Morgunblaðið - 22.12.1957, Síða 21
Sunnudagur 22. des. 1957
MORGVNBLAÐ1Ð
21
Framsóknaiflokkuiinn er oð
Innrétta iélagskeimilið í íshúsinu
Heiðubreið i óleyfi
Ur bréíi borgarstjóra til félagsmála-
láðuneytisiiis
A BÆJARSTJÓRNARFUNDI
í fyrradag gat borgarstjóri þess
af gefnu tilefni aS bréf hefði bor-
izt frá félagsmálaráðuneytinu,
þar sem óskað væri umsagnar út
af kæru húsbyggingarsjóðs Fram-
sóknarflokksins á henilur Reykja
víkurbæ, en sjóðsstjórnin hefur
snúið sér til ráðuneytisins út af
því að synjað hefur verið um
leyfi til innréttingar á hinu gámla
íshúsi Herðubreið við Fríkirkju-
veg, en Framsóknarflokkurinn
vill koma þar upp félagsheimili.
Ráðuneytið krafðist svars fyrir
20. þ. m. Borgarstjóra og Páli
I.índal skrifstofustjóra var falið
að svara og las borgarstjóri svar-
ið upp.
Hér á eftir fer meginefni þessa
svarbréfs, en lcturbreytingar og
kaflaskiptingar eru settar af
Morgunblaðinu.
„Með bréfi, dags. 27. júlí 1956,
var stjórn húsbyggingarsjóðs til-
kynnt, að byggingarnefnd hefði
synjað umsókn um leyfi til að
breyta húsinu. Þessari ályktun,
er gerð var einróma í byggingar
nefnd, og staðfest hafði verið af
bæjarstjórn með samhljóða at
kvæðum, hefur eigi verið áfrýj-
að til ráðuneytisins, og á sú um-
sókn því eigi við lengur, enda
hefur umsækjandi í þeim teikn-
ingum, er síðar hafa verið send-
ar, fallið frá ýmsu, er þar er sótt
um.
Ólöglegar teikningar
Eins og þær teikningar er
fylgja hér með, bera með sér, eru
þær eigi með þeim hætti, sem
mælt er fyrir í 4. gr. byggingar-
samþykktar fyrir Reykjavík nr
195, 22. okt. 1945, og hafa því eigi
verið lagðar formlega fyrir bygg-
ingarnefnd, heldur ræddar þar
sem fyrirspurn.
Þar sem hér er um að ræða
þýðingarmikið skipulagsmál, var
teikningunum þegar vísað til um-
sagnar bæjarráðs, er taldi eigi
fært á fundi sínum 1. f. m. að
fallast á umbeðnar breytingar
Var sú ályktun gerð með sam
hljóða atkvæðum og staðfest
bæjarstjórn með samhljóða at
kvæðum. Að fenginni þessari nið
urstöðu samþykkti byggingar
nefnd einróma að svara erindi
stjórnar húsbyggingarsjóffsins
neitandi. Þegar sú ályktun skyldi
afgreidd í bæjarstjórn 7. f. m
óskaði bæjarfulltrúi Framsóknar
flokksins eftir fresti á afgreiðslu
málsins. Sama gerðist á fundi
bæjarstjórnar 21. f. m. og enn
fundi bæjarstjórnar 5. þ. m. Skv.
venju voru þær óskir teknar til
greina. Á dagskrá bæjarstjórnar
19. þ. m., hefur málið enn verið
sett, og er eigi vitað, þegar þetta
er ritað, hverja afgreiðslu það
fær.
Þar sem málið hefur eigi verið
lagt formlega fyrir af umsækj-
anda, og því eigi formlega aí-
greitt, getur ráðuneytið eigi um
það fjallað, sbr. 4. gr. laga nr. 61,
31. okt. 1944, og ber því þegar af
þeirri ástæðu að vísa því frá.
Til viðbótar þessu er rétt að
taka fram:
Máliff rækilega athugaff
Mál þetta hefur verið mjög
rækilega athugað af ýmsum sér-
fræðingum, og hefur enginn
þeirra nokkru sinni talið fært að
leyfa breytingar á húsinu svo sem
um er beðið. Þessi afstaða hefur
margsinnis verið tjáð stjórn hús-
byggingar sj óðsins.
Eins og hjálögð bréf samvinnu
nefndar um skipulagsmál, dags.
18. þ. m., bera með sér, hefur
alltaf verið gert ráð fyrir, að
húsalína við Fríkirkjuveg yrðí
töluvert ofar en framhlið hússins
nr. 7 er nú. Verður að teljast frá-
leitt að hverfa frá þeim sjónar-
miðum.
Þá má benda á það, að umferið-
arskilyrffi eru mjög erfið í ná-
grenni hússins. Annars vegar er
mikil umferðargata, Fríkirkju-
vegur, þar sem bifreiðastöður eru
mjög óæskilegar, enda bannaðar
að nokkru leyti nú fyrir skömmu.
Hins vegar liggur að húsinu
mjög þröng gata, Skálholtsstígur.
og er mjög erfitt að aka af þeirri
götu inn á fyrirhuguð bifreiða-
stæði, sem eru á teikningu talin
19. Er það bersýnilega allt of lág
tala, þar sem um samkomuhús
er að ræða. Hin sívaxandi bif-
reiðaeign Reykvíkinga krefst
stöðugt meiri bifreiðastæða. At-
huganir er bæjaryfirvöld hafa
látið fram fara, sýna, að eigi er
fært að leyfa nýbyggingar nema
séð sé fyrir bifreiðastæðum og
þykir óráðlegt, að minna en 1
bifreiðastæði komi á hver 10
sæti í nýjum samkomuhúsum.
Ættu því bifreiðastæðin eigi að
vera færri en 35 og jafnvel allt
að 48.
Þetta eru þau höfuðatriði, er
afstaða bæjaryfirvalda í þessu
máli byggist á.
Auk þess má geta þess, að stað-
setning neyðarútgangs skv. teikn-
ingu er talin mjög vafasöm og út-
göngudyr of þröngar.
breytingar, er þegar hafa veriff
gerffar án leyfis og án þess nokk-
ur ábyrgur meistari hafi umsjón
meff þeim, eru ekki einu sinni í
samræmi viff þá uppdrætti, sem
óskaff er samþykktar á.
Út af þeim breytingum er
leyfðar hafa verið á Oddfellow-
húsinu og vitnað er til í bréfi
stjórnar húsbyggingarsjóðsins, er
rétt að taka fram, að þar er ein-
ungis um það að ræða, að sett er
nýtt þak á húsið til að forða því
frá skemmdum. Notkun hússins
er hins vegar hin sama eftir sem
áður.
Hér er því um ósambærilega
hluti að ræða. Þess má geta, að
leyfðar hafa verið nokkrar breyt-
ingar á timburhúsum í Miðbæn-
um og við hann. Hins vegar hafa
ekki verið leyfðar breytingar
steinhúsum, er standa í vegi fyrir
skipulagi, enda ólíku saman að
jafna. Breytingar þær, er leyfðar
hafa verið á timburhúsum eru
allar óverulegar, ef miðað er við
endurbyggingu þá, sem virðist
fyrirhuguð á hinu gamla íshúsi
að Fríkirkjuvegi 7.
Engin leyfi og enginn ábyrgur
meistari
Enn má geta þess, aff
Boffin lóff viff Hagatorg
Eftir að synjað hafði verið um
leyfi til breytinga, bauð borgar-
stjóri, að fenginni samþykkt bæj
arráðs, stjórn húsbyggingarsjóðs-
ins mjög eftirsótta byggingarlóð
á svæðinu milli Suðurgötu og
Hagatorgs og jafnframt, að bæj-
arsjóður skyldi kaupa íshúsið,
skv. mati dómkvaddra manna.
Hefur því bréfi aldrei verið svar-
að. Er hér um að ræða óvenju-
lega hagstætt tilboð til aðila und-
ir slíkum kringumstæðum.
Fullyrðingar stjórnarinnar um
„freklega valdníðslu“ og annað
slíkt, eru eigi taldar svara verð-
ar“.
Eftir að borgarstjóri hafði gert
grein fyrir málinu og lesið upp
uppkastið að svarbréfinu, tók
Þórarinn Þórarinsson (F) til
máls og sagði að aðalfulltrúi
flokksins, Þórður Björnsson,
hefði óskað eftir frestun á mál
inu og hefði hann vafalaust haft
til þess gildar ástæður, en sér
væri ekki kunnugt um, hvað fyr-
ir honum hefði vakað. Kvaðst
hann ekki þurfa að ræða þetta
mál frekar, enda mundi bréf'.ð
verða sent til umsagnar húsbygg-
ingarsjóðs Framsóknarflokksins
Að loknum þessum umræðum
var uppkastið að bréfinu sam-
þykkt og hefur það nú verið sent
þær | ráðuneytinu.
íólagiafit \
LITASETTI
Skemmtileg fl
dæúradvöl j
fyrir unga sem I
sem gamla
ÍSqo&jdf
= f n
5LEÐI
VEROAMDf
HMOÐLEIR
fyrir börn.
Leikfang, sem
þroskar hugann.
PPHRINN
Símar: 11496 — 11498
íiiiiiHiiiiiiimiiiiiiimiiiiiiiiiiiuiiiiiiiimiiiiiiiiiiimiiiiuuiiiiiiiiiiitimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiit
Góðar bœkur
til jólagjaía
á mjög hagstæðu verði, þar á meðal
úrval bóka
handa börnum og
unglingum
á lágu verði
Öldin okkar l-ll
og
Öldin sem leið l-ll
00 fleiri bækur seldar gegn afborgunum
Bókamoikaðui Iðonnai
Skeggjagötu 1 (Snorrabrautarmegin) — Sími 12923