Morgunblaðið - 22.12.1957, Blaðsíða 23
Sunnudagur 22. des. 1957
MORGUNBLAÐIÐ
23
HjÖtfur Jónssou - kveðja
Þú guð, sem stýrir stjarnaher
og stjórnar veröldinni.
Þegar syrtir að á lífsleiðinni,
þá er það skjól og huggun að
leita til þín og biðja, þegar elsk-
aður eiginmaður, faðir, afi, bróð-
ir og vinur er kvaddur á braut
á bezta aldri, fullur lífs og starfs-
qrku, þá stöndum við undrandi
eftir á ströndinni og verðum að
játa fávizku okkar á tilgangi
lífsins, drúpum höfði og biðjum.
í straumi lífsins stýr þú mér
með sterkri hendi þinni.
Þessar og þvílíkar hugsanir
koma mér í hug við andlát þitt
vinur. Okkur, sem fylgzt höfum
með líðan þinni, síðustu mánuði,
vikur og daga, hefði ekki átt
skilnaðarstundin að koma á
óvart, og þó, erum við ekki alltaf
þeirri stundu óviðbúnir?
Sl. föstud. var Hjörtur Jónsson,
Sogamýri 14, Reykjavík, lagður
til hinztu hvílu. Hann andaðist
á St. Jósepsspítala hinn 12. þ. m.
48 ára að aldri. Hjörtur var
fseddur að Helgadal í Mosfells- 1
sveit 8. nóv. 1909, sonur hjón-
anna er þar bjuggu þá, Jóns
Jónssonar og Ingibjargar Jóns-
dóttur.
Eignuðust þau hjón 16 börn,
tólf komust upp, en eru nú ekki
nema tíu á lífi, öll voru þau
systkin vel gerð bæði til sálar
og líkama.
Haustið 1918 missti Ingibjörg
mann sinn af afleiðingum
Spönsku veikinnar, hafa það
verið erfiðir tímar er þá fóru
í hönd fyrir Ingibjörgu, en með
guðs hjálp og góðra manna fór
þó allt vel, sum börnin voru
tekin í fóstur, en elzti sonurinn,
Sigurður, veitti búi móður sinn-
ar forstöðu, þó barn að aldri.
Áður var Hjörtur kominn í
fóstur að Blikastöðum til þeirra
Kristínar og Magnúsar, var það
vorið 1916, hann þá sjö ára.
Dvaldi hann síðan á Blikastöð-
um þar til er hann fór í Hvann-
eyrarskóla haustið 1928.
Hlýjar kenndir bar Hjörtur í
brjósti til fósturforeldra sinna og
systra, af eigin raun veit ég að
samband þeirra fóstursystkina
var svo innilegt að það gerist
ekki betra hjá beztu systkinum,
og sjálfur sakna ég þín, sem
bezta bróður.
Vorið 1932 giftist Hjörtur eft-
irlifandi konu sinni, Margréti
Runólfsdóttur, ættaðri úr öræf-
um, hinni mætustu konu er
reyndist honum góður og sam-
hentur förunautur á lífsleiðinni.
Þá um vorið fluttust þau að
Hvanneyri, gerðist Hjörtur þar
ráðsmaður, og jafnframt smíða-
og leikfimikennari að vetrinum.
Sýnir það bezt hve miklum
KOVO,
Prag, Tékkóslóvakíu.
ZEIA
ferða-ritvélar og skrifstofuritvélar með sjálfvirkri spássíu-stillingu —
Sterkar og öruggar
en þó léttbyggðar. Tilvalin jólagjöf.
Elnba-umboð:
MARS TKADING COMPANY,
KLAPPAKSTÍG 20 — SlMI 1-7373 (tvær línur).
hæfileikum andlega og líkam-
lega maðurinn var búinn, að
Halldór Vilhjálmsson, þjóðfræg-
ur athafna og orkumanni, skyldi
fela þessum unga manni jafn
vandasamt starf, og vel reyndist
Hjörtur þeim vanda vaxinn. Hef
ég marga skólapilta frá Hvann-
eyri heyrt lofa bæði verkstjórn
hans og kennslu og þó hvað helzt
smíðakennsluna, enda var hann
svo hagur að sama var hvort
hann fékkst við tré, járn eða
stein.
Ráðsmaður var hann síðan á
Hvanneyri til vorsins 1941, fyrst
út tíð Halldórs Vilhjálmssonar,
og eftir það hjá Runólfi Sveins-
syni.
