Morgunblaðið - 29.06.1957, Blaðsíða 11
Laugardagur 25. júní 1957
MORCVNBLAÐ1Ð
11
Rætt við prófastshjónin að Núpi, séra Sigtrygg og frú Hjaltlínu:
Angandi blómareitur á gamla stekkjar-
holtinu, sem áður var úfið og hrjóstugt
IJNDIR fjallinu Núpi í Dýra-
firði, sem skólasetrið dregur
nafn sitt af, getur að líta einn
fegursta blett Vestfjarða. Það er
Skrúður, garðurinn fagri, sem
hinn aldurhnigni prófastur, séra
Sigtryggur Guðlaugsson, skipu-
lagði og gerði á yngri árum sín-
«m. Hann sker sig úr umhverf-
inu sunnanvert í hlíðinni, og
iveiflar voldugum trjákrónum
yfir hrjóstrugt holtið. Þessi
skrúðgarður á sér merka og langa
sögu að baki og ber því ef til vill
órækast vitni, hve íslenzk mold
er máttug og gróskurík. Á þeim
stað, sem Skrúður stendur nú og
angar af litfögrum blómum inn-
lendum og erlendum, milli fall-
egra og vel skipulagðra greni-
og birkiraða, var óhrjálegur
stekkjarmelur og lítt aðgengileg-
ui til ræktunar fyrir tæpum
fimmtíu árum. Þarna á þessum
stað hefur mannshöndin ásamt
páli og reku unnið þrekvirki og
breytt grjótholti I angandi blóma-
reit. Þarna hafa þau prófasts-
hjónin, frú Hjaltlína Guðjóns-
dóttir og séra Sigtryggur reist
sér þann minnisvarða, sem ekki
„springur né eyðist í vindurn",
en heldur áfram að vaxa og þrosk
ast, eftir því sem árin líða.
VORVERK í SKRÚ®
Fyrir skömmu átti fréttamað-
ur Mbl. leið um Dýrafjörð og
r.otaði þá tækifærið til þess að
skoða Skrúð og ræða við pró-
,Viljirðu vesfur á Fjörðum, vita hvar rœkfun er prúð, leggðu
þá leið þína að Núpi, líttu sem snöggvast á Skrúð"
HELGAÐUR MINNINGU <
GRÓÐURSETNINGU
KARTÖFLUNNAR
— Hve gamall er garðurinn,
frú Hjaltína?
— Hann er talinn síðan 7. ágúst
1909, en maðurinn minn mun
hafa byrjað á honum 1905. Garð-
urinn hefur verið frá því og þar
til í fyrra, % úr dagsláttu, en þá
var hann stækkaður. Landið, sem
hann stendur á, gaf Kristinn heit-
inn Guðlaugsson, bróðir Sig-
tryggs, honum, þegar hann flutt-
ist hingað vestur frá Þrymi í
Eyjafirði. Það hefur víst verið
fremur erfitt til ræktunar,
stekkjarholt stórgrýtt. Annars
hefi ég ekki sinnt um garðinn
fyrr en eftir 1918, en stöðugt
síðan.
— Garðurinn er helgaður
minningu einhvers atburðai?
— Já, hann er helgaður minn-
ingu þess, að þegar hann var
gerður, voru 150 ár liðin frá því
kartafla var fyrst gróðursett í
íslenzkri mold af séra Birni Hall-
dórssyni prófasti í Sauðlauksdal.
— Hvenær byrjarðu venjuleg
vorstörf í garðinum?
— Algengast er að ég byrji að
vinna í honum um miðjan apríl.
Þá er hægt að fara að klippa trén
eftir veturinn. — En auðvitað
Aðalhlið Skrúðs. Á hliðinu stendur „Skrúður 7/8 1909“, en þá voru
liðin 150 ár frá gróðursetningu fyrstu kartöflunnar í íslenzka mold,
en garðurinn er helgaður minningu þess atburðar.
fastshjónin, frú Hjaltlína var
þegar byrjuð á voryrkjunni í
garðinum, þótt hlýindin létu frek
»r á sér standa. Þar mátti líta
móbrún moldarbeðin hlið við
hlið, hárfínt mulin og jöfnuð, til-
búin að taka móti fræjunum og
jurtunum og hlúa að þeim, eins
og uppbúin rúm. Fjölæru jurt-
irnar voru farnar að blómstra og
trjágróður allur búinn að taka á
sig ljósgrænan vorlit. Fjölæru
jurtirnar, prímúlur, rósir og fjól-
ur teygðu sig upp úr moldinni,
gular, rauðar, grænar og bláar.
Það var mikið að gera hjá frú
Hjaltlínu. Það þurfti að hreinsa
burtu rusl frá fyrra sumri, bera
áburð í moldina, pæla upp og
sir.na ungum veikburða gróðri
inni f gróðurhúsinu, sem enn þá
var það lítilfjörlegur, að ekki var
tímabært að gróðursetja hann úti
undir beru lofti.
