Morgunblaðið - 21.11.1957, Síða 20
Kraftmikil gufugos fást við jarð-
borun í Hveragerði
MJÖG kraftmikið gufugos hófst skyndilega í gær úr tveimur bor-
holum í Hverager'ði. Er þatf von þorpsbúa, að úr þessum gosum
megi fá orku til að stækka hitaveituna í Hveragerði.
SÆFINNUR — á siglingu.
(Ljóm. Björn Björnsson).
Gamall báfur fórst í Horna-
firði í fyrrinólt
Höfn í Hornafirði, 20. nóv.
HÉR við Hornafjarðarós fórst í
gærkvöldi vélskipið Sæfinnur,
sem var á leið hingað með vörur.
Á skipinu var fimm manna áhöfn
og einn farþegi og komust menn
þessir allir heilu og höldnu í land.
Sæfinnur brotnaði í spón í nótt
í foráttu brimi á strandstað.
Ástæðan til þessa óhapps var mik-
ill straumur, er hið 42 ára gamla
skip fékk ekki staðizt.
Sæfinnur var að koma frá
Reykjavík. Þaðan hafði skipið
lagt af stað um hádegisbilið á
laugardaginn var. Tafir höfðu
orðið, því að vélbilun gerði vart
við sig á leiðinni.
Skipstjórinn á Sæfinni, Konráð
Konráðsson, hafði beðið hafnsögu
manninn hér að vera til taks við
Hornafjarðarós um klukkan 5 í
gær. Skipið var þar þó miklu
síðar svo að. komið var útfall.
Hafnsögumaðurinn fékk mótor
bát með sig til móts við Sæfinn,
en honum skyldi siglt í kjölfar
báts þess er hafnsögumaðurinn
var á. Slíkt er iðulega gert hér,
þegar sjór er ekki ládauður.
Þegar Sæfinnur sigldi upp ós-
inn, var komið svo mikið útfall,
að straumurinn þar var með allt
að 7 mílna hraða. Sæfinnur hafði
8% mílu ganghraða gegn straumn
um.
Siglingin virtist því ganga all-
sæmilega. Þegar komið var inn
undir Austurfjörutanga, virðist
Sæfinnur hafa borizt eitthvað til
í straumnum, og strandaði hann
á sandeyri. Svo þungur var
straumurinn, að skipið smá-
þokaðist niður ósinn, án þess
þó að losna alveg. Þegar
það var komið miðja vegu
milli Þingnesskerja og Hleina við
Hvanney, rak það upp í fjöruna,
en þá er svo utarlega komið, að
úthafsbáran skellur þar á sand-
inn. Veður var ekki vont, en sjó-
lag slæmt. Sjór brotnaði lítils-
háttar á bátnum. Skipverjum
var nú bjargað í land í björgunar-
stól, en björgunarsveitin var kom
inn á staðinn og var til taks. Gekk
björgun mannanna greiðlega og
komust allir ómeiddir í land.
Klukkan 1 um nóttina, er veður
tók að vaxa, án þess komið væri
slæmt veður — brotnaði báturinn
með svo skjótum hætti, að það
var sem hendi væri veifað.
Það hefur lítið rekið úr farmi
bátsins í dag, en hann var með
alls konar stykkjavöru, t.d. 100
sekki af einangrunarull í þak
barnaskólans, mikið af hjólbörð-
um, veiðarfærum, matvöru, fóður
vörur og margt fleira. Voru þess-
ar vörur á leið hingað. Er mikið
tjón af þessu strandi.
Skipið var byggt árið 1915 í
Bretlandi og var eigandi þess Jón
Franklin.
Auk Konráðs Konráðssonar
skipstjóra, voru á skipinu Stígur
Guðjónsson, Eggert Sveinsson,
Hreinn Hreinsson og Andrés
Magnússon. Farþeginn var Sigur-
páll Ófeigsson frá Stöðvarfirði.
STJÓRNMÁLANÁMSKEIÐ Heim-
dallar heldur áfram í Valhöll í
kvöld kl. 8,30. Þá mun Birgir
Kjaran hagfræðingur flytja erindi
um Sjálfstæðisstefnuna. Að
því loknu mun fyrirspurnum
verða svarað og kvikmynd sýnd.
Birgir Kjaran hagfræðingtir
Heímdellingar eru hvattir til að
fjölmenna og mæta stundvíslega.
