Morgunblaðið - 22.12.1957, Blaðsíða 18
18
MORGZJTSBLÁÐIÐ
Sunnudagur 22. des. 1957
Þirfátíu ára afmæli
stákunnar Fróns
STÚKAN FRÓN nr. 227 varð 30
ára 10. þ. m , en hún var stofnuð
árið 1927 í þáverandi fundarsal
templara í Aðalstræti 8 (Breið-
fjörðshúsi). — Afmælisins var
minnzt með hátíðarfundi og
skemmtisamkomu í Templara-
höllinni á fundardegi stúkunnar
tveim dögum síðar, fimmtudag-
inn 12. þ. m. Fjölmenni var þarna
og hátíðarbragur. Fundarsalur-
inn, sem er bjartur og vistlegur,
búinn húsgögnum úr ijósri eÍK,
var smekklega skreyttur, og
höfðu konur í stúkunni annazt
skreytinguna.
Stúkunni bárust mörg heilla-
skeyti, bæði héðan úr bænum og
utan af landsbyggðinni, ennfrem
ur afmælisljóð, blóm og fleiri
góðar gjafir.
Afmælisfundur
Fundinum stjórnaði fyrsti
æðsti templar stúkunnar, Guð-
mundur Illugason lögregluþjónn,
sem ávarpaði gesti og stúkufé-
laga og bauð þá velkomna.
I Því næst var tilkynnt kjör
| Karls Karlssonar, fyrrverandi
æðsta templars, sem heiðursfé-
laga stúkunnar fyrir langt og
gott starf í þágu hennar. Afhend-
ing kjörbréfs til heiðursfélagans
fór fram með viðhafnarsiðum. Að
því loknu ávarpaði hann stúkuna.
Annar æðsti templar, Kristinn
Árnason umsjónarmaður, tók nú
við forsæti um stund, en Guð-
mundur Illugason mælti fyrir
minni stúkunnar og gat nokkurra
staðreynda varðandi hana og
störf hennar.
Stofnfélagar voru 49, af þeim
eru enn þrír í stúkunni, þau Hálf-
dán Eiríksson kaupm., Jón Haf-
liðason fulltrúi og frú Kristin
Sigurðardóttir, öll heiðursfélag-
ar. Gengið hafa í stúkuna frá upp
hafi 1007 konur og karlar. Nú er
félagatalan á öðru hundraðinu,
en hæst var hún 280 á tímabili.
Haldnir hafa verið 747 fundir.
Skipzt hafa á fræðslu-, umræðu-
og skemmtifundir. Og handritað
blað, Frónbúi, hefur verið lesið
á fundum öðru hverju síðan 1930.
Stúkan hefur boðið til sín full-
trúum frá öllum systurstúkum
við Faxaflóa og víðar af Suður-
landi til þess að auka kynningu
þeirra, efla og treysta samstarfið
og samræma það í baráttunni
gegn áfengisneyzlu og fyrir boð-
un bindindis Hún hefur haldið
sjálfstæða útbreiðslufundi hér í
bænum, ennfremur í félagi við
aðrar stúkur. Og um nokkurra
ára bil hélt hún áramótafundi
með guðsþjónustu fyrir almenn-
ing. Þá hefur stúkan og haldið
sex fjölmenna og ágætlega und-
irbúna bindindismálafundi á
fimm stöðum utan Reykjavíkur.
Frumkvæðið að Þingvallafundin-
um 1937, þeim áhrifaríka fundi
um bindindismál, sem sóttu um
hálft annað þúsund manns víðs
vegar af landinu, átti stúkan
Frón, en Umdæmisstúka Suður-
lands hafði veg og vanda af fram
kvæmd hans. Hinn 14. jan. 1937
var útvarpað fyrsta stúkufundin-
um hér á landi og var það frá
fundi stúkunnar Fróns. Undan-
farin ár hefur stúkan á hverju
ári boðið á skemmtun til sín
blindu og sjóndöpru fólki. Hefur
hún jafnan kóstað kapps um að
veita gestum sínum góðan beina.
Ekki hefur stúkan heldur van-
rækt að heimsækja aðrar stúkur
til þess að ræða við þær sameig-
inleg áhugamál. Stúkan Frón
hefur ætíð haft á að skipa raun-
sæjum og framsýnum mönnum,
sem mjög hafa og borið fjárhag
hennar fyrir brjósti, enda má
hann teljast góður, þrátt fyrir
mikil útgjöld, svo sem vegna út-
breiðslu, styrkja o. fl. Óskabarn
félaganna er Styrktarsjóður stúk-
unnar, sem starfar samkvæmt
staðfestri skipulagsskrá. Úr þess-
um sjóði er einkum veitt fé til
þess að styrkja og gleðja sjúka
eða fátæka og til að standa undir
dvalarkostnaði í hvíldar- eða
hressingarheimili, ennfremur til
að styrkja félaga þá, er þess
þurfa, til ýmiss konar náms, svo
að þeir megi verða hæfari til að
skapa menntandi félagslíf og efla
bindindisstarfsemi. Stjórn Styrkt
arsjóðsins skipa þessar frúr:
Ágústa Pálsdóttir formaður, Sig-
ríður Jónsdóttir ritari og Arn-
björg Stefánsdóttir meðstjórn-
andi, en gjaldkeri hans er hinn
sami og stúkunnar, Sveinn Sæ-
mundsson yfirlögregluþjónn. —
Stúkan Frón hefur ekki heldur
látið sitt eftir liggja að veita öðr-
um lið við öflun fjár, það stað-
festa t.d. skýrslur stórstúkunnar,
að því er tekur til sölu happ-
drættismiða Reglunnar á undan-
förnum árum.