Skrúður liggur um það bil
kílómetra gang frá Núpl. Tvisvar
á hverjum degi fer frú Hjaltlína
þá leið, til að vökva gróðurinn
og sinna honum. Oft er hún allan
daginn f garðinum og vinnur frá
morgni til kvölds, kemur aðeins
heim á matmálstímum. Séra Sig-
tryggur, sem er 95 ára, fer einnig
í garðinn hvern góðviðrisdag og
vinnur að gróðursetningunni, „en
það er aðallega konan mín, sem
hefur annast hann undanfarin
30 ár“, sagði hann.
er þetta breytilegt, eftir því
hvernig árferði er. í vetur voru
mikil snjóþyngsli og ég byrjaði
ekki fyrr en fyrstu dagana í maí.
— Hve margar trjátegundir
vaxa í garðinum?
— Það man ég ekki alveg fyrir
víst, en í fljótu bragði get ég
nefnt reyni, björk, rauðgreni,
sitkagreni, hlyn, lerki og
fleiri mætti víst nefna. Svo eru
ýmsir runnar, svo sem kornelvið-
ur, ribs, kornber og sólber. —
Hæsta tréð er yfir 7 metrar.
— Er það ekki rétt, að séra
Sigtryggur hafi ætlað að hafa
eingöngu íslenzkan blómagróður
í garðinum?
— Jú, í upphafi ætlaði hann
að gera það. Hann ætlaði að
kynna fyrir islenzku skólafólki,
hvað hægt væri að rækta í ís-
lenzkri mold. En svo reyndist
talsvert erfitt að einskorða sig
við það, þegar fram í sótti. Það
ei t. d. mjög erfitt að fyrirbyggja
útbreiðslu íslenzkra jurta margra
eins og t. d. sigurskúfsins, sem
er falleg jurt, en breiðist ákaf-
lega ört út og verður óviðráðan-
legur. Hann skríður áfram niður í
moldinni og svo skýtur honum
upp hér og þar.
MIKH) STARF
— En svo hafið þið líka mat-
jurtir í garðinum?
— Já, við höfum ýmiss konar
Frú Hjaltlma Guðjónsdóttir.
matjurtir. Og allt þarf þetta
sinningu. Það er mikið starf, sem
er fólgið í því að sinna svona
garði. Gróðurinn þarfnast geysi-
lega mikillar umönnunar.
— En það hlýtur að vera
ánægjulegt starf?
— Já, það er það sannarlega.
Eg geri gælur við rósirnar mínar
og fjólurnar. Satt að segja finnst
mér svo vænt um blómin, að
mér finnst næstum að sjálfur
Guð sé hjá mér, þegar eg er
meðal þeirra. Yfirleitt vinn eg
hér allar þær stundir, sem heim-
ilið má missa.
— Jú, það má segja að svo sé.
Það hreiðra sig venjulega nokkr-
ar endur og rjúpur í garðinum
á hverju ári. Þær vita, að þær
eiga friðland hér. Einu sinni yfir-
gaf önd hreiðrið sitt í garðinum.
Það fannst mér sorglegt.
— Hvaðan fáið þið fræ til
jurtasáningarinnar?
— Nú orðið höfum við lang
mest viðskipti við Flóru í því
efni. Áður fyrr skiptum við mik-
ið við fyrirtækið Sigvald Christ-
ensen í Bergen, en erum svo að
segja hætt þvL
Það er óhætt um það, að frú
Hjaltlína á mörg spor um garð-
inn sinn, þennan yndislega gróð-
urreit, sem* ber vitni um haga
NEFNDI ÞÁ EFTIR
HVÖMMUNUM HEIMA
A ÞRÖM
— Eg gerði Skrúð með það
fyrir augum að hann yrði notað-
ur sem skólagarður til hjálpar
I við kennslu í almennri jurtafræði
og' einnig til að venja nemendur
við að neyta garðjurta.
Það er rétt, sem konan mín
sagði um garðstæðið. Það var
ekki mjög gróðurríkt. 1 litlum
þúfnamóa var byrjað að stinga
þúfurnar og slétta. Það var auð-
velt, því moldarríkt var þar. Ég
sáði þar fyrst höfrum og einnig
kartöflum. Síðan var haldið á-
fram að brjóta landið út með
hjallanum sem garðurinn var
gerður undir. Það var erfitt verk
vegna grjótsins. Þar gerði ég
þrjá skápa eða hvamma inn undir
hjallann til skjóls. Og til gamans
nefndi ég þá eftir hvömmum í
Þverárgili heima á Þröm, sömu
röð, Stekkjarbrekku, Selhvamm
og Ólafshvamm.
MJAÐJURT ÚR EYJAFIRÐI —
GARÐBRÚDA ÚR
RANGÁRVALLASÝSLU
Jafnóðum og land var brotið
var borinn á það áburður. Einn-
ig sáð og plantað. En áburður-
inn var af skornum skammti. —
Húsdýraáburður var ekki til af-
lögu á búunum í grenndinni en
tilbúinn áburður þá ekki kom-
inn til sögunnar.
