Morgunblaðið - 22.12.1957, Síða 10
10
MORCVNTiLAÐlÐ
Sunnudagur 22. des. 1951
Jólahald og víndrykkja
fara illa saman
„JÓLABORГ sem allt flýtur í
áfengi er glæpur, segir fram-
kvæmdastjóri sambands norsku
AA-félaganna, nýlega í viðtali
við blaðið „Folket“.
Eg hefi órækar sannanir fyrir
því,. segir framkvæmdastjórinn
ennfremur, að jólagleði fjölda
heimila er með öllu eyðilögð af
hinum svonefndu „Jólaborðum",
en það nafn hafa Þorláksmessu-
samdrykkjurnar hlotið, sem ýms-
ir starfsmannahópar og fyrir-
tæki, efna til á vinnustað og gera
sér það, sem þeir kalla „glaðan
dag“, í tilefni þess að brátt mun
mesta hátíð kristninnar ganga í
garð.
Beiðnir um aðstoð, um jóla-
leytið, hafa mjög aukizt í seinni
tíð, en það er ekki í tilefni
sjálfrar jólahátíðarinnar, heldur
einmitt vegna þessara samkoma,
sem efnt er til víðs vegar um
Osló-borg á Þorláksmessu, sem
rekja má ástæðuna að síauknum
döprum jólum. Já, verra en eng-
um jólum, fyrir fjölda heimila,
segir framkvæmdastjórinn, og
hann bætir við, með þunga í
röddinni. „Ég lýsi því yfir, að
þessar samkomur starfsmanna-
hópa og fyrirtækja á Þorláks-
messu er hreinn og beinn glæp-
ur, gagnvart fjölskyldum margra
þátttakendanna".
Fyrir tveim árum, var ég
hringdur upp af konu nokkurri.
Þetta var á 2. í jólum. Hún
skýrði mér frá því, að maðurinn
sinn hefði legið í rúminu frá
því á Þorláksmessu. Ég heim-
sótti þessa fjölskyldu og kynnti
mér ástæðurnar. Mér var sagt
allt af létta, um hag þessa fólks.
Maðurinn hafði komið heim á
Þorláksmessu klyfjaður áfengi.
Fyrr um daginn hafði hann ein-
mitt verið viðstaddur eitt þess-
ara áðurnefndu „Jólaborða".
Aðalveitingarnar voru áfengi, og
ríflega veitt. Eftir að „hófinu"
lauk notaði maðurinn alla þá
peninga, sem hann hafði, til
áfengiskaupa. Til þessa fóru all-
ir hans peningar, en kona hans
og þrjú börn þeirra, urðu að vera
matariaus um jólin.
Konan og börnin' voru síðan
I send á burt, en félagar úr AA-
samtökunum vöktuðu manninn
fram á 4. í jólum. Skiijanlega
voru þetta heldur ekki nein
gleðileg jól fyrir þá. I þessu sam-
bandi má varpa fram þeirri
spurningu, hvort slíkt sjálfboða-
starf sé réttlætanlegt gagnvart
varðmönnunum og þeirra nán-
ustu, einmitt á þessum tíma. En
því skal jafnframt svarað til, að
laun þessa erfiðis, hlutu þeir,
sem það lögðu á sig fullkomlega
greidd árið eftir, er fjölskylda
þessi kom öll á jólaskemmtun
AA, prúðbúin og vel fyrirkölluð
að öllu leyti. Því má ég bæta við
að maðurinn hefur verið full-
kominn reglumaður síðan.
Það gerir sér enginn grein fyr-
ir því, sem ekki kynnist af eig-
in raun, þeirri miklu hörmung,
sem leiðir af þessum svonefndu
„Jólaborðum“. Þegar drykkju-
hneigðir menn eru komnir í hóp
með starfsfélögum sínum við
slíkt tækifæri, eða trúnaðar-
mönnum þeirra fyrirtækja, sem
þeir vinna hjá, til þess að gera
sér „glaðan dag“ í tilefni þeirra
hátíðar sem í hönd fer, þá kann-
ast þeir ekki við veikleika sinn
gagnvart áfenginu, né vilja láta
á honum bera. Misskilið stolt
þeirra bannar það. Þeir verða
með. Það er og lagt að þeim á
ýmsan hátt, ef þeir sýna tilburði
í að sneiða hjá áfenginu. Þeim
er ýmist ógnað, eða lokkaðir með
falsi og fagurgala, þar til bragð-
að hefir verið á fyrsta staupinu.
Eftir það gengur allt að sjálfu
sér, undan brekkunni og á ógæfu
hlið.
Ég hefi spurt þá, sem eru
ábyrgir fyrir slíkum *jólaglaðn-
ingi, sem þessum, hvort það sé
álit þeirra, að rétt sé, á þennan
hátt, að gjöreyða jólagleði
margra fjölskyldna, kvenna og
barna. Þó það kunni að skapa
imyndaðar ánægjustundir, um
takmarkaðan tíma, til handa
vissum svallgefnum starfsmanna-
eða fulltrúahópi.
