistarar í iðninni stofnuðu
með sér sérstakt meistarafélag,
þar sem flest hliðstæð félög
hafa nú þegar skifzt á sveina-
og meistarafélög og telja sér það
hagstæðara og eðlilegra fyrir
félagsstarfsemina. Var þegar að
loknum fundi Veggfóðrara sett-
ur nýr fundur þar sem einungis
voru mættir meistarar í iðninni,
og stofnað meistarafélag skv.
áðurgreindri tillögu.
Var lagt fram frumvarp að lög-
um fyrir hið nýja félag og það
samþykkt sem lög fyrir Félag
veggfóðrarameistara í Reykja-
vík.
í stjórn hins nýja félags voru
þessir menn kjörnir: Sæmxmdur
Kr. Jónsson, formaður, Ólafur
Stefánsson, ritari og Friðrik Sig-
urðsson, meðstjórnandi.
Endurskoðendur: Guðmundur
Ólafsson, varaformt, Einar Þor-
varðarson, gjaldkeri, Halldór Ó.
Stefánsson.
deildir fyrir ýmiss konar vélar til
iðnaðar og bíladeild frá Skoda-
verksmiðjunum. Þá koma nokkrar
ungar tékkneskar tízkudömur og
verða daglega tízkusýningar.
Það er verzlunarráð austur-
þvzka alþýðulýðveldisins, sexn
stendur fyrir þýzku deildinni, en
hún verður ekki nærri því eins
umfangsmikil og deild Tékka.
Munu Þjóðverjarnir sýna alls
konar smávörur, t.d. svonefndar
optiskar vörur, ljósmyndavélar,
sjónauka, mælitæki og annað þess
háttar. Einnig ætla þeir að sýna
sjúkrahúss-skurðstofu með öllum
útbúnaði.
Að lokum skýrðu þeir Isleifur
Högnason og Haukur Björnsson
frá því að sýningin myndi verða
opnuð með viðhöfn og myndu þar
flytja ræður borgarstjórinn og
viðskiptamálaráðh., og auk þess
form. Verzlunarráðsins, Gunnar
Guðjónsson, sem er formaður sér-
stakrar sýningamefndar, á-
samt erlendum fulltrúum.
Hugmyndasamkeppni
um skipulag á Hellisgerði í Hafnarfirði.
Málfundafélagið Magni hefir ákveðið að bjóða til hug-
myndasamkeppni um skipulag á skrúðgarðinum Hellis-
gerði (nýja hlutanum) og er öllum íslendingum heimil
þátttaka í samkeppninni.
Uppdráttur af svæðinu og keppnisskilmálar eru af-
hentir af Sigurgeiri Guðmundssyni, Sunnuvegi 4, Hafn-
arfirði, gegn 100 krónu skilatryggingu og ber að 'skila
honum uppdráttum fyrir kl. 13, 28. júní 1957.
Þrenn verðlaun verða veitt:
3000.00, 2000,00 og 1000,00 krónur.
Dómnefnd skipa þeir:
Hörður Bjarnason, húsam. ríkisins.
Hafliði Jónsson, garðyrkjufræðingur, .
Valgarð Thoroddsen, rafveitustjóri.
Stjórn Magna.
AUCLÝSING
um aðalfundi í dcildum KRON 1957:
Aðalfundur í deildum Kaupfélags Reykjavíkur og ná-
grennis verða haldnir sem hér segir:
1. deild (Skólavörðustigur) miðvikudaginn 8. maí.
2. — (Grettisgata) föstudaginn 10. maí
3. — (Vesturgata) fimmtudaginn 9. maí
4. — (Skerjafjörður) laugardaginn 11. maí
5. — (Vegamót) sunnudaginn 12. maí. Fundarstaður
Mýrarhúsaskóli.
6. — (Fálkagata) þriðjudaginn 14. maí
7. — (Nesvegur) mánudaginn 13. maí
8. — (Barmahlíð) fimmtudaginn 16. maí
9. — (Bræðraborgarstígur) föstudaginn 24. maí
10. — (Hverfisgata) mánudaginn 20. maí
11. — (Langholtsvegur 136) föstudaginn 17. maí
12. — (Kópavogur) miðvikudaginn 22. mai. Fundar-
staður: Barnaskóli Kópavogs
13. — (Hrísateigur) miðvikudaginn 15. maí
14. — (Langholtsvegur 24) þriðjudaginn 21. maí
15. — (Smáíbúðahverfi o. fl.) fimmtudaginn 23. maí
15. — (Smáíbúahveríi o. fl.) fimmtudaginn 23. maí
Fundirnir hefjast allir kl. 8,30 síðdegis. Dagskrá sam-
kvæmt 16. gr. félagslaganna.
Tilkynning
um bótagreiðslur lífeyrisdeildar almanna-
trygginganna árið 1957.
Bótatímabil lífeyristrygginganna er frá 1. jan. sl. til
ársloka. Lífeyrisupphæðir á fyrra árshelmingi eru á-
kveðnar til bráðabirgða með hliðsjón af bótum síðasta
árs og upplýsingum bótaþega. Sé um tekjur að ræða til
skerðingar bótarétti, verður skerðing lífeyris árið 1957
miðuð við tekjur ársins 1956, þegar skattframtöl liggja
fyrir.