Ég hafði í huga að safna sam-
an í garðinn íslenzkum jurtum,
einkum þeim, sem helzt þykja til
prýði. Varð ég mér úti um jurtir
eða fræ þeirra frá fjarlægum
héruðum. T. d. má nefna garð-
brúðu úr Rangárvallasýslu, blá-
kollu, umfeðming, mjaðjurt og
jarðarber úr Eyjafirði, eyrarrós,
sigurskúf, beitilyng og fjólu úr
Fnjóskadal og svo voru ýmsar
teknar nær, svo sem baldursbrá,
aronsvöndur, jökulsóley, mela-
sól, bláklukka, ætihvömm, geitla,
brúðberg, brunnrós, burkni,
storksblágresi og fleira.
ÞYKI YKKUR NOKKURT
UM VERT, ÞÁ ....
— En séra Sigtryggur, hvað
hugsið þið ykkur hjónin með
garðinn í framtíðinni, þar sem
þið eruð nú bæði farin að lýjast
að kröftum?
— Við höfum í hyggju að af-
Á þeirrl hliS Skrúðs er niður að veginum snýr, er > oldugt hlið gert
úr hvalkjálkum. Snjóhvít hvalbeinin skera sig vel úr bakgrunn-
inum, sem er laufgrwn tré.
hönd, smekkvísi, trú á íslenzka
mold og ást á gróðri.
En hvað segir þá hinn hári
öldungur um þetta óskabarn sitt,
sem hann hefur offrað svo mikl-
um tíma sínum, en einnig upp-
skorið ánægju og lærdóm fyrir.
Jú, eitthvað svipað þessu komst
séra Sigtryggur að orði við mig:
henda hann NúpsskólanUm, og
það jafnvel áður en langt um
líður. Eg er hættur að geta sinnt
honum og það hefur algjörlega
fallið í hlut konu minnar, en
einnig hún er farin að lýjast. Mér
þætti vænt um, að Skrúður yrði
rækaður frá skólanum og þá
heízt undir eftirliti grasafræð-
Séra Sigtryggur Guðlaugsson,
fyrrum prófastur.
inga, og þá gæti hann gegnt því
hlutverki, er ég hugði honum í
fyrstu.
★
Þegar eg kvaddi þau hjónín
eftir þetta rabb, mælti séra Sig-
tryggur:
— Eg hverf bráðum af sjón-
arsviðinu, en finnist þeim er eftir
dveljast nokkurs virði um komu
mína þangað, þá minnast þeir
hennar á mér kærastan hátt með
varðveizlu og aukningu gróðurs
og náttúruminja í Skrúð og að
hann beri nafn með rentu og
sanni það, að „maðurinn sáir og
plantar, en Guð gefur ávöxtinn“.
Eg kæri mig ekki um meitlaðan
stein á gröf mína, en þakka þeim
innilega er hlúa að Skrúð með
fögrum gróðri náttúrunnar á stað
sem áður var hrjóstugur.
— M. Th.
Kvikmyndir:
„Eituiblómið“
Þetta er frönsk sakamálamynd, er
Austurbæjarbíó sýnir um þessar
mundir. Er efni myndarinnar
byggt á einni af hinum kunnu
„Lemmybókum“, sem margir hér
munu kannast við. — Myndin
gerist í Casablanca og víðar og
segir frá bófaflokki, sem er á
hnotskógi eftir gullfarmi, sem er
eign amerísks banka. — Hinn
snjalli leynilögreglumaður
Lemmy Caution er sendur frá
Washington til þess að ráða niður
lögum bófaflokksins og ná gull-
inu úr greipum hans. Kemst
leynilögreglumaðurinn í mjög
spennandi ævintýri og miklar
þrautir, en hin fræga dansmær
Charlotte de la Rue, — öðru nafni
„Eiturblómið“. á sinn veigamikla
þátt í úrslitunum. — Mynd þessi
er prýðisvel gerð og geysispenn-
andi svo að aldrei slaknar á, en
reyfarakennd í meira lagi: Aðal-
hlutverkin, Lemmy Caution og
„Eiturblómið" leika þau Eddie
Constantine og Dominique Wilm*
og fara þau bæði vel með hlut-
verk sín. Erkibófann leikur Ho-
ward Vernon, og túlkar þá mann-
gerð prýðilega. — Ego.
Sámafram-
kvæmdir
AKRANESI, 27. júní. — Undan-
farinn mánuð hafa simamenn
unnið að því að leggja sérstaka
simalínu frá Akranesi inn í
Svínadal á Hvalfjarðarströnd.
Sömuleiðis hafa þeir lagt síma-
línu frá Ferstiklu inn í Hvalfjarð
arbotn. í símamannaflokknum
eru 13 menn og er verkstjóri ót
afur Ingþórsson. Þeir munu
vinna hér enn í tvær vikur á
svæðinu utan Skarðsheiðar að við
gerðum og eftirliti á símalínum.
— Oddur.