Morgunblaðið - 29.06.1957, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 29.06.1957, Blaðsíða 17
Laugardagur 29. jún[ 1957 MORcrnv niAÐiÐ 17 Iðgjaldafekjur Samvinnu trygginga yfir 43 millj. kr. Samvinnutryggingar munu á þessu ári endurgreiða hinum tryggðu 2.675.000 krónur, sem er tekjuafgangur ársins 1956. Að því er Jón Ólafsson, forstjóri félagsins, skýrði aðalfundi þess frá í Bifröst í gær, var tíunda starfsár félagsins í fyrra hið langstærsta og námu iðgjalda- tekjur yfir 43 milljónum króna, sem er 37,2% aukning frá árinu 1955. Að þessu sinni mun ekki verða unnt að endurgreiða neitt fyrir bifreiðatryggingar, þar sem tap varð á rekstri þeirra, þrátt fyrir iðgjaldahækkun á árinu. í skýrslu sinni til aðalfundar- lns benti Jón Ólafsson, fram- kvæmdastjóri, á mikla hækkun tjónagreiðslna, sem orðið hafði hjá Samvinnutryggingum. Námu tjón nú á árinu 33,6 milljónum króna, sem er 18 milljónum hærra en næsta ár á undan. Var aukning tjóna tiltölulega mest í brunadeild, en mikil í öllum deildum, ekki sízt bifreiðadeild. Benti Jón á, að þessi mikla hækk- un gæfi tilefni til stóraukinnar varúðar til að forðast slys og eldsvoða. Samvinnutryggingar hafa nú brunatryggingar á skyldutryggð- um fasteignum í 85 hreppum á landinu. Virðist félaginu sem tryggingaupphæð eigna sé yfir- leitt of lág miðað við verðgildi peninga og reynist ófullnægjandi ef á reynir. Fundarstjóri á aðalfundi Sam- vinnutrygginga var f*órarinn Eldjárn frá Tjörn, en fundarrit- arar þeir Steinþór Guðmundsson, Reykjavík og Óskar Jónsson frá Vík. í framkvæmdastjórn félags- ins eru auk Jóns Ólafssonar þeir Jón Rafn Guðmundsson og Björn V ilmundarson. Skýrslu stjórnarinnar flutti Erlendur Einarsson, formaður hennar, en auk hans eiga sæti í stjórn trygginganna Jakob Frí- mannsson, ísleifur Högnason, Karvel Ögmundsson og Kjaírtan Ólafsson. AÐALFUNDUR ANDVÖKU Aðalfundur líftryggingafélags- ins Andvöku var einnig haldinn í Bifröst í gær. Framkvæmda- stjóri þess félags er einnig Jón Ólafsson og stjórn hin sama og hjá Samvinnutryggingum. Gefin voru út 592 líftrygginga- skírteini á árinu að upphæð 13 milljónir króna. Eru þá í gildi hjá félaginu 8227 líftrygginga- skírteini og tryggingastofninn 85,5 milljónir króna. Rekstrarafkoma félagsins varð mjög góð. Verðlaun fyrir prófrifgerðir SVO sem venja hefur verið und- anfarin ár, að hafa verðlaun verið veitt úr verðlaunasjóði Hailgríms Jónssonar fyrrum skólastjóra fyr ir beztu prófritgerðir við barna- próf. Þessi börn hlutu verðlaun: Atli Magnússon, Melaskóla, Gunnar Kvaran, Miðbæjarskóla, Kristín Gísladóttir, Langholtsskóla. Aukaferð Aukaferð verður fa'-in frá Reykjavík til Kauþnranna- hafnar og Stafangurs iniðvikudaginn 3. júlí. kkukkan 20. Væntanlegir farþegar gjöri svo vel að hafa samband við skrifstofu Loftleiða hið allra fyrsta. Loftleiðir Orðsending til skóla- harna í Reykjavík Börn úr barnaskólum Reykjavíkur eru góðfúslega beðin að koma á eftirgreinda staði, klukkan 2,30, í dag, laugardaginn 29. júní, til þess að fagna sænsku konungs- hjónunum. Börn úr Miðbæjarskóla — á leiksvæSi skólans — - Austurbæjarskóla — á leiksvæði skólans — - Laugarnesskóla — við gömlu Mjólkurstöðina — - Melaskóla — í Hljómskálagarði við Sóleyjargötu — - Langholtsskóla — við Grænuborg — - Eskihlíðarskóla — á leiksvæði skólans — - Háagerðisskóla — á leiksvæði Austurbæjarskóla Æskilegt er, að börnin beri íslenzka fána, ef til eru. Kennarar skólanna eru vinsamlegast beðnir að koma á þessa sömu staði á áður nefndum tíma. F. h. undirbúningsnefndar Fræðslustjórinn í Keykjavík. Veiðibann Að gefnu tilefni, er öll veiði í Úlfljótsvatni fyrir löndum Efri-Brúar, Syðri-Brúar og Úlfljótsvatns stranglega bönnuð, nema með sérstöku leyfL Steingrímur Jónsson, rafmagnsstjórL Guðmundur Guðmundsson Snæbjörn Ottesen Efri-Brú Syðri-Brú Björgvin Magnússon Skátaskólinn, ÚlfljótsvatnL Sá áran«ur sem bér sækist eftir. verðu^ að veruleika ef bér notið Rinso — raun- verulegt sáouduft. Rinso kostar vður ekki aðeins minna en önnur bvottaefm og er drýgra, heldui er bað óskaðlest bvotti og höndum. Hin bvkka Rinso froðe veitir vður undursamlegan árangur ov verir allt nudd barflaust sem skemmir aðeins bvott vðar. Óskaðlegt þvotti og höndum Hann gleymdi að fá sér PÓLAR-RAFGEYMI áður en hann fór í stimarleyfið. Atvinnurekendur Athygli yðar skal vakin á, að samkvæmt lögum um vinnu- miðlun, nr. 52, 9. apríl 1956, skulu: „Allir þeir, sem hafa með höndum fastan atvinnurekstur með aðkeyptu vinnuafli verkamanna í kaupstöðum og kaup- túnum með 300 íbúa eða fleiri, skulu eigi sjaldnar en mán- aðarlega senda þeim, er vinnumiðlun annast á staðnum, afrit af kaupgj aldsskrám sínum, enda séu þær þannig úr garði gerðar, að auðvelt sé að sjá af þeim, hve mikil upphæð hefur verið greidd í vinnulaun hverjum einstökum manni á þeim tíma, er skráin nær yfir“. Brot gegn ákvæðum þessum varða.sektum allt að 10.000.00 krónum. Samkvæmt þessu ber atvinnurekendum í Reykjavík að senda Ráðningarstofu Reykjavíkurbæjar, Hafnarstræti 20, afrit af kaupgjaldsskrám sínum fyrir næstliðinn eða liðna mánuði. Sent verður eftir kaupgjaldsskrám yðar, ef þess er óskað. Ráðningarstofa Reykjavíkurbæjar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.