★
FUNDUR verður haldinn í full-
trúaráði Heimdallar n.k. föstu-
dagskvöld kl. 20,30 í Valhöll. Rætt
verður um ýmis atriði varðandi
vetrarstarfið.
Kynning á verkum
Guðmundar á Sandi
Bókmenntakynning í hátíðasal háskól-
ans í kvöld
m -mw'- ‘v-
Guðmundur Friðjónsson
ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ
gengst í kvöld fýrir kynningu á
verkum Guðmundar Friðjónsson-
ar í hátíðasal Háskólans. Hefst
kynningin kl. 9 e. h.
Dr. Þorkell Jóhannesson, há-
skólarektor, flytur erindi um
skáldið. Finnbjörg Örnólfsdóttir,
Helgi Hjörvar og Karl Kristjáns-
son lesa upp kvæði og Þorsteinn
Ö. Stephensen smásögu. Þá les
dr. Broddi Jóhannesson eina af
ritgerðum Guðmundar. — Þor-
valdur Steingrimsson, Jóhannes
Eggertsson og Fritz Weisshappel,
leika íslenzka tónlist.
Guðmundur á Sandi er í hópi
sérstæðustu og merkustu ís-
lenzkra skálda þessarar aldar. —
Heildarútgáfa á verkum hans
kom út nýlega og á næstunni gef-
ur Almenna bókafélagið út úrval
úr smásögum hans.
ABalfundur LÍÚ hefst í dag
Viðræður fara að hefjast um starfsgrundvöll'
útgerðarinnar.
AÐALFUNDUR Landssambands
íslenzkra útvegsmanna LÍÚ hefst
í dag kl. 2 og verður haldinn í
Oddfellowhúsinu. Sverrir Júlí-
usson formaður sambandsins set-
ur fundinn og mun þá ávarpa
fulltrúa, sem hann sitja.
Þá fara fram kosningar á fund
arstjóra og í nefndir, en að öðru
leyti verður dagskrá fundarins
á þá leið, að flutt verður árs-
skýrsla sambandsstjórnar og síð-
an verða umræður um hana. Þá
munu fulltrúar útvegsmannafé-
laganna víðsvegar um landið
flytja skýrslur um starfsemi fé-
laga sinna. Sjóvarútvegsmálaráð-
herra, Lúðvík Jósepsson, mun
ávarpa fundinn á morgun (föstu-
dag). Búizt er við að fundurinn
standi 3—4 daga.
Höfuðviðfangsefni fundarins
mun verða að taka afstöðu til
vandamála sjávarútvegsins, sem
við blasa og marka stefnuna í
viðræðum við ríkisstjórnina, sem
bráðlega mumi verða upp tekn-
ar, og fjalla um starfsgrundvöll
sjávarútvegsins á næsta ári.
Hitaveitan í Hveragerði þarf á
auknu gufumagni að halda og
var þess vegna hafizt handa í
sumar að bora eftir meiri gufu á
hverasvæðinu, sem er inni í þorp
inu. Notaðir voru venjulegar bor-
vélar frá Jarðborunum ríkisins,
með 8 tommu vídd.
Síðari hluta sumarsins var bor-
uð hola niður í 130 metra dýpi
en varð ekki árangur af því. Síð-
ar var tekið til við aðra holu
ekki allfjarri.. Þegsir hún hafði
verið boruð niður í 54 metra dýpi
í gær, skeði það allt í einu, að
gufugos brauzt upp úr henni,
en ekki nóg með það, heldur
fór einnig að gjósa upp úr fyrri
og dýpri holunni.
Þessi gos standa mjög hátt í
loft upp. Það virðist vera nær
eingöngu gufa sem kemur upp
og standa gosin stöðugt án þess
að nokkur hlé komi á milli.
Bílsljóra ógnað með „skamm-
byssu", sem reyndisl loftbyssa
Létu hann afhenda sér 1000 kr. og tóku bíl hans.
NÚ sitja undir lás og slá í „Stein-
inum“ tveir ungir menn, 17 ára
og tvítugur, sem í fyrrakvöld
ógnuðu leigubílstjóra hér í bæn-
um með byssu. Tóku þeir ráðin
af honum yfir bílnum og þving-
uðu síðar til þess að láta sig hafa
1000 krónur í peningum.
Forsaga máls þessa er sú, að
leigubílstjórinn tók menn þessa
upp í bíl sinn inn við Hlemm-
torg. Þeir spurðu strax bílstjór—-hversu mikið sem hann reyndi.
ann hvort hann ætti ekki vín, en
því neitaði hann. Nokkru síðar
eða þegar komið var á móts við
flugbrautina, sem liggur fram í
fjöru, suður í Skerjafirði, en veg-
urinn liggur rétt við brautarend-
ann, var numið staðar. Fóru báð-
ir piltarnir út úr bílnum, en
komu að vörmu spori aftur, og
settist þá annar í framsætið hjá
bílstjóranum. Og um leið dró
hann upp litla byssu — skamm-
byssu að því er bílstjóranum
virtist — beindi henni að bíl-
stjóranum og skipaði honum út
úr bílnum. Bílstjórinn sá, að hér
var ekki um neina undankomu
að ræða, svo að hann sté út.
Síðan gaf hann félaga sínum fyr-
irskipun um að leita að áfengi
í bílnum á meðan, hvað hinn
gerði, en leitin varð árangurs-
laus. — Byssumaðurinn skipaði
síðan bílstjóranum að setjast í
aftursæti bílsins, bað svo félaga
sinn setjast við stýrið og aka
bílnum. Litlu síðar var aftur
numið staðar þar suður frá. —
Byssumaðurinn skipaði nú bíl-
stjóranum að afhenda sér 1000
kr., að öðrum kosti myndi hann
hafa verra af. Bílstjórinn sá sér
ekki annað vænna en gera það.
Einnig heimtaði hann kvittun
fyrir tveim flöskum af brenni-
vini, sem hann og fékk. Var nú
ekið inn í bæinn aftur og vildi
byssumaðurinn nú fá að aka
bílnum. Sagði hann félaga sínum
að taka við byssunni og halda
bílstjóranum í skefjum með
henni. Hinn vígreifi unglingur
réð ekki alls kostar við bilinn,
því að á horni Ægissíðu og Nes-
vegar drap hann á honum og
kom bílnum ekki í gang aftur,
Þeir fóru nú allir úr bílnum og
reyndu að ýta honum í gang án
árangurs. Bíllinn vildi ekki í
gang fara. Þá stingur bílstjórinn
upp á því að þeir fái annan bíl,
sem ákveðið er að bílstjórinn
skuli nó í. Hann hringdi auðvitað
beint í lögregluna, sem kom að
vörmu spori, en þá voru árásar-
mennirnir horfnir.
Bílstjórinn fór með rannsókn-
arlögreglumönnum gegnum
myndasafn tæknideildarinnar, og
þar taldi hann sig þekkja
byssumanninn, sem hefði haft
frumkvæðið, og var þá'hafin leit.
Var klukkan þá um 11.
Klukkan 1 fundu rannsóknar-
lögreglumenn svo árásarmennina
tvo á dansleik í Þórskaffi. Tví-
tugi pilturinn var með byssuna
á sér, og kom við athugun í ljós,
að hér var um að ræða loftbyssu,
sem hægt er að skjóta af blý-
högglum. Var eitt blý í byssunni,
en hún líkist mjög skammbyssu.
Árásarmennirnir játuðu þegar í
stað verknaðinn og töldu sig hafa
gert þetta til að hræða bilstjór-
ann. Þeir voru búnir að eyða 800
kr. af peningunum, sem þeir tóku
af bilstjóranum. — Báðir hafa
þeir áður komizt í kast við lög-
regluna, einkum þó sá eldri.
Skákmótið í Wageningen:
Donner - Friðrik jafntefli
og röð efstu manna óbreytt
14. UMFERÐ á flkákmótinu í
Wageningen var tefld í gær. Úr-
slit skáka þá urðu þessi:
Donner — Friðrik jafntefli.
Szabo — Larsen jafntefli.
Clarke vann Trojanescu.
Orbaan — Linðblom biðskák.
Uhlmann — Kolarov biðskák.
Alster vann Niephaus.
Diickstein — Trifunovic bið.
Ivkov vann Hanninen.
Teschner — Stáhlberg jafnt.
Eftir þessa umferð (3 umferðir
eftir) er röðin þannig:
Szabo 12 vinninga.
Friðrik 10% vinning.
Larsen 10 vinninga.
Donner og Stáhlberg 9% v.
Trifunovic og Uhlmann 8% og
biðskák hvor.
Teschner 7% vinning.
Ivkov 6% vinning.
Trojanescu 6 vinninga.
Diickstein og Kolarov 5% og
biðskák hvor.
Alster og Niephaus 5% v.
Clarke 5 vininga.
Hanninen 3% vinning.
Lindblom 2% og biðskák.
Orbaan 1% og biðskák.