Frá Hvanneyri fluttust þau
hjón til Reykjavíkur, fengu land
að Sogamýri 14, byggðu sér þar
hús og hafa búið þar síðan fjöl-
þættum sveitabúskap með kýr,
svín, hænsni og mikla garðrækt.
Allt fór þar vel úr "nendi, enda
skorti þar hvorki alúð né vand-
virkni. Mátti með sanni segja
um öll störf Hjartar, að verkin
lofa meistarann.
Nokkurn þátt tók Hjörtur í
félagsmálum og þó líklegur til
meiri afreka á þeim vettvangi
hefði honum enzt líf og heilsa.
Geta má þess að hann var í
sóknarnefnd Bústaðasóknar. Um
árabil var hann í stjórn Sam-
bands eggjaframleiðenda og síð-
ustu árin formaður þess. Þá var
hann aðalhvatamaður að því að
bændur í Reykjavík stofnuðu
deild innan Mjólkurfélags Reykja
víkur.
Þau Hjörtur og Margrét eign-
uðust fjögur börn, elztur er
Kjartan, nemandi við Vélstjóra-
skólann, Geir rafvirkjanemi,
heitbundinn Svölu Ágústsdóttur,
eiga þau einn dreng, Ingólfur,
sem hefir til þessa unnið við
búskapinn heima og Guðrún
Kristín, sem var fermd nú í
haust. Við það tækifæri fékk
Hjörtur að koma heim af sjúkra-
húsinu og þá um leið var litli
sonarsonurinn skírður og hlaut
nafnið hans.
Þetta var hans hinzta dvöl á
sínu yndislega heimili. Þá stund
voru áhyggjur og kvíði, vegna
heilsu heimilisföðurins útilokuð,
en friður og gleði blöstu mót
vinum og ættingjum, sem litu
inn til að samfagna fjölskyld-
unni.
Heimiii þeirra Hjartar og
Margrétar er eitt hinna mörgu
ágætu íslenzku heimila, þar sem
samhent vinna, góðir húsbændur
og foreldrar, er fyrst og fremst
leggja alla sína orku í það að
börnin hljóti þá menntun og
þroska er verði þeim til farsæld-
ar á lífsleiðinni.
Og nú er hann horfinn, sem
var sverð og. skjöldur þessa
heimilis, mikils er misst, en á
komandi tímum verður oft
stanzað við minningu hins ágæta
eiginmanns, föður og vinar.
Því orðstír deyr aldrei, þeim
er sér góðan getur.
Sigsteinn Pálsson,
Blikastöðum.
VIÐ andlát Hjartar Jónssonar
hafa mörg félagasamtök misst
góðan og einlægan félaga, því
hann var félagslyndur með af-
brigðum og voru honum þess
vegna oft, þrátt fyrir hlédrægni
sína, falin mörg trúnaðarstörf,
því allir vissu, að þar var mað-
ur, sem mátti treysta.
Ég hafði því láni að fagna að
starfa með honum í stjórn Sam-
bands eggjaframleiðenda, en
hann var fyrir nokkrum árum
kosinn formaður þess, þrátt fyr-
ir andmæli hans, og hann gekk
upp í þessu starfi með þvílíkum
áhuga og eldmóði, að við sam-
starfsmenn hans stóðum undr-
andi yfir ósérplægni og starfs-
áhuga, sem var óbilandi, þótt
oft blési á móti. Mörg ferðalög,
bæði innanlands og utan, lagði
hann á sig til að kynna sér sem
bezt menn og málefni, og honum
auðnaðist að leggja þann grund-
völl, sem félagsskapurinn á að
byggjast á í framtíðinni.
Við samstarfsmenn og félagar
þökkum þér, kæri vinur, fyrir
allt þitt starf og biðjum góðan
guð að blessa eiginkonu þína og
börn í söknuði þeirra.
Greinarnar áttu að birtast í
blaðinu sl. föstud., en urðu að
bíða birtingar vegna rúmleysis.
Einar Tönsberg.
Góð jólagjöf
er lampi frá okkur.
Mikið úrval — Lítið í gluggann
Skermabúðin
Laugavegi 15
X-V 510-814
FITAN
HVERFUR FLJOTAR
ðandi WSfH
Kaupið
Karlmannaskóna
Aðalstræti 8 — Laugavegi 20 — Laugavegi 38
>norrabraut 3« — Garðastræti 6
hjá okkur