Morgunblaðið - 23.02.1958, Qupperneq 1
24 slðUK
45 árgangur.
46. tbl. — Sunnudagur 23. febrúar 1958.
Prentsmiðja Morgunblaðsin*
Þegar kommúnistar komust í ráðherra-
stóla gáfust þeir upp í landhelgismálinu
Um hvað hafa stjórnarflakkarnir
„bundizt fastmælum" eftir
Genfarfundinn ?
Kymdarleg frammistaða sjávar-
útvegsmál aráðherra
KOMTMÚNISTAR hafa nú gert
sér það ljóst, aö umræöur þær,
lem undanfariö hafa farið fram,
bæöi á Alþingi og í blööum um
landhclgismálin, hafa sýnt þjóö-
iuni, hve léleg frammistaöa sjáv
■rútvegsmálaráðherra kommún-
Ista og ríkisstjórnarinnar i heild
hei'ur veriö í þessum þýðingar-
miklu málum. Áöur en vinstri
■tjórnin var mynduð héldu
lccmmúnistar uppi höröum árás-
um á leiötoga Sjálfstæöisflokks-
ins, sem alla forystu höfðu haft
um aögerðirnar í landhelgis- og
friöunarmálunum undanfarin ár,
fyrir að hafa ekki þegar ráðist
í nýja útfævslu fiskveiðitakmark-
Komust i ráðherrastóla —
eg gerðu ekkert
hegar svo kommúnistar eru
ajálfir seztir í ráðherrastóla,
gera þeir ekki neitt í málinu í
hálft annað ár. Hins vegar bera
þeir samráðherra sína svika-
brigslum fyrir að þeir hafi hindr-
að framkvæmdir í landhelgis-
málinu og skamma Sjálfstæðis-
flokkinn fyrir að hann hafi ekki
viljað samvinnu við sig um mál
ið.
Öllu aumari og vesældarlegri
gat frammistaða Lúðvíks Jósefs-
sonar ekki verið, enda lætur hann
nú „Þjóðviljann“ hafa eftir sér
hreystiyrði eftir að hann er flog-
inn til Genfar.
í þessu skrumi sínu í kommún-
istablaðinu segir Lúðvík í fyrsta
lagi, að hann hafi alltaf vitað
hvað átti að gera næst í landhelg
ismálinu. í öðru lagi segir hann,
að íslendingar eigi fullan rétt til
landgrunnsins umhverfis land
sitt.
En þrátt fyrir þessa vitneskju
kommúnistaráðherrans varð nið-
urstaðan sú, að hann gerði ekk-
ert til að framkvæma stefnu sína
í landhelgismálinu eftir að hann
var orðinn ráðherra. Hann át of-
an í sig stóryrðin um að aðrir
hefðu „svikið" í málinu, en tók
þó að brigzla sinni eigin stjórn
um „undanhald“ og „óheilindi“.
Sjálfstæöismenn fúsir til
samvinnu
Það er margsannað, að Sjálfstæð-
ismenn voru fúsir til samvinnu
við stjórnina um landhelgis- og
friðunarmálin. En þeim var ekki
boðið upp á hana fyrr en stjórn-
in með sjávarútvegsmálaráðherr
ann í broddi fylkingar hafði tek-
ið ákvörðun um það, hvernig á
því skyldi haldið, slegið því
föstu að öllum aðgerðum skyldi
frestað fram yfir Genfarfundinn,
sem nú er að hefjast.
Þjóðviljinn hefur það í gær eft-
ir Lúðvík, að þegar frestun að-
gerða fram yfir Genfarráðstefn-
una hefði verið ákveðin, hafi það
jafnframt verið „fastmælum
bundið innan ríkisstjórnarinnar,
hvernig staðið skuli að málúm
að ráðstefnunni lokinni".
Hversvegna var þá beðið?
Við þessar upplýsingar hlýtur
sú spurning að vakna, hvers
vegna hafi þá verið beðið eftir
ráðstefnunni, ef ríkisstjórnin var
búin að „binda það fastmælum",
hvernig hún ætlaði að haga fram
kvæmdum sínum?
Á það má einnig benda, að rík-
isstjórnin, sem segizt hafa boðið
Sjálfstæðisflokknum upp á sam-
vinnu um þessar framkvæmdir
hefur engar upplýsingar gefið
honum um það, hvaða ráðstafanir
hún hyggist gera, um hvað stjórn
arflokkarnir hafi „bundizt fast-
mælurn" í landhelgismálunum.