Að lokum sagði frummælandi:
Stúkan Frón er vel metin og virt
fyrir þróttmikla starfsemi sína,
enda hefur hún ætíð átt innan
vébanda sinna hæfileikamenn,
ágætlega þjálfaða í starfinu og
jafnan fúsa til þess að fórna þekk
ingu, andlegri og líkamlegri
starfsorku fyrir stúkuna og mál-
efni hennar.
Þessu næst fluttu ávörp og
kveðjur þessir menn: Benedikt
Bjarklind stórtemplar, Þorsteinn
J. Sigurðsson umdæmistemplar,
Indriði Indriðason þingtemplar,
Einar Björnsson fyrrverandi þing
templar, Kristinn J. Magnússon
umboðsmaður stórtemplars £
stúkunni Daníelsher nr. 4, sem
færði stúkunni Fróni fagurlega
gerðan fundarhamar, Guðjón
Magnússon æ. t. stúkunnar Morg-
unstjörnunnar nr. 11, Jón Gunn-
laugsson æ. t. st. Framtíðarinnar
nr. 173, Jens Nielsson stórritari,
Pétur Sigurðsson ritstjóri og Hálf
dán Eiríksson heiðursfélagi £ st.
Fróni. Síðan var fundi slitið.
Skemmtisamkoma
Að loknum fundi voru í sam-
komusalnum frambornar hinar
rausnarlegustu veitingar, sem
konurnar í stúkunni stóðu fyrir,
og hófust fjörugar samræður, því
að allir voru glaðir og ánægðir,
í sannkölluðu hátíðarskapi.
Brynleifur Tobíasson áfengis-
varnaráðunautur ávarpaði sam-
komuna og flutti stúkunni þakkir
fyrir mikinn árangur í störfum
og árnaði henni allra heilla í nú-
tíð og framtíð.
Síðan skemmtu leikkonurnar
limilía Jónasdóttir og Áróra Hall-
lórsdóttir. Hlutu þær hinar beztu
nóttökur.
Að lokum tók til máls einn af
áhrifamönnum stúkunnar Fróns,
Ludvig C. Magnússon skrifstofu-
stjóri, og þakkaði hennar vegna
ræðumönnum öllum góðar kveðj-
ir þeirra, viðurkenningarorð og
framtíðaróskir, ennfremur öllum
eim, er minnzt hefðu stúkunnar
á margvíslegan hátt á þessum
ímamótum í starfsemi hennar.
læddi hann og nekkuð um innra
tarf stúkunnar, sérstaklega hinn
gæta félagsanda, er þar ríkir, og
ært hefði hana trausta, ekki að-
ins félagslega heldur og fjár-
mgslega. Síðan sagði hann sam-
comunni slitið.
Þorvaldur Ári Arason, Itdl.
lögmannsskrifstofa
Skólavörðustig 38
c/t- t’úll Jóh.Jtorletlsson h.f. - Pósth 621
SirnaT 1)416 og 13417 - Símnrtnt.Án
Þórarinn Jónsson
löggiltur skjalaþýðantli
og dómtúlkur í ensku.
Kirkjuhvoli. — Sími 18655.
fjölritarar og
efni til
íjölritunar.
.inkaumboð Finnhogi Kjartansson
Austurstræti 12. — Sími 15544.
Það er alls ekki eins auðvelt og
margir halda, að skrifa bækur fyrir
börn, og því síður að semja ævin-
týri við barna hæfi. Norska skáld-
konan Synnöve G. Dahl kann
þessa list, það sannar þessi litla bók.
Forráðamönnum Bókaforlags Odds
Björnssonar er það sönn ánægja
að fá tækifæri til að kynna
íslenzkum foreldrum og börnum
þeirra verk þessarar ágætu, norsku
skáldkonu.
Þeir foreldrar, sem ekki hafa jafn
mikla ánægju af að lesa þessi fallegu
ævmtýri fyrir börn sín, eins og börn-
in munu hafa gaman af að hlusta á
þau aftur og aftur, geta skilað bók-
inni aftur óskemmdri til forlagsins
fyrir næstu áramót, og munum við
þá endurgreiða kaupverðið!
Þessi litla, fallega, myndskreytta bók,
fæst í öllum bókaverzlunum og kostar
aðeins kr. 38.00.
Bókaforlag Odds Björnssonar
°6hdfhi œrín
í
b
3
U
&
3
l'
'L
%
II
JTóIcBffjöi við allrxs hæii
pennar og sett, tvöföld og þreföld.
Verð á pennum kr.: 72,25 til kr.: 662,60
Verð á settum kr.: 174.00 til 1173,70
Munið Sheaffers snorkel penna með hinni
fullkomnu fyllingu. —
EINKAUMBOÐ: EGILL GLTTORMSSOIM
Vonarstræti 4 — Sími 14189.
%
0
ö
f§
É
ö
II
}l
\í