Sækja þarf á ný um bætur skv. heimildarákvæðum
almannatryggingalaganna fyrir 25. maí nk., í Reykja-
vík til aðalskrifstofu Tryggingastofnunar ríkisins, en
úti um land til umboðsmanna stofnunarinnar.
Til heimildarbóta teljast hækkanir á elli- og örorkulíf-
eyri, hækkanir á lífeyri til munaðarlausra barna, örorku-
styrkur, ekkjulífeyrir, makabætur og bætur til ekkla
vegna barna.
Þeir, sem nú njóta hækkunar elli- og örorkulífeyris,
þurfa ekki að endurnýja umsóknir sínar fyrr en um næstu
áramót, þar sem hækkunin er þegar úrskurðuð til þess
tíma.
Ákvæði almannatryggingalaganna um lífeyrishækk-
anir breyttust frá ársbyrjun 1957. Hin nýju ákvæði felast
í 23. gr. laganna og eru sem hér segir:
,,Greiða má uppbót á elli- og örorkulífeyri, ef lífeyris-
þegi á ekki lögskyldan, aflögufæran framfæranda á lífi,
sbr. 6. gr. laga nr. 80/1947, og sýnt þykir ,að hann geti
ekki komizt af án hækkunar.
Uppbót þessa skal aðeins greiða þeim, sem:
a. þurfa sérstakrar umönnunar sökum sjúkleika eða
ellilasleika.
b. dvelja á elliheimili, sjúkrahúsi eða öðru slíku hresa-
ingar- eða dvalarheimili.
c. eru einstæðingar.
Uppbótin skal miðast við ástæður lífeyrisþegans, en þó
aldrei vera hærri en lífeyrisupphæð skv. 13. gr. Uppbót
og lífeyri samkvæmt b-lið skal hvorutveggja miða við
lífeyri 1. verðlagssvæðis.
Uppbót þessi greiðist að % af hlutaðeigandi sveitar-
sjóði og að % af Tryggingastofnun ríkisins, og skal
stofnuninni heimilt að verja upphæð, sem nemur allt
að 7% af heildarupphæð elli- og örorkulífeyris síðast-
liðins árs, í þessu skyni.
Tryggingastofnunin ákveður uppbót samkvæmt grein
þessari eftir ástæðum lífeyrisþegans, að fengnum tillög-
um hlutaðeigandi sveitarstjórnar.
Hlutur Tryggingastofnunarinnar greiðist því aðeins, að
hlutur sveitarsjóðs sé jafnframt greiddur.“
Áríðandi er að örorkustyrkþegar sæki fyrir tilsettan
tíma, þar sem ella er óvíst að hægt sé að taka umsókn-
irnar til greina, vegna þess að fjárhæð sú, er verja má
í þessu skyni, er takmörkuð.
Fæðingarvottorð og önnur tilskilin vottorð skulu fylgja
umsóknunum, hafi þau eigi verið lögð fram áður. Þeir
umsækjendur, sem gjaldskyldir eru til lífeyristrygginga,
skulu sanna með kvittunum innheimtumanns eða á annan
hátt, að þeir hafi greitt iðgjöld sín skilvíslega. Vanskil
geta varðað skerðingu eða missi bótaréttar.
Norðurlandaþegnar, sem búsettir eru hér á landi, eiga
samkvæmt samningi um félagslegt öryggi bótarétt til
jafns við íslendinga, ef dvalartími þeirra og önnur skil-
yrði, sem samningarnir tilgreina, eru uppfyllt.
íslendingar, sem búsettir eru í einhverju Norðurland-
anna, eiga gagnkvæman rétt til greiðslu bóta í dvalar-
landinu.
Grikkir geta
fengið aðstoð
AÞENA, 29. upríl. — Rlchards,
•eni ferjSazt hefur um lundin fyrir
bolni Miðjarðarhafsins og skýrt
„Eisenhoweráætlunina14 svonefndu
er nú á leið til Evrópu. Hann
hafði viðkomu í Grikklandi og lét
■vo um mælt í Aþenu í dag, að
Grikkir gætu, ef þá fýsti, leitað
■ðsloður Bandaríkjanna á grund-
yeiii Eisenhower-áætlunarinnar.
Tillögur deildarstjórna um kjör fulltrúa á aðalfundi fé-
lagsins liggja frammi í skrifstofu félagsins fimm virkum
dögum fyrir aðalfund hverrar deildar.
Tillögum félagsmanna um fulltrúaval ber að skila til
formanns deildarstjórnar, eða skrifstofu félagsins, eigi
síðar en einum virkum degi fyrir aðalfund viðkomandi
deildar.
Þar sem ekki er sérstaklega greindur fundarstaður,
verða fundirnir haldnir í skrifstofu félagsins að Skóla-
vörðustíg 12.
Deildarstjórnir KRON.
Athygli skal vakin á því, að réttur til bóta getur fymzt.
Er því nauðsynlegt að þeir, sem telja sig eiga rétt til
bóta og óska eftir að fá þær greiddar, dragi eigi að leggja
fram umsókn sína.
Munið að greiða iðgjöld til lífeyristrygginga á tilsett-
um tíma, svo að þér haldið jafnan fullum bótaréttindum.
Reykjavík, 24. apríl 1957.
Tryggingastofnun ríkisins.