Morgunblaðið - 21.11.1957, Síða 2
2
MORCVNBL4Ð1Ð
Fimmtudagur 21. nóv. 1957
Núkvæm athugun á fríverzl-
unarmálinu er tímahær
Dr. Jóhannes Nordal sagði i gærkvöldi
frá fundi i Paris Jbar sem m.a. var rætt
um verzlun með fisk og verndun iðnaðar
1 FRÉTTAAUKA í Ríkisútvarp-
inu í gærkvöldi, sagði dr. Jó-
hannes Nordal frá fundi, sem
ráöherranefnd sú, sem nýlega
var skipuð til að vinna að und-
irbúningi fríverziunarsamnings-
ins, hélt í París 14.—16. þ. m.
Sat dr. Jóhannes fundinn ásamt
Agnari Kl. Jónssyni ambassador.
Dr Jóhannes sagði m. a.:
„A þessu stigi umræðanna er
hlutverk ráðherranefndarinnar
fyrst og fremst það að kanna
viðhorf og vandamál þátttöku-
rílyanna varðandi þátttöku í
væntanlegu fríverzlunarkerfi og
leitast við að sýna fram á, hvern-
ig leysa megi einstök vandamál.
Að sjálfsögðu kemur ekki til
mála að afstaða einstakra ríkja
á þessu stigi málsins sé bind-
andi.
Fyrst um sinn verða vanda-
málin rædd hvert fyrir sig, en
þátttökuríkin geta ekki tekið
lokaafstöðu, fyrr en samnings-
uppkast liggur fyrir í heild. All-
mikill ágreiningur varð á fund- í
inum um afstöðu til einstakra
mála, sérstaklega verður sá vandi
torleystur að samræma til fulls
sjónarmið þeirra 6 ríkja, sem
myndað hafa sameiginlegan
markað sem gerir ráð fyrir mjög
nánu efnahagssamstarfi, sjónar-
miðum hinna þátttökuríkja
Efnahagssamvinnustofnunarinn-
ar, sem óska eftir miklu lausara
samstarfi.
Um afstöðu íslands til þess-
ara samninga er það að segja að
sem þátttakendur í Efnahagssam-
vinnustofnun Evrópu hafa íslend
ingar fylgzt með gangi málanna
frá upphafi og komið á fram-
færi skoðunum sínum varðandi
þau vandamál, sem þátttaka í
fríverzlun hlyti að hafa í för
með sér fyrir efnahagskerfi ís-
lands.
Á þessum fundi gafst tækifæri
til þess að gera enn einu sinni
nokkra grein fyrir þessari af-
stöðu og er ástæða til þess að
rekja þann þátt málanna, ekki
sízt vegna villandi blaðafrétta,
sem borizt hafa hingað til lands
af fundinum .......
Á fundinum voru tll um-
ræðu tvö mál, sem eru sér-
staklega mikilvæg fyrir af-
stöðu íslands. Annars vegar
hvernig fara skuli með land-
búnaðar- og fiskafurðir innan
fríverzlunarsvæðisins — og í
öðru lagi um stöðu þeirra
landa, sem skemmra eru á veg
komin í iðnaði og vænta má,
að fríverzlun valdi þar af Ieið-
andi sérstökum erfiðleikum."
Landbúnaðar- og fiskafurðir
Um fyrra atriðið sagði dr.
Jóhannes m. a., að upphaflegu
tillögumar, sem einkum voru
settar fram af Bretum, hefðu
gert ráð fyrir, að fríverzlun-
in næði aðeins til iðnaðarvara
og hráefna, en afurðir land-
búnaðar og sjávarútvegs yrðu
undanskildar.
Um þetta hefur verið mikill
ágreiningur, en að undanfömu
hefur þokazt í samkomulagsátt,
að sögn dr. Jóhannesar. Bretar
komið að allmiklu leyti til móts
við sjónarmið annarra þátttöku-
ríkja. Óvíst er enn um niður-
stöðu, en vænta má málamiðlun-
ar, þar sem gert yrði ráð fyrir
frjálsari verzlun með þessar af-
urðir, þ. á m. einhverjum tolla-
lækkunum og ýmsum sérstökum
ráðstöfunum til að auka útflutn-
ing landbúnaðar- og sjávaraf-
urða.
Fulltrúar íslands hafa jafnan
á það bent, að svo að segja allur
útflutningur landsins er annað
hvort fiskur eða fiskafurðir en
af því leiðir að sjálfsögðu, að
verði þessar afurðir ekki tekn-
ar með nyti íslenzkur útflutn-
ingur aí henni lítils eða einskis
góðs, en jafnframt yrðu íslend-
ingar að leyfa frjálsan innflutn-
ing, er myndi hafa veruleg
vandamál í för með sér.