Sýnir það enn greinilegar en áð-
ur, að þegar Sjálfstæðismönnum
var boðin samvinna um . málið,
var búið að ákveða að fresta öll-
um aðgerðum fram yfir ráðstefn
una og Sjálfstæðisflokkurinn
leyndur því, hvað stjórnin hyggð
ist fyrir um, hafi hún einhverj-
ar ákvarðanir um það tekið, sem
sennilega er einnig ósatt.
Marghrakin blekking
„Þjóðviljinn" endurtekur svo
enn einu sinni í gær þá stórlygi,
að Ólafur Thors hafi „notað ís-
lenzk landhelgisréttindi sem
kaupeyri til þess að reyna að
tryggja sér sölu á óverkuðum
fiski í Bretlandi“.
Þessi ósannindi eru auðvitað
marghrakin. Sannleikurinn er sa
að vinstri stjórnin fékk löndum
arbanninu aflétt í Bretlandi með
því að bjóða fram skilmála sem
Bretar höfðu aldrei árætt að
nefna við Ólaf Thors og fyrrver-
andi ríkisstjórn.
Barátta Sjálfstæöismanna
Kjarni málsins er þá sá, að
kommúnistar óttast skilning ís-
lenzku þjóðarinnar á gifturíkri
baráitu Sjálfstæðismanna fyrir
útfærslu iandhelginnar. Þeir vita
að öll þjóðin man forystu Ólafs
Thors, Bjarna Benediktssonar,
Jóhanns Þ. Jósefssonar, Péturs
Ottesen og fleiri leiðtoga Sjálf-
stæðismanna í þessum málum.
Undir þeirra forystu voru fisk-
veiðitakmörkin færð út og fló-
um og fjörðum lokað árið 1952.
Undir þeirra forystu var þá skap
aður skilningur á þörfum og bar-
áttu íslands fyrir frekari út-
færslu landhelginnar og vernd
íslenzkra fiskimiða.
Myndin sýnir arftaka Montgomerys marskálks í embætti aö-
stoðaryfirmanns NATO-herjanna. Hann heitir sir Richard
N. Gale hershöföingi og hefur hingaö til verið yfirmaöur
brezku hersveitanna í Rínarlöndum.
CerÖ kominn heim?
Stulinistum oftui búin
vuggu í Ungverjulnndi
BÚDAPEST, 22. febr. —
Einkaskeyti frá Reuter.
Samkvæmt áreiöanlegum heim
ildum hefur miöstjórn ungverska
kommúnistaflokksins samykkt að
Sukarno lætur til skarar skríða
gegn uppreisnarmonn um
Er borgarasfyrjöld að hefjasf í Indónesíu!
JAKARTA, 22. febrúar. — Flug-
vélar Jakartastjórnarinnar vörp-
uðu í dag sprengjum á bækistöðv
ar uppreisnarmannastjórnarinn-
ar inn á miðri Súmötru. Jafn-
framt var tilkynnt í Jakarta, að
stjórnin væri ákveðin í því að
hafa hendur í hári „ævintýra-
mannanna“ hið fyrsta. Jafnskjótt
og það hefði tekizt, muni allt
aftur að komast í eðlilegt horf á
eyjunum.
Eldflaugasföðvar
WASHINGTON, 22. febr. —
Fullvíst er talið, að Bretar
hafi í dag undirritað samning
við Bandaríkin þess efnis, að
Bandaríkjamenn annist bygg-
ingu eldflaugastöðva í Bret-
landi
Konunglegur hósti
AOSTA, Ítalíu, 22. febrúar —
Farúk, fyrrum Egyptalandskon-
ungur, liggur nú þungt haldinn
í hótelherbergi sínu. Hefur hann
ofkælst og fengið mikið kvef.
Tveir lífverðir standa við her-
bergisdyrnar til þess að hrynda
árásum fréttamanna, sem vilja
fá að heyra uppgjafakónginn
hósta
í tilkynningu Jakartastjórnar-
innar var ekki getið um sprengju
árásina. Þar var einungis sagt, að
í stjórn uppreisnarmanna sætu
herforingjar, sem hefðu verið
skussar við námið, og stjórnmála
menn, sem barizt hefðu misheppn
aðíi stjórnmálabaráttu.
