Morgunblaðið - 24.11.1957, Side 11
Sunnudagur 24. nóv. 1957
M O R r, V V fí T 4 Ð 1Ð
11
Tilvalið til
skreytingar í verzlunum
til útstillinga
Vesturgötu 2
Sími 2433C
fiœót niÁ l öllum matvörulúhum
Skírnarhúfa. (Úr Hlín)
og hefir „Hlín“ þannig geymt
mikinn fjölda greina um mætar
konur, sem annars staðar hefir
ekki eða lítt verið getið. Er ritið
því að einum þræði merkilegt
mannfræðirit.
Upplag „Hlínar" hefir í mörg
ár verið 6000 eintök og er það
næsta mikið. Það hefir auk fyrr-
greindra minningargreina fjall-
að um ýmis dagskrármál kvenna
en þó fyrst og fremst gert sér
tíðrætt um stefnumál Sambands
norðlenzkra kvenna, sem voru
uppeldis- og fræðslumál, heil-
brigðismál, heimilisiðnaður og
garðrækt.
Ég spyr að lokum frk. Hall-
dóru, hvort hún hafi ekki oft
barizt í bökkum fjárhagslega
með þetta rit sitt, en hún svarar
skjótt: „Ég skulda aldrei neinum
neitt“.
Afmælisritið fjölbreytt
Þannig hefir „Hlín“ blómgazt
i 40 ár. Að þessu sinni flytur
ritið að venju margbreytilegt
efni svo sem 10 minningargrein-
ar, kvæði um- Akureyri, en á
Akureyri og í nágrenni bæjarins
hefir frk. Halldóra lengst átt
heima og stjórnað riti sínu það-
an. Þá eru 5 greinar um upp-
eldis- og fræðslumál, 4 greinar
um heimilisiðnað, greinar um
garðyrkju og heilbrigðismál.
Margt fleira er í ritinu svo sem
bréfakaflar og ýmir fróðleiks-
molar, svo og nokkrar myndir.
Ritstjórinn og 4 merkar konur
víðs vegar að af landinu skrifa
um hlutverk kvennablaðs og er
margt þar rætt af skarpskyggni.
Sýnilegt er að konur hafa full-
an hug á að halda út sínu eigin
málgagni og þeim er fyllilega
ljóst hvað það þarf að innihalda.
Stjórnmál hafa slík málgögn leitt
hjá sér.
Að lokum óska ég „Hlín“ og
móður hennar og „föður“, Hall
dóru Bjarnad. til hamingju með
afmælið og vona að báðar megi
enn lengi lifa til gagns og bless-
unar fyrir konur landsins og
þjóðarheildina.
vig.
Gott ráð er að nota eld-
■pýtur til þess að ná sinum úr
kjöti, með því að vefja sininni
upp á eldspýtuna.
Sænskur
lambakjötsrétfur
ÍSLENDINGAR borða öðrum
þjóðum meira kinda- og lamba-
kjöt. Þó er sá matur nokkuð borð
aður á Norðurlöndum en kunnug
ir segja að kindakjöt sé hvergi
betra en á íslandi.
Nýlega birtist í sænsku kvenna
blaði þessi uppskrift af lamba-
kjöts-rétti og einhverjum þætti
ef til vill gaman að reyna hann
við íslenzkt lambakjöt. Svíar
kalla réttinn „lammgryta".
1 kg lambakjöt (helzt beinlaust
eða með sem minnstum bein-
um).
1—2 laukar
Pipar, hvítlauksduft eða hvít-
laukssalt (ef hvítlauksduft er
notað verður líka að nota
venjulegt salt).
smjör eða smjörlíki
8 kartöflur
3—4 stórar gulrætur
grænar baunir
steinselja.
Kjötið skorið í þykkar sneiðar,
brúnað vel á pönnu, með sneidd-
um laukum, kryddað með salti,
pipar og hvítlauk. Kjötið og lauk
urinn sett í pott, volgu vatni hellt
á pönnuna og hrært í, svo kraft-
urinn úr kjötinu samlagist því.
Því síðan hellt í pottinn. Gulræt-
urnar skafnar og skornar í bita
ef þær eru mjög stórar, þær sett-
ar í pottinn ásamt afhýddum
kartöflunum. Lokið sett á og
þetta látið sjóða þangað til allt
V \ \ \ \ !
VERJIÐ HIIB MR GEGIH VETRARKULDANUM
NÆRANDI KREM
(Lanolín & Lecithin)
Einnig Oparfumerad
fyrir viðkvæma og ofnæmishúð
HORMONAKREM
(Styrkjandi)
HREINSUNARKREM
SÉRFRÆÐINGUR STOFUNNAR LEIÐBEINIR
VIÐSKIPTAVINUM kl. 3—6 daglega
- mmmmgmz -
PÓSTHÚSSTRÆTI 13 . SÍMI 17394
„Lammgryta1 er borinn fram í
pottinum eða djúpri skál
er orðið meyrt og mjúkt. Stein-
selju stráð ríflega yfir.
Við upphitun á þessum rétti,
má drýgja hann með því að setja
kartöflustöppu yfir og bregða
öllu inn í ofninn. Sveppasósa á
einnig vel við. Henni er hellt yf-
ir kjötið. Rifinn ostur ofan á og
síðan látið inn í ofn dálitla
stund.
Margir eru hræddir við kinda-
og lambakjöt. Finnst af því „ull-
arbragð", segir í sænska blaðinu.
En ráð segja þeir við því. Þá á
að bragðbæta kjötkraftinn sem
eftir er á pönnunni með nokkr-
um matskeiðum af sterku kaffi.
Það eyðir „ullarbragðinu". Hvít-
laukur á vel við kinda- og lamba-
kjöt. — H.
NESTI —
BENZlN —
NESTI (Drive in) Fossvogi
HÖfum fengið
matar- og kaffistell
staka matardiska
bollapör frá kr. 6.00
stálborðbúnað
og plastvörur í miklu úrvali
— Hagstætt verð —
(fER2LU.ir L