Það er viðurkennt sem eitt
meginsjónarmið samninganna, að
sem mest jafnvægi sé á milli
skuldbindinga og ávinnings hvers
þátttökuríkis. Er ekki unnt að
ætlast til, að lönd verði full-
komnir þátttakendur, ef útflutn-
ingsverzlun þeirra skapast á eng-
an hátt hagstæðari skilyrði vegna
fríverzlunarinnar.
Síðan sagði dr. Jóhannes:
„Á þessum fundi var á það
bent af hálfu Islands, að það
skipti íslendinga meginmáli, að
allar sjávarafurðir yrðu teknar
með í fríverzluninni, ef af henni
verður. Ef þessar vörutegundir
yrðu undanskildar mundi ísland
hafa lítinn sem engan hag af frí-
verzlun, sem vegið gæti á móti
þeim vandamálum, sem frjáls
innflutningur iðnaðarvara myndi
skapa á íslandi, og slík útilokun
gæti jafnvel gert þátttöku íslands
í fríverzlnnarsvæðinu ómögu-
lega.
Um þetta atriði verður varla
deilt, a. m. k. ekki á meðan hlut-
ur íslenzks sjávarútvegs í út-
flutningi landsmanna er eins
mikill og nú er.
Hins vegar verða menn að
muna, að það er ekki líklegt,
að um það verði að ræða, að
fiskafurðir verði annað hvort
allar með í fríverzluninni eða
allar útilokaðar. Eitthvert stig
þarna á milli er vafalaust lík-
legt, og þá verður mim meiri
vandi að velja. Á þessu stigi
málsins er mest um vert, að
öllum þátttökuþjóðunum sé
Ijóst, hve mikilvægt þetta mál
er fyrir afstöðu íslands til frí-
verzlunannálsins.“
Vandamál þeirra þjóða, sem
skammt eru á veg komnar
í iðnaði.
Þessu-næst ræddi dr. Jóhann-
es Nordal um vandamál þeirra
þjóða, sem skammt eru á veg
komnar í iðnaði.
Hann sagði:
„Þegar í upphafi umræðnanna
um fríverzlunarmálið bentu
nokkrar þjóðir, þ. e. a. s. Irar,
Grikkir, Tyrkir og íslendingar á
það, að vegna erfiðrar samkeppn-
isaðstöðu ýmissa orsaka vegna
væri ólíklegt, að þau gætu frá
upphafi orðið þátttakendur í frí-
verzl unarsamningnum á sama
hátt og aðrir. Vandamál þessara
ríkja hafa verið til athugunar hjá
sérstakri nefnd, en niðurstaða
þeirra athugana hefur orðið sú,
að tvennt virðist nauðsynlegt til
þess að gera þessum ríkjum kleift
að gerast aðilar að fríverzlunar-
samningunum."
f fyrsta lagi þurfi þau að
fá undanþágur frá ýmsum
skuldbindingum samningsins
um eitthvert tiltekið árabil,
t. d. frestun á lækkun ákveð-
inna verndartolla og undan-
þágur frá afnámi vissra inn-
flutningshafta o. s. frv. Þess-
ar undanþágur myndu gefa
þessum ríkjum betri tima til
þess að aðlaga efnahagsstarf-
semi sína hinum nýju aðstæð-
um.
I öðru Iagi hefur verið lagt
til, að beinar ráðstafanir yrðu
gerðar til að flýta fyrir efna-
hagsþróun þessara landa með
því t. d. að beina því fjár-
magni til þeirra, sem nauð-
synlegt væri í því skynL
íslendingar hafa að sjálfsögðu
stutt þessi sjónarmið, og á fundi
ráðherranefndarinnar studdu ís-
lendingar tillögu Grikkja um að
sett yrði á fót sérstök stofnun,
er hefði það hlutverk að örfa iðn
þróun þessara ríkja, einkum með
lánveitingum. Að sjálfsögðu var
engin endanleg niðurstaða fund-
in í þessu máli, en það sjónar-
mið átti tvímælalaust miklu fylgi
að fagna meðal þátttökuríkjanna,
að eðlilegt sé, að þessi lönd hafi
allverulega sérstöðu bæði að því
er varðar undanþágur frá ýmsum
ákvæðum samningsins og fjár-
magnsþörf. Og var ákveðið að
halda áfram nánari rannsókn á
þessum grundvelli."
Rækileg yfirvegun nauðsynleg.
Að lokum sagði dr. Jóhannes: „Af
því, sem nú hefur verið sagt, ætti
að vera ljóst, að enn er langt í
land, áður en fyrir liggur upp-
kast að fríverzlunarsamningi, sem
íslendingar geta tekið endanlega
afstöðu til. En engu að síður er
sá tími, sem nú fer í hönd, mikil-
vægur. Það er ekki aðeins nauð-
synlegt að sjá um, að full grein
sé gerð fyrir hagsmunum íslands
við samningaborðið, heldur verða
menn hér heima fyrir að taka hin
nýju viðhorf til rækilegrar yfir-
vegimar.
Hverjir eru hagsmunir útflutn
ingsins, ef til málamiðlunar þarf
að koma varðandi friverzlun með
fiskafurðir?
Hvaða verndartollar og höft
eru svo mikilvæg, að tslendingar
þurfa að fá undanþágu frá af-
námi þeirra?
Hverjar eru þær iðngreinar,
sem tslendingar ætla að leggja
áherzlu á að byggja upp með
hugsanlegum lánum frá þátt-
tökurikjum fríverzlunarsvæðis-
ins?
Slíkum spurningum þurfa ts-
lendingar að geta svarað áður en
langt um líður.
Fríverzlunin opnar nýja fram-
tíðarsýn fyrir íslenzku þjóðina,
en myndin er ennþá óskýr. Það
er hlutverk okkar sjálfra að
draga ýmsa helztu drættina."
Bókasufnsmálið í Þjóðleikhúsinu
há-lögfrœðilegt mál í Hæstarétti
í HÆSTARÉTTI er genginn dóm
ur í máli Lárusar Sigurbjörns-
sonar og Þjóðleikhússins, en mál
þetta reis út af bókagjöf til Þjóð-
Ieikhússins, er Lárus gaf. Nokkru
síðar var honum sagt upp
starfi því er hann hafði með hönd
um við safnið, og þá tók hann
safnið með sér burt úr Þjóðleik-
húsinu, en þangað hafði hann
flutt það.
Mál þetta er frá lögfræðilegu
sjónarmiði séð hið merkasta,
enda var það prófmál fyrir Hæsta
rétti. Verjandi Þjóðleikhússins
í því var Páll Ásg. Tryggvason
er nýlega hefur öðlast rétt til mál
flutnings fyrir Hæstarétti. Fyrir
Lárus Sigurbjörnsson var Magnús
Thorlacius hrl.
Dómsforsendur Hæstaréttar í
máli þessu eru alls um 8 fólíó sið
ur. Dómendur voru ekki á einu
máli um dómsúrslit og skiluðu
tveir sératkvæði.
Að þessu sinni verða forsend-
ur dóms Hæstaréttar ekki raktar.
Þau urðu úrslit málsins að Hæsti-
réttur leit svo á að eins og gjafa-
bréfinu væri háttað, væri ekki
hægt að rjúfa sambandið milli
bókagjafarinnar og þess að Lárus
væri starfsmaður bókasafns Þjóð
leikhússins. Aftur á móti var
Lárusi gert að afhenda Þjóðleikh.
þann hluta safnsins sem hann
samkv. gjafabréfi hafði afhent og
átti að hafa afhent og honum gert
að gera yfir það skrár. Var Þjóð-
leikhúsinu gert að endurráða
Lárus 60 dögum eftir dómsbirt-
ingu. Ef Lárus lætur birta Þjóð-
leikhúsi dóminn og það hefst ekk
ert til endurráðningar Lárusar
innan 60 daga þá fellur bókasafn
ið allt í eigu Lárusar og hann
verður laus allra mála.
Ó, herra Budda,sýndu
miskunnsemi
Cirarú' fékk skilorðsbundinn dóm
TÓKlÓ, 20. nóv. — Bandaríski
hermaðurinn, William Girard,
sem er 22 ára að aldri og ákærð-
ur var fyrir morð á japanskri
konu, hefur nú verið dæmdur í
þriggja ára skilorðsbundið fang-
elsL Þykir það mildur dómur. —
Eins og kunnugt er af fyrri frétt-
um, vakti mál Girards mikia at-
hygli á sínum tíma. Hann skaut
konuna, á meðan hann stóð vörð
á yfirráðasvæði bandarískra her-
manna. Var konan, Naka Sakai,
að safna brotajárni, þegar hún
var drepin. Málið vakti ólgu í
Japan og kröfðust Japanir þess,
að dómstólar þar í landi fjölluðu
um það. Þrátt fyrir mótmæli í
Bandaríkjunum varð það ofan á.
Nú hefur Girard hlotið sinn dóm.
— Verjandi Girards hélt því
m. a. fram, að bandarískur her-
réttur skyldi fjalla um málið, en
það var ekki tekið til greina.
