Morgunblaðið - 21.01.1958, Blaðsíða 14
14
MORGT’NfíLAÐlÐ
Þriðjudag 21. janúar 1958
Ánægjustundir á Higbnry
ALLIR sem eitthvað fylgjast
með enskri knattspyrnu kannast
við Arsenal, enda er það eitt af
betri I. deildarliðunum og líkast
til ríkast þeirra allra. Leikvang-
ur þeirra er í daglegu máli nefnd
ur Higbury, enda þótt hann
heiti réttu nafni The Arsenal
Stadium. Fyrir 10 árum var ég
tvo mánuði i London og sá þá
marga leiki á Higbury og minn-
ist hér ofurlítið á nokkra þeirra.
Arlega fer fram keppni skóla-
drengja milli London og Glas-
gow. Drengir þessir eru á aldr-
inum 14—15 ára. Fyrir þennan
leik og reyndar flesta úrvalsleiki
lék lúðrasveit, sem sýndi um
leið mikla tækni í göngu (mars-
eringu). Þetta kom öllum áhorf-
endum í mjög góða stemningu
sem mér finnst vera yfir öllum
leikum, sem ég hefi séð á Hig-
bury. Knattspyrnuleikur drengj-
anna var mjög vel leikinn þegar
tillit var tekið til aldurs, enda
er knattspyrna kennd í skólum
í Englandi og Skotlandi. Londo.i
vann þennan leik með 3:2.
Það sem aðallega gerði þennan
leik mér minnisstæðan var að
þegar að vinstri útherji London
fékk knöttinn i fyrsta skipti í
leiknum og ætlaði að spyrna
honum strax þá hitti hann ekki.
Næsta skipti þegar knötturinn
ki>pi til hans, þá mistókst spyrn-
an einnig en nú ,bauluðu‘ 50 þús
áhorfendur á hann og þar með
var hann búinn að vera það sem
eftir var leiksins. Þannig geta
áhorfendur eyðilagt leikmenn
með því að gera þá taugaóstyrka
og þar höfum við gott dæmj frá
landsleikunum hér heima í sum-
ar.
Enska landsliðið lék við Svía
í nóvember 1947. Þá léku með
Svíum flestir af þeim mönnum,
sem frægastir hafa orðið sem
atvinnumenn.
Nordalsbræður þrír voru í lið-
inu með Gunnar í fararbroddi.
Nafni hans Gren var einnig með
og Carvis Carison, ef ég man
rétt. Hjá Englendingum var
Swift í marki, B. Wright, Stanley
Mortensen, Finey og Lawton, svo
að nokkur nöfn séu nefnd. Stan-
ley Mathews átti að leika með
en meiddist fyrir leikinn.
Leikurinn var fjörugur og vel
leikinn, enda liðin nokkuð jöfn
Stanley Mortensen var mjög vel
upplagður í þessum leik og gerði
3 mörk með því að brjótast einn
í gegnum vörn Svianna. Lawton
gerði svo eitt mark úr vita-
spyrnu. Leikurinn endaði 4—2
fyrir England.
Gunnar Nordal skoraði eitt
mark eftir aukaspyrnu á vítateig,
sem virtist vera mjög vel æfð
og heppnaðist. Ég man ekki hver
gerði annað mark Svía en um
tíma stóð leikurinn 3—2 og áttu
Svíar þá öllu meira í honum.
Eg man sérstaklega eftir að þá
slapp Gunnar Nordal í gegnum
vörn Englendinga en Swift kom
út og lokaði markinu. Gunnar
skaut af stuttu færi en Swift
beindi knettinum hárfínt fram
hjá stönginni. Swift er um 2
metrar á hæð en mjög snöggur,
sem er óvenjulegt um svo háa
menn. Hann hefir einnig svo
stórar hendur að hann lék sér að
því að taka knöttinn af jörð-
inni með annarri hendi og sveifla
honum yfir höfði andstæðinga
sinna.
Eg sá einnig Arsenal leika við
Blackpool en þau lið voru þá efst
í I. deild.
Leikurinn átti að byrja kl. 2 V2
en ég var kominn í biðröð kl. 11
f. h. Þetta þætti mörgum hér
heima löng bið en ég var þá
nokkrum dögum áður búinn að
bíða í sex tíma eftir að sjá Elísa-
betu Englandsdrottningu og
mann hennar þegar þau giftu sig,
svo að það má segja að ég hafi
verið farinn að venjast þessu
Þegar ég komst inn á leikvang-
inn (sem var um kl. hálf tvö)
þá voru öll sæti og stæði að fyll-
ast. Nokkru síðar var tilkynnt
að inn væru komin 65 þús. en
20 þús. biðu fyrir utan og komust
ekki inn.