Ef stofna á til slíks „Jólafagn-
aðar“ af hálfu fyrirtækja, þá er
það mín bjargfasta skoðun, að
þar skuli ekkert áfengi um hönd
haft. Ég álít að það sé meira en
lítil ábyrgð, sem vinnuveitendur
taka á sig, er þeir stofna til
slíkra „Jólaborða" eða láta þau
viðgangast innan dyra fyrirtækja
sinna, þar sem allt flýtur í
áfengum drykkjum, segir fram-
kvæmdastjórinn að lokum. Satt
að segja stenzt ég ekki reiðari,
bætir hann við, en þegar ég minn-
ist allra þeirra barna, sem ör-
magna af gráti og hræðslu, verða
að eyða jólunum á heimilum,
þar sem faðirinn vitstola af
áfengisdrykkju, æðir um og böl-
sótast eins og naut í flagi og
eirir engu.
(Áfengisvarnanefnd
Reykjavíkur).
Einar Einarsson minnmg
HINN 5. september sl. andaðist
að heimili sínu á Sauðárkróki
Einar Einarsson, bifvélavirki.
Var Einar sonur hinna ágætu
hjóna, Einars Guðmundssonar og
Svövu Magnúsdóttur, að Selja-
landsvegi 17 í Reykjavík.
Fæddur var Einar yngri hinn
3. ágúst 1934.
Einar hafði um nokkurt skeið
kennt sjúkdóms þess er að síð-
ustu leiddi hann til bana, en
hann var ötull starfsmaður, sem
ekki vildi láta bugast fyrr en í
fulla hnefana. Loks fór þó svo að
hann varð að fara utan, til Dan-
merkur, og leita þar hjálpar
rægs heilaski’.rðarsérfræðings.
Ekki fékk Eináv þar þó fulla bót
meins síns, en komst þó heim til
foreldra sinna, sem önnuðust
hann af stakri alúð og umhyggju.
Á heimili þeirra komst hann það
til heilsu að hann afréð að fara
aftur til Sauðárkróks til fyrri
starfa síns. Gekk svo skamma
hríð • að honum tókst að stunda
vinnu, en sviplega breytti þó til
hins verra með heilsufar hans og
lézt hann þar á heimili sínu. —
Þessi ungi maður hafði orðið að
þola hinar mestu þjáningar í-sín-
um löngu veikindum, enn. bar
þær með hinni mestu þolinmæði
og hugrekki til hinztu stundar.
Eins og hér að framan er getið
var Einar af gæðafólki kominn í
báðar ættir, enda féll ekki eplið
langt frá eikinni hvað mannkost-
um hans og drenglyndi viðkom.
Einar var hávaxinn og fríður
sýnum. Allir sem til hans þekktu
báru til hans hlýjan hug sakir
vinsamlegrar framkomu hans í
hvívetná.
Einar var giftur Björg Aðal-
steinsdóttur og átt.u þau hjón
eina dóttir.
Engir foreldrar gátu sýnt syni
sínum meiri umhyggju og alúð,
ekki sízt eftir að Einar veiktist,
en foreldrar hans, sem að lokum
sóttu jarðneskar leifar hans norð-
ur og sáu um og önnuðust útför
hans hér í Reykjavík.
Fyrir um það bil 4 árum
misstu þessi góðu hjón annan
son sinn, Ragnar að nafni, mesta
efnispilt, og má því segja að
skammt hafi reynzt högga í
milli, og er því sár harmur að
þeim kveðinn þótt ei sé í Ijós
látið við hvern sem er. Ljúfar
minningar um báða þessa syni
fylla hugi þeirra og varpa geisl-
um inn í sorgarmyrltrið.
Sá er þessar línur ritar, óskar
þeim foreldrum Einars, konu og
eftirlifandi bræðrum allrar hugg-
unar og blessunar og hinum fram
liðnu sonum þeirra vaxandi
þroska á Guðs vegum.
R. Richter.
Walt Ðisney
myndirnir úr þessari fal-
legu lilskreyllu bók eru lekn
ar úr kvikniyndinni um
IjÍSU í Undralandi.
L I T B R Á
lesel
Framkvæmum viðgerðir á olíuverkum með fullkomn-
ustu tækjum og af æfðum fagmönnum.
Góð varahlutaþjónusta.
B OSC H umhoðsð á íslandi
BRÆÐU RNIR ORMSSON H.F.
VESTURGÖTU 3
SÍMI: 11467 (3 línur).
\
Karlmannaföf
fjölbreyttasfa lirvalið
Herrafrakkar
frá kr. 525
Leðurblússur
Kuldaulpur
Tjöld
Svefnpokar
Bakpokar
UUarteppi
Belti
Bindi
Sokkar
Peysur
MINERVA skyrfan í Öllum stœrðum
ESTRELLA skyrtur fjolbreitt úrval
SPORT-skyrtur margar gerðir
/f\£*c>W
Morgunsloppar
Náttföt
Laugaveg 27 — Sími 12303