Girard er kvæntur japanskri
konu, Haru Girard að nafni. Hún
er 28 ára gömul. Skömmu áður
Grænlandsflug íiefur
strandað á fjárskorti ,
KAUPANNAHÖFN, 20. nóv. — Information segir í gær: — A
morgun verður tekið fyrir í þinginu, hvort ekki sé ástæða til að
hefja flugferðir í Grænlandi. Þessi spurning verður borin fram í
spurningatíma þingsins af Augo Lynge, þingmanni frá Grænlandi.
Information segir, að Kai
Lindberg Grænlandsmálaráð-
herra muni væntanlega svara
eitthvað á þá leið, að það sé rétt,
að einasta Grænlandsvélm hafi
verið kölluð heim, þar sem ekki
verði hægt að halda Narssarss-
nakvellinum opnum yfir vetrar-
mánuðina.
Lengi hefur verið rætt um
farþega- og vöruflutniugaflug
í og til Grænlands, en málið
hefur alltaf strandað á fjár-
skorti. Áður en slíkt flug get-
ur hafizt, verður að leggja
tvo flugvelli, annað við
Jakobshöfn, hinn við Godt-
haab.
Síldin of lífið sölf uð
GJÖGRI, 20. nóv. — f gær tók
Dettifoss saltsíldina hjá h.f.
Djúpavík og voru teknar 520
tunnur af 1500. Rússneskur mað-
ur kom sl. laugardag til að meta
síldina. Fannst Rússanum síldin
öll góð, að öðru leyti en því, að
hún væri of lítið söltuð. Þess
vegna voru ekki teknar fleiri
tunnur. — Regína.
en dómur var felldur í máli
manns hennar, kraup hún á kné
fyrir framan kertaljós og bað
bæn sína: — Ó, herra Budda,
sýndu miskunnsemi.
Slys í semenfsverk-
smiðjunni
AKRANESI, 20. nóv. — í gær
um miðjan dag, varð það slys í
sementsverksmiðjunni, að brak
úr vinnupalli sem féll niður slóst
utan í tvo verkamenn sem voru
við vinnu sína og meiddust þeir
báðir, en hvorugur hættulega.
Voru þetta Samúel Guðmunds-
son, sem marðist á mjöðm og
Sveinn Elíasson, en hann meidd-
ist öllu meira, fékk vatn á milli
liða í hné, marðist á baki og á
öxl. Mennirnir voru báðir fluttir
í sjúkrahúsið til athugunar.
Meiðslin voru ekki talin hættu-
leg og voru þeir báðir fluttir
heim til sín að læknisaðgerð
lokinni. — Oddur.
Verðaaðleilahafnar
sökum veikinda
HAFNARFIRÐI — Togarinn
Júní, sem verið hefur á veiðum
í aðeins nokkra daga, varð að
hætta þeim og koma hingað inn,
sökum þess að 12 menn af skips-
höfninni voru sjúkir af inflúenzu.
Er ekki búizt við að hann komizt
á veiðar aftur fyrr en eftir helgL
— Annars má geta þess, að inflú-
enzan er nú í rénun hér í Firð-
inum.
Er þetta fyrsti hafnfirzki tog-
arinn, sem þannig verður ástatt
um, en áður höfðu skipshafnir á
togurum í Reykjavík veikst af in-
fúenzu, þannig, að þeir urðu að
leita hafnar.
Mjög lítil fiskveiði er nú hjá
togurunum, og tíð oft slæm. —
Landað var úr Júlí hér í vikunni.
Surprise er um það bil að selja
í Þýzkalandi, en hinir togararnir
eru á veiðum. —G.E.
Var morðinginn mannæta?
NEW YORK 20. nóv. — Banda-
ríski bóndinn Ed Geic hefur verið
handtekinn og ákærður um morð.
Þegar lögreglan ræddi við hann
út af morði 58 ára gamallar konu,
Mrs. Bernice Worden, sagði hann
upp úr þurru: Ég hef myrt í sjö
ár. Síðan bætti hann við, að hann
hefði alltaf kyrkt fórnardýr sín.
Hann neitaði, að hann væri mann
æta, en gat enga grein gert fyrir
því, hvers vegna hjarta frá Word-
en hafði verið sett í pott, eins og
í ráði hefði verið að sjóða það.
I skrifborði Geic fann lögregl-
an blaðaúrkliþpur um a. m. k.
tíu konumorð í Wisconsin undan-
farin sjö ár og hefur ekkert
þeirra verið upplýst ennþá. Gert
er ráð fyrir, að bóndinn hafi kom-
ið þar við sögu.