Leikurinn var skemmtilegur og
átti Blackpool meira í honum
en Arsenal vann 2—0. Fram-
herjar Arsenal voru mjög fljótir
að hlaupa og þessi mörk skoruðu
þeir þegar knötturinn hafði
verið við mark Arsenal en kom
svo skyndilega fram völlinn og
þeir skildu þá varnarliðsmenn
Blackpool hreinlega eftir.
Það skemmtilegasta í þessum
leik var að sjá snillinginn Stan-
ley Mathews leika sér að and-
stæðingum sínum. Oft réðust
tveir andstæðingar að honum
samtímis en það var eins og
knötturinn væri jímdur við fæt-
urna á honum. Ef andstæð-
ingum hans tókst að setja knött-
inn út fyrir hliðarlínu þá fengu
þeir klapp fyrir því að það þótti
vel gert. Stanley leikur að mín-
um dómi of mikið fyrir áhorf-
endur, því að hann bíður oft eft-
ir andstæðingi aðeins til að sýna
hvernig hann geti leikið sér að
honum, en maðurinn er ótrúlega
leikinn.
Nú í haust sá ég leik á milli
Arsenal og W. B. A. Leikur þessi
er mér minnisstæður fyrir það
að hann er fyrsti leikur sem ég
hefi séð fara fram við rafmagns-
ljós. í fyrri nálfleik þurfti ekki
Ijós vegna dagsbirtu, en þegar
kveikt var, var eins og sólin
hefði brotizt fram úr skýjunum
og skini aðeins á leikvanginn.
Birtan var sem sé mjög góð og
HIN ÁRLEGA hverfakeppni
H. K. R. R. í handknattleik hófst
sl. laugardag. Leikið er í meistara
flokkum karla og kvenna.
Keppnin hófst með leik í
kvennaflokki milli Austur- og
Vesturbæjar. Héldu stúlkurnar
vestan lækjar uppi heiðri „aðals-
ins" í vorri góðu borg og „burst-
uðu“ austankvinnur í ójöfnum
og lítt spennandi leik, sem lauk
með 11 mörkum gegn 3.
Fyrri leikur kvöldsins í karla-
flokki var milli Vesturbæjar og
Kleppsholts. Er skemmst frá að
segja, að leikur beggja liða var
tilkomulítill og illa leikinn; sí-
felldir pústrar og stympingar, en
þó í bróðerni og án áberandi
skaphita. Er leitt til þess að vita,
að handknattleikurinn hér skuli
í vaxandi mæli sveigjast til lík-
amlegra átaka, en um leið hverf-
ur fegurð og hinn sanni andi
leiksins. Kemur nú til kasta dóm-
aranna, en þeir verða að herða
háði engum, en leikið var með
hvítan knött. Liðin voru jöfn og
leikurinn endaði 2—2. Þarna sa
ég mistök sem ég hefi aldrei séó
hjá atvinnumönnum áður.
Knötturinn var gefinn innfyr-
ir vörn Arsenal, vinstri bakvörð-
ur nær honam og markvörður
kallar til hans að gefa sér knött-
inn. í stað þess spyrnir hann yfir
til hægri bakvarðar, sem einnig
snýr að sinu marki og enn kallar
markvörður eftir knettinum. —
Hægri bakv. snýr sér við með
knöttinn og ætlar að leika á einn
sóknarmann W.B.A. en mistekst
og hinn lék beint inn í markið
Báðir bakverðirnir stóðu nú nið-
urlútir og gáfu þar með til kynna
að þeir viðurkenndu mistök sín.
Enginn af leikmönnunum skamm
aði þá en sumir áhorfendur urðu
svartir af vonzku. Þegar leik-
irnir í Higbury eru búnir, kaupa
menn við útganginn blöð með
lýsingu og myndum úr fyrri hálf-
leik þess leiks, sem verið var að
horfa á. Nokkur slík blöð geymi
ég til minningar um ánægju-
stundir á Higbury.
Óli B. Jónsson.
enn á tökunum. Þeir hafa hingað
til sýnt, að þeir eru hinu vanda-
sama starfa vaxnir, en hér á landi
er reglum handknattleiksins bet-
ur og strangar fylgt en með
flestum öðrum þjóðum.
Kleppsholt hafði yfir allan
leikinn, að undanskildu jafntefli
15 : 15, en sigraði á góðum enda-
spretti með 19 mörkum gegn 17.
Síðari leikurinn var milli Aust
urbæjar og Hlíðahverfis. Enda
þótt lið Austurbæjar væri mun
sigurstranglegra, leit lengi vel út
fyrir sigur Hlíða, en á síðustu
fimm mínútum síðari hálfleiks
tókst Austurbæ að rétta hlut sinn
og sigra með þriggja marka mun,
19 : 16.
Keppnin heldur áfram í kvöld
og keppa þá:
í kvennaflokki:
Úthverfin — Vesturbær
í karlaflokki:
Hlíðar — Vesturbær
Austurbær — Kleppsholt
— Reykvíkingar
kjósa
Framh. af bls. 6
skurði, og ófullgerðar götur. Það
má að vísu finna á þessu þá
skýringu, að óttinn við dóm
fólksins sé svo mikill að mönn-
unum sé ekki sjálfrátt, en það
er samt sem áður engin afsökun,
því alltaf verða einhverjir til
þess að veita þessum mönnum
atkvæði sitt, og lágmarkskrafa
þeirra manna hlýtur þó að vera
sú að dómgreind þeirra sé ekki
misþyrmt svo herfilega sem mál-
flutningur glundroðablaðanna
ber vott um. Um hugarfarið sem
að baki slíku er þarf ekki að
fara mörgum orðum, það lýsir
sér bezt í því að Framsóknar-
menn hafa líkt „Esjunni" við
fjóshaug, einungis vegna þess að
hún er í nágrenni Reykjavíkur,
og borgarbúum til yndis og
ánægju. Að sjálfsögðu lita þeir
á fjóshauga sem hinar mestu
menningarhæðir, en þó almenn-
ingur í Reykjavík skilji að vísu
nytsemi hauganna þá munu þeir
líta öðrum augum þar á en Fram-
sóknarmenn.
Ýmislegt er það fleira sem
ástæða væri að rekja hér sem
sýnir fjandskap glundroðaafl-
hér staðar numið að þessu sinni.
Á sunnudaginn kemur munu
Reykjvíkingar gera reiknings-
skil við þessa menn, þeir munu
kjósa með hinu tvígilda atkvæði
sínu um það hvort hér eigi að
ríkja áframhaldandi þróun og
framfarir, frelsi til athafna,
blómlegt atvinnulíf, eða með öðr-
um orðum allt það er menning-
arþjóð sæmir, eða hvort stjórn-
arherrunum eigi að veitast það
vald, að drottna hér yfir lotnum
lýð með svipu valdsins yfir höfði
manna er greiða myndi hverjum
manni það högg sem dygði, sem
gerðist svo djarfur að reyna að
rétta úr kútnum.
Reykvíkingar munu velja fyrri
kostinn, blómlegt menningar- og
framfaratímabil næstu fjögur ár-
in og svara stjórnarherrunum
um leið fyrir svikin með því
að gera sigur D-listans í þessum
kosningum glæsilegri en nokkru
sinni fyrr.
x-D
Hverfakeppnin í handknattleik:
Kleppsholt sigraði Vest-
urbæ og Austurbær Hlíðar
VÖRÐUR — HVÖT - HEIMDABLLUR - ÓÐINN
Almennur kjósendafundur
Sjálfslæðisfélögin í Reykjavík efna fil almenns kjósendafundar í Sjálfsfæilshús-
inu fimmfudaginn 23. jan. kl. 8,30 e.h.
Ávórp flyfja:
ólafur Thors, form. Sjálfstæðisf]okksins
Auður Auðuns, forseti. bæjarstjómar
Úlfar Þórðarson, læknir
Birgir Kjaran, hagfræðingur
Sigurður Sigurðsson, yfirlæknir
Gísli Halldórsson, arkitekt
Bjctrgvin Fredrikssen, verksmiðjustj.
. Guðjón Sigurðsson, iðnverkamaður
Þorv. Garðar Kristjánsson, lögfræðingi
Gunnar Thctroddsen, borgarstjóri
Allt sluéningsfslk lista Sjálfstæðisfle^ksins velkomið á fundiAr meðan húsrúm leyfir.
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík.