Morgunblaðið - 29.06.1957, Page 3
Laugardagur 29. júní 1957
MORGVNBLAÐIÐ
3
Sjú Eri-Laí segir frá einhverju.
mesta blóðbaði sögunnar
TOKYO, 28. júní. |
SJÚ EN-LAÍ forsætisráðherra Kína hélt langa ræðu við
setningu kínverska „alþýðuþingsins“ í fyrradag og sagði
þá frá því, að eitt stórfelldasta blóðbað sögunnar hafi átt
sér stað í Kína síðan kommiínistar tóku völd þar. Síðan 1949
hefur sjötti hver maður, sem sakaður var um „gagnbylt-
ingarstarfsemi“, verið tekinn af lífi. Sjú gaf ekki neinar
ákveðnar tölur, en dró enga dul á, að blóðbaðið hefði verið
mjög mikið. Maó Tse-Tung gaf þær upplýsingar í Varsjá
fyrir skömmu, að 800.000 manns hefðu verið líflátnir í Kína.
Hann viðurkenndi, að ríkið
væri hrjáð af innri togstreitu
og valdabaráttu, en uppörvaði
menn til gagnrýni á störfum
ríkisins og framkvæmd bylt-
ingarinnar.
HEIMSVALDASINNAR
Sjú, sem er einnig utanríkis-
ráðherra, sagði að alþjóðaástand-
ið hefði yfirleitt þróazt í átt frið-
ar og samlyndis. En hins vegar
stæði friðinum stöðug ógn af
stefnu heimsvaldasinna og víg-
búna'ði, og væru Bandaríkin þar
í broddi fylkingar.
FYLGJANDI NÝRRI
RÁÐSTEFNU
Hann hét fullum stuðningi
stjórnar sinnar við nýja ráð-
stefnu, sem tæki vandamál
Kóreu til endurskoðunar. For-
sætisráðherra Norður-Kóreu
kom fram með tillögu um
Meirihluti dauðadómanna var
kveðinn upp milli „frelsunar"
Kína árið 1949 og ársins 1952, og
var þessi hreinsun þá óhjá-
kvæmileg nauðsyn, sagði Sjú
með áherzlu. 16,8% af „gagn-
byltingarsinnum" voru teknir af
lífi, 42,3% sendir í þrælkun, 32%
„settir undir eftirlit", og afgang-
urinn náðaður og látinn laus eft-
ir að farið hafði fram rækileg
„enduruppfræðsla".
MARGAR MILLJÓNIR
Þeir, sem bezt þekkja til, eru
þess hins vegar fullvissir, að tala
hinna líflátnu í hreinsuninni í
Kína skipti mörgum milljónum.
INNRI TOGSTREITA
í ræðu sinni gat forsætis-
ráðherrann þess jafnframt, að
á liðnu ári hefði Kína brðið
fyrir einhverjum mestu nátt-
úruhamförum síðustu áratuga.
slíka ráðstefnu 21. júní s.l.
Sjú réðist á Bandaríkin fyrir
að hafa brotið vopnahléssátt-
málann í Kóreu og sagði, að
heimsvaldastefna þeirra
mundi fá sömu endalok og
stefna annarra heimsvalda-
sinna.
ÁNÆGÐUR MEÐ
UNGVERJALAND
Sjú-En-Laí lýsti yfir því, að
atburðirnir í Ungverjalandi hefðu
eflt, en ekki veikt samlyndið
milli kommúnistaríkjanna. —
Þessir atburðir hefðu sýnt, að
ekki væri hægt að rjúfa einingu
hins alþjóðlega kommúnisma,
sem væri byggður á jafnrétti,
enda þótt verstu ráðum væri
beitt.
Sjú En-Laí
Fimm hetjur skotnar
Vínarborg, 28. júní.
— Frá Reuter.
IT'JÓRAR ungverskar frelsis-
hetjur, meðal þeirra ung
stúlka, voru líflátnar í dag,
samkvæmt fregnum Búda-
pest-útvarpsins. Þrjú hinna
líflátnu, Ilona Toth, sem var
25 ára gömul og læknastúd-
ar, var dæmdur til dauða fyr
ir að hvetja aðra til að reyna
að drepa einn af uppreisnar-
mönnum, sem hann grunaði
um svik við byltinguna. Hann
var upprunalega dæmdur í 15
ára fangelsi ,en í fyrri viku
breytti hæstiréttur dómnum í
líflátsdóm.
STAKSTflM/VR
Aumkvunarverður
sigur
Öðru hverju skýtur sú stað-
hæfing upp kollinum í blöðum
Framsóknar og Alþýðuflokksins
að bandalag þeirra í síðustu kosn-
ingum hafi þá unnið mikinn sig-
ur.
En sá „sigur“ var vissulega
aumkvunarverður. Þessir tveir
flokkar, sem fengu 37,5% at-
kvæða við kosningarna r 1953
hröpuðu sumarið 1956 niður i
33,8% atkvæða.
Árið 1953 hlutu þessir flokkar
samanlagt nokkru hærri kjós-
endatölu en Sjálfstæðisflokkur-
inn. En í kosningunum sumarið
1956 fengu þeir hvorki meira né
minna en sjö þúsund atkvæöum
færra en Sjálfstæðisflokkurinn.
Á sama tíma, sem Framsókn
og Alþýðufl. töpuðu nær 5%
af fylgi sínu bætti Sjálfstæðis-
flokkurinn við sig rúmlega 5%
atkvæða og fékk nú 42,4% í stað
37,1% árið 1953.
Þetta er það, sem málgögn og
leiðtogar Hræðslubandalagsins
kalla „sigur“ sinn. Þeir tapa þús-
undum atkvæða og hlutfallstala
þeirra stórlækkar. Það heitir svo
„sigur“ á máli blaða þeirra!!
Á svona háu stigi er sjálfsblekk
ingin hjá Hræðslubandalags-
mönnum.
Danir samþykkja loft-
könnun yfir Grænlandi
Khöfn, 28. júní.
DANSKA stjórnin hefir tilkynnt
Bandaríkjastjórn, að hún sé reiðu
búin að leyfa, að norðurhluti
Grænlands verði á svæðinu, sem
komið hefur til greina sem fyrsta
loftkönnunarsvæöi stórveldanna.
Svar Dana er svipað því, sem
Norðmenn gáfu varðandi Norður-
Noreg, en báðar ríkisstjórnir taka
það fram, að málið verði ekki
endanlega útkljáð, fyrr en þær
hafi fengið í hendur og athugað
gaumgæfilega tillögurnar, sem
undirnefnd afvopnunarnefndar-
innar mun ræða í London.
FYRIR NORÐAN 68. GRÁÐU
Tillagan, sem um er að ræða,
er síðasta tillaga Bandaríkjanna,
en í henni er gert ráð fyrir að
öll landsvæði fyrir norðan 68.
breiddargráðu verði undir gagn-
kvæmri loftkönnun Rússa og
Bandaríkjamanna. Landsvæðin,
sem um er að ræða, eru þá norð-
urhluti Kanada og Alaska,
norsku eyjarnar í íshafinu:
Spitzbergen, Jan Mayen og Bjarn
arey ásamt nyrzta hluta Noregs,
og loks eru það nyrztu héruð
Rússlands, að mestu steppur, en
þar er Hka flotahöfnin í Múr-
mansk.
KRÚSJEFF VANTRÚAÐUR
Hvað úr þessu verður, er erfitt
SIDNEY, 28. júní. — Bandaríkja-
stjórn hefur tryggt bandarískum
flugfélögum réttinn til þess að
hefja flugferðir yfir suðurheim-
skautið. Undanfarið hafa staðið
yfir samningaviðræður með
Ástralíumönnum og Bandaríkja-
mönnum um þetta og hafa þeir
síðarnefndu tryggt sér lendingar-
leyfi í Ástralíu á leið yfir suður-
heimskautið. Þá hafa Bandaríkja-
menn einnig fengið réttindi til
lendingar í Ástralíu á flugleið-
um til S-Afríku og Asíu. í stað-
inn hafa Ástralíumenn fengið rétt
hidi til þess að fljúga yfir Banda-
ríkin með viðkomu bæði á vest-
að segja nú. Krúsjeff lýsti því
yfir opinberlega í Finnlandi, að
hann hefði ekki mikla trú á til-
lögunni, en e. t .v. verður hún
vísir annarrar og víðtækari áætl-
unar um gagnkvæma loftkönnun.
LONDON, 28. júní. — Lundúna-
blaðið Daily Mail staðhæfir, að
eitt aðalvarnarvopn Breta, rak-
ettan „Firestreak“ sé ónothæft í
regnveðri og þoku.
„Firestreak“ er skotið frá flug-
vél og á að stjórna sér sjálft í
skotmarkið, sem er óvinaflugvél
eða flugskeyti. Innrauðir geislar
frá skotmarkinu eiga að stjórna
rakettunni og leiða hana í mark.
ent, Ferenc Gönczi, 25 ára
gamall og fyrrverandi liðsfor-
ingi í hernum, og Miklos Gyd-
engyösi, 28 ára, höfðu verið
dæmd til dauða fyrir að drepa
mann úr öryggislögreglunni,
sagði í frétt útvarpsins, en
hinn fjórði, Ferenc Kovacs, 25
ára gamall og fyrrverandi
meðlimur öryggislögreglunn-
Nú staðhæfir Daily Mail, að regn
og þoka dragi svo mjög úr geisl-
unum, að „Firestreak“ verði al-
gerlega stjórnlaust, ef því sé skot-
ið í slíku veðri. Segir blaðið og,
að brezkir sérfræðingar séu önn-
um kafnir við að reyna að finna
bót á þessu. Þessi veiki hlekkur
í vörnum Bretlands sé landinu
mjög hættulcgur.
Hin þrjú voru dæmd til dauða
í apríl í fyrstu meiri háttar rétt-
arhöldum leppstjórnarinnar yfir
frelsishetjunum. Fengu þau dóma
sína um leið og rithöfundarnir
tveir, sem hafa nú fengið aftöku
sinni frestað og fá e. t. v. dóm-
inum breytt vegna þeirra al-
mennu mótmæla, sem dómar
þeirra vöktu um allan heim.
SÁ FIMMTI BÆTIST
1 IIÓPINN
Seint í kvöld bárust fréttir um,
að fimmta hetjan hefði verið líf-
látin í dag. Var það Jozsef Petrus,
sem hafði verið dæmdur fyrir
að stjórna hópi manna, sem
reyndi að egna fólk til upp-
reisnar í marz s.l. í bænum Pecs
í Suðvestur-Ungverjalandi. 21
meðlimur hópsins fékk fangelsis-
dóma allt upp í 15 ár.
“Miss Ewrope4fc
er hollenzk
BADEN-BADEN, 28. júní. — t
keppninni um „Miss Europe“-
titilinn, sem haldin var í
Baden-Baden, varð „Miss Hol-
land“, Corine Rottschaefer 19
ára gömul, hlutskörpust. —
Önnur varð fulltrúi Finnlands,
þriðja fulltrúi Þýzkalands,
fjórða fulltrúi Frakklands og
fimmta „Miss England".
"Tirpitz,,
TROMSÖ — Saga þýzka orrustu-
skipsins „Tirpitz“ er nú senn á
enda. Norðmenn eru nú að
höggva það upp og um þessar
mundir er verið að brytja niður
stjórnturninn, sem vegur um 200
lestir.
167 hvalir veiddir
AKRANESI, 28. júní — 167 hval-
ir eru nú veiddir í Hvalfjarðar-
stöðinni með þeim fjórum, sem
eru á leiðinni til stöðvarinnar í
dag. Liðinn er nú tæplega þriðj-
ungur af hvalvertíðinni, eða 41
dagur, en hvalveiðinni er venju-
lega hætt 21. september. í fyrra
veiddust 400 hvalir, sem er mesta
veiði á einu ári hingað til hjá
hvalstöðinni. Bendir margt til að
sett verði nýtt hvalveiðimet í
ár. —Oddur.
Kosningasvindlið var
eina haldreipið
Eina haldreipi þessara flokka
í kosningunum var svindl þeirra
og brot á kosningalöggjöf og
stjórnarskrá. í skjóli þess fékk
Alþýðuflokkurinn uppbótarþing-
sæti út á atkvæði Framsóknar,
sem þó fékk miklu fleiri þing-
sæti en hún átti rétt á sam-
kvæmt kjósendafylgi sínu. Og
það er athyglisvert, að án banda-
lagsins við Framsókn hefði AI-
þýðuflokkurinn að öllum líkind-
um engan þingmann fengið kjör-
inn og sennilega þurrkast út úr
þinginu.
Þegar á þetta er litið verður
það auðsætt, hve Alþýðuflokk-
urinn er nú gersamlega orðinn
háður Framsókn. Hann er nú
nokkurs konar pólitískur próv-
entukarl hinnar gömlu maddömu.
Tveir f^arpar draga í land
A meðan þeir „seminaristinn
frá Jonstrup“ og Lúðvík Jósefs-
son voru í stjórnarandstöðu töl-
uðu þeir hresssilega um það, að
tafarlaust bæri að lýsa yfir nýrri
útfærslu fiskveiðitakmarkanna.
Töldu þessir garpar, að það væri
hinn mesti slóðaskapur af fyrr-
verandi ríkisstjórn að hefjast
ekki handa um þessar aðgerðir.
Nú hafa garparnir setið nær
eitt ár í ríkisstjórn. Og ekkert
bólar á að þeir færi út landhelg-
islinu eða fiskveiðitakmörk. Þeir
halda gersamlega að sér höndum.
Lúðvík Jósefsson lýsti því meira
að segja yfir á Alþingi í vetur,
að hann teldi ekki tímabært að
gefa neinar upplýsingar um á-
form sín í þessu mikla hagsmuna-
máli sjómanna og þjóðarinnar í
heild.
Þannig éta kommúnistar ofan
í sig öll sin fyrri hreystiyrði.
Forysta Sjálfstæðis-
manna.
Sjálfstæðismenn höfðu á stjórn
arárum sinum giftudrjúga for-
ystu um útfærslu fiskveiðitak-
markanna. Þeir munu halda á-
fram baráttu sinni fyrir frekari
vernd fiskimiðanna. Með skyn-
samlegum og rökföstum málflutn
ingi af hálfu fulltrúa tslands í
ýmsum alþjóðlegum samtökum
hefur aðstaðan til nýrra aðgerða
stórbatnað undanfarið.
Onassis hjálpar Nasser
KAIRÓ, 28. júní.
RÍSKI skipakóngurinn Aristoteles Onassis kemur til
Kaíró í næstu viku til að ganga frá samningum við
egypzk yfirvöld um byggingu á olíuleiðslum meðfram Súez-
skurðinum. Er þetta haft eftir áreiðanlegum heimildum. Þá
er og frá því sagt, að Onassis hafi í hyggju að setja á stofn
sérstakt hlutafélag, sem byggi olíuleiðslurnar og reki þær.
Onassis átti tveggja stunda viðræður við forstjóra egypzka
efnahagssjóðsins á fimmtudagskvöld. Munu viðræður verða
teknar upp að nýju á fimmtudag og verða þá einstök smá-
atriði rædd.
Onassis kom fram með tillöguna um að byggja olíuleiðslur
meðfram Súez-skurði fyrir tveimur árum, þegar hann heim-
sótti Kaíró. Fyrr á þessu ári lét hann þess getið, að samn-
ingar um slíka leiðslu gætu ekki hafizt, fyrr en þúið væri
að hreinsa Súez-skurðinn algerlega.
Leiðslan mundi auka mjög siglingar um skurðinn, því
hún mundi hafa það í för með sér, að hin gríðarstóru nýju
olíuflutningaskip, sem rista mjög djúpt, geta farið frá Persa-
flóa inn í Miðjarðarhaf hálfhlaðin, og síðan mundu þau taka
fullan farm í Port Said. Hið fyrirhugaða hlutafélag verður
aðallega rekið fyrir erlent fé, en egypzka Súez-félagið mun
einnig eiga hlut að því.
Ástraiskar
umhverfis
ur- og austurströndinni. Astr- I taRa fimrn sólarhringa og fimm
alska flugfélagið Quantes er því > stundir.
"Firesfreak" þolir ekki vœtu
flugvélar
joröma
fyrsta flugfélagið, sem hlýtur a
stöðu til þess að fljúga umhver:
jörðina með viðkomu í öllu
heimsálfum. Hefur stjórn félaj
ins upplýst, að slík ferð mu