Stjórnin segir af sér
Jakartastjórnin hefur sett pl-
gert samgöngubann á Súmötru
og hyggst á þann hátt þvinga
uppreisnarmenn til uppgjafar.
Uppreisnarmenn krcfjast
þess, að stjórn Sukarnos segi
af sér sakir kommúniskra til-
hneiginga hennar.
Samkvæmt síðari fregnum
munu flugvélar Jakckrtastjórnar-
innar hafa gert árásir á tvo bæi,
sem eru á valdi uppreisnarmanna
á Mið-Súmötru. Tóku þrjár orr-
ustuflugvélar af Mustang gerð
þátt í árásinni ásamt tveim
sprengjuflugvélum. Óljósar frétt-
ir eru um það, að Jakartastjórn-
in hafi einnig sent árásarflugvél-
ar inn yfir Norður-Celebes, en
þar hefur herstjórnin sagt skilið
við Jakartastjórnina.
Mikil hætta er talin á því að
borgarastyrjöld'-brjótist nú út í
Indónesíu.
„stalinistar“ og aðrir áhangend-
ur Matyas Rakosi, fyrrverandi
kommúnistaforingja í Ungverja-
landi, sem útlægir hafa veriö gerð
ir, skuli öölast rétt til þess að
flytjast aftur til Ungverjalands.
Ólíklegt er samt talið að Rakosi
veröi sjálfum heimilaö að hverfa
til landsins að svo stöddu, en hins
vegar er fullyrt, aö Gerö og Hege
dues fái landvistarleyfi — og ó-
staöfestar fregnir herma, aö þelr
séu nú þegar komnir til Ungverja
lands.
Churchill
að hressast
NISSA, 22. febrúar — Heilsa
Churchills fer nú batnandi. 1
kvöld skýröi læknir hans sv«
frá, aö hitinn hefði minnkaö og
batinn væri jafnskjótur og hana
heföi búizt viö.
Malinovsky hrósar framgöngu Rauða
hersins í Ungverjalandi
„Við verðum alltaf að vera reiðubúnir"
LONDON 22. febrúar — Malin-|
ovsky, landvarnarmálaráðherra
Ráðstjórnarríkjanna, flutti í dag
útvarpsræðu í Moskvu — þar
sem liann sagði m. a., aö Rauð
herinn yrði alltaf aö vera reiðu-
búninn til þess að brjóta á bak
aftur skyndiárásir óvina komm-
únismans. Kvað hann herinn
veröa aö lúta stjórn kommúnista-
flokksins, því að undir liand-
leiöslu flokksins yröi frami liers-
ins mestur. Rcðist hann í þessu
sambandi harkalega á Zhukov,
fyrirrennara sinn, og sagöi hon-
um hafa sézt yfir þetta mikils-
veröa atriöi. Forysta Zhukovs I
licrnaöarmálum hefði verið á
góðri leið með að afvegaleiða
herinn og svipta hann forystu
flokksins, miðstjórnarinnar og
ríkisstjórnarinnar.
Á Djörfung Rauða hersins
Gat Malinovsky þess, að Rauða
hernum hefði vaxið mjög fiskur
um hrygg síðan síðari heims-
styrjöldinni lauk. Hefði honum
bætzt mikill fjöldi nýtízku vopna
svo sem kjarnorku og vetnisvopn.
Sagði Malinavsky, að Rauði her-
inn hefði eftirminnilega sýnt
djörfung og dáð, er hann hefði
brotið á bak aftur uppreisn gagn-
byltingarmanna í Ungverjaiandi
árið 1956. Fyrir þá framgöngu
ætti herinn mikinn heiður skil-
inn, engum blandaðist hugur um
það.
★ Eldflaugar
Þá gat hann þess, að foringjar
í hernum væru nú 3% sinnum
fleiri nú en í styrjaldarlok — og
86% þessara manna væru í æsku-
lýðsfylkingunni. í lok ræðunnar,
sem stóð í 55 mínútur, sagði Mal-
inovsky, að Rauði herinn hefði
nú yfir að ráða eldflaugum, sem
hægt væri að skjóta til hvaða
staðar á jörðu, sem væri.