Morgunblaðið - 19.09.1957, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 19.09.1957, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 19. sept. 1957 MOKCinSBl ÁÐIÐ mest á enskum nítjándu aldar höfundum, en allt var það úrval fábreytilegt. Hið sama var uppi á teningnum í frönsku og þýzku deildinni. Mig langaði að líta í vestræn blöð, og var okkur sagt, að þau fengjust í stórum blað- söluturni í miðbænum. Á diskn- um lágu eingöngu frammi rúss- nesk blöð, en í sýningarglugga voru nokkur kommúnistablöð frá Vesturlöndum. Ég ætlaði að kaupa þau frekar en engin, en ekkert þeirra var þá til sölu. Mig langaði til þess að fá blað, sem til sýnis var, en ekki fékkst það heldur. Við hristum höfuð- ið yfir þessu mótlæti, en Rússi einn, sem stóð hjá okkur, sagði, að þau fengjust aldrei. Hann hefði oft beðið um þau, en það kæmi fyrir ekki. „Af hverju eru þá þessi blöð í glugganum?'* spurðum við. „Til skrauts" svar- aði hann og fór. Ég komst að því síðar, að þetta ófrelsi svíður Rúss um einna mest. „Moskva er borg, sem bændur byggja", er haft eft- ir Rússa einum. I samanburði við vestrænar borgir er Moskva beinlínis ljót og veldur því hinn hroðalegi byggingastíll. Það kom fyrir ekki, þótt húsin, sem stóðu við helztu umferðagötur, eins og t.d. Len- ingradstræti og Gorkygötu o. fl., væru nýmáluð, og flikkað hefði verið upp á framhlið húsanna. Um nætur voru margar stærstu byggingamar lýstar upp, og þá ekki sízt hinar ægilegustu. Það er mikið til í því, sem sagt hefur verið, að bæði mór- allinn og arkitektórinn í Moskvu sé „mid-Victorian“. Ekki þótti mér mikill heims- borgarbragur að þeim upplýsing- um eins túlksins, að 52 kvik- myndahús væru í bænum (eitt á rúmt hundrað þúsund íbúa), 34 leikhús og 55 „starfandi“ kirkjur. Ég fór einn sunnudags- morgun í höfuðkirkju Moskvu- borgar, og var þar mikið fjöl- menni við messu. Margar kirkj- ur er verið að gera við, en aðr- ar eru í hörmulegri niðurníðslu. Eina kirkju sáum við, sem hafði verið gerð að skrifstofubyggingu en ekkert hirt um viðhaldið, svo að stórgrýti var allt í' kringum hana, sem hrunið hafði úr turn- um. Tvær snotrar kapellur höfðu verið gerðar að íbúðarhúsum, en fólkið skemmt þær með útbygg- ingum. Myndatökubann eða „friður og vinátta"? Eitt sinn sem oftar fórum við inn í port, sem afgirt var með hárri og nýrri girðingu, en á bak við þær var ýmsu skýlt. 1 þet+a skipti var það kirkja, sem smám saman var að grotna niður. Ekki var kirkjan notuð til neins, en úr skrúðhúsinu hafði verið gert almenningssalerni, sem nú var að vísu niðurlagt. Við vildum gjarn- an taka mynd af þessu dæmi um virðingu yfirvaldanna fyrir gömlum menningarverðmætum, en það ætlaði ekki að ganga greitt. Ekki vorum við fyrr farn- ir að setja okkur í stellingar en fólk fór að kalla til okkar úr ýmsum áttum. Ekki skildum við neitt en gengum til eins hópsíns. Þar lét fólkið okkur skilja, að við ættum ekki að taka mynd af kirkjunni, heldur af sjálfu því. Eg var reiðubúinn til þess en vildi fá það til að stilla sér upp milli mín og kirkjunnar. Ekki fékkst það til þess, en að lokum gat eg tekið mynd af pilti ein- um í nokkurri fjarlægð frá skrúð húsinu. Kunningi minn vildi ná mynd af kirkjunni allri og gekk nokkuð í burtu. Enn fór fólk að kalla og benda. Skyndilega komu tveir vopnaðir lögreglumenn skokkandi, og hafði auðsjáanlega verið hringt til þeirra vegna okk- ar, því að þeir gengu rakleiðis að okkur. Við létum sem við tækjum ekki eftir þeim, en ann- ar stimdi upp „halló“. Var fljót- séð, að þeir kærðu sig ekki um frekari myndatökur, en mundu þó eftir fyrirskipuninni um að vera vingjarnlegir við festival- J fólk, svo að þeir snigluðust þegj-. andi í kringum okkur. Við geng- tnn áleiðis út úr portinu, og i kom ég þá auga á minnsta mannabústað, sem ég hef séð. Var það hreysi á stærð við flyfe- il, hróflað upp úr kassafjölum. Hefði okkur ekki til hugar kom- ið, að hér væri mannabyggð, hefðu ekki sjónvarpsgrindur stað ið upp úr þakinu. Ekkert kot er svo aumt í Moskvu, að þar sé ekki sjónvarp. Ég nam staðar og fór að handfjatla myndavélina, en út úr húsinu tíndist heil fjöl- skylda. Lögreglumennirnir voru fljótir að troðast fram fyrir mig, og brast mig þá kjarkur til að biðja þá um að færa sig, því að mér var kunnugt um hinar ströngu takmarkanir á notkun ljósmyndavéla, sem enn gilda í Sovétrikjunum. Meðan á festi- valinu stóð, átti öllum að vera frjálst að taka myndir, en samt gekk lögreglunni illa að venjast þessu frelsi, því að dæmi eru til þess, að menn voru handteknir eftir myndatöku, en sleppt eftir að filmurnar höfðu verið gerðar upptækar. Það var ekki eingöngu á þessu sviði, sem Moskvubúar áttu að njóta örlítils meira frels- is í fjórtán daga. Frjáls samtöl við útlendinga, þar sem bætt var úr fréttafátækt þeirra, gamlar kenningar dregnar í efa o. s. frv. eiga áreiðanlega eftir að hafa geysimikla þýðingu innan Sovét- ríkjanna. ÞÉBINGAR ÞERINGAR eru gamlar í íslenzku máli. Konungar voru ávarpaðir á þennan hátt. Síðan náði það til æ fleiri, líkt og ávarpið frú og herra. Vér, sem nú erum mið- aldra eða eldri, lærðum að þéra prestinn, sýslumanninn og ókunn ugt fólk. í bernsku minni var auk þess til eins konar þérun, sem nú mun að mestu horfin. Það var orðið „maðurinn“. Sagt var: „Hvað heitir maðurinn?" „Hvað- an kemur maðurinn?" „Hvert er maðurinn að fara?“ Mér virtist það aðeins tekið sér í munn, þeg- ar vafi gat leikið á því, hvort þéra skyldi eða þúa. Einhvern veginn fannst mér, að aðeins fullorðið fólk gæti haft pennan hátt á. Allar nágrannaþjóðir vorar þéra á einn eða annan hátt. Norð- urlandamenn, Þjóðverjar og Frakkar þéra sem vér, nota for- nafnið í fleirtölu, en egilsaxnesku þjóðirnar ávarpa ókunna með ættarnafni, en nákomna með for- nafni. Hér á landi hafa verið uppi nokkrar raddir með og móti þér- ingum. Ég fullyrði þó, að megin Frú Halldóra Einarsdóttir Minningai'orð ÞEGAR sterkir stofnar falla þá verður oftast brestur nokkur, en gömul kona sem er tvö og hálft ár yfir níræðisladur, og hefur unnið landinu vel og dyggilega j allt frá barnsaldri, á hvíldina I skilið. Umrót tveggja aldarhelm- | inga hafa legið þungt á herðum: hennar, en hún kvartaði ekki. Erilsamur búskapur á harðbala- jörð í aldarþriðjung, uppeldi barna og flutningar gera kröfur til skapfestu og mannkosta. Frú Halldóra Einarsdóttir átti þessa eiginleika í ríkum mæli, það var hennar styrkur í lífinu. Þess vegna gat hún skilið við það róleg. Ráðgert hvað eina um við- skilnaðinn, og mælti huggunar- orð til ættingja og vina. Þá er aðeins eitt systkini henn- ar á lífi Guðríður Einarsdóttir hóÖldruð. Hún sem bjó áður að Yztagili í Langadal en dvelst nú hjá dóttur sinni Margréti Gunn- arsdóttur, Laugavegi 55, Rvík. Frú Halldóru kynntist ég eftir að hún kom til Reykjavíkur. Hin mikilhæfa kona minnti mig ávallt á kvenskörunga sögualdarinnar. Framkoma hennar, málfar, gjörvi leiki og skáldskapur. Allt var heilsteypt og stórbrotið, arfur frá þekktum bændaættum nyrðra. Faðir hennar Einar Andrésson frá Bólu í Skagafirði og móðirin Margét Gísladóttir frá Hrauni í Austurdal, bjuggu nokkur ár á Illugastöðum í Fljótum. Síðar á Minna-Holti. Einar var skáld og snillingur til allra verka en Margrét frábær atorkukona. Ekki veitti af, því hart var þá í ári. Halldóra eldri systir lét ekki sinn hlut eftir liggja. Sextán ára fór hún á skíðum yfir Siglufjarð- arskarð og sótti kornskeppu, bar hana á bakinu heim. Halldóra giftist, ung að aldri Jóni Jónssyni, miklum hæfileika- og námsmanni einmitt á þeim árum sem fólk fluttist unnvörp um til Ameríku. Þá þurfti mikinn kjark og trú á landið til að stofna bú. Hafís, fjárfellir og önnur óáran herjaði sveitir. Lengst af bjuggu þau hjónin Halldóra og Jón að Kirkjubæ í Húnaþingi, eða yfir 30 ár. Þau eignuðust fjórar dætur sem allar hafa erft marga góða kosti for- eldranna. Gunnfríður myndhöggv ari, Jónína gift fyrrverandi bónda Eggert Sölvasyni, Þóra gift Jóhanni Guðmundssyni kaup sýslumanni og Einara gift Hirti Kristmundssyni skólastjóra. Halldóra og Jón brugðu búi 1928 og fluttust þá til Siglufjarð- ar, bjuggu síðan hjá dóttur sinni Þóru og manni hennar Jóhanni Guðmundssyni. Jón dó 1935 og var jarðsettur á Siglufirði. Síðan fluttist frú Halldóra til Seyðis- fjarðar með tengdasyni sínum og dóttur, þar dvaldist fjölskyldan um fimm ára skeið en fór síðan til Reykjavíkur. Þau 29 ár, sem frú Halldóra dvaldist á heimili þeirra hjóna sat hún lengst af við handavinnu. Tók á móti venzlafólki sínu og vinum. Bar þá oft margt á góma. Forn fræðimennska, skáldskapur og minningar frá æskustöðvum. Það var ósk gömlu konunnar að hún yrði jarðsett við hlið manns síns. Þangað voru jarð- neskar leifar hennar fluttar nú er fyrsti snjórinn féll á Siglu- fjarðarskarði í heiðu og björtu veðri. Þannig hafði líf hennar verið erilsamt, heiðríkt og tært. Þannig mun hún lifa í minningu ætt- ingjanna og vinanna sem kvöddu hana, áður en hún lagði af stað í ferðina löngu. Guðmundur Einarsson frá Miðdal. Skritstofustarf Stúlka óskast til skrifstofustarfa, verzlunarskóla- próf æskilegt. Umsóknir sendist í pósthólf 529 fyrir 22. þ.m. þorri fulltíða manna sé hlvnntur þéringum og séu þær tungutam- ar. Sú fullyrðing styðst við orða- 1 skipti mín við fjölda foreldra þeirra unglinga, sem gengið hafa í skóla hjá mér. Helztu mótbárur gegn þéringum hafa verið þess- ar: Þéringar væru tilgerðarlegar, og það væri ósamræmi í þvi, að hafa fornafnið í fleirtölu, en hlið- stæð orð önnur í eintölu. Síðari mótbáran hefur við rök að styðj- ast, en sú fyrri ekki, aðeins hátt vísi samkvæmt gamalli venju. Þéringar gjöra mun á því, hvort kunningsskapur er náinn eða ekki. Þúun fylgir og nokkur skylda. Þeir, sem þúast, nefnast líka þúbræður. Þéringar setja fáguð blæbrigði á samræður. Ef mönnum á að verða þéringar formið tungutamt, þurfa þeir að læra það. Heimili og skóli eru þeir aðilar, sem þetta ættu að kenna. Foreldrar núlifandi skóla- æsku er þess umkomnir og reiðu- búnir. Kynslóðir þær, sem nú vaxa úr grasi á íslandi, kunna þó ekki að þéra svo skammlaust sé. Búð- ar- og skrifstofufólk, um tvítugt eða yngra, þúar bráðókunnuga viðskiptavini, þótt eldri starfs- félagar þéri, eða þúa í öðru orð- inu en þéra í hinu. íslenzk kona, búsett erlendis, kom hér í orlof. Hún ferðaðist á vegum Flugfél- ags íslands. Hún rómaði alla fyrir greiðslu félagsins og háttvísi áhafnar vélarinnar. Eitt hnaut hún þó um, er í land kom. Ungur piltur var fenginn henni til fyrir- greiðslu í Reykjavík. Honum fór- ust svo orð við konuna: „Þú getur tekið hann, ef þú vilt“. Starfs- menn Ríkisútvarpsins þúa iðu- lega þá, sem þeir eiga orðaskipti við í áheyrn hlustenda. Þegar prófessor Magnús Jónsson var for maður útvarpsráðs, átti starfs- maður útvarpsins samtal við próf fessorinn í útvarpssal. Honum fór ust orð svo: „Hvað getur þú Magnús sagt hlustendum um vetr ardagsskrána?" Nýlega átti út- varpsmaður samtal við kvenlög- regluþjón í Reykjavík. Það hófst þannig: „Hvað getur þú Erla(?) sagt hlustendum frá starfi þínu?“ Sama er uppi á teningnum hjá blaðamönnum. Þeir þúa oft, birti þeir samtöl í blöðum sín- um, jafnvel þótt hvergi sjáist, hver blaðamaðurinn er. Þorri kennara í framhaldsskólum þúar nemendur, þó ekki allir. Leiður tvískinnungur ríkir hér, sumir þúa aðrir þéra. Nýr rektor er kominn að Menntaskólanum í Reykjavík. Ég tel víst, að hann haldi sínum fyrri hætti, þéri nemendur. Hann ætti nú að koma þeirri reglu á, að allir kennarar Menntaskólans þéruðu nemendur í kennslustundum. Það skapaði fordæmi öðrum skólum. Ríkisútvarp, blöð og skólar geta hér spyrnt við fæti og kennt ungu kynslóðinni þetta hefðbundna kurteisisform samræðunnar. Jón Á. Gissurarson. PíanókennsBa — Dansmúsik Byrja kennslu hinn 20. septeinber. Uppl. í síma 34696. Baldlur Kristfánsson Heiðargenði 45. DODGE 1953 til sölu — lítið keyrður og í góðu ásigkomulagi. Þeir, sem vildu sinna þessu, leggi nöfn sín á afgr. MBl., fyrir föstudagskvöld merkt: „Staðgreiðsla —6636“. Duglegan ug reglusamann mann vantar oss til verkfærageymslu o. fl. P. Stefánsson hf. Aluminium Aluminium í sléttum plötum er nú fyrirliggjandi í eftirtöldum þykktum: 0.6 — 0.8 — 1 — 1.50 og 2 mm. Plötustærð 1x2 metrar. SINDRI HF. Sími: 1-94-22. Galvaniseraður 3 og 4 mm nýkomin. SINDRI HF Sími: 1